Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 39 ATVINNIIA UGL YSINGA R Skrifstofa Ráðherranefndar Norðurlanda í Kaupmannahöf n auglýsir stöðu forstöðumanns Norræna menningarsjóðsins lausa til umsóknar. Forstöðumaðurinn ber ábyrgð á starfsemi Norræna menningarsjóðsins og vörslu fjármuna sjóðsins. Forstöðumaðurinn stýrir skrifstofu sjóðsins, skipu- leggur fundi sjóðsstjórnar og sér til þess að ákvörðun- um hennar sé fylgt. Auk þess skal hann annast upp- lýsingastarf um Norræna menningarsjóðinn. Framkvæmdastjórinn vinn- ur í nánu samráði við skrif- stofu ráðherranefndarinnar og deild hennar sem fer með menningar- og menntamál. Forstöðumaðurinn þarf að hafa sérþekkingu og reynslu af menningarsamstarfi og stjórnun. Hann þarf að vera hugmyndaríkur, geta þróað starfsemi sjóðsins og styrkt norrænt tengslanet hans. Umsækjandinn þarf að hafa háskólamenntun og reynslu af stjórnunarstörfum í opin- berri stofnun eða einkageir- anum. Auk ensku er góð kunnátta í þýsku eða frönsku æskileg. Skrifleg og munnleg færni í dönsku, norsku eða sænsku er forsenda fyrir ráðningu. Þekking á öðrum Norður- landatungum telst til tekna. Starfíð krefst töluverðra ferðalaga um Norðurlönd. Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára, en framlenging kemur til greina í tvö ár. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á orlofi sem ráðningartíma- bilinu nemur. Vinnustaðurinn er í Kaup- mannahöfn. Skrifstofa Ráðherranefndar Norðurlanda vill stuðla að jafnri kynskiptingu og hvet- ur því bæði karla og konur til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veita Ann Sandelin, deildarstjóri, í síma 90 45 3396 0370 ogHróbjartur Einarsson, fulltrúi, í síma 90 45 3396 0248. Upplýsingar um ráðningar- kjör veita ritararnir Annelie Heinberg í síma 90 45 3396 0249 og Judy Feldborg, í síma 90 45 3396 0243. Umsóknina skal rita á þar til gert eyðublað, en það má panta skriflega (sjá eftir- farandi heimilisfang) eða í bréfsíma 90 45 3396 0202. Umsóknarfrestur rennur út 7. febrúar Í994. Umsókn skal senda til: Nordisk Ministerrád, Box 3035, DK- f 02 f Kobenhavn K. Merkið umslag: „Tj ánsteansökan“ Norræni menningarsjóðurinn Norrœna menningarsjóðnum erœtlað að efla menningarsamstarfNorðurlandaþjóðanna. SjóÖ- urinn veitirstyrki til menningarsamstarfs í breiÖum skilningi, þ. á m. til rannsókna og menntamála. ístjörn sjóösins sitja fulltrúar sem kjörnir eru afNoröurlandaráði ogNorrænu ráÖherranefndinni. Ráöstöfunarfé sjóösins hefur verið aukið áþessu ári til að efla menningar- samstarfið enn frekar og nemur nú rúmlega 200 milljónum króna. Auglýsingastofa Auglýsingastofa leitar að starfskrafti sem hefur þekkingu á litgreiningu og skeytingu. Viðkomandi þarf að geta unnið við skanner og þarf að búa yfir reynslu í Macintosh-tölvu- vinnslu, einkum Photoshop. Áhugasamir sendi upplýsingartil auglýsinga- deildar Mbl. merktar: „A - 12871“ fyrir 21. janúar. Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar Afgreiðslufulltrúi 50% staða afgreiðslufulltrúa á Félagsmála- stofnun Hafnarfjarðar er laus til umsóknar. Vinnutími er frá kl. 8.30-12.30. Starfið felst m.a. í símavörslu, vélrityn, tölvuvinnslu og almennri afgreiðslu. Nauðsynlegt er að við- komandi starfsmaður sé reyndur í samskipt- um við fólk og hafi góð tök á vélritun og rit- vinnslu. Laun eru skv. kjarasamningum STH og Hafnarfjarðarbæjar. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmála- stofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, gengið inn frá Linnetsstíg, fyrir 20. janúar. Umsóknunum skal fylgja afrit af námsskír- teinum og meðmæli séu þau fyrir hendi. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. mm FASTEIGNAMAT RÍKISINS BORGARTÚNI 21-105 REYKJAVÍK TÖLVUNARFRÆÐINGUR KERFISFRÆÐINGUR FORRITARI Deildarstjóri í heimaþjónustu Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í heimaþjónustu í félags- og þjónustumiðstöð aldraðra í Bólstaðarhlíð. Starfssvið deildarstjóra er fólgið í daglegum rekstri heimaþjónustu aldraðra, verkstjórn og ráðgjöf við starfsmenn. Æskilegt er að umsækjendur hafi sjúkraliða- menntun. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa einhverja reynslu á sviði fé- lagslegrar þjónustu og þægilegt viðmót í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar veitirforstöðumaður, Álf- hildur Hallgrímsdóttir, í síma 68 50 52. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 1994. Starfsmaður á einkaheimili Óskað er eftir starfsmanni til heimilisstarfa á einkaheimili 4-8 tíma daglega. Upplýsingar veitir forstöðumaður heimaþjón- ustusviðs. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun- ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um- sóknareyðublöðum sem þar fást. Félagasamtökin Vernd óska eftir að ráða: Matráðskonu Starf hjá Tölvudeild Fasteignamats ríkisins er laust til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi búi yfir þekkingu og reynslu á : á áfangaheimili Verndar frá 1. febrúar. Um hlutastarf er að ræða. Einnig óska samtökin eftir starfsmanni á skrifstofu til að annast símavörslu, greiðslu reikninga. Hér er um 50% starf að ræða. Umsóknum sé skilað bréflega fyrir 21. janúar til félagasamtakanna Verndar, Skipholti 37, 105 Reykjavík. Góð aukavinna Bókaforlagið Vaka-Helgafell óskar að ráða áhugasamt fólk til að annast kynningar- og sölustarf er tengist klúbbnum þeim erforlag- ið rekur. Góð vinnuaðstaða og góðir tekjumöguleikar fyrir gott fólk. Vinsamlegast hafið samband við Hildi Hall- dórsdóttur í síma 91-688300 mánudag og þriðjudag. <i» VAKA-HELGAFELL Síduimila 6, sími 688300 □ Forritun í C □ Hlufbundinni forrifun í Visual Basic □ SQL - fyrirspurnarmáli. □ Informix gagnagrunni □ UNIX stýrikerfi □ Uppsetningu og viðhaldi netkerfa. Viðkomandi þarf að hafa, samskipta og skipulags- hœfileika, þjónustulund og löngun til að takast á við krefjandi verkefni. Ráðið veröur í stöðuna frá og með 1. mars 1994. Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason ráðningastjóri Ábendis. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlegast sœkið um á eyöublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar fyrir 1. febrúar 1994 abendi RÁOGJÖF 0G RÁÐNINGAR LAUGAVEGI 178 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 689099 • FAX: 689096

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.