Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1994 Starfsmenn SVR Borgin ábyrgist réttindi MARKÚS Örn Antonsson borgar- stjóri hefur sent bréf til þeirra starfsmanna Strætisvagna Reykjavíkur hf., sem staðfest hafa persónubundinn ráðningarsamn- ing við fyrirtækið, og er í því yfír- lýsing um að Reykjavíkurborg muni ábyrgjast að hið nýja félag virði að fullu þau loforð um rétt- indi og kjör sem fram koma í við- komandi ráðningarsamningi. í bréfí borgarstjóra er vitnað til samþykktar borgarstjórnar frá 26. ágúst 1993 þar sem fram kom að starfsmönnum Strætisvagna Reykja- víkur skyldi boðið starf hjá hinu nýja félagi, og að atvinnuöryggi, laun og launakjör, önnur kjör og réttindi myndu tryggð með þeim hætti sem fram komi í greinargerð fram- kvæmdastjóra lögfræði- og stjóm- sýsludeildar til borgarráðs 27. júlí. Þeim starfsmönnum Strætisvagna Reykjavíkur sem tóku til starfa hjá SVR hf. var boðið að staðfesta sér- staka ráðningarsamninga þar sem tryggðar voru efndir á þeim loforðum sem gefin höfðu verið við ráðningu. 1 umræddum ráðningarsamningum eru tilgreind þau persónubundnu réttindi og kjör sem hver einstakur starfsmaður hefur áunnið sér og kemur til með að njóta hjá hinu nýja félagi, og segir í bréfí borgarstjóra að ábyrgð Reykjavíkurborgar á gefn- um loforðum sem fram komi í ráðn- ingarsamningi muni gilda svo lengi sem viðkomahdi starfi hjá hinu nýja félagi. ----♦-» ♦- Einsetið í 4 grunn- skólum SKÓLAMÁLARÁÐ Reylqavlkur- borgar hefur samþykkt erindi fjögurra grunnskóla í Reykjavík sem óskað hafa eftir að koma á einsetnum skóla haustið 1994. Þetta eru Breiðagerðisskóli, Vogaskóli, Laugarnesskóli og Ölduselsskóli. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna framkvæmd- anna verði um 40 milljónir króna. Að sögn Viktors A. Guðlaugssonar forstöðumanns Skólaskrifstofu er gert ráð fyrir að settar verði upp sex lausar kennslustofur til að ná þessu markmiði. Tvær verða við Laugar- nesskóla en þar hefur skóladagheim- ili verið sameinað heilsdagsskólan- um. Við Vogaskóla verða settar tvær kennslustofur, auk þess verða tvær stofur nýttar sem Menntaskólinn við Sund hefur til þessa haft afnot af. Þá verða tvær kennslustofur settar niður við Breiðagerðisskóla. í dag Los Angeles______________________ íslenskur verkfræðingur kannar afleiðingar jarðskjálftans mikla í Los Angeles 19 Ródgjafi Clintons Nú er dregið f efa að Vincent Fost- er, fyrrum ráðgjafí Clintons, hafí framið sjálfsvíg í sumar 23 Prófkjör_________________________ Sjálfstæðisflokkurinn heldur próf- kjör í fímm sveitarfélögum um helgina 27 Leiðari Kaldar kveðjur frá Rússlandi 24 Morgunblaðið/Ingvar Tveir á sjúkrahús eftir árekstur HARÐUR árekstur varð milli fólksbifreiðar og vörubif- reiðar á Keflavíkurveginum á móts við afleggjarann til Grindavíkur um klukkan 15.30 í gær. Farþegi sem var í framsæti fólksbifreiðarinnar fótbrotnaði og var hann fluttur á Sjúkrahús Suðurnesja í Kefiavík ásamt ökumanni bílsins sem kvartaði um eymsli í bijóstkassa og hálsi. Að sögn lögreglunnar í Keflavík sakaði öku- mann vörublfreiðarinnar ekki við áreksturinn. Ekki er kunnugt um orsök árekstrarins en talsverð hálka var á Keflavíkurveginum í gær þegar óhappið varð. íslenska útvarpsfélagið Leiða leitað til aðhalds í rekstri VERIÐ er að leggja lokahönd á rekstraráætlun fyrir næstu tvö til þrjú ár hjá Islenska út- varpsfélaginu. Að sögn Páls Magnússónar, forstjóra félags- ins, er verið að leita leiða til aðhalds og til að ná niður kostn- aði. Páll segir að afkoma fyrirtækis- ins sé í samræmi við þær áætlanir sem gerðar hafi verið en engu að síður sé unnið að því, líkt og í öðrum fyrirtækjum á þessum síð- ustu og verstu tímum, að leita leiða til aðhalds og til að ná niður kostn- aði. