Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 Minning Friðrik Jesson, Vestmannaejyum Fæddur 14. maf 1906 Dáinn 3. september 1992 Friðrik Jesson var einstakur mannkostamaður, kennari, íþrótta- maður, forgöngumaður, en fyrst og fremst var hann drengskaparmaður og vinur samferðamanna sinna, leið- togi af Guðs náð og ávallt sam- kvæmur sjálfum sér sem fyrirmynd. í Vestmannaeyjum setja fjöllin hinn sterka svip á náttúruna, samfélagið allt. Þannig hafa Friðrik Jesson og eftirlifandi kona hans, Magnea Sjö- berg, sett svip á sitt samfélag alla tíð í takt við hin fíngerðu og hnar- reistu fjöll Eyjanna. Svo samstiga hafa þessi yndislegu hjón verið alla tíð og glæsileg, að það brást ekki ekki hvort sem maður hitti þau á göngu eða í ökuferð, þá komst mað- ur í hátíðarskap. Lengst af starfaði Friðrik, eða í daglegu tali hann Figgi okkar á Hól, sem íþróttakennari, þangað til hann við venjuleg starfslok tók að sér uppbyggingu Náttúrugripasafns Vestmannaeyja. Venjuleg starfslok sagði ég, því þegar hann var kominn á þann aldur sem menn leggjast að öllu jöfnu í helgan stein, hóf hann forgöngustarfið í Náttúrugripasafn- inu og skilaði því með glæsibrag og á heimsmælikvarða. í því sem öðru var honum meira gefið en flestum öðrum. Á yngri árum var Friðrik í hópi bestu íþróttamanna landsins, einn af íslandsmeisturum okkar og kom ekki á óvart. Jafnvel þegar hann var kominn á efri ár datt manni í hug að hann gæti tekið stöngina og sett nýtt íslandsmet, slíkt var fjaðurmagnið í þessum manni. í Ieikfiminni kenndi hann okkur mannasiði og framgöngu, áræði og kapp en umfram allt á prúðmannieg- um grunni og hann gaf ekki tommu eftir, maður komst ekki upp með neinn moðreyk. Kennsla hans og leiðsögn hefur nýst manni ævina alla og aldrei slegið fölva á. Minning Nú haustar að, ekki að eins í skóginum okkar heldur einnig i mannlífínu hér á Hallormsstað. Vin- ur okkar Guðmundur Jónsson er látinn. Við vorum slegin er við fréttum hversu alvarleg veikindi hans voru. Guðmundur tók sjúkdómi sínum af sömu stillingu og öllu öðru. Síðustu dagar Guðmundar hér á Hallorms- stað voru honum miklir hamingju- dagar í faðmi fjölskyldu sinnar. Einstök var gleði þeirra hjóna yfír heimsókn sonar, tengdadóttur og bamabama. Guðmundur fæddist á Freyshól- um 7. mars 1930 og lést 2. septem- ber síðastliðinn. Guðmundur ól allan sinn aldur á Upp-Héraði en lengst af bjó hann, ásamt eiginkonu sinni, Heiðrúnu Valdimarsdóttur, á Hall- ormsstað. Einkasonur þeirra, Jón, vélstjóri, býr og starfar í Njarðvík. Guðmundur var hæglátur og dagfarsprúður maður. En það sem einkenndi hann þó mest í öllu sam- starfí var einstök samviskusemi og lipurð. Guðmundur hefur auk annarra starfa séð um aðdrætti fyrir Hall- ormsstaðaskóla um áraraðir. Á hveijum þriðjudagsmorgni kom hann í skólann, sótti innkaupalist- ann, fékk sér kaffí í eldhúskróknum og voru það ávallt góðar stundir því Guðmundur var einstaklega hlý- legur og skemmtilegur maður. Áð kvöldi er hann hafði sinnt erindum á Egilsstöðum og græni Benzinn Fyrir vináttu Friðriks vil ég þakka og þeirra hjóna og stuðning þeirra hjóna sem bakhjarlar sjálfstæðis- manna alla tíð. Það er skarð fyrir skildi og mikill sjónasviptir, en eftir standa langvinn áhrif Friðriks á samferðamenn sína með sínu hóg- væra og fagra fasi, en markvissa. Eftir stendur Náttúrugripasafn Vestmannaeyja með uppstoppuðum dýrum hans og lifandi fískasafni sem hann lagði sál sína í, enda er það eitt af bestu slíkum söfnum í heimi að gæðum þótt það sé í sjálfu sér ekki stórt að vöxtum. Það er verð- ugt verkefni í minningu Friðriks Jessonar og málefnisins sem hann kom á legg til frambúðar að byggja safnið upp í nýju húsi og fögru, sér- hönnuðu til þess starfs senv um er að ræða. Það er sárt að sjá á eftir Friðrik Jessyni, sakna vinar og varðmanns hins góða, jákvæða