Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 Pýþagóras Pýþagóras er rokksveit af höfuðborgarsvæðinu sem leikur fönkskotið rokk. Pýþagórasar eru Birgir Her- mannsson gítarleikari og söngvari, Hlynur Rúnarsson trommuleikari og söngvari og Einar Kári Möller bassa- leikari. Þeir félagar eru allir á sextánda árinu. Cyclone Ur Mosfellsbæ koma tvær rokksveitir að þessu sinni, og þessi heitir Cyclone. Hana skipa Kristófer Jensson söngvari, Hugi Jónsson bassaleikari, Egill Á. Hiibner gítarleikari og Þorvaldur K. Þorvaldsson trommuleik- ari. Allir sveitarmenn eru á fimmtánda árinu og segj- ast spila allskonar tónlist. Diesel Sæmi Diesel Sæmi er af höfuðborgarsvæðinu. Sveitina skipa Orn Guðmundsson söngvari, Geirmundur J. Hauksson trommuleikari, Magni Sigurður Sigmarsson bassaleik- ari og Richard Haukur Sævarsson og Baldvin Eyjólfs- son gítarleikarar. Meðalaldur er óráðinn, en þeir félag- ar segjast leika stimpilslaust (jass)rokk. Kenýa Liðsmenn Kenýu koma af höfuðborgarsvæðinu, ýmist úr Reykjavík eða Kópavogi. Þeir eru Brynjar Valdi- marsson sem leikur á gítar, Árni Bergmann Jóhanns- son sem leikur á trommur, Jón Gunnar Margeirsson sem leikur á gítar og syngur og Guðni Hannesson sem slær bassann. Þeir félagar eru allir á sextánda árinu og leika Seattlerokk. Wool Wool heitir hljómsveit af Seltjarnarnesi. Ullarlagðar eru Þórhallur Bergmann píanó og orgelleikari, Orri P. Dýrason trommuleikari, Björn Agnarsson bassaleik- ari, Sindri M. Finnbogason gítarleikari og Höskuldur Olafsson söngvari. Meðalaldur sveitarmanna er rétt tæp sautján ár, en þeim fannst erfitt að skilgreina tónlist sína; sögðu hana þó helst nýbylgjukyns. Gröm Gröm heitir hljómsveit úr Kópavogi sem skipuð er fyrstu stúlkunni í þessum Músíktilraunum. Gröm eru Einar Friðjónsson gítarleikari, Grímur Hákonarson bassaleik- ari og söngvari, Finnur Pálmi Magnússon trommuleik- ari og Hafdís Bjarnadóttir gítarleikari. Meðalaldur Gramliða, sem leika harðlínurokk, er sautján ár. Weghevyll Vegheflar af höfuðborgarsvæðinu eru Birkir Rúnar Gunnarsson trommuleikari, Ólafur Páll Jónsson bassa- leikari, Þór Marteinsson og Ágúst Arnar Einarsson gítarleikarar og Gunnar Ingi Björnsson söngvari. Með- alaldur sveitarmanna, sem leika Seattle/Chicago-rokk, eða breytilega tónlist, er um sautján ár. Rasmus Rasmusar, sem leika létt sýrupopp, koma af Suðurnesj- um, nánar tiltekið úr Grindavík, Njarðvík og Keflavík. Sveitina skipa Björgvin E. Guðmundsson og Einar Valur Aðalsteinsson gítarleikarar, Heiðdal Jónsson bassaleikari, Einar Hreindal trommuleikari og Sylvía Lúa Lopez söngkona. Meðalaldur er sextán ár. Bláir skuggar Bláir skuggar koma helst úr Reykjavík, en hafa þó einn Hafnfirðing innanborðs, Gunnar Frey Steinarsson gítarleikara og söngvara. Hinir eru Bragi Valdimar Skúlason gítarleikari, Örlygur Benediktsson klarinett- leikari og söngvari, Snorri Hergill Kristjánsson bassa- leikari og Helgi Guðbjartsson trommuleikari. Meðalald- ur sveitarmanna, sem segjast leika blöndu af jasspoppi til að prófa nýjan stíl, er rúm átján ár. MÚSÍKTILRAUNIR ÁRLEG hljómsveitakeppni félagsmiðstöðvarinnar Tóna- bæjar hefst í kvöld. Keppnin hefur verið helsti vettvang- ur bílskúrssveita hvaðanæva af landinu að stiga út úr skúrnum í von um að hreppa hljóðverstíma, sem gera þeim kleift að komast á plast. Þetta er í tólfta sinn sem keppnin er haldin og fjölmargar hljómsveitir sem í dag eru þekktar hafa stigið fyrstu skrefin í sviðsljósinu í Tónabæ. Músíktilraunir Tónabæjar eru nú haldnar í tóifta sinn og áhuginn fyrir tilraununum hefur ekkert minnkað, ef marka má hve