Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993 49 Minning Signtjón Magnússon Fæddur 10. júlí 1941 Dáinn 27. mars 1993 Við andlátsfregn vinar setur mann ávallt hljóðan. Þá er maður minntur áþreifanlega á þá stað- reynd hve skammt er á milli lífs og dauða, hve tilvera einstaklings- ins er í rauninni undarlegt ferðalag í sviptivindum mannlífsins. Siguijón Magnússon, Siggi há- lofta, veðurathugunarmaður á Keflavíkurflugvelli, er fallinn frá löngu um aldur fram. Og mér sem fínnst svo stutt síðan við Siggi spjölluðum saman yfir kaffibolla í Kolaportinu, aðeins nokkrar vikur, þar sem við rifjuðum upp gamlar sameiginlegar minningar úr hálend- isferðum er við vorum þátttakendur í um árabil með nokkrum vinum í litlum ferðaklúbbi á Víponinum hans Dossa, R-1668. Það var glaður hópur sem ók út úr höfuðstaðnum sérhvert sinn sem haldið var í páska-, hvítasunnu- eða sumarleyfísferðir á sjöunda ára- tugnum og nú eru þetta orðnar góðar og vermandi minningar um hin löngu horfnu ár. Þó að margt væri búið að skoða, bæði í byggð og utan hennar var samt margt eftir að sjá og einnig var gott að endurnýja kynnin við land og þjóð oftar en einu sinni. Auk þess bætt- ust alltaf ný andlit við í hópinn sem fylltu í skörð þeirra er heltust úr lestinni því að hér var ekki um neinn klíkuklúbb að ræða. Þannig liðu þessir sólbjörtu dagar okkar um fjöll og firnindi, frá innstu döl- um til ystu stranda. Norður á Mel- rakkasléttu við heimskautsbaug, inn við Dettifoss, „þar sem aldrei á gijóti gráu gullin mót sólu hlægja blóm“, við dulúð Dyngjufjalla og Öskjuvatns, ógöngum Ódáðahrauns eða í stríðum straumi Köldukvíslar, Tungnaár og vatnanna á Skeiðar- ársandi. Þannig mætti lengi telja og allt var þetta mikið ævintýri. Þegar komið var svo í náttstað héldum við kvöldvökur í tjöldum, sæluhús- um eða undir berum himni, spiluð- um á gítar og hermóníku, sungum, dönsuðum og fórum í alls konar leiki, og loks var sögð mergjuð draugasaga áður en gengið var til náða. í þessu öllu saman var Siggi hrókur alls fagnaðar. Síðsumardag- ar á hálendi Islands eiga sér töfra blátærrar heiðríkju og lognværðar sem ekki á sinn líka í viðri veröld. Svo er einnig um minningu Sigur- jóns Magnússonar í þessum ferðum. Eftirlifandi ástvinum Siguijóns votta ég innilega samúð. Guðmundur Sæmundsson. Þá er Siggi hálofta farinn yfir móðuna miklu, eitt svipbrigði bæj- arins er horfið og bærinn er fátæk- ari á eftir. Það svipbrigði var sér- stakt og var hluti af tilveru og heimsmynd margra manna, sem eru sjálfir um margt sérstakir. Siggi var hlutverkaskiptur, hann var allur að vinnu sinni hjá Veður- stofunni, stundaði vaktir suður á Keflavíkurflugvelli, í því hlutverki var hann aðeins frábrugðinn mað- ur, hann var Seltirningur og fann til þess og skipti hlutverki að vera það. Hann var hluti stórfjölskyld- unnar, hafði á hreinu hvað var hans fólk og háður því. En þar sem honum var hjartað tærast, þar bjó umhyggja og ást hans á dóttur hans. Þetta skynjaði maður vel, þegar gleðimaðurinn Siggi hálofta brá af hlutverki gleðimannsins, sögu- mannsins og félagans, en í því hlut- verki þekkti ég hann best og við æði margir. Það segja frumbyggjar Ameríku ERFIDRYKKJUR *^ Verð frá kr. 850- P E R L \ n sími 620200 ERFIDRYKKJUR Hraunholt - veisluþjónusta Dabbrauni 15, dimar 654740 - 650644. að björninn eigi sér heilagan hring, komi maður nærri honum horfir björninn til manns, komi maður á mörk þess hrings, þá urri björninn, haldi maður enn áfram inn í heilag- an hring björnsins, þá ver björninn sitt. Sem gleðimaðurinn Siggi hálofta, þá var hann utan síns heilaga hrings, hafði komið þar út til skemmtunar, en innan hrings, ætt- arinnar, vinnunnar og dótturinn, þar var Sigutjón Magnússon, al- vörugefínn og stundum þungur. Þegar ég sá tilkynnt lát hans og að útförin hefði þegar farið fram, þá var það eins og vita mátti, í kyrrþey innan heilags hrings. En ég vil kveðja gleðimanninn Sigga hálofta, það er hann sem við þekktum og það er hann sem er farinn og með honum svipur af bænum. Megi honum opnast nýjar dyr á nýjum kaffihúsum og megi gleðin með honum lifa. Þorsteinn Hákonarson. Minning Arndís Haraldsdóttir í dag kveðjum við kæra vinkonu okkar til margra ára, Arndísi Har- aldsdóttur, sem lést á páskadag sl. Andlát hennar kom eins og reiðarslag yfir alla þá sem til þekktu. Við atburði eins og þessa hugleiðum við tilgang lífsins og gerðir forsjónarinnar sem aldrei eru okkur óskiljanlegri en þegar ungu fólki í blóma lífsins er kippt í burtu frá ungum börnum sínum. Um leið og við kveðjum Addý hinstu kveðju viljum við þakka henni allar þær stundir sem við áttum saman og eru dýrmætar minningar um ljúfmennsku hennar og hjartahlýju. En meðan árin þreyta hjðrtu hinna, sem horfðu á eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (T.C.) Við sendum foreldrum Addýar og dætrunum Sísi og Rut og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Anna, Trausti og börnin. -blónistrandi ve Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga ffá kl. 9-22 Fákaferii 11 s. 68 91 20 Höfutn til umráda glœjUegan Jal og bjoðum upp á veitingar á hóflegu verÓi ■ _ aðalfundur SAMSKIPA verður haldinn föstudaginn 30. apríl kl. 15:00 að Holiday Inn í Hvammi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Önnur mál Aðgöngumiðar og önnur aðalfundargögn verða afhent á skrifstofu Samskipa 29. og 30. apríl. Stjóm SAMSKIPA hf. SAMSKIP Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavik • Sími (91) 69 83 00 SIEMENS Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála. Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25. Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. ísafjörður: Póllinn hf., Aðalstræti 9. Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32. Akureyri: Ljósgjafinn, Reynishúsinu, Furuvöllum 1 Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a. Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3. Neskaupstaður: Rafalda hf., Hafnarbraut 24. Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31. Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13. Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43. Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18. Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29. Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2. Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25. (D C 3 co ol oxO* |:8 3 O* ig 3S: oí Q Q' O 7? 7? C 3 qS Z3 Q.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.