Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 Morgunblaðið/Júlíus Hringtorg á Reykjavíkurveg FRAMKVÆMDIR eru hafnar við gerð hringtorgs á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Strandgötu í Hafnarfirði, og m.a. hefur þurft að færa bensínstöð Olís sem stóð við gatnamótin nokkru vestar og verð- ur þar reist ný bensínstöð. Að sögn Bjöms Árnason- ar bæjarverkfræðings er stefnt að því að ljúka vinnu við hringtorgið í vor. Lokað útboð fór fram vegna framkvæmdanna og var Völur hf. með lægsta tilboð- ið, eða tæpar níu milljónir króna, en að sögn Björns hljóðaði kostnaðaráætlun upp á tæplega 18 milljón- ir króna. Fimm verktakar buðu í verkið og voru til- boð þeirra allra langt undir kostnaðaráætlun. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 10. MARZ YFIRLIT: Skammt austur af Jan Mayen er 960 mb lægö sem grynnist og hreyfist noröaustur. Yfir Noröur-Grænlandi er 1.020 mb hæð. Vaxandi lægð við S-Græn- land, þokast noröaustur. SPÁ: Suöaustan hvassviöri og snjókoma um sunnan- og vestanvert landið en hægari í fyrstu og þurrt um norðan- og austanvert landið. Hlýnandi veöur. Hiti á hádegi +2°C til +6-C. STORMVIÐVORUN: Búist er við stormi á öllum miðum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG:Breytileg átt, fremur hæg. Éljagangur í flestum landshlut- um. Fro8t 1 til 7 stig, kaldast í innsveitum. HORFUR A LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Hægviðri í fyrstu en síðan vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa, fyrst suðvestantil. Áfram frost. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30. Svar- sftni Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt / / / / / / / / Rigning & Léttskýjað * / * * / / * / Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma ■Éh Skýjað Alskýjað V Ý V Skúrír Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig v Súld = Poka ríig. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær) Þungfært er sumstaðar á vegum í uppsveitum Árnessýslu, en góð færð í nágrenni Reykjavlkur, en viða skafrenningur. Mosfellsheiði er þungfær. Á Vesturlandi er- Brattabrekka ófær, en aðrir vegir færir allt vestur I Reykhólasveit. Á Vestfjöröum eru Kleifaheiði, Breiðadalsheiði og Botnsheiði ófærar. Fært er um Holtavörðuheiði til Hólmavikur en Steingrímsfjarðarhelði er ófær. ( Skagafirði er ófært frá Hofsósi til Siglufjarðar. Slæmt veöur er á Ólafsfjarðarleið og austan Akureyrar er vart feröa- veður um Vfkurskarð. Milli Húsavikur, Raufarhafnar og Vopnafjarðar er ófært vegna veðurs.og sama er að segja um Mývatnsöræfi, Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðar- heiði. Á Áustfjörðum er versnandi veður og eru Fjarðarheiði, Vatnsskarð eystra, Oddsskarð og Breiðdalsheiði ófær, en flestir vegir aðrir færir svo og með suður- ströndinni til Reykjavikur. Upplýsingar um færð eru veíttar hjá Vegaeftirliti f sfma 91-631500 og ó grænni linu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavfk hiti veður +6 snjókoma +2 skýjað Bergen 6 úrkoma Helsinki 4 alskýjað Kaupmannahöfn 8 skýjaö Narssarssuaq +11 alskýjað Nuuk +2 snjókoma Ósló 7 léttskýjað Stokkhólmur 8 iéttskýjað Þórshöfn 1 slydduél Algarve 20 heiðskfrt Amsterdam 9 súld Barcelona vantar Berlín 13 mistur Chicago +3 skýjað Feneyiar vantar Frankfurt 14 skýjað Glasgow 7 úrkoma Hamborg 10 þokumóða London 12 alskýjað Los Angeles 13 skýjað Lúxemborg 14 hálfskýjað Madrid vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal +11 léttskýjað NewYork 0 alskýjað Orlando 17 þokumóöa Parfs 16 skýjað Madeira 16 skýjað Röm vantar Vfn 11 aiskýjað Washington vantar Winnlpeg +12 skýjað 0° - íDAG kl. 12.00 * jfc Heimlld: Veöurstola Islands (Byggt á vaðurspá kl. 18.30 í gær) Stjórn Lögmannafélagsins segir af sér nái Eiríkur Tómasson kjöri Ekkí er tekist á um málefni heldur menn TALSVERÐ átök munu vera uppi vegna formannskjörs í Lögmannafé- Iagi íslands, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þeir sljórnarmenn sem samkvæmt lögum félagsins eiga að sitja áfram eftir formanns- kjör, munu hafa lýst því yfir að þeir muni óska eftir að nýir menn verði kjörnir í stað þeirra á aðalfundinum, nái Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlögmaður, kjöri. „Þeir sem standa að mótframboðinu taka fram að þeir ætli ekki að hverfa frá þeim verkefnum sem ég og sljórn félagsins höfum unnið að, þannig að ekki verður séð að tekist sé á um málefni heldur eingöngu menn,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags íslands, aðspurður um mótframboð Eiríks. Ragnar kveðst vera kunnugt um að einn helsti hvatamaður að mótframboði Eiríks væri Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, og það kæmi sér í raun ekki á óvart, enda hefði Jón