Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 22
22 MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Fjóiir bandarískir lögreglumenn falla í skotbardaga Trúboðsstöðin Trúboðsstöð sértrúarsafnaðar- ins skammt frá Waco í Texas þar sem David Koresh og áttatíu manns til viðbótar hafast við. A stærri myndinni má sjá banda- ríska alríkislögreglumenn huga að særðum félaga sínum eftir skotbardagann á sunnudag. Reuter Leiðtogi sértrúarsafnaðar heldur börnum í gíslingn Waco, Texas. Reuter. FULLTRÚAR bandarísku alríkislögreglunn- ar, FBI, áttu í gær í stöðugum samningavið- ræðum við leiðtoga sértrúarsafnaðar og fylg- ismenn hans sem hafast við í rammgerðri byggingu skammt frá borgfinni Waco í Tex- as. Tvívegis kom til skotbardaga við bygging- una á sunnudag og féllu þá fjórir lögreglu- menn og tveir meðlimir úr söfnuðinum. Fjöl- mörg böm em talin vera meðal þeirra sem hafast við i byggingunni. Leiðtogi safnaðarins, David Koresh, hefur lýst því yfir að hann muni sleppa tveimur börnum úr byggingunni í hvert skipti sem spóla með ávarpi, þar sem hann lýsir skoðunum sínum, sé leikin í útvarpi. Hafa nokkrar útvarpsstöðvar orðið við þessari beiðni og síðdegis í gær hafði sex bömum verið sleppt úr haldi, að sögn banda- rískra yfírvalda. Hundruð lögreglumanna sátu í gær um bygg- inguna og höfðu brynvarðar bifreiðir og skrið- dreka sér til aðstoðar. Sértrúarsöfnuður þessi á rætur að rekja til safnaðar sem stofnaður var í Los Angeles árið 1929 af manni að nafni Victor Houteff, sem gerður hafði verið brottrækur úr söfnuði Sjö- unda dags aðventista. Er sagt að söfnuðurinn trúi á frjálsar ástir og að heimsendir sé yfírvof- andi. Koresh sjálfur er sagður trúa á að hann sé Jesús Kristur. Hann er sakaður um brot á vopnalögum. Borís Jeltsín vill umboð til að tryggja frið í fyrrverandi Sovétríkjunum Úkraínumenn hafna „stóra- bróður“-hlutverki Rússa Moskvu, Kiev. Reuter, The Daily Telegraph. STJÓRNVÖLD í Úkraínu mótmæltu í gær harðlega ummælum Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, sem hann lét falla á sunnudag, þess efnis að æskilegt væri að Rússum yrði gefið umboð til að tryggja frið á landsvæði fyrrverandi Sovétríkjanna. „I Jkraínumenn hafa aldrei viður- kennt og munu aldrei viðurkenna að Ukraína sé á áhrifasvæði Rússa,“ sagði Mikola Mikhailtjenkó, æðsti ráðgjafi Leonids Kravtjúks Úkraínu- forseta, við Reuters-fréttastofuna. Míkhaíltjenkó sagði að Úkraínu- menn myndu aldrei fallast á að Rúss- ar yrðu á ný einskonar „stóribróðir" þeirra eða einhvers konar „bróðir“ yfír höfuð. „Við viljum samskipti sem byggjast á jafnrétti," sagði hann og bætti við að hann teldi þessi um- mæli Jeltsíns bera þess vott, að Rúss- ar sæktust ennþá yfír yfírráðum á því svæði sem einu sinni var Sovét- ríkin. Jeltsín lét þessi ummæli falla á fundi sem stjómmálamenn úr röðum miðju- og hægrimanna ásamt for- ystumönnum úr iðnaði sátu. „Ég tel að sú stund sé runnin upp að ábyrg alþjóðasamtök, þar á meðal Samein- uðu þjóðimar, veiti Rússum sérstakt umboð til að tryggja frið og stöðug- leika á svæði fyrrverandi Sovétríkj- anna. Rússar hafa mikinn hag af því að stöðva öll vopnuð átök á svæði fyrrverandi Sovétríkjanna," sagði forsetinn. Með því að taka fram að hann ætti ekki bara við bardaga- svæðin í Mið-Asíu og Kákasushéruð- unum virtist Jeltsín vera að fara fram á að Rússar fengju að skipta sér af málum t.d. í Úkraínu og Eystrasalts- ríkjunum. Hann ræddi þetta ekki nánar og í máli hans kom ekki fram hvort að hann væri að boða nýja stefnu eða einungis kanna viðbrögð. Rússar hafa nú þegar reynt að setja niður deilur í nokkrum fyrrum Sovétlýðveldum með mismunandi árangri. Rússneskum hermönnum virðist hafa orðið töluvert ágengt í Moldóvu og Tadsjikistan en óljóst er hversu varanlegur sá árangur er. Þá hefur þeim ekki tekist eins vel upp í að stöðva bardaga milli Georgíu- manna og Abkhaza og Armena og Azera. Fréttaskýrendur hafa bent á að ákveðin kaldhæðni felist í þvl að ummæli Jeltsíns eru um margt sam- hljóða „platræðu" þeirri sem Andrej Kozyrev, flutti á RÖSE-fundi í Stokkhólmi í desember í fyrra. Koz- yrev sagði þá að ekki væri hægt að líta á Sovétríkin fyrrverandi sem svæði þar sem reglur RÖSE ættu almennt við. Þetta væri landsvæði fyrrum heimsveldis