og uppbyggi- lega, en efst í huga er þakklæti, auðmýkt og virðing til manns á leið- arlokum þessa heims. Megi góður guð styrkja vini og vandamenn, styrkja þá til þess að bera þá reisn sem var Friðrik Jes- syni svo eðlileg. Árni Johnsen. Það var á liðnu vori sem ég hitti Figga í seinasta sinn. Ég færði þeim hjónunum nokkur svartfuglsegg og þáði hjá þeim veitingar í leiðinni, eins og ég hef gert nokkur undanfar- in vor. Þessar stuttu heimsóknir mínar til Figga og Möggu hafa gef- ið eggjatökunni aukið gildi, því hvergi hafa ný svartfuglsegg verið betur þegin en hjá þeim. Hlustað var með athygli á sögur úr bjarginu, og svo var hjartahlýjan með kaffí- meðlætinu ósvikin. í þessum heimsóknum snerist umræðan að sjálfsögðu um bjargsig og fuglalíf og fékk_ ég nrörgum spurningum svarað. Ég áttaði mig var affermdur féllu enn á ný mörg spaugsyrði. Viðvik hans fyrir okkur staðarbúa voru einnig ófá, því bón- betri mann var vart hægt að hugsa sér. Við söknum þess að hafa Guð- mund ekki lengur hjá okkur. Við sendum ykkur, Heiðrún, Jón, Magnea', Heiðar, Þór, íris Mjöll, Ásta Svandís og systkinum frá Freyshólum, samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Starfsfólk Hallorms- staðaskóla. snemma á því að Figga var það mikil nautn að spjalla um náttúru- fræði og veiðimennsku. Hann hafði ákveðnar skoðanir sem hann rök- studdi með óvenju djúpum skilningi þess sem skoðar dýpra og skynjar öðrum betur. Hann var alinn upp í veiðimanna- samfélagi og var árum saman fremstur í flokki snjallra veiði- manna. Ég geri greinarmun á þeim sem „veiða“ og þeirra sem eru veiði- menn. Sannur veiðimaður er sá einn sem ber virðingu fyrir bráðinni og þeim reglum sem í gildi eru. Hann gefur sér tíma til að skoða og spá í hegðun og atferli bráðarinnar og lætur jafnvel þar við sitja. Meðal veiðimanna í úteyjum bera oft á góma veiðiafrek fyrr og síðar og eru menn ekki alltaf sammála um ágæti náungans. En þegar nafn Figga á Hól er nefnt, þá er það með virðingu og fer aldrei á milli mála að hann var í hópi bestu fjalla- og veiðimanna á sínum tíma. Menn eru sammála um að fáir léku sum afrek hans eftir í dag, sem mörg hver eru sveipuð ævintýraljóma. Þar nægir að nefna róður hans við eyjarnar á kajak með hundinn Prins að veiðifé- laga.'' Það fór ekki á milli mála þegar ég kvaddi Figga í vor að heilsan var farin þó hugurinn væri sá sami og enn kæmi glampi í augun yfír kaffi- bolla í úteyjaspjalli. Hann virtist taka veikindum sínum af miklu æðruleysi og sjálfsagt hefur hann vitað með sjálfum sér að leiðin yrði ekki mikið lengrL Það munu aðrir verða til þess að gera minningunni um Figga sem íþróttamanns, kennara og fræði- manns góð skil, en á þeim sviðum hefur hann markað djúp spor í sögu Vestmannaeyja. Veiðimaðurinn er mér hugleikinn, því það var Figgi sem hafði milli- göngu um að kynna mig fyrir ,jarli“ þeirra Bjamareyinga. í Bjarnarey hef ég átt margar dásamlegar stund- ir síðan, við iðju sem ég veit að Figgi naut manna best á sínum tfma. Við systkinin á Laugarásvegi 47 í Reykjavík, systurbörn Friðriks, eig- um öll ljúfar minningar frá gagn- kvæmum heimsóknum í gegnum tíð- ina. Elstu fjögur systkinin eru fædd í Vestmannaeyjum og tala enn um að fara „heim til Eyja“. Það er eitt atriði sem leitar á hugann nú þegar ég skrifa þessar línur og tengist það ekki einhveiju sérstöku atviki. Mæli ég örugglega fyrir munn okkar allra systkinanna, þegar ég nefni hið einstaka og ljúfa samband Figga og Möggu. Mér er það til efs að væntumþykja og gagn- kvæm virðing geti rist öllu dýpra í sambúð fólks. Figgi var lánsamur maður að eignast slíkan lífsförunaut sem Magga hefur reynst. Minning um góðan mann lifir og heldur áfram að miðla okkur hinum um ókomna framtíð. Ég votta að- standendum Figga á Hól samúð mína um leið og honum er þökkuð samfylgdin. Fyrir hönd