Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 félk í fréttum Hulda Guðrún Geirsdóttir Haukur Páll Haraldsson OPERU SONGUR Sungu á Carl Orff-hátíð í Munchen Norrænar biskupsfrúr á íslandi iját.íu og sjö biskupafrúr fylgdu sínum eiginmönnum á nor- ræna biskupafundinn 1992 sem haldinn var Islandi dagana 26.- 30. júní. Aldrei hafa fleiri biskupsfrúr verið samankomnar á íslandi á ein- um og sama tíma. Ekki hefur enn verið kosinn kvenbiskup á Norður- löndum og þar af leiðandi voru ein- göngu konur þegar Ebba Sigurðar- dóttir biskupsfrú bauð mökum kirkjuleiðtoganna til málsverðar. Veðrið snerist til betri áttar um helgina og biskupsgarður skartaði sínu fegursta í fyrradag. En á með- an hlýddu eiginmennirnir á erindi um stöðu kirknanna í nýrri og breyttri Evrópu. Norræna biskupa- fundinum lauk í gær og flestar konurnar fara ásamt eiginmönnum sínum, biskupunum, heim í dag. * Operusöngvaramir Hulda Guð- rún Geirsdóttir sópran og Haukur Páll Haraldsson baritón komu við sögu á Carl Orff-hátíð sem nýlega stóð yfir í Munchen í Þýskalandi í tilefni af 10 ára dánar- afmæli tónskáldsins. Carl Orff nýt- ur mikilla vinsælda í Bæjaralandi þar sem hann ól næstum allan sinn aldur í Munchen, og eru tónleikar með verkum hans jafnan vel sóttir. Haukur Páll og Hulda Guðrún voru meðal einsöngvara við flutning á „Carmina Burana", og hlutu þau íofsamlega dóma fyrir frammistöðu sína hjá tónlistargagnrýnanda Siiddeutsche Zeitung, sem lýsti þeim sem framúrskarandi einsöngv- umm. Hulda Guðrún Geirsdóttir lauk nú í vor námi frá framhaldsdeild Richard Strauss Konservatorium í Miinchen. Hún hefur hlotið styrk til þátttöku á námskeiði Nínu Dorl- iac í sumar, en Nína Dorliac hefur verið einn fremsti söngkennari Rússa um áratuga skeið. Huldu Guðrúnu hefur boðist að taka þátt á næsta ári í uppfærslu Staadsthe- ater am Gartnerplatz í Miinchen á óperunni „Die Weise von Liebe und Tod des Comet Christoph Rilke“ eftir Sigfried Matthus. Haukur Páll Haraldsson hefur undanfarið starfað í ópemstúdíói ríkisópemnnar í Miinchen, og hefur hann meðal annars sungið þar hlut- verk greifans í „Brúðkaupi Fígarós“ og konungsins í „Die Kluge“ eftir Carl Orff. Þessar óperur verða ásamt „Cosi fan tutte“ fluttar á næsta leikári í Cuvilliés leikhúsinu í Munchen, en það er eitt elsta bar- okk leikhús í Evrópu og þykir henta einkar vel til flutnings á óperum Mozarts. GESTIR Morgunbladiö/Björn Blöndal Fráfarandi yfirmaður flotastöðvarinnar James I. Munsterman kafteinn til vinstri ásamt eiginkonu sinni Valerie Catherine Bergquist og börnum - og Charles T. Butler kafteinn nýr yfirmaður ásamt eigin- konu sinni og börnum skera stærðar rjómatertu sem bökuð var af tilefni dagsins. KEFLAVIKURFLUGVOLLUR Nýr yfirmaður flotastöðv- ar vamarliðsins Charles T. Butler kafteinn tók við sem nýr yfirmaður flota- stöðvar vamarliðsins við hátíðlega athöfn fyrir skömmu að viðstöddum yfírmönnum og tignum gestum. Butler tekur við af James I. Munst- erman sem gegnt hefur þessu starfi um tveggja ára skeið. Athöfnin hófst með þvi að yfír- mönnum og gestum var fylgt í sal- inn. Þá var heilsað með fánum og þjóðsöngvar íslands og Bandaríkj- anna leiknir. Ávörp fluttu Thomas F. Hall yfírmaður vamarliðsins, Róbert Trausti Ámason sendiherra og James I. Munsterman sem við þetta tækifæri var sæmdur orðunn- i„„The Legion of Merit“. Að sögn FViðþórs Eydal upplýsingafulltrúa vamarliðsins eiga viðhafnir við yfír- mannaskipti í her og flota sér langa sögu, allt til heija Rómveija til foma og er tilgangurinn sá að vald og ábyrgð yfírmanns flytjist manna í milli með votta viðurvist. Charles T. Butler kafteinn sem nú hefur tekið við sem yfírmaður flotastöðvarinnar er fæddur í Was- hington D. C. og útskrifaðist hann úr Háskóla Bandaríkjaflota - U. S. Naval Academy - í júní 1969. But- let hlaut flugþjálfun í Pensacola í Flórída árið 1971 og var um hríð flugstjóri á P-3 Orion flugvélum. Hann lauk námi í foringjaskóla Bandaríkjahers - Armed Forces Staff College - í Norfolk í Virginíu árið 1981. Frá þeim tíma hefur Butler gerigt nokkmm ábyrðarmikl- um yfirmannsstöðum og hlaut flug- sveitin „Rauðu riddararnir" margar viðurkenningar fyrir frábær störf undir hans stjóm. Hann lauk svo námi í foringjaskóla hersins - Nat- ional War College - og starfaði á vegum vamarmálaráðherra Banda- ríkjaheijanna ásamt nefnd skipaðri af Bandaríkjaforseta að endurskip- ulagningu um kaup - og kjaramál bandaríska hermanna. Butler kaf- teinn er kvæntur Robyn Lee Cook frá Salisbury í Maryland og eiga þau tvö böm Wendy Michelle og Todd David. -BB COSPER COSPCR UOM 9! 11 Ég sé hér í blaðinu að það er komið vor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.