Sovétríkjanna þar sem Rússar yrðu að beita öllum aðferðum til að tryggja hagsmuni sína. Skömmu síðar dró Kosyrev ummæli sín til baka og sagði að þetta væri það sem menn ættu von á ef harðlínumenn kæmust til valda I Moskvu. Meint símtal Díönu við James Gilbey vekur upp spurningar Segist óttast þungnn Sidney. Reuter. ÁSTRÖLSK sjónvarpsstöð lék í gær í fréttaþætti áður óbirta kafla úr upptöku af símtali sem haldið er fram að sé milli Díönu prinsessu og vinar hennar James Gilbeys. I upptökunni segir konan að hún ótt- ist það að verða ólétt. Hún segir einnig að hún hafi nýlega séð þátt úr vinsælli sjónvarpsþáttaröð þar sem ein af aðalpersónunum hafi orðið þunguð án þess að eiginmaður hennar hafi komið þar við sögu. í þessum þætti áströlsku sjón- varpsstöðvarinnar ABC, þar sem upptakan var leikin, var reynt að varpa ljósi á hinar pólitísku og fé- lagslegu ástæður þess að öll upptak- an hafí ekki verið gerð opinber til þessa. í þættinum var því haldið fram að ekki hafi verið um að ræða upptöku af símtali í gegnum bíla- síma, líkt og haldið hafí verið fram til þessa, heldur hafi verið um að ræða upptöku venjulegs símtals. Upptakan hafi hins vegar verið með- höndluð tæknilega þannig að svo virtist sem um símtal úr bílasíma hafí verið að ræða. „Þetta símtal átti sér stað á gamlárskvöldi árið 1989 en talstöðvaáhugamenn tóku hins vegar samtalið upp síðar,“ sagði fréttamaðurinn Deborah Richards. Hún sagði að greinilega hefði átt að líta svo út að hið meinta símtal milíi Díönu og Gilbeys, sem og sím- tal sem sagt er vera milli Karls Bretaprins og vinkonu hans Camillu Parker-Bowles, hefði verið tekið upp fyrir tilviljun af áhugamönnum sem hleruðu bílasíma. „Hin raunverulega saga er mun skuggalegri. Þessi upp- taka var ekki gerð fyrir tilviljun og sá sem tók símtalið upp í fyrsta skipti reyndi markvisst að grafa undan konungdæminu," sagði hún einnig. Riina neit- ar sakar- giftum Salvatore „Tótó“ Riina kom í gær í fyrsta sinn fýrir rétt í Palermo á Sikiley og neitaði því að hann hefði verið „foringi allra mafíuforingjanna". Riina er sakaður um að hafa fyrir- skipað morð á hundruðum manna en kvaðst hafa verið hafður til blóra fyrir öll vanda- mál Ítalíu og sætt röngum sak- argiftum „iðrandi" mafíufor- ingja. „Ég er bara verkamaður og fátækur bóndi,“ sagði hann. Franska kosn- ingabaráttan hafin Kosningabaráttan vegna þingkosninganna í Frakklandi 21. og 28. mars hófst formlega í gær. Flestir telja að það eina sem geti talist spennandi við kosningamar sé spurningin um hversu stór sigur hægriflokk- anna verði. Leiðtogar þeirra reyndu að draga úr væntingum kjósenda og sögðu að þeir yrðu að færa fórnir til að blása nýju lifí í efnahaginn og draga úr atvinnuleysinu. IRA viður- kennir tilræði Sprengja sprakk í Camden í norðurhluta Lundúna á laugar- dag með þeim afleiðingum að 15 manns særðust, þar af þrír lífshættulega. írski lýðveldis- herinn (IRA) lýsti verknaðinum á hendur sér og sagði að fleiri sprengjutilræði væru í undir- búningi í Bretlandi. Mótmæli gegn Cha- morro 30.000 manns komu saman á helsta torgi Managua, höfuð- borgar Nicaragua, á sunnudag og sökuðu Violetu Chamorro forseta um að hafa stjómað landinu með Sandinistum, vinstrisinnuðum fyrirrennurum hennar á valdastóli. Fólkið sak- aði Chamorro um að hafa svik- ið loforð sín frá kosningabar- áttunni árið 1990, þegar hún var í forystu fyrir 14 flokkum sem mynduðu Stjómarand- stöðuhreyfínguna (UNO) og bám sigurorð af Sandinistum. Úran-birgðir verði skráðar Alþjóðlega friðarrannsókna- stofnunin í- Stokkhólmi gaf í gær út bók um plúton- og úran- birgðimar í heiminum og sagði að Sameinuðu þjóðirnar þyrftu að hefja skráningu á þessum efnum nú þegar kalda stríðinu er lokið. I bókinni segir að ýmis ríki heims hafí safnað gíf- urlegum birgðum- af plútoni og úrani, sem hægt er að nota í kjarnorkusprengjur, á undan- fömum áratugum. Neita að rann- saka lögmæti hrefnuveiða Ríkissaksóknari í Noregi hefur hafnað beiðni hvalavina um að rannsaka hvort hrefnu- veiðar Norðmanna í vísinda- skyni bijóti gegn lögum um verndun dýra. „Við fáum ekki séð að sjávarútvegsráðuneytið hafí gerst brotlegt við lög,“ sagði saksóknarinn í viðtali við Aftenposten.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.