Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 52
fólk í fréttum DANMORK Janni Spies með eignir fyrir 4,5 milljarða til sölu Ferðaskrifstofudrottningin Janni Spies er að reyna að selja Hót- el Richmond sem er í miðri Kaup- mannahöfn, tvær Airbus A-300 flug- vélar, skrifstofubyggingar bæði í Kaupmannahöfn og Rungsted og stórt einbýlishús í Hellerup, þar sem foreldrar hennar bjuggu en þau eru nú flutt úr vegna samskiptaörðug- leika við dótturina. Upp úr sauð á milli þeirra í veislu þegar móðir Janni truflaðist yfír söngtexta nokkrum, sem öðrum þótti frekar saklaus. Eins og margir vita, nota Danir öll hugs- anleg tækifæri til að búa til hnitna söngtexta um náungann og þessi gekk of langt að mati móðurinnar. Janni ber á móti fj árhagserfiðleikum Janni segist ekki vera í fjárhags- kröggum þrátt fyrir að dönsku blöð- in hafí að undanförnu gert því skóna. Hitt sé annað mál, að gott sé að hafa peningana lausa, ef á þurfí að halda. Janni bætir því við, að hér sé aðeins um skipulagsatriði að ræða, sem hún hefði fyrir löngu átt að vera búin að afgreiða. Þetta er bara tiltekt, segir hún. Um páskana tókst að selja einbýl- ishúsið og fyrirspurnir hafa borist vegna Hótel Richmond. Janni átti sjálf Hótel Mercuri sem er í miðri Kaupmannahöfn en hefur selt Spies- ferðaskrifstofunni það. Shu-Bi-Dua skopast að Janni Illar tungur láta sitt ekki eftir liggja í umræðunni um Janni Spies og hefur danska hljómsveitin Shu- Bi-Dua samið lag og texta, þar sem gert er grín að Janni. Lagið hefur heyrst nokkrum sinnum í danska útvarpinu, en Janni ber á móti að hafa heyrt það. Platan er væntanleg í verslanir 21. apríl, en Janni kveðst ekki munu verða einn af fyrstu kaup- endunum. Eiginmaður hennar, Christian Kjær, verður fimmtugur 22. apríl og segist Janni hafa nóg að gera með að undirbúa veisluna enda skipti hún meira máli en eitt- hvert lag með Shu-Bi-Dua. Danska þjóðin býður þó spennt eftir að fá að vita hvar og hvernig haldið verð- ur upp á afmælið. Þegar Janni varð þrítug gátu Henrik prins og Margrét drottning ekki mætt til veislunnar, en þau eru mikil vinahjón'Janni og Christian. Nú er hins vegar búist við að þau mæti, en aftur á móti reiknar enginn með að foreldrum Janni verði boðið til veislunnar. Janni segist ekki vera með eign- ir á útsölu, heldur sé hún bara að taka til. COSPER COSPER Nei, nei, ég vil alls ekki hindra dóttur þína í námi, en annað hvort okkar verður að vinna fyrir okkur! 8Ö8Í JÍHHA .SS HUOAClUTMMí ’I Ui(lAJ8 Í4UUÍIOM MORGUNBEAÐIírFTMMTODAGUR-22r-APRÍLri99r Morgunblaðið/J6n Sigurðsson Guðmunda Sirrý Arnardóttir sigraði í Blönduvision. Hnn er ramli þráðnrinn í morgnm sorgarsögnm 29. apríl er reyklaus dagur. Þá geturðu byrjað nýtt líf. KONGAFOLK Hneyksli í uppsiglingu í Hollandi? Beatrix drottning Hollands er þessa dagana dauðhrædd um að hollenska konungsfjölskyldan verði jafn mikið í fréttum og sú breska, því fyrrverandi unnusta Will- em-Alexander elsta sonar Beatrix er að skrifa bók. Yolande Adriaans- en, eins og stúlkan heitir, er mjög fúl yfír því að Willem-Alexander sagði skilið við hana, að því er sagt er vegna þrýsting frá drottningunni. Vegna biturleika gæti henni því dott- ið í hug að skrifa allan sannleikann um samskipti sín og prinsins. Það er kannski ekki svo margt sem hægt er að hneykslast á í fari Willem- Alexanders meðan þau voru saman, en hann mun hins vegar hafa verið nokkuð lausmáll um málefni fjöl- skyldunnar. Skyldi Beatrix drottning hafa sett upp þennan svip þegar hún frétti af útkomu bókar fyrrver- andi unustu sonar hennar? Hafi drottningin hins vegar von- ast til þess.að krónprinsinn sneri sér að kvenfólki með blátt blóð í æðum eftir að hann sagði Yolöndu upp hefur hún orðið fyrir vonbrigðum. Fyrst varð hann ástfanginn af laga- nema, Nathalie Houben, sem stund- aði nám í háskólanum í Leiden, en í skíðafríi í Olpunum féll hann síðan gjörsamlega fyrir Jóhönnu Moos- burger, dóttur hóteleigandans þar. ARSHATIÐ „Blönduvision“ söngvakeppni Arshátíð efstu bekkinga grunnskóla Blönduóss var haldin í félagsheimilinu á Blönduósi fyrir skömmu. Árshá- tíðin er einn af föstu punktunum í tilveru margra Blönduósinga, enda mikið er lagt í hátíðina og metnaður mikill í vali skemmti- atriða. Tekið var á móti árshátíðar- gestum með tónum frá skólalúð- rasveit Blönduóss, hljómsveit sem verður betri og betri undir öruggri stjórn Skarphéðins Ein- arssonar. Fyrsta atriði árshátíð- arinnar var uppfærsla nemenda á leikriti Jónasar Árnasonar, „Drottins dýrðar koppalogn", í leikstjórri Ársæls Guðmundsson- ar kennara. Að loknum kaffiveit- ingum sýndu nokkrar stúlkur dans við góðar undirtektir. Til margra ára hefur loka- hnykkur á skemmtidagskránni verið hin svokallaða Blönduvisi- on-söngvakeppni og svo var einnig nú. Sigurvegari að þessu sinni varð Guðmunda Sirrý Am- ardóttir í 10. bekk og söng hún lagið „Angie“ við undirleik hljómsveitarinnar „John Wayne“ frá Sauðárkróki. Árshátíðinni lauk síðan með dansleik hvar fyrmefnd hljómsveit lék fyrir dansi. Atriði úr leikritinu Drottins dýrðar koppalogn. Morgunblaðið/Silli íþróttamenn Þingeyinga 1992 f.v. Viðar Örn Sævarsson, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Skarphéðinn Freyr Ingason. IÞROmR Mývetningar góðir íþróttamenn Framúrskarandi íþróttamenn Þin- geyinga 1992 eru allir Mývetningar og voru þeir heiðraðir með bikurum og blómum í sambandi við Sam- bandsþing HSÞ. sem haldið var á Húsavík, laugardaginn fyrir páska. íþróttamaður HSÞ 1992 var kjörinn Sigurbjörn Árni Arngrímsson, sundmaður HSÞ Viðar Örn Sævars- son og fijálsíþróttamaður HSÞ, Skarphéðinn Freyr Ingason. Þessir ungu menn hafa allir æft vel og náð þar af leiðandi mjög góðum árangri meðal yngstu keppenda. Á sambandsþinginu fór mestur tíminn í að ræða næsta Landsmót UMFÍ sem halda á að Laugarvatni á næsta ári. Formaður HSÞ er nú Sigurlaug L. Svavarsdóttir, Bim- ingsstöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.