Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 KNATTSPYRNA Tíuí BURT með einnvarnar- mann, leikum með tíu menn íhverju liði; það gulltryggir fleiri mörk — et voila! Knattspyrnan yrði aftur sú skemmtun sem nauðsynlegt er. Þetta hef- ur Arsene Wenger, hinn snjalli franski þjálfári AS Mónakó, til málanna að leggja þegar rætt er um hvernig gera megi knatt- spyrnuna meira aðlaðandi en hún er í dag. Alþjóða knattspymusam- bandið (FIFA) hefur leitað leiða til að auka aðdráttarafl íþróttarinnar að undanförnu. Það starf hófst fyrir alvöru eftir heimsmeistarakeppnina á Ítalíu 1990, en þar þóttu margir leikj- anna afskaplega leiðinlegir. Wenger segir, í viðtali við vikublaðið The European á dög- unum, að segja megi að leikir bestu liðanna séu enn áhuga- verðir, en fjöldi leiðinlegra leikja hafi margfaldast. „Mörkum fækkar ár frá ári og ekki er að furða þó áhorfendur verði fyrir vonbrigðum." Hann bendir á að stærð leikvallarins hafi verið óbreytt frá því í byijun aldarinn- ar, en líkamlegt atgervi leik- manna sé allt annað en það var áður. „Hver leikmaður hleypur þremur eða fjórum kílómetrum meira í hverjum leik en hver maður gerði fyrir 30 árum. I hvert skipti sem leikmaður fær knöttinn hefur hann minni tfma og pláss en áður, því það eru svo margir í kringum hann.“ Wenger — sem talinn er einn af betri þjálfurum í Evrópu í dag, og er efstur á óskalista þýska stórveldisins Bayern Miinchen fyrir næsta vetur — segist gera sér grein fyrir því að tillaga hans um breytingar verði ekki að veruleika í einu vetfangi, en segist sannfærður um að hún yrði til góðs; knatt- spyrnan yrði skemmtilegri og meiri kraftur í sóknarleiknum. Hann segir FIFA ekki geta ann- að en skoðað hugmynd sína. „Þar sem takmörk eru fyrir því hve menn gæta bætt knatttækni sína, er lausnin til þess að skapa meira pláss á vellinum sú að fækka í liðunum niður í 10 menn. Það að fækka um einn varnarmann og leika 3-4-2 myndi gera leikinn mjög spenn- andi.“ Wenger bendir á að lið, sem missi mann út af og leiki þar af leiðandi með 10 menn gegn 11, séu ekki eins brothætt og áður var. Leikmennirnir 10 hafi þá meira pláss til að athafna sig, og missirinn hái liðum alls ekki. Öfugt við ýmsar aðrar tillögur sem fram hafa komið, yrði auð- velt að koma hugmynd Wengers í framkvæmd út um allan heim, og kostnaður við það yrði eng- inn. Hann stendur á því fastar en fótunum að þessi breyting myndi skila sér í fleiri mörkum og meiri skemmtun. Wenger leggur ríka áherslu á að eigi knattspyrnan að lifa, verði hún að fá að þróast. Þjóð- félagið þróist hratt, og í daglegu lífi fólks virðist tilfinningaleg spenna fara minnkandi. „Við verðum að veita fólki þessa spennu á vöilunum, með því að gera knattspyrnuna að meiri skemmtun." í landsliðið á ný? PETER Beardsley í enska landsliðsbúningnum. Hann hefur leikið frábærlega með Newcastle í vetur, og Kevin Keegan, „stjóri" liðsins og fyrrum landsliðsfyr- irliði Englands, segist vilja sjá hann aftur í landsliðinu. Beardsley og Cole besti mið- herjadúettinn - segir Keegan, framkvæmdastjóri New- castle, sem vill sjá þá saman í landsliðinu KEVIN KEEGAN, framkvæmda- stjóri Newcastle, á fá orð til að lýsa hrifningu