Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 3
B 3 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 KNATTSPYRNA kóngur í fyrra með 26 mörk. Þriðji tapleikur Barcelona I röð Barcelona fékk heldur betur út- reið gegn Zaragoza í spænsku deild- inni um helgina, tapaði 6:3, en félag- ið hefur ekki fengið svo mörg mörk á sig í liðlega 30 ár eða síðan gegn Valencia haustið 1961. Deportivo vann Sevilla 2:0 og er með fimm stiga forystu. Þetta var þriðji tap- leikur Barcelona í röð í deild og bik- ar, en Johan Cruyff, þjálfari, lét það ekki á sig fá. „Sex stiga forskot Deportivo gerir hlutina flóknari, en við höfum ekki gefið titilinn frá ökkur." Real Madrid vann Real Oviedo 1:0 og er í öðru sæti. „Þetta var mikilvægur sigur með framhaldið í huga,“ sagði Benito Floro, þjálfari. Hann tjáði sig einnig um Barcelona. „Liðið sækir stöðugt og ef mótheij- inn veit hvemig á að beita gagn- sóknum gerist það sem gerðist.“ ■ Úrslít / B10 ■ Stöður / B10 Dean Saunders skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Aston Villa. Þrenna hjá Saunders Dean Saunders gerði þrjú mörk í 5:0 sigri Aston Villa gegn Swindon í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Newcastle mátti þola 4:2 tap í Wimbledon og Tottenham tap- aði sjötta leik sínum í röð, sem er met í sögu félagsins, en Blackburn vann 2:0 á White Hart Lane og er í 2. sæti, 10 stigum á eftir Manc- hester United. Saunders hefur ekki fyrr verið með þrennu fyrir Villa, sem er tap- laust í síðustu sjö leikjum. Jon Sheffield, markvörður Swindon, átti góðan leik og kom í veg fyrir enn stærra tap. Tottenham átti aldrei möguleika gegn Blackburn og tapaði 2:0. Spurs hefur ekki sigrað heima síðan 3. október og hefur aðeins gert sex mörk í síðustu 10 leikjum. Liðið hélt til Spánar í gær í æfingaleik við Atletico Madrid, en Blackburn virðist vera eina liðið, sem getur ógnað United. Oldham krækti sér í dýrmæt stig í fallbaráttunni með 2:1 sigri gegn Chelsea. Graeme Sharp tryggði sig- urinn níu mínútum fyrir leikslok. Arsenal gerði 1:1 jafntefli 1 Norwich og er í þriðja sæti, 20 stig- um á eftir Manchester United. Ke- vin Kambell skoraði fyrir gestina, en Nígeríumaðurinn Efan Ekoku, maður leiksins, jafnaði um miðjan seinni hálfleik. og Marco Bode mörkin. AC Milan með fimm stiga forystu Meistarar AC Milan eru með fímm stiga forystu í ítölsku deild- inni eftir leiki helgarinnar. Liðið vann Cremonese 1:0, en Sampdoria án Gullits tapaði 2:1 í Parma og féll úr öðru sæti. Marco Simone gerði mark Milan um miðjan seinni hálfleik og bjarg- aði þar með andliti Dejans Savicevics og Alessandros Costac- urtas, sem reyndu að skora úr end- urtekinni vítaspyrnu í fyrri hálfleik án árangurs. Gianfranco Zola var hetja Parma, en hann tryggði sigur liðsins með marki úr aukaspymu á síðustu mín- útu. Vladimir Jugovic náði forystu fyrir gestina í fyrri hálfleik, en fyrir- liðinn Alessandro Minotti jafnaði 20 mínútum fyrir leikslok. Juventus vann botnlið Lecce 5:1 og er taplaust í síðustu átta leikjum. - Giuseppe Signori var með aðra þrennu sína í vetur, þegar Lazio vann Cagliari 4:0. Hann hefur gert 13 mörk í 12 leikjum, en var marka- oucs Morgunbladið/Svcrrir Jón Arnar Magnússon jafnar metið í 50 metra grindahlaupi. íslandsmel íþrístökki Tvö met jöfnuð og ágæturárangur SIGRÍÐUR Guðjónsdóttir úr HSK setti íslandsmet í þrístökki á Meistaramóti Islands sem fram fór um heigina. Tvö íslandsmet voru jöfnuð; Geirlaug Geirlaugsdóttir, Ármanni, jafnaði metið í 50 metra hlaupi og Jón Arnar Magnússon, UMSS, jafnaði metið i' 50 metra grindahlaupi. Aigríður stökk 12,45 metra, tæpum metra lengra en næsta stúlka, og setti Íslandsmet, það eina í mótinu. Geirlaug hljóp 50 metrana á 6,5 sekúndum og Jón Arnar 50 metra grind á 6,8 sek. Mikil keppni var í 50 metra grindahlaupi kvenna þar sem þijár stúlkur komu í mark á sama tíma. Þórdís Gísladóttir varð sjónarmun á undari og telst því sigui'vegari. Þórdís sigraði einnig í hástökki þar sem hún stökk 1,83 metra, þremur sentimetrum lægra en lágmarkið fyrir EM innanhúss er. Hún reyrtdi við 1,86 en felldi tvívegis naumlega. Pétur Guðmundsson kúluvarpari átti góða