margar hljómsveitir sóttu um að fá að vera með. Tilraunirnar fara fram á þremur kvöldum, í kvöld, næstkom- andi fimmtudagskvöld, 17. mars og fimmtudaginn 24. mars og úrslit verða 25. mars. Undanúrslitakvöldin greiða áheyr- endur atkvæði um hljómsveitirnar og tvær þær atkvæða- hæstu komast áfram. Dómnefnd getur einnig lagt sitt af mörkum og valið þriðju hijómsveitina í úrslit. Úrslitakvöldið gilda atkvæði dómnefndar svo 70% á móti atkvæðum áheyr- enda, en þá verða einnig kallaðir til sérfróðir til að velja besta gítarleikara, bassaleikara, trommuleikara og söngvara úrslitanna, en athyglisverðustu hljómsveitina velur dómnefnd ein. Músíktilraunimar eru jafnan þverskurður af þvi sem helst á sér stað í bílskúrnum; hvaða tónlist ungmennin heillast helst af og hlusta á um þessar mundir. Gott dæmi um þetta var þarsíðustu Músíktilraunir, þegar nánast hver hljómsveit lék dauðarokk og sigursveitin einnig, en árið eftir fækkaði þeim mjög. Ekki er dauðarokkið endanlega dautt, því tvær hljómsveitir segjast leika slíka tónlist í þessum tilraunum. Hljómsveitum hefur gengið misjafnlega að spjara sig eftir sigur í Músíktiiraunum, til að mynda þekkja allir Greifana, sem sigruðu 1986, en sigursveitina 1988, Laglausa, kannast enginn við. Síðustu þrennar Músíktilraunir hafa sigursveitim- ar þó náð að koma frá sér breiðskífum í kjölfarið, Infusor- ia/Sororicide sigraði 1991 og sendi frá sér breiðskífu, Kol- rassa krókríðandi sigraði 1992 og sendi frá sér plötu einnig og Yukatan, sigursveit síðasta árs, gaf út breiðskífu fyrir jól. Sigurlaunin eru hljóðverstímar eins og áður sagði; Skífan gefur 25 tíma í Sýrlandi, fullkomnasta hljóðveri landsins, í fyrstu verðlaun, Spor 25 tíma í Gtjótnámunni í önnur verð- laun og Hljóðriti gefur 20 tíma í þriðju verðlaun. Þessu tii viðbótar gefur Stúdió Stef athyglisverðustu hljómsveitinni 20 tíma. Á síðustu tilraunum gaf Hljóðfæraverslun Steina besta gítarleikara úrslitakvöldsins gítar og svo verður einnig nú, en til viðbótar fær besti söngvarinn Shure hljóðnema frá Tónabúðinni á Akureyri, besti bassaleikarinn úttekt frá Skíf- unni og besti trommarinn fær úttekt frá Samspili. Aðrir sem gefa verðlaun eru Rín, Paul Bernburg, Pizzahúsið og Japís. Til viðbótar við þá sem gefa verðlaun eru styrktaraðilar Músíktilrauna Hard Rock Café, Jón Bakan og Vífilfell/Coca Cola. Einnig á Tónabær samstarf við Rás 2 um kynningu á tilraununum í útvarpi og verður úrslitakvöldinu meðal ann- ars útvarpað beint. Jafnan leika gestasveitir til upphitunar fyrir tilraunakvöld- in og síðan á meðan atkvæði eru talin. Sigursveit síðustu tilrauna, Yukatan, leikur og einnig SSSói, Bubbleflies, Nýd- önsk og Jet Black Joe, en til gamans má geta að söngvari og bassaleikari Jet Black Joe voru í Nabblastrengjum, sigur- sveitinni 1990. í kvöld leikur Jet Black Joe áður en tilraunrn- ar hefjast og síðan eftir að þeim lýkur á meðan atkvæði eru talin. Gestum verður hleypt inn frá því rétt fyrir átta. Árni Matthíasson tók saman Thunder Love Thunder Love, eða þrumuást heitir hljómsveit sem er að mestu úr Kóþavogi. Liðsmenn eru Egill „Snake“ Tómasson bassaleikari, Kristinn „Tiger“ Júníusson gítarleikari, Guðlaugur „Stonheart" trommuleikari, Einar Þór „King“ Hjartarson sólógítarleikari og Júlíus Johnson, sem syngur. Glöggir taka eflaust eftir því að obbi sveitarmanna skipaði Tjaldz Gissur sem varð í öðru sæti síðustu Músíktilrauna, en þá höfðu þeir ekki náð sér í svo öflug viðurnefni. Meðalaldur Iiðs- manna er átján ár, en Thunder Love leikur LA-rokk, eða bara þungarokk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.