Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993 19 þegar upp er staðið. Eins þurfti að einfalda videotöku Gests.“ „Þótt oft blési á móti fjárhags- lega varð eitt til þess að ég hélt það út að bregðast ekki mínu hug- arfóstri," segir Hrafn. „Þegar ég í upphafí lét þýða handritið á ensku og sýndi það erlendis, fékk ég strax tilboð frá Noregi, Svíþjóð og Banda- ríkjunum frá aðilum sem vildu kaupa handritið, en leist ekki á að láta taka myndina hér uppi á ís- landi á íslensku, heldur á ensku eða sænsku. Aðrir útlendingar vildu leggja fram töluvert fjármagn upp á það að hafa áhrif á lokaklipping- una. En reynsla mín af því að sleppa hendinni af lokaklippingunni í Hvíta víkingnum og I skugga hrafnsins var slík, að mér fannst það ekki koma til greina. Þeim verkum hafði verið misþyrmt án þess að ég gæti afstýrt því.“ Hrafn segir Hin helgu vé frá upphafi til enda nákvæmlega eins og hann hafði alltaf séð myndina fyrir sér. Eins og raunar fyrrnefndu sjálfsævisögulegu myndimar tvær, en sami framleiðandi er að þeim öllum, Svíinn Bo Jonsson. Samstarf þeirra hefur verið frábært. Segir Hrafn að með því að hafa sjálfur svona vald á framkvæmdinni með framleiðanda sem leggi megin áherslu á höfundarrétt leikstjórans sé ekki alltaf verið að velta fyrir sér áhorfendum, á hvaða markhópa eigi að miða. Til hvaða hópa er Hin helgu vé þá líkleg að höfða, nú þegar hún er fullgerð? Hrafn vitnar í Bo Jons- son sem svaraði að hann viti ekk- ert hverjir muni koma að sjá hana, ætli það séu ekki allir hópar. Mynd- in muni finna sinn eigin markhóp. Ef dæma má eftir viðbrögðum ungs drengs, sem sat fýrir aftan undirrit- aða með mömmu sinni á prufusýn- ingunni, virðist hún að minnsta kosti geta náð til barna sem fullorð- inna. Honum þótti mjög gaman. ,,Eg fann strax að þeir sem sáu handritið sögðu þetta vera svo erf- itt efni, enda snertir það við bann- svæðum, þegar ungur drengur fer að uppdaga kynferði sitt. Óhjá- kvæmilega kemur sá tími í lífi hvers karlmanns að hann finnur að holdið getur verið sterkara en andinn. Um þetta er viðkvæmt að fjalla án þess að missa jafnvægið. Maður veit ekki hvemig til tókst fyrr en maður fer að sjá myndina vaxa út úr klippi- græjunum hvernig til hefur tekist," segir Hrafn og bætir við að þá fari það geysimikið eftir því hvemig hafi tekist til með val á leikurum. í Hinum helgu véum eru stór hlutverk í höndum tveggja barna. Er það ekki erfitt? Hann segir það geta verið það. „En ef í vinnunni næst sterkt trúnaðartraust milli leikstjóra og bams, þá getur barnið náð ennþá meiri hreinleika í sinni tjáningu en fullorðnir,“ segir Hrafn.“ Steinþór og Tinna eru ekki bara þarna. Þau leika. Enda vorum við hátt á annan mánuð að æfa. Þar naut ég frábærrar aðstoðar Maríu Sigurðardóttur.“ Þriðji aðal- leikarinn er unga stúlkan í eyjunni, sem leikin er af Öldu Sigurðardótt- ur. Alda sótti um þegar Hrafn var að velja leikara í Hvíta víkinginn. Þá var hún 15 ára gömul. Kvaðst Hrafn hafa séð hvað í henni bjó og þótt hún yrði ekki valin í aðalhlut- verkið fékk hún smáhlutverk í þeirri mynd. Og nú valdi Hrafn þessa 18 ára gömlu Verslunarskólastúlku. „Það er mikil hryggsúla í þessari stelpu. Kæmi mér ekki á óvart þótt hún ætti framtíð fyrir sér“, segir hann. „Svo er ég með minn uppá- haldsleikara, Helga Skúlason og Valdimar Flygenring. Það eru menn sem geta bmgðið sér í hvaða gervi sem er og ég ber mikla virðingu fyrir,“ segir hann. í myndinni kem- ur fyrir hópur af krökkum. Þegar verið var að pmfa krakkana, þá komu fram margir frábærir ein- staklingar, svo hann átti mikinn varasjóð til að ganga í. „Það er mjög sjaldgæft að maður standi upp frá mynd og hugsi ekki að í eitt- hvert hlutverk hefði kannski átt að velja annan. En svo er alls ekki hér,“ segir hann. Eitt atriði úr myndinni Rísandi sól. Sambíóin sýna kvik- myndina Rísandi sól SAMBÍÓIN hafa tekið til sýningar stórmyndina Rísandi sól eða „Rising Sun“ með hinum frábæru leikurum Sean Conn- ery og Wesley Snipes í aðalhlutverkum. Mynd þessi er byggð á samnefndri metsölubók Michaels Crichtons sem hefur verið afar umdeild, einkum fyrir túlkun á samfélagi Japana í Banda- ríkjunum. I myndinni segir frá rann- sóknarlögreglumanninum Web Smith (Snipes) sem fenginn er til að rannsaka morð á ungri konu sem finnst í stjómarherbergi jap- ansks stórfyrirtækis í Los Angel- es. Dularfullt símtal leiðir hann til