Steinar gjarnan andmælt tillögum og sjónarmiðum hans, bæði innan félagsins og á öðrum vettvangi. „Ég hef hins vegar ekki staðið einn að verki innan Lögmannafé- lagsins, því ég er einn af fimm stjórnarmönnum auk fjölmargra trúnaðarmanna og nefnda á vegum félagsins. Ég hef átt gott og ánægju- legt samstarf við samstjórnarmenn mína og stóran hóp félagsmanna og hef seinustu daga fundið fyrir stuðn- ingi þeirra við að vinna áfram að þeim verkefnum sem stjómin hefur unnið að,“ segir Ragnar. Hann kveðst hins vegar hafa verið gagn- rýndur fyrir að ráðfæra sig ekki við rétta menn, „auk þess sem ýmis samfélagsleg viðhorf eiga þarna hlut að máli,“ segir hann. „Ég hef þar að auki ekkert pólitískt bakland, hef aldrei verið í stjórnmálaflokki eða klúbbum og virðist kannski auðveld bráð þess vegna, en ég hef alltaf þurft að standa fyrir mínu sjálfur og hyggst gera það áfram,“ segir Ragnar. Meðal þess sem Ragnar segir að aðfínnslur hafi verið gerðar við, eru samtöl hans við fjölmiðla fyrir tæp- um tveimur árum sem áhugamaður um EES og réttarleg atriði á því sviði, vegna álitsgerðar fjögurra manna sem skrifuð var að beiðni ríkisstjórnarinnar. „Ég gerði fagleg- ar athugasemdir við ákveðna þætti í gerð álitsgerðarinnar og það hvern- ig rýna ætti í og vinna slík mál. Einhverjir fjölmiðlar munu hafa látið fylgja með titil minn sem formanns félagsins, þótt ég talaði fyrir eigin hönd, og er það sem ég sagði túlkað sem svo að ég hafi talað gegn EES þótt afstaða mín gagnvart EES hafi aldrei komið í ljós. Eins mótsagnar- kennt og það hljómar, lögðust sömu aðilar og héldu því fram að ég hefði talað gegn EES, gegn þeirri tillögu minni að Lögmannafélag íslands gerðist aðili að ráði lögmannafélaga í Evrópusambandinu í tengslum við samrunann sem nú stendur yfir í Evrópu. Það mál var mér mjög mót- drægt og olli mér miklum erfiðleik- um á fundum í félaginu, þar sem m.a. Jón Steinar beitti sér mjög gegn því, þó að það væri samþykkt í stjórn," segir Ragnar. Lögmannavaktin umdeild Af öðrum dæmum um gagnrýni sem komi honum spánskt fyrir sjón- ir nefnir Ragnar að stofnun Lög- mannavaktarinnar sem vakið hafi mikil og jákvæð viðbrögð, bæði al- mennings og þorra lögmanna, virðist hafa virkað illa á einstaka menn. „Því var haldið fram, bæði óopinber- lega og í vikublaðinu Pressunni, að ég hefði ekki haldið fund um stofnun vaktarinnar. Hið rétta er að sá fund- ur var haldinn 8. október síðastliðinn eingöngu um það mál og þar sem það var samþykkt, en viðkomandi gagnrýnendur virtust ekki hafa fylgst nægilega vel með, enda margt að gerast," segir Ragnar. Ragnar hefur gegnt formennsku Lögmannafélags Islands síðastliðin tvö ár og getur setið í því embætti eitt ár í viðbót samkvæmt lögum félagsins. Kosið verður 18. mars nk. Eiríkur Tómasson er erlendis og tókst Morgunblaðinu ekki að ná tali af honum í gær. Framkvæmdaslj óm Vinnuveitendasambandsins Styður afnátn laga um flutningsjöfnun á olíu FRAMKVÆMDASTJÓRN Vinnuveitendasambands íslands lýsti á fundi sínum í fyrradag fullum stuðningi við tillögu um að afnema lög um flutningsjöfnun á olíu og allar „lögbundnar tálmanir við samkeppni olíufélaga um viðskipti", eins og segir í yfirlýsingu sljórn- arinnar. Stjóm VSÍ telur ótvírætt að lög um flutningsjöfnunarsjóð og inn- kaupajöfnun olíu valdi miklu um hærra verðlag á olíuvörum hér á landi en erlendis, þar sem lögin girði fyrir samkeppni milli olíufé- laga og útrými allri hvatningu til hagræðingar á olíudreifingu. „Verð á olíu og bensíni er til jafn- aðar mun hærra hér á landi en í nálægum löndum og er munurinn hvað mestur í stórkaupum til skipa. Fyrir liggur að hærra olíuverð hér- lendis en annars staðar hamla.r auknum viðskiptum við erlend fiski- skip sem eðlilega sækja fremur þangað sem verð þjónustu og að- fanga er lægst. Forsenda fyrir auknum umsvifum í þjónustu við skip á N-Atlantshafi er samkeppn- ishæft olíuverð en opinber afskipti halda verðinu uppi, svo mikil við- skipti fara forgörðum. Innlend út- gerð þarf að sama skapi að búa við hærra olíuverð en útgerðarfyrirtæki í nálægum löndum,“ segir m.a. í yfírlýsingu stjórnar VSÍ. Hagsmunir allra landsmanna VSÍ telur jafnframt óviðunandi að atvinnurekstur hérlendis eink- um sjávarútvegur, þurfi „lengur að sæta því að olíufélögunum sé með lögum bannað að keppa um við- skipti. Það tryggir einungis meiri heildarkostnað og lakari samkeppn- isstöðu innlends atvinnurekstrar, jafnt á sviðum framleiðslu og þjón- ustu og stendur þannig í Vegi at- vinnusköpunar og uppbyggingar. Það eru því ótvíræðir hagsmunir allra landsmanna að afnema þegar login um flutningsjöfnun á olíu “ segir ennfremur í ályktun fram- kvæmdastjornar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.