Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 3 Fjöldi jeppa 1989-93 Eftir 1990 var farið að flokka sendi- og pall- bíla með jeppum Fjöldi bíla 19.000 18.000 17.000 (ársbyrjun 1989 1990 1991 1992 1993 16.000 Jeppum hef- urfjölgað um 2.000 á fimmárum JEPPABÍLUM hefur fjölgað um 1.837 frá áramótum 1988-89 til áramóta 1992-93, samkvæmt upplýsingum frá tölvudeild Bif- reiðarskoðunar íslands. Um áramótin 1989 voru þeir 16.720 en um síðustu áramót voru um 18.557 jeppabílar á landinu öllu. Alls voru um 136 þúsund bif- reiðir hérlendis um síðustu áramót þegar einkabílar, fólksflutninga- bílar og vörubílar eru teknir sam- an. Jeppabílum hefur fjölgað á hverju ári síðustu fímm ár, sam- kvæmt yfírliti sem tölvudeild Bif- reiðarskoðunar íslands gerði fyrir Morgunblaðið. Um áramótin 1990 voru jeppa- bílar 16.962 talsins, 17.138 talsins um áramótin 1991 og um áramót- in 1992 voru þeir 18.266 talsins. Eins og sést á þessum tölum er aukningin frekar jöfn milli ára, eða um 176 til 299 bílar, nema á ára- bilinu 1991 til 1992 þegar jeppa- bílum fjölgar um 1.128. Taka verð- ur mið af því þegar þessi mikla aukning er skoðuð, að 'skilgreining á fólksbifreiðum breytist um mitt ár 1990 í kjölfar breytingar á reglugerð um gerð og búnað öku- tækja. Þannig var farið að flokka ýmsar bifreiðar sem áður töldust til vörubíla til fólksbíla. Mokveiði á síldinni Unnið dag og nótt MOKVEIÐI hefur verið á síldar- miðunum í Berufjarðarál und- anfarinn sólarhring. Unnið er dag og nótt í síldarvinnslu Borg- eyjar hf. á Höfn en þar hafa verið unnin rúmlega 80 þúsund tonn af síld á vertíðinni. Rúmlega 30 skip stunda nú síldveiðarnar. Mjög vel hefur aflast á síldarmið- unum í Berufjarðarál að sögn Ár- sæls Inga Ingasonar, stýrimanns á Húnaröst RE. Bræla hamlaði veið- um fram eftir vikunni en spáð er sæmilegu veðri næstu daga. Húna- röst RE landaði um 400 tonnum af síld á Höfn í gær og fer hún öll í vinnslu. Ársæll sagði að síldin væri væn og mikið virtist af hanni. Hann sagði að sjómönnum þætti verðið á vinnslusíld lágt en það er 5,50 til 9,50 krónur kílóið eftir stærðarflokkum. , Öll hjól á fullu „Hér snúast öll hjól á fullu í fryst- ingu og söltun," sagði Halldór Árnason, framkvæmdastjóri Bor- geyar hf., í samtali við Morgunblað- ið. Um 550 tonn af síld bárust til vinnslunar í gær og sagði Halldór að unnið yrði nótt og dag við að vinna aflann. Um 150 manns starfa við síldarvinnsluna hjá Borgey. Halldór sagði að það riðið á miklu að ná að vinna upp í samninga til að halda mörkuðunum. Hann var bjartsýnn á að nægjanlegt hráefni myndi fást til vinnslunnar á vetrar- vertíðinni. / maum Allir í fjölskyldunni eiga erindi í Sparisjóð Hafnarfjarðar. Að stíga fyrstu skrefin • Menntun. • Gifting. • íbúðarkaup. • Barneignir. Sparisjóóur Hafnarfjarðar aðstoðar ungtfólk sem hyggur á húsnæðiskaup m.a. með ráðgjöf um skipulagðan sparnað og skipulagningu á fjármálum heimilisins, greiöslumati vegna húsbréfa og lánveitingum. Fyrirhyggja í fjármálum er sérstök þjónusta Sparisjóðs Hafnarfjarðar við einstaklinga og fjölskyldur. • Greiðsluáætlun • Heimilisbókhald • Skipulagður sparnaður Náðu tökum á fjármálunum með aðstoð Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Fjármál allra í fjölskyldunni * SPARISJÓÐUR HAFNARFTARÐAR Fyrirhyggja í fjármátum • Framtíðar húsnæði. • Ferðalög. • Styrkja börnin til náms. Komdu í Sparisjóð Hafnarfjarðar og þiggðu góð ráð um Skipulagðan sparnað og hvernig hagstætt er að ávaxta spariféð m.a. að teknu tilliti til skattlagningar. Þá er einnig skynsamlegt að huga sem fyrst að lífeyrissparnaði og lífeyrisréttindum almennt. Aö njóta ávaxtanna fótfestu • Starfslok. •Áhugamál. Sparisjóöur Hafnarfjarðar ráðleggur fólki sem komið er á efri ár hvernig skynsamlegt er að ávaxta sparifé á öruggan og arðbæran hátt og veitir ráðgjöf um lífeyrismál. Einnig bjóðum við víötæka greiðsluþjónustu og erum fólki innan handar ef þaö vill skipta um húsnæði. • Fyrsti sparibaukurinn. • Skóli og tómstundir. • Sumarvinna. • Bílpróf. Sparisjóður Hafnarfjarðar leggur áherslu á að fræða börn og unglinga um gildi sparnaðar. START er sérstök þjónusta fyrir unglinga og Liðveisla er þjónusta sem snióin er að þörfum námsmanna í framhalds- og háskólum. • Barnabörn. Að ná

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.