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um niðurskurð, enda ljúki gerð áætlunarinnar ekki fyrr en um eða eftir helgina. Uppsagnir ekki útilokaðar Aðspurður um það hvort til greina komi að segja upp starfs- fólki sagði Páll að það væri ekki útilokað að fara þá leið frekar en aðrar þær sem verið væri að skoða. k I Lántaka fyrrverandi oddvita Austur-Eyjafjallahrepps Ráðuneytið hafnar kröfu um opínbera rannsókn FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur hafnað kröfu eins íbúa í Austur-Eyjafjallahreppi um að ráðuneytið beiti sér fyrir opin- berri rannsókn á „óheimilum lántökum oddvita í nafni hrepps- ins“ og að hreppsnefndin verði látin víkja og henni settur til- sjónarmaður vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu hreppssjóðs. Ráðuneytið bendir viðkomandi íbúa hins vegar á að hann geti sjálfur beint kröfu um opinbera rannsókn til sýslumanns síns ef hann telji að oddviti eða hreppsnefnd hafi brotið á honum. Félagsmálaráðuneytið hefur yf- irfarið ársreikning Austur-Eyja- fjallahrepps og í svarbréfí ráðuneyt- isins til íbúans kemur fram að það telji ekki forsendur til að svipta hreppsnefndina fjárfon-æði. Ráðu- neytið bendir á að hreppsnefndinni hafí verið gert að greiða úr óreið- unni en ef síðar komi í ljós að að- gerðir þær sem hreppsnefnd hefur staðið að duga ekki til að lagfæra fjármálalega stöðu hreppssjóðs muni verða skoðað hvort skilyrði verði til þess fyrir ráðuneytið að grípa þar inn í á grundvelli ákvæða sveitarstjórnarlaga. Oddvitinn áminntur Varðandi kröfu um að fram fari opinber rannsókn á lántöku fyrrver- andi oddvita hreppsins bendir ráðu- neytið á að það hafí áminnt oddvit- ann alvarlega, meðal annars vegna þessa tiltekna atviks. Þá hafi meiri- hluti hreppsnefndar ekki talið ástæðu til að fram fari opinber rannsókn á meðferð öddvita á fjár- munum hreppsins. Ráðuneytið telur að skýrsla endurskoðenda sem fengnir voru til að yfírfara reikn- inga Austur-Eyjafjallahrepps gefí ekki tilefni til frekari aðgerða af hálfu ráðuneytisins að svo stöddu. Við það mat var m.a. litið til þess að lánið hafí verið greitt, svo og til þess að ekki hafi legið ljóst fyrir af hálfu hreppsnefndar hver launa- kjör oddvita hreppsins eigi að vera. Ráðuneytið bendir hins vegar á að ef íbúinn telji að oddviti eða hreppsnefnd hafí á refsiverðan hátt brotið gegn sér, beri honum að beina kröfu um opinbera rannsókn til sýslumannsins á Hvolsvelli. Sjómannasambandið og Vélstjórafélagið Styðja Kvótaþing verði þátttaka sjómanna bönnuð Lesbók ► Hinir tæru vatnslitir Ásgríms - Skáldið Werner Aspenström - Byggt um víða veröld - Smásaga eftir Pjetur Hafstein Lárusson - Rabb eftir Ásgeir Ásgeirsson JRorötmblnMtí Gömlu meistararnir væru á kafi í tölvutækni Menning/Listir ► Tölvutónskáld - Ballettmeist- ari - Orgelpar - Nýlistasafn - Djasssöngkona - Knut Gdegárd - Flautuleikarinn - Samstarfsaf- mæli - Strengjasveit - Bókapistill VÉLSTJÓRAFÉLAG íslands og sambandsstjórn Sjómannasam- bands íslands hafa lýst sig meðmælta tillögu um að komið verði á tilboðsmarkaði á veiðirétti, Kvótaþingi, til þess að útiloka þátt- töku sjómanna í kaupum á veiðirétti, að því tilskildu að fest verði í lögum að óheimilt sé að sjómenn taki þátt í kvótakaupum. í jfirlýsingu frá Vélstjórafélagi íslands kemur fram að það telji að tillögumar um Kvótaþing muni útiloka þátttöku sjómanna í kvóta- kaupum þegar afli er greiddur að hluta með veiðirétti og að hluta með peningum, að því tilskildu að viðskiptin fari fram samkvæmt •viðurkenndum viðskiptareglum. Aftur á móti muni tillögur um til- boðsmarkað einar og sér ekki koma í veg fyrir að sjómenn séu knúnir til beinnar þátttöku í kaup- um á veiðirétti, og til þess að full- nægjandi árangur náist þurfi að tryggja réttarstöðu sjómanna t.d. með því að festa refsiákvæði í lög- um sem kveði á um verulegar fjár- sektir eða sviptingu veiðiréttar séu kjarasaftmingar sjómanna brotnir með því að láta þá taka þátt í kvótakaupum. Leysir vandann að hluta í áliti sambandsstjórnar Sjó- mannasambands íslands segir m.a. að til að uppboðsmarkaður á aflamarki nái að leysa að hluta þau vandamál sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir vegna við- skipta útgerðarmanna með veiði- heimildir og meinta þátttöku sjó- manna í kvótakaupum þurfí sam- hliða Kvótaþingi sterkari ákvæði í önnur lög svo ekki fari milli mála að sjómenn skuli ekki taka þátt í kaupum á veiðiheimildum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.