Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAPIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 23 V estmannaeyjar Hafnargarðs- vitinn listaverk Vestmannaeyjum. VINNA við styttingu Hörgareyrargarðs, við innsiglinguna í Vest- mannaeyjum, er á lokastígi og er stefnt á að verkinu Ijúki fyrri hluta nóvember. Hafnargarðurinn hefur þa verið styttur um 60 metra og innsiglingin rýmkuð tíl muna. Á enda hafnargarðsins verður settur nýr vití. Vití þessi verður með öðru lagi en aðrir inn- siglingarvitar á landinu því hann er gerður úr listaverki sem Grím- ur Marinó Steindórsson hannaði verk og vita á garðinum. Grímur Marinó hefur verið í Eyjum undanfarið til að fylgjast með smíði listaverksins, en verkið er unnið í Vélsmiðjunni Þór í Eyj- um. Verkið er sjö metra hátt og efst á því verður ieiðarljósið, sem vísar sæfarendum siglingaleiðina til Eyja. Þá verða einnig ljóskastar- ar í toppi þess sem lýsa verkið upp án þess að skerða notagildi vitans eða trufla siglingar. Verkið er unn- ið úr ryðfríu stáli og sýnir ijórar súlur, eina að stinga sér og þijár á flugi. Grímur Marinó er fæddur og uppalinn í Eyjum, en býr í Kópa- vogi. Hann hefur stundað listvinnu í áraraðir. Hann er menntaður jám- smiður og einnig nam hann á lista- sviðinu. Hann nam módeleringu hjá Ásmundi Sveinssyni og teikningu og málun hjá Kjartani Guðjónssyni og Þorvaldi Skúlasyni. Hann segist aðallega hafa fengist við leir- og málaralist á árum áður en hin síð- ari ár hafí hann mest fengist við gerð skúlptúra úr jámi. Auk listvinnu sinnar hefur Grím- ur Marinó fengist við vitavörslu í afleysingum og hefur meðal annars verið vitavörður á Horni, Galtar- vita, í Grímsey og á Stórhöfða um í þeim tilgangi að samhæfa lista- skemmri tíma. Verk Gríms Marinós á hafnargarðinum í Eyjum er ann- að stóra skúlptúrverkið hans sem sett er upp á árinu, hitt var minnis- varði um landpóstana sem hann var fenginn til að hanna. En hvemig stóð á því að Grímur Marinó var fenginn til að hanna vitann á hafnargarðinn í Eyjum? „Árni Johnsen alþingismaður leitaði eftir því við mig að ég gerði hugmynd að verki í þessum til- gangi sem tengdist á einhvern hátt súlu. Ég fór að velta þessu fyrir mér og hugmyndin að þessu verki kviknaði er ég var að róta í af- klippujárnarusli," segir Grímur Marinó. Hann segist síðan hafa gert líkan af verkinu og í það minnsta hafi stjórnendum hafnar- innar litist það vel á það að ákveð- ið var að fara út í að setja verkið á garðinn. „Vélsmiðjan Þór í Eyjum var fengin til að smiða verkið og ég er ákaflega ánægður með vinnu hennar við það. Ámi Johnsen sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði farið á sýningu hjá Grími Marinó í Perl- unni í sumar. Þar hefði komið fram í spjalli við Grím að hann iangaði að útfæra fugl í skúlptúr. Þegar Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Grímur Marinó Steindórsson með líkan af skúlptúrnum sem verður vitinn á Hörgareyrargarðinum í Eyjum. svo farið var að vinna að styttingu hafnargarðsins í Eyjum hefði sér dottið í hug að leita til Gríms Mar- inós með að láta hann útfæra fugl í listaverk sem mætti nota sem vita og hefði árangurinn af því orðið þetta skemmtilega verk sem nú væri í smíðum. Grímur Marinó segir að vitinn sé smíðaður úr sérstöku ryðfríu stáli sem hefur þá eiginleika að það er sýruhelt og mattast ekki við veðrun. „Ég er ákaflega ánægður með að það skuli hafa verið leitað til mín með þetta verk og mér finnst sérlega gott að menn skuli hafa sýnt því áhuga að samtvinna lista- verk og vitann. Þetta er örugglega fyrsti innsiglingarvitinn á Islandi sem einnig er listaverk og reyndar veit ég aðeins um einn annan vita í heiminum sem einnig er listaverk og það er frelsisstyttan í New York,“ sagði Grímur Marinó. — Grímur Sólheimar í Grímsnesi Sjönýjar íbúðir tekn- ar í notkun SJÖ nýjar íbúðir verða teknar í notkun að Sólheimum f Grímsnesi í dag, laugardag. Ibúðirnar eru byggðar fyrir þá sem geta flutt af heimiliseiningum (sambýlum) í sjálfstæða búsetu, og verða 1-2 heimilismenn í hverri íbúð. Þá tekur Óli M. ísaksson fyrstu skóflustunguna að nýjum verk- stæðis- og vinnustofuhúsum að Sólheimum í dag. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Friðrik Soph- usson fjármálaráðherra flytja ávörp við þetta tækifæri, en séra Gylfi Jónsson og séra Valgeir Ástráðsson húsblessun. íbúðirnar sem teknar verða í notk- un eru af þremur stærðum, tvær 80 fermetra þriggja herbergja íbúðir, ein 71 fermetra og fjórar 61 fer- metra. Styrktarsjóður Sólheima er eigandi íbúðanna en þær eru byggð- ar sem félagslegar íbúðir og lánar Húsnæðisstofnun ríkisins 90% bygg- ingarkostnaðgr. Heildarbyggingar- kostnaður er áætlaður 43 milljónir króna. Arkitekt var Ámi Friðriksson, en Almenna verkfræðistofan sá um teikningar á grunnum. Aðalverktaki var Þinur hf. en Borgarhús hf. önn- uðust vinnu við gmnna. Verkstæðis- og vinnustofuhúsin verða tvö sambyggð hús, 223 fer- metrar og 300 fermetrar, eða sam- tals 523 fermetrar að stærð. í nýju vinnustofuhúsunum verður m.a. að- staða fyrir trésmiðju, kertagerð og vefstofu Sólheima. Bygging vinnu- stofu- og verkstæðishúsanna er þriðja stóra verkefnið á sjö árum sem fjármagnað er með gjafa- og söfnun- arfé, sem síðustu sjö ár er að verð- gildi 86 milljónir króna. Basar Kvenfélagsins Hring'sins HINN árlegi handavinnu- og kökubasar Kvenfélagsins Hrings- ins verður haldinn sunnudaginn 1. nóvember kl. 14 í Fóstbræðra- heimilinu við Langholtsveg. Marg- ir fallegir handunnir munir til jólagjafa og góðar kökur verða þar til sölu. Ennfremur verða tíl sölu nýju jólakortin, hönnuð af Höllu Haraldsdóttur, glerlista- konu. Nú eru 80 ár liðin síðan Kvenfélag- ið Hringurinn hélt sinn fyrsta basar. Það var árið 1912 en þá var tilgang- urinn fjáröflun til styrktar bágstödd- um sængurkonum og einnig berkla- sjúklingum. Síðan 1942 hafa Hrings- konur safnað fé til styrktar Barnasp- ítalasjóði Hringsins. Hringurinn hef- Basar Hús- mæðrafélags Reykjavíkur HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavík- ur heldur sinn árlega basar nk. sunnudag, 1. nóvember, að Hall- veigarstöðum við Túngötu. Að venju verður mikið úrval af allskonar handavinnu s.s. sokkum, vettlingum, peysum, húfum, pijónuð- um dýrum, jólatrésdúkum, jólapóst- pokum, jólasvuntum, jóladúkum, pijónuðum og ísaumuðum dúkum, púðum o.fl. að ógleymdum lukkupok- unum fyrir börnin. En í þeim er að finna ýmislegt smálegt sem gleður ur átt því láni að fagna að almenning- ur sýnir félaginu mikinn áhuga og velvilja. Allur ágóði rennur til Barnaspítala Hringsins. (Fréttatilkynning) unga. Þessi jólabasar Húsmæðrafélags- ins er kjörinn vettvangur til þess að nálgast góðar og vel gerðar jólagjaf- ir á sérlega lágu verði. Allur ágóði af sölu basarmuna fer til líknarmála og hefst basarinn kl. 14. (Fréttatilkynning) Norræna húsið Nýjar leiðir gegn krabbameini FIMM fyrirlestrar verða haldnir um nýjar leiðir gegn krabbameini í Norræna húsinu í dag sem hefj- ast kl. 13 á árlegum haustfundi Heilsuhringsins. Fyrirlestúr Ævars Jóhannessonar nefnist: „Nýjar leiðir í krabbameins- lækningum", Hermanns Ragnars Stefánssonar: „Endurhæfing og upp- bygging", Úlfs Ragnarssonar: „And- lega hliðin“, Rafns Líndal: „Átriði sem við getum breytt" og Hrund Helgadóttir fjallar um „Kenningar dr. Siegel.“ Fræðslufundir Heilsuhringsins hafa verið vel sóttir, enda með líflegu yfirbragði og óvæntum uppákomum og öllum opnir. (Úr fréttatilkynningu) _íttu inn á næstu ESSO-stöð. Við bjóðum sérstaka vetrarþjónustu fyrir bílinn þinn. Starfsfólk okkar veit hvað gera þarf. hvernig sem viðrar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.