Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 10 Blómabúð :: Til sölu ein þekktasta blómabúð Reykjavíkur. Frábær staðsetning, góður vörulager og hag- stæð kjör. Tilvalið til að skapa sér skemmtilega, sjálfstæða og arðbæra atvinnu. Upplýsingar aðeins á skrifstofu. ry^TTT77?IT7IV^T1^ SUÐURVE R I SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Hárgreiðslustofa Höfum kaupanda að góðri hárgreiðslustofu. Einnig kaupanda að hársnyrtistofu. Traustir og öruggir kaupendur. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst. r?rrrTTT7I?TT7?P7iWITT T SUÐURVE R I SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Hólahverfi - 5 herb. Rúmgóð 5 herb. íbúð á 2. hæð ásamt sérbyggðum bflskúr. Þvottahús innaf eldhúsi. Tvennar svalir. Hús og sameign í góðu ásandi. Áhv. hagstæð lán 5 millj. Nr. 4013 Ath. skipti á minni eign möguleg. íf S: 685009 -685988 ÁRMÚLA21 DAN V.S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI, DAVÍÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR. Útsýniyfir listasafn Einars Jónssonar - laus Falleg og björt 3ja herb., 103 fm íbúð á 3. hæð í reisu- legu hornhúsi. íbúðin er öll nýstandsett. Þvottaaðstaða í íbúð. Svalir. Góðar geymslur. Lán allt að kr. 5,7 millj. geta fylgt. Lyklar á skrifstofu. Verð 7,8 millj. 2612. Gimli -fasteignasala, Þórsgötu 26, sími 25099. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali Nýkomin til sölu meðal annarra eigna: Skammt frá Lágmúla Ný endurbyggð endaíbúð 4ra herb. á 3. hæð um 90 fm. Danfoss- kerfi. Bílskúrsréttur. Góð sameign. Gott verð. Hveragerði - Reykjavík - hagkvæm skipti Lítil íbúð í borginni eða nágrenni óskast í skiptum fyrir gott einbýlishús í Hveragerði. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. í hinu vinsæla Stekkjahverfi Til sölu steinhús ein hæð 136 fm með um 30 fm bflskúr. Stór ræktuð lóð. Teikn. á skrifst. • • • 4ra-5 herb. rúmgóð íbúð óskst við Álftamýri. Hús með tveimur fbúðum óskast f Vesturborginni. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 EIGNAMH)IIMNH, Sími 67-90-90 • Sídumiila 21 Einbýlishús óskast - staðgreiðsla íboði Traustur viðskiptavinur (sem er búinn að selja) hefur beðið okkur að útvega einbýlishús til kaups. Æskilegt stærð 250-300 fm. Æskileg staðsetning Þing- holt eða Vesturbær. Húsið má kosta allt að 30,0 millj. Staðgreiðsla í boði (andvirði greitt við samning) enda gert ráð fyrir tíðkanlegum staðgreíðsluafslætti. Einleikur á mannsrödd Leiklist Súsanna Svavarsdóttir Leyni Leikhúsið á Sólon Islandus ÞRUSK Handrit og Ieikstjórn: Asdís Þórhallsdóttir Leikarar: Jóhanna Jónas og Vil- hjálmur Hjálmarsson „Þrusk" er sameiti sem Leyni Leikhúsið, nýr frjáls leikhópur, hefur valið um stutta sýningu á flutningi á tveimur einræðum héð- an og þaðan úr bókmenntum og ljóðum, og einum tvíleik sem er ofinn úr Galdra-Lofti, nánar tiltek- ið úr köflum sem snúa að sam- skiptum Lofts og Steinunnar. Fyrri einræðan er einskonar særingarþula, flutt af Jóhönnu Jónas. Þulan er tilraun hinna góðu afla til að særa hið illa burt úr heiminum og hefst á því að brugð- ið er upp brotum úr ofbeldismynd- um á sjónvarpsskjá. Sú sem þuluna flytur, tileinkar sér heift og orð- færi þess illa; í heimi sem einkenn- ist af ofbeldi og myrkraverkum, hafa fordæðurnar það hlutverk að beijast fyrir því góða og finna enga aðra leið en gamla góða orð- tækið; „með illu skal illt út reka.