systkinanna á Laugar- ásvegi 47 Gísli I. Þorsteinsson. Friðrik Jesson er fallinn frá eftir langa og gæfuríka ævi. Margt leitar á hugann, ljúfar minningar frá Hól, sem var næsta hús við bernskuheim- ili mitt, Hlíðarhús. Á Hól var ég heimagangur öll bemskuárin. Bæði var þar frændfólk okkar og svo var Ágústa dóttir Friðriks besta vinkona mín. Fyrstu minningamar um Figga, eins og við kölluðum hann, eru eins og mynd sem blasir við út um eldhús- gluggann í Hlíðarhúsi: Maður geng- ur eftir stígnum, léttur í spori, staldr- ar við og horfir upp í himininn. Hann er að skoða fugla sem fljúga þar hátt uppi í blámanum. Síðan eru ótal minningar frá gönguferðum er oft vom farnar á sunnudagsmorgnum. Alltaf var farið á einhveija spennandi staði, t.d. út á Eiði eða út á Urðir. Þetta voru allt st'órkostlegir staðir, á því lék enginn vafi, Friðrik miðlaði því svo sannarlega til okkar krakkanna að náttúran væri stórkostleg. Að leika sér í kjallaranum á Hól eða að koma þangað niður í vinnu- herbergi Friðriks var ómetanlegt, en hann var af lífi og sál náttúruskoð- ari og náttúruunnandi. Vinnuher- bergið hans var ævintýralegur heim- ur þar sem oft var eitthvað nýtt og spennandi að sjá. Enda þótti það sjálfsagt ef einhver i bænum fann veikan eða meiddan fugl, eða eitt- hvert sérkennilegt fyrirbæri rak á fjörur í Vestmannaeyjum, að leita þá til Figga á Hól með fundinn. Ég held að í þá daga hafi a.m.k. dag- lega einhver bankað þar á dyr í slík- um erindum, að fá Friðrik til að lækna fuglinn eða greina fyrirbærið. Seinna varð ljósmyndun einnig brennandi áhugamál og vann hann þar af næmi og listfengi. Enda kom það ekki á óvart þegar hann setti upp Náttúrgripasafn Vestmanna- eyja hve fallega það var gert og af hvílíkum áhuga. Þar var hinn fæddi kennari sífellt tilbúinn að leiðbeina og fræða. Það sem einkenndi mjög heimil- islífíð á Hól var lífsgleði og var það húsmóðirin Magnea sem átti ekki síður þátt í því, hún sem gat brugð- ið á leik í fjörugt Charleston á eld- húsgolfínu fyrir okkur stelpurnar. Með þakklæti í huga kveð ég Frið- rik og votta ástvinum hans innilega samúð. Jóhanna Bogadóttir. í dag verður til moldar borinn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum Friðrik Jesson frá Hól. Með Friðrik er genginn einn mesti íþróttafrömuður Vestmannaeyja, sem allt frá unglingsárum lét mál- efni íþróttanna, félaga og menning- armála til sín taka. Hann var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Týs 1. maí 1921, þA tæplega 15 ára gamall. Tveimur árum síðar hélt hann til náms í Kaupmannahöfn þar sem hann menntaði sig meðal annars sem íþróttakennari. Fljótlega eftir heim- komuna miðlaði Friðrik þekkingu sinni til annarra og má segja að miklar breytingar hafí fylgt í kjölfar- ið. Með Friðrik kom handknattleik- urinn til landsins og stóð Friðrik fyrir fyrsta utanhússmóti í hand- knattleik sem haldið var hér á landi árið 1925. Þá kenndi hann sund og var einn af baráttumönnum Eyjanna sem börðust fyrir því að sund yrði gert að skyldugrein í skólum. Þegar Al- þingi samþykkti skólasund sem skyldugrein hafði sú kennsla verið stunduð í Vestmannaeyjum um nokkurn tíma. Friðrik var einnig einn af stofnendum Sundfélags Vestmannaeyja. Þáttur Friðriks í íþróttasögunni er mikill. Jafnframt því sem hann sinnti kennslu var hann einnig keppnismaður mikill og afreksmað- ur. Hann varð margfaldur íslands- meistari í fijálsum íþróttum og það fímmfaldur árið 1931 á íþróttamóti íslands. Þá var Friðrik í vaskri sveit Eyjamanna sem hélt íslandsmetinu í stangarstökki um áratuga skeið. Friðrik Jesson var sómamaður og mikil fyrirmynd annarra. Hann var einn af þeim mönnum sem Knatt- spymufélagið Týr stendur í mikilli þakkarskuld við. Slíkir menn eru hveiju félagi nauðsynlegir ef það á að lifa og dafna. Sem lítinn þakklætisvott fyrir ómetanlegt framlag