sinni á sókn- arleikmanninum kunna Peter Beardsley, sem verður 33 ára í næstu viku. „Hann er hreinn listamaður í að Ijúka sóknarlot- um, og er virði þyngd sinnar í gulli fyrir okkur,“ segir Keegan. Keegan segir Beardsley hafa sannað snilli sína, þegar hann skoraði frábært mark gegn Coventry í bikarkeppninni — Frá Bob vippaði knettinum Hennessy snilldarlega yfir íEnglandi markvörð Coventry. Beardsley, sem er fæddur og uppalinn hjá Newcastle, gerði garðinn frægan sem leikmaður Liverpool, en þaðan fór hann til Everton. Keegan keypti hann á 1,3 millj. punda frá Goodison Park. „Kaupin á Beardsley eru þau bestu sem ég hef gert í lífínu. Þegar hann kom hingað var Newcastle miðlungs úrvalsdeildarlið, en eftir að hann kom í hópinn erum við komnir með eitt besta félagslið Englands. Ég er á því að Beardsley eigi eftir að leika aftur fyrir England. Hann og Andy Cole er besti og hættulegasti mið- heijadúettinn á Englandi — þeir eru frábærir saman,“ sagði Kevin Ke- egan um framheija sína. Cole skoraði einnig í fyrrnefndum leik gegn Coventry, 2:0, og hefur hann skorað 29 mörk á keppnistíma- bilinu, og þeir Beardsley hafa skorað samtals 42 mörk í vetur. Draumurinn rættist Norski landsliðsmaðurinn Kare Ingebritsen var einnig í sviðsljósinu í bikarkeppninni um síðustu helgi. Kare, sem er varnarleikmaður, var settur fram sem miðheiji hjá Manchester City, þar sem Niall Qu- inn var meiddur. Kare greip gæsina og skoraði þrennu — tvö fyrstu mörkin með skalla. „Ég er í sjöunda himni. Það var alltaf draumur minn að leika í Englandi, en mig dreymdi aldrei um að ég ætti eftir að skora þijú mörk í leik,“ sagði þessi fyrrum leikmaður Rosenborg, eftir sigurleik, 4:1, gegn Leicester. Sænski landsliðsmaðurinn Ronald Nielsson hjá Sheffield Wednesday var einnig ánægður — þó svo að hann hafi verið borinn meiddur af leikvelli, þegar Sheff. Wed. gerði jafntefli við Notttingham Forest, 1:1. Hann var fluttur á sjúkrahús, þar sem kom í ljós að liðbönd á ökkla voru tognuð og hann verður frá keppni í þijár vikur. „Ég er yfir mig ánægður — með að ég sé ekki brotinn, eins og talið var í fyrstu," sagði Nielsson. Makedónía með Nafn Makedóníu verður með í hattinum þegar dregið verður í riðla fyrir undánkeppni Evrópumóts landsliða í Manchester á Englandi um næstu helgi. Forráðamenn Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) ákváðu á föstudag að veita Makedóníu bráðabirðgaaðild að sambandinu, og lýðveldið verður þar með hið þriðja frá fyrrum Júgóslavíu sem verður með; hin eru Króatía og Slóvenía. Beiðni knattspyrnusambands Júgóslav- íu (Serbíu og Svartfjallalands) um að fá að vera með var hins vegar hafnað, vegna samskiptabanns Sameinuðu þjóðanna frá 1992. Liðin sem taka þátt í EM landsliða að þessu sinni verða 48, fleiri en nokkru sinni. FURÐUSOGUR Hver er óheppnastur? SKOSKA sauðkindin Toby hlýtur að teljast óheppnasta lukku- dýr veraldar. Þegar leikmenn knattspyrnuliðsins Greenock Morton skildu Toby eftir í búningsherberginu, meðan þeir fóru út tii að fagna sigri, drukknaði kindin í baðkari leikmann- anna. frskl hnefaleikarinn Jack Doyle náði stórglæsilegu höggi, sem vitaskuld var ætlað mótherjanum, en hann rotaði