leynilögreglumannsins Johns Con- nors (Connery); skrýtinn og skuggalegur náungi, sem sagður er vera í tygjum við Japani. Con- nors gerist einskonar leiðsögu- maður hins unga rannsóknar- manns í málinu og upplýsir hann um ýmis hátæknileyndarmál fram- tíðar, forna siði og samstöðu Jap- ana. Eftir því sem þeir verða fróð- ari um hina dularfullu morðgátu eru þeir í meiri lífshættu. Mynd þessi hefur fengið ein- róma lof gagnrýnenda hvarvetna sem hún hefur verið sýnd og er talin meðal bestu spennumynda ársins. Ásamt Connery og Snipes fara Harvey Keitel, Cary-Hiroyuki Tagawa og Kevin Anderson með stór hlutverk í myndinni. Leik- stjóri er Philip Kaufmann. Sætaskipti 23. til 30. október Sæti Títlii Flyf jandi Síðöst Vikur || t 1 Algjört möst Ýmsir 2 2 é 2 Pearl Jam Pearl Jam 1 1 t 3 What's Love Got to do With it Tina Turner 11 3 <n> 4 In Utero Nirvana 4 3 t 5 The Boys The Boys 8 1 6 Black Sunday Cypress Hill 3 3 t 7 Bat Out of Hell II Meat Loaf 12 2 «1» 8 Zooropa U2 5 3 . <n> 9 Ten Pearl Jam 9 3 t 10 10 Summeners tales Stina 15 3 t 11 Now1993 Ýmsir XX 0 t 12 The Album Haddaway ai 2 t 13 Now 25 Ýmsir ai 2 <n> 14 Ekki þessi leiðindi Bogomil Font 14 3 é 15 Bigger Better Faster 4 Non Blondes 6 2 t 16 Hits '93 Vol 3 / Ymsir XX 0 t 17 Core Stone Temple Pilots 19 3 é 18 Debut Björk 13 3 19 Grensan Ýmsir 18 3 4> 20 Rokk í Reykjavík Ýmsir 7 3 XX = nýtt inn á lista aiaftur inn á lista | Culture Club er gott dæmi umtilbúna hljómsveit, líkt og þeir Milli Vanilli fé- lagar og álíka sveitir sem þýskir tónfröm- uðir hafa framleitt f gegnum árin. Að þessu sinni heppnast tilbúningurinn betur en oft áður vegna fyr- irtaks söngkonu flokksins. Itoppsæti íslenska popplistans, Topp XX, þessa viku situr aft- ur safnplatan Algjört möst eftir að hafa haft sætaskipti við Pearl Jam í síðustu viku, en Pearl Jam- platan kom þá ný inn á lista. Reyndar eru þessar tvær plötu í nokkrum sérflokki hvað varðar plötusölu; seljast allmiklu meira en næstu plötur á eftir. Þéssi staða er einnig til marks um það að íslensk útgáfa fyrir jólin er ekki enn komin almennilega af stað, en í næstu viku má búast við að plata Bubba Morthens, Lífið er Ijúft, eigi eftir að blanda sér í toppbaráttuna og síðan hver af annarri eftir því sem jóla- plöturnar koma út. Góð sala á Algjöru mösti, sem er sannanlega mest selda plata landsins um þessar mundir, vek- ur nokkra athygli, því á plötunni eru helst lög sem búin eru að vera vinsæl en hafa dalað, til að mynda lag Culture Club, Mr. Vain, Delicate með Terence Trent D’Arby, Happy Nation með sænsku diskósveitinni Ace of Base og Runaway Train með Soul Asylum, en líklega þykir kaupendum fengur að komast yfir lögin öll í einum pakka. Önn- ur lög á plötunni eru Slow Motion með Leilu K., I Don't Like Reggae með French Connection, More and More með Captain Holly- wood, Faces með 2 Unlimited, gamli Grease-slagarinn You’re the One that I Want sem þau Debbie Gibson og Craig McLachlan syngja, La Tristese Durea með Manic Street Preach- ers, So Young með Suede, Voice of Freedom með Freedom Will- iams, lagasyrpa með helstu lög- um KC & the Sunshine Band, svokallað „Megamix, The Official Bootleg” og loks er lagið Con- demnation með Depeche Mode. Athygli vekur einnig sterk staða Pearl Jam í öðru sæti list- ans og ekki síður að frumsmíð sveitarinnar, Ten, sé einnig inni á Top XX-listanum, en sú plata sló á endanum út Nirvanaplötuna Nevermind í sölu um heim allan. Svo virðist einnig ætla að fara með nýju plötu Pearl Jam, sem ber einfaldlega nafn sveitarinnar, því á meðan In Utero Nirvana situr föst í fjórða sætinu, er Pearl Jam í öðru sæti og í raun munar meiru á sveitunum í sölu en lista- staðan gefur til kynna. Það má reyndar sjá á listanum að hreyf- ing er meiri á titlum en margur hefði spáð fyrir, en þar ræður iðulega frekar innflutningsskipu- lag fyrirtækjanna en skyndilegar vinsældir, og gera má því skóna að ör sigling til að mynda Stings upp listann sé frekar vegna þess að þurrð hafi verið af honum í verslunum, en skyndivinsældir, þó ekki megi gera of lítið úr aug- lýsingaherferð innflytjenda. Islenski popplistinn er unninn af Gallup fyrir Morgunblaðið, Sjónvarpið, Rás 2 og samtök hljómplötuframleiðenda. Islenski popplistinn — TOPP XX — er á dagskrá sjónvarpsins á föstudögum og á dagskrá Rásar 2 á laugardögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.