“ Jóhanna flutti þuluna af miklum krafti; framsögn hennar er skýr og svipbrigði sterk. Hinsvegar var raddbeitingin ekki mjög blæ- brigðarík og er þar fremur um að kenna handriti, en leikkonunni, þar sem textinn er hlaðinn heift og lít- ið um andstæður í honum. Seinni einræðan er flutt af Vil- hjálmi Hjálmarssyni. í henni mælir rithöfundurinn, Trígorín að flytja texta Konstantíns, sem kemur úr höfði Tsjekovs - og þó. Kannski er það Tsjekov sem mælir en þyk- ist vera einhver annar; einhver Trígorín, eða Konstantín. En text- inn snýst um öryggisleysi og von- brigði rithöfundarins, sem þrátt fyrir kvöl sína skrifar stjórnlaust; er knúinn einhverri þörf og við skriftirnar líður honum vel. Hvergi annars staðar. Því miður fannst mér Vilhjálmur ekki fylgja texta- flutningi sínum nægilega vel eftir með svipbrigðum og látbragði, þótt raddstyrkur hans og framsögn séu ágæt. Vandi rithöfundarins varð því ekki nógu áhugaverður. Að lokum var það Galdra-Loftur sjálfur - á tali við Steinunni. Þátt- urinn fjallar um höfnun Lofts á Steinunni og viðbrögðum hennar við henni. Þarna var mikið mis- vægi í leiknum. Jóhanna lék mjög sterkt, bæði í raddbeitingu og lát- bragði, Vilhjálmur var hinsvegar mjög „passívur" hvað þessa þætti varðar. Ég veit ekki hversu viturlegt var að velja Galdra-Loft til flutnings. Mín skoðun er sú að það hafi ekki hentað þessum tveimur leikurum við þetta tækifæri. Leikstjórinn, Ásdís Þórhallsdótt- ir, er að feta sín fyrstu spor í list- grein sinni og verður vissulega gaman að fylgjast með henni í framtíðinni, sem og leikurunum tveimur, sem hér stíga fram til að kynna sig. Það sem helst mætti fínna að þessari sýningu er að mér fínnst leikstjórinn ekki þekkja mátt þagnarinnar og ekki hafa það alveg á hreinu hvar sé best að nýta þögn og hversu lengi. Þetta var áberandi í einræðu rithöfund- arins og þættinum úr Galdra- Lofti. Hreyfíngar leikaranna voru of stórar og of mikið gert af því að láta þá setjast - jafnvel úti í hornum, leggjast á gólfið og snúa sér of mikið. Þetta vann gegn text- anum og virkar á mig eins og leik- stjórinn treysti ekki leikurunum til að koma honum til skila með radd- beitingu svipbrigðum og áhersiu- hreyfíngum. Enda var lítið um að þau skiluðu hugsun með augunum, nema helst Jóhanna í sinni ein- ræðu. Þetta gerði sýninguna í heild dálítið öryggislausa. Til að gæta sanngirni, verður þó að skrifa hluta af öryggisleysinu á þær aðstæður sem leikararnir unnu við. Rýmið sem þau hafa er örlítið. Þau Jóhanna og Vilhjálmur eru því að leika við tærnar á þeim sem sitja á fremsta bekk. Á frum- sýningu voru þau ekki öfundsverð af fremsta bekknum, vegna þess að þar sátu flestir gagnrýnendur fjölmiðlanna og einn leikhússtjóri. Það hlýtur að hafa verið eins og að standa fyrir framan aftöku- sveit, án þess að hafa bundið fyrir augun. Bókaskrá 1991 komin út 1576 bækur komu út á íslandi í hittiðfyrra Á árinu 1991 voru gefnar út á Islandi 1576 bækur og bæklingar, þar af eru bækur sem flokkast undir skáldsögur og smásögur drýgstar eða 376 bækur. Þetta kemur fram í íslenskri bókaskrá sem Landsbókasafn Islands var að senda frá sér. Fylgirit er Is- 51500 Maríubakki - Rvík Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1. hæð. Herb. fylgir í kj. Verð 6,8 millj. Hafnarfjörður Klettahraun Gott einbhús ca 140 fm íbhæð auk kj., bílsk. og blómaskála. Verðlaunagarður. Lindarhvammur Glæsil. efri sérhæð ásafnt risi ca 140 fm. Mikið endurn. Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn- arfirði ca 200-300 fm. Ölduslóö Til sölu góð ca 110 fm íb. í tvíb- húsi á 2. hæð. 4-5 herb. Hringbraut Til sölu góð 4ra herb. ca 114 fm efri sérhæð og einstaklíb. í kj. Getur selst í einu lagi eða sér. Ölduslóð Til sölu tvær hæðir samtals ca 215 fm auk bílsk. á þessum vin- sæla stað. Fráb. útsýni. Laust strax. Nánari uppl. á skrifst. Laufvangur Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á 2. hæð í sex íbúða stigahúsi. Áhv. ca. 2 millj. Hjallabraut Góð 3ja-4ra herb. íb. á 3. hæð í fjölbhúsi. Nýklætt að utan. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., Linnetsstíg 3,2. hæð, Hfj., símar 51500 og 51601 lensk hljóðritaskrá fyrir sama ár. Þar má glöggt sjá hvílík breyting er að verða á útgáfu hljóðrita. Á árinu 1990 voru gefnar út 48 hljómplötur en aðeins 6 árið á eftir. Aftur á móti voru 1991 gefn- ir út 28 geisladiskar ejngöngu á móti 15 árið áður. Utgáfur á snældum eingöngu voru 27 á móti 6 árið áður. Utgáfur á plötu, snæidu og geisladiski voru 25 á móti 4 árið áður. Jafnframt er komin út Árbók Landsbókasafns Islands með fjölda greina, auk árskýrslu, þar sem kemur m.a. fram að bókakostur safnsins var í árslok 423.239 bindi og hafði vaxið á árinu um 8273 bindi. Bókaskráin er mikil að vöxtum þótt hún nái aðeins yfír eitt ár. Landsbókasafnið á að fá allt sem gefíð er út á íslandi og er. því fylgt eftir. Hefur löngum verið stríð að koma skránni út árið eftir, en nú hefur náðst að skráin yfír árið 1991 var prentuð á árinu 1992 og ætlunin að svo verði framvegis. í ársskrána eru færðar bækur og bæklingar sem unnar eru hér á landi á kostnað inn- lendra og erlendra aðila, enn fremur sams konar efni sem unnið er erlend- is og gefíð út að öllu eða einhvetju leyti af íslendingum. Er efnið flokkað eftir höfundanöfnum og einnig eftir efni og seinast er efnisorðalykill. ^.LT,:..4;ý.LT;S;;;V ' :: V '•■■LÍ'VSXv' V:‘ g;:í i íý.'TjVV''.. ■: GÆÐAPLÖTUR FRÁ SWISS pavarac LOFTA PLÖTUR OG LÍM Nýkomin sending , EINKAUMBOÐ Þ.ÞORGRIMSSON Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 Skráin fer til bókasafna hérlendis og erlendis, til margra einstaklinga sem eru ákrifendur og er hægt að kaupa hana. íslensk hljóðritaskrá er fylgirit með íslenskri bókaskrá. í henni er efni gefíð út á hljómplötum, snældum og geisladiskum. Þarna má sjá hvað er á hverju hljóðriti og í nafnaskrá á eftir má fínna höfunda laga og texta, flytjendur o.s.frv. Skylduskil eru á þremur eintökum á útgefnum tón- og talútgáfum. Hafa verið nokk- ur vanhöld á því á liðnum árum en nú hefur verið gerð hörð hríð að inn- köllun hijóðritanna og jafnframt dregið að eldra efni. Árbók Landsbókasafns Framan á Árbók 1991 er mynd úr Flateyjarbók, Grænlendingaþátt- ur. Enda er fyrsta greinin um hina sögulegu Vínlandsferð Flateyjarbók- ar 1893, sem aldrei var farin. Þar segir starfsmaður handritadeildar Konungsbókhlöðu í Höfn, Erik Pet- ersen frá „Frægðarför bókar“, en Dannebrog birti um hana ritstjórnar- grein á forsíðu 6. janúar 1993 og um miklar deilur um lán á bókinni. Sama ár 1893 fór Matthías Jochum- son á heimssýninguna í Chicago, þangað sem átti að lána Flateyjar- bók, og hefur Finnbogi Guðmunds- son landsbókavörður tekið saman grein um þessa Chicagoferð skálds- ins. Þá eru birt bréf til vestur- íslenska skáldsins Stephans G. Step- hanssonar, en bréf hans til Jóns Kærnesteds friðdómara, lögreglu- stjóra og skálds í Winnipeg voru birt í Skírni 1992. Þarna eru bréfín frá Jóni Kémested, sem Kirsten Wolf bjó til prentunar. í árbókinni er grein og skrá um handskrifuð blöð í Landsbókasafni íslands, tekin saman af Eiríki Þor- móðssyni, en talsvert var um útgáfur handskrifaðra sveitablaða og skóla- blaða. Og einnig grein um Alþjóðlega bókanúmerakerfíð á íslandi eftir Regínu Eiríksdóttur. í árskýrlunni er m.a. skrá yfir gefendur bóka og handrita á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.