sjálfan sig! Percy, bresk keppnis-dúfa, flaug til síns heima, örþreytt eftir að hafa sigrað 1.000 keppinauta í 800 m flugkeppni — en var þegar í stað gómuð og étin af ketti nágrannans. Frá þessu og mörgu fleiru er greint í nýrri bók, „Great Sporting failures“ eftir Geoff Tibballs. Reuterfréttastofan sendi frá sér nokkur atriði úr bókinni i vikunni. Ibókinni er að finna sögur af ótrúlegustu afrekum manpa og dýra í tengslum við íþróttir, og skulu hér nokkur dæmi nefnd. Kona nokkur í Bandaríkjunum notaði einu sinni 166 högg á einni braut í golfkeppni. Roy Riegels, keppandi í bandaríska fótboitan- um, varð óvænt „hetja“ á svip- stundu er hann skoraði eftir glæsilegt hlaup með boltann, en hann hljóp því miður í vitlausa átt og yfir eigin marklínu. Honum barst gífurlegur fjöldi aðdáenda- bréfa, þar á meðal frá konu sem vildi giftast honum; og lagði til í bréfinu að þeu gengju saman inn kirkjugólfið, en ekki út... Það var svipað með rugby leikmanninn Dick Dover á Bruney; hann hljóp um 70 metra með boltann og skor- aði en, því miður; hann hafði hlaupið í vitlausa átt. Óþolandi vindgangur Afsakanir þeirra sem tapa eru oft skemmtilegar; tennisleikarinn Lighton Ndefwayl frá Zambíu er sagður hafa unnið fyrstu verðlaun fyrir frumleika afsökunar eftir að hann tapaði. Hann sagði mótheij- ann hafa stanslaust leyst vind meðan á keppninni stóð og það hefði truflað sig. Brasilíski knattspymumark- vörðurinn Isadore Irandir var van- ur að biðja bænirnar á marklín- unni fyrir hvem leik. Einu sinni var hann eitthvað örlítið seinn fyrir og þar sem hann kraup á línunni og bað, sveif knötturinn framhjá honum og í netið. Ekki voru nema þijár sekúndur liðnar frá því að dómarinn flautaði til leiks þar til boltinn var kominn í markið. Dýr hafa oft komið við sögu; kylfingur á Guemsey lenti t.d. í því að kýr át golfboltann sem hann var að spila með. Eitt sinn þurfti að stöðva krikkettleik í Sydney eftir að boltinn sveif inn á sirkus-svæði í námunda við völl- inn, og var étinn af fíl. Bandarískur læknir var ein- hveiju sinni sektaður um 500 dollara (um 36.000 krónur) fyrir að drepa gæs, sem gargaði hástöf- um í grennd við golfvöll í Wash- ington þar sem hann var að leika. Eftir að hafa mistekist pútt, tók læknirinn sig til, hljóp gæsina uppi og drap hana með kylfunni. Danskur knattspyrnudómari missti eitt sinn út úr sér gervi- tennumar i þýðingarmiklum leik og mgby-leik í Bretlandi varð ein- hvetju sinni að stoppa þegar gervi-auga losnaði úr einum leik- manninum og datt niður á völlinn. Breskur keiluspilari var einu sinni rekinn úr keppni fyrir að vera svo drukkinn að hann vissi ekki í hvora áttina hann átti að renna kúlunni... Tæknilegt rothögg! En af öllum sögunum í bókinni er sú af hnefaieikaranum á Filips- eyjum líklegasta sú dramatískasta. Hann dró allt í einu upp hníf, sem hann hafði geymt í stuttbuxunum, og réðst að mótheija sfnum. Mót- herjanum varð ekki meint af, en sá með hnífinn var skotinn til bana af lögreglumanni, sem var meðal áhorfenda, og var úrskurður dóm- ara hnefaleikakeppninnar á þann veg að hinn látni hefði tapað á tæknilegu rothöggi...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.