til félagsins okkar var Friðrik sæmdur æðstu viðurkenningu félagsins. Þá var hann meðal annars sæmdur heiðurs- Guðmundur Jóns- son, Hallormsstað viðurkenningu íþróttasambands ís- lands svo og Fálkaorðunni fyrir störf sín. Með Friðrik er genginn góður maður sem félagið kveður hinstu kveðju með þakklæti fýrir allt. Við biðjum góðan Guð að styrkja eiginkonu Friðriks, Magneu Sjöberg, og fjölskyldu á sorgarstundu. Minningin um góðan félaga mun lifa. Hvíli í friði vor góði vinur. Knattspyrnufélagið Týr. í dag verður Friðrik Jesson borinn til grafar. Með honum er genginn einn helsti íþróttafrömuður Vest- mannaeyja. Maður sem með starfi sínu átti stóran þátt í að leggja gmnninn að því öfiuga íþróttastarfí sem við þekkjum í Vestmannaeyjum í dag. Lengst af starfaði Friðrik sem íþróttakennari og náði því strax að kveikja áhuga nemenda sinna á íþróttum og var þeim fyrirmynd sem góður keppnismaður. Þessu fylgdi hann eftir í starfi sínu fyrir íþrótta- hreyfínguna og að því búum við enn í dag. Verk manna eins og Friðriks Jes- sonar verða seint metin að verðleik- um, en starf hans hlýtur að verða þeim sem í dag starfa fyrir íþrótta- hreyfinguna mikil hvatning. Hvatn- ing til að hlú að því starfí sem Frið- rik og samtíðarmenn hans lögðu grunninn að. Afrekum Friðriks Jessonar verða ekki gerð skil í stuttri grein, en þeir sem þekktu Friðrik minnast hans af virðingu og hlýhug. Ég votta ættingjum hans mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning hans. F.h. stjórnar ÍBV, íþróttabanda- lags Vestmannaeyja, Omar Garðarsson, formaður. Haustmót í fijálsum íþróttum var haldið á Melavellinum í Reykjavík 1924. Við strákarnir sem vorum sí- fellt að reyna með okkur á Skóla- vörðuholtinu vorum á hlaupum yfír Tjarnarbrúna á leið út á völl er við sáum þijá léttstíga og glaðværa menn. Einn hélt á bambusstöng. Strimlavafningar á henni sögðu okk- ur til hvers hún var ætluð. „Þessi með stöngina er Vestmanneyingur- inn.“ „Hann sem stökk nærri 3 m í sumar og setti met?“ Við fylgdumst með þeim inn á völl. Fylltumst aðdáun á léttu göngu- lagi þeirra og fijálsmannlegu fasi. Þegar að keppni í stangarstökki kom fengum við enn ástæðu til þess að dá Vestmanneyinginn. Ljósgul kra- gapeysa með breiðum grænum borða um bolinn, gráleitar buxur teknar saman um ökla og eirbrúnir gaddaskór. Það var aldeilis íþrótta- legur svipur á þessum manni. Þarna leit ég fyrsta sinni Friðrik Jesson. Eigi urðu þessi fyrstu kynni áhrifa- minni við að fá að sjá hann lyfta sér yfír 3,17 m og setja þar með íslenskt met í stangarstökki. Hann varð okkur sönn íþróttaleg fyrir- mynd og svo var hann mörgum. Ungur kynntist hann íþróttum í Eyjum. Faðir hans, séra Jes Anders Gíslason, iðkaði morgunleikfími dag- lega. Hljóp og gekk um íjöru svo oft sem tími gafst. Föðurbróðir hahs, Friðrik ljósmyndari, aðstoðarmaður Sigfúsar Eymundssonar, var í verð- launasætum á fyrstu glímumótum Glímufélags Ármanns í Reykjavík 1889 og ’90. Friðrik Gíslason var fyrsti sundkennari í Eyjum. Bjarg- ráðanefnd Vestmannaeyja sem starfaði að bindindi og slysavörnum kom sundkennslunni á 1891 í skjól- sælu viki undir Heimakletti. Þarna var sundkennsla framkvæmd með stuttum hléum til 1934, er hún var færð í upphitaða sjólaug, sem starf- rækt var þar til hraun hvolfdist yfir hana 1973. Ef skoðaðar eru heimild- ir til að mynda til 1914 er Ásgeir, síðar forseti íslands, Ásgeirsson annaðist kennsluna, má lesa sér til um að einn kennir knattspyrnu 1903. Aðrir halda iðkun hennar við og láta eigast við í glímu, til að taka úr sér hrollinn eftir sjógutlið. Einn lagði áherslu á leikfími og húð- strokuæfingar. Lét sundnemendur sýna hvorutveggja á þjóðhátíð. Sund- og glímufélag var stofnað 1894, sem skyldaði félaga að synda 8 sinnum hvert sumar. Ungmenna-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.