Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 9 Listræn hönnun! Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir, stílhreinir og sönn eldhúsprýði. Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar. Eínar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 “2 622901 og 622900 Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra 01 mufam Nýsköpun er nauðsyn! Viðfangsefni stjórnvalda, stöðvun út- gjaldaaukningar í ríkisbúskapnum og opinberrar skuldasöfnunar, niðurfelling aðstöðugjalds á atvinnurekstur, aðild ís- lands að Evrópska efnhagssvæðinu og stóraukin framlög til rannsókar- og þró- unarstarfs eru nauðsynlegur undanfari nýsköpunar í íslenzku atvinnulífi að mati Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, í grein í Alþýðublaðinu. EES: hlið að nýjum mögu- leikum Jón Sigurðsson iðnað- ar- og viðskiptaráðherra segir í grein í Alþýðu- blaðinu að efnahagsað- gerðir ríkisstjómarinn- ar, sem og aðildin að EES, undirbúi jarðveg- inn fyrir nauðsynlega nýsköpun í íslenzku at- vinnulífi. Hann nefnir nokkur nýsköpunar- dæmi: „Ég nefni-í fyrsta lagi að Islendingar geta nú horft með eftirvæntingu til þátttöku í atvinnu- og efnahagssamvinnu Evr- ópuþjóða á algerlega nýj- um forsendum. íslenzkur markaður fyrir vöru, þjónustu og fjármagn verður í framtíðinni óskiptur Evrópumarkað- ur með þijú hundruð og áttatíu milljónir manna. Islendingai’ öðlast nýja möguleika til þess að taka þátt i sameiginlegu vísinda- og þróunarstarfi sem greiða mun fyrir ýmis konar nýsköpun." Að sækja störf oglífskjör í orkulindir „Ég nefni í öðru lagi nýtingu orku landsins til uppbyggingar iðnaðar í landinu í samstarfi við erlenda aðila. Það hefur á síðustu árum verið stofnað til sambanda og samninga við erlend fyr- irtæki sem gildi hafa í framtíðinni. Þetta gildir jafnt um orkufreka stór- iðju og smærri fyrirtæki. Við skulum jafnan hafa í huga að stóriðjan styður hinn almenna iðnað, styð- ur smáiðnaðinn en kepp- ir ekki við hann. Einnig verður haldið áfram könnun á hugsanlegri sölu raforku um sæ- streng til Evrópu ...“ Hugbúnaður, heilbrigðis- þjónusta, mat- vælaiðnaður „Ég nefni í þriðja lagi nýsköpun á öðrum svið- um en þar eru möguleik- ar m.a. fólgnir í frekari þróun matvælaiðnaðar en ekki síður í útflutningi þekkingar og tælgabún- aðar í sjávarútvegi. Ég nefni hugbúnaðargerð, ég nefni heilbrigðisþjón- ustuna, ég nefni kvik- myndagerð, ég nefni líka hönnun og framleiðslu tækja og búnaðar fyrir sjávarútveg og matvæla- iðnað til annarra landa ... Þá eru ótaldir vaxtar- möguleikiu* í ferðaþjón- ustu. Þá má líka finna málmsmíði og rafeinda- tækni, ýmis ný útflutn- ingstækifæri sem ég hef hér ekki nefnt.“ Markaðs-, rannsóknar- og vöruþróun „Ég nefni í fjórða lagi í þessu sambandi að nú er að hefjast endurskipu- lagning á markaðsstarfi þjóðarinnar og fyrstu skrefin hafa verið stigin með afnámi einokunar í útflutningsverzlun þann- ig að fleiri aðilar fá nú tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Kynning á iðntækifærum á íslandi meðal erlendra fyrir- tækja verður efld. Með EES-samningun- um opnast okkur auknir möguleikar á þátttöku íslenzkra fyrii*tækja og stofnana í margvíslegu rannsókna- og þróunar- starfi og af hálfu stjóm- valda er m.a. fyrirhugað að hafa sérstakan full- trúa menntamálaráðu- neytisins við sendiráð Is- lands í Brussel, sem á að gegna þar einskonar hjú- skaparmiðlarastarfi milli Islendinga og amiarra EES-þjóða á sviði vis- inda-, rannsókna- og þró- unarstarfs. Ef vel tekst til getur slíkur miðlari fært íslenzkum vísinda- og rannsóknarstofnun- um aðUd að fjölda nýrra viðfangsefna." Indlandskynning á Hótel Sögu SAMVINNUFERÐIR Landsýn hyggjast bjóða skipulagðar hópferðir til Indlands á komandi hausti í samstarfi við breska flugfélagið British Airways og Corporate Travel í Delhi. Þetta er í fyrsta sinn sem ferðir til Indlands eru í boði á vegum ferðaskrifstofunnar og verður sérstak- lega vandað til ferðanna. Um er að ræða tveggja vikna og þriggja vikna ferðir þar sem nokkur fegurstu svæði og borgir landsins verða skoðuð. Gist er á glæsihótelum og oft í höllum sem áður hýstu kon- unga stærstu héraða landsins. Nk. miðvikudagskvöld, 3. mars kl. 20.30, verður sérstök kynning á ferð- um þessum í Átthagasal Hótels Sögu og þar verður sérstakur gestur hr. Kapil Kumria frá Corporate Travel og mun hann kynna fyrstu ferðina sem farin verður 3. september nk. Sýnt verður myndband og skyggnur og ferðatilhögun lýst í smáatriðum. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. (Fréttatílkynning) ...ÞINVEGNA! Vinnuvernd í verki Með stáltá og stálþynnu í sóla Skeifan 3h - Sími 81 26 70 - FAX 68 04 70 ís\mgiandi sveillii Stórsýning Geirmundar Valtýssonar Geirmundur, Berglind Björk, Guðrún Gunnarsdóttir, Ari Jónsson, Maggi Kjartans 8iddu við - Aieð vaxandi þrá Ort í sandinn - Ég er rokkari Fyrir eitt bros - Sumarsæla Ufsdansinn - Þjóðhátið i Eyjum Helgin er að koma I syngjandi sveiflu - Sumarfrí Utið skrjáf i skógi - Meó þér Ég syng þennan söng Á þjóðlegu nótunum Tifar timans hjól - Vertu Ég bið þín - Á fullri ferð Ég hef bara áhuga á þér Látum sönginn hljóma Nú er ég léttur - Nú kveð ég allt Kynnar: Þorgeir Ástvaldsson og Margrét Blöndal. Matseíill: ‘Rjómasúpa rPrincess mcð fmjlakjöti Jíamba- oq ijrísaslcik ittcð ijrilluðum sveppum otj rósnwrínsósu Hppelsínurjónmröiul Hlj'ómsveit GeirmundarValtýssonar leikur fyrir dansi HOTEL TAIiAND bríréttaður kvöldverður kr. 3.900 Verð á dansleik kr. 1.000 Þú sparar kr. 1.000 SÍMI687111 Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.