kastseríu í Reiðhöllinni, kastaðai lengst 19,77 metra með nýja kaststílnum og virðist vera á réttri leið. Tvö telpnamet voru sett og tvö sveinamet einnig. Sigrún Gísladótt- ir, UMSB hljóp 800 metrana á 2.30.1 mínútunum og 1.500 metr- ana á 5.09,05. Sveinn Margeirsson úr UMSS setti sveina og drengja- met í 1.500 metra hlaupi, hljóp á 4.11,7 og 800 metrana hljóp liann á 2.02,1.. Beckenbau erbyijaði meðtapi Man. Utd. i stendur vel að vígi BAYERN Múnchen byrjaði ekki vel í þýsku úrvalsdeildinni undir stjórn Franz Beckenbauers. Liðið tók á móti Stuttgart ífyrra- kvöld, tapaði 3:1 og er ífjórða sæti deildarinnar. „Eg tók við lið- inu með aðeins eitt í huga, að gera Bayern að meistara," sagði Beckenbauer fyrir leikinn. „Ég hef ekki áhuga á neinu öðru.“ Eftir leikinn var ekki meistara- hljóð í „keisaranum". „Hvað á ég að segja? Úrslitin eru sanngjöm. Við áttúm skilið að tapa. Það er allt og sumt.“ Bayern var lengstum með bolt- ann, en Stuttgart beitti gagnsókn- um og skoraði úr tveimur slíkum eftir hlé. Reyndar virtist, sem ekki hefði verið farið að settum reglum, þegar Stuttgart gerði annað mark sitt. Adrian Knup var við hlið varn- armanns og lagði boltann fyrir sig með hendi, skaut, Aumann varði en hélt ekki boltanum og Fritz Walter skoraði af öryggi. Bayern tók þetta einstaka atvik ekki út, heldur leit á leikinn í heild. „Þeir voru betri og agaðri,“ sagði Lothar Mattháus. „Okkur tókst aldrei að skapa þá hættu, sem við ætluðum okkur.“ Frankfurt gerði 1:1 jafntefli við Numberg í lítt spennandi leik og er efst í deildinni. Jurgen Krammy skoraði fyrir gestina á 33. mínútu, en Radmilo Mihailovic frá Bosníu jafnaði skömmu fyrir hlé. Heima- menn réðu gangi leiksins, en tókst ekki að nýta yfirburðina. Anthony Yeboah frá Ghana, sem hefur verið frá síðan í október vegna meiðsla kom inná um miðjan seinni hálfleik og Thomas Doll, sem er í láni frá Lazio á Ítalíu, lék vel á miðjunni. „Yeboah er ekki alveg tilbúinn, en Doll byijaði vel eftir að hafa ekki leikið í fjóra mánuði," sagði Klaus Toppmöller, þjálfari Frankfurt. Leverkusen, sem fór í vetrarfríið á toppnum, mátti sætta sig við 1:0 tap gegn Dortmund, sem hafði und- irtökin allan tímann. Stephane Chapuisat frá Sviss gerði eina mark leiksins. Dragoslav Stepanovic, þjálf- ari Leverkusen, var óánægður ineð sóknarleik manna sinna eftir að Ulf Kirsten varð að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik. „Við verð- um að sýna meiri baráttu gegn Ham- borg um næstu helgi ef við ætlum að vera í hópi efstu liða,“ sagði hann. Meistarar Werder Bremen sýndu að bikarsigurinn gegn Kaiserslaut- ern um miðja síðustu viku var ekki tilviljun — þeir endurtóku leikinn með 2:0 sigri á heimavelli og gerðu norski miðvörðurinn Rune Bratseth Ryan Giggs sýndi snilli sína, þegar hann skoraði fyrir Manchester United úr þröngu færi um miðjan fyrri háífleik í fyrri leiknum gegn Sheffield Wednesday í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar. Markið nægði til sigurs og er United því með í baráttunni á öllum vigstöðvum heima fyrir. Heimamenn sóttu til sigurs, en gestirnir vörðust og sakaði Alex Ferguson, stjóri United, þá um að bregðast áhorfendum. „Það er merki um framfarir hjá okkur, þegar lið koma hingað og hugsa eingöngu um að halda markatölunni niðri. En við erum hættulegir á útivelli." ■ ALAN Shearer gerði fyrra mark Blackburn gegn Tottenham og var það jafnframt 50. mark hans fyrir félagið í 59 leikjum. Hann hefur gert 28 mörk í 27 leikjum á tímabilinu. Mm FOLX ■ PETER Beardsley tók við fyr- irliðastöðunni af Barry Venison hjá Newcastle vegna agabrots þess síðarnefnda. Beardsley gerði bæði mörk Newcastle gegn Wimbledon úr vítaspyrnum ■ DEAN Saunders, sem var með þrennu fyrir Aston Villa, hafði ekki skorað á Villa Park í tvo mánuði. ■ DEAN Holdsworth gerði eitt mark í 5:2 sigri Wimbledon gegn Necastle og var það 15. mark hans í vetur. ■ RAY Clemence og Peter Shil- ton, fyrrum markverðir enska landsliðsins, mættust í fyrsta sinn sem stjórar, þegar Barnet og Plymouth gerðu markalaust jafn- tefli í 2. deild. FRJALSIÞROTTIR / MEISTARAMOTIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.