Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 C 3 veldaði stórlega að fylgjast með framvindunni. Sýningin er samin og henni stjórnað af athyglisverðasta leik- stjóra ungu kynslóðarinnar í Finn- landi, Esa Kirkkopelto, en hann er 28 ára. Sem stendur er hann að vinna að uppsetningu á gríska harmleiknum Ödipusi, með ungum hópi atvinnuleikara, Q-leikhúsinu, sem er líklega áhugaverðasti hópur sinnar tegundar í Finnlandi. Og þegar talað er um það besta í finnsku leikhúslífi er óhætt að ganga út frá því sem mjög góðu, því leikhúslífið þar er einstaklega öflugt og líflegt. Athyglin beindist í fyrsta skiptið að Kirkkopelto fyrir nokkrum árum að hann stóð að sýningu með hópi, sem kallaði sig Guðsbörn. Það eftirminnilegasta við sýninguna var að í henni var kastað skít í áhorfendur i orðsins fyllstu merkingu. Nú notar Kirkkop- elto hins vegar fágaðri vinnubrögð. I sýningunni taka rúmlega tutt- ugu ungir leikendur þátt, auk fimm manna Balkanhljómsveitar. Ein- ungis fáar persónur ganga í gegn- um sýninguna, aðrir leika margar persónur og svo almúgann í mörg- um, stórum hópsenum. í stuttum atriðum er saga Mahnos og hreyf- ingar hans rakin. Eftir meðbyr missir hann tökin, enda eru bæði Trotskí og rauði herinn á móti hon- um. Smátt og smátt missir hann tökin og hrökklast að lokum í útlegð til Parísar, niðurbrotinn á sál og líkama. Vinir hans reyna að koma honum til hjálpar, en hann er of langt sokkinn í volæði og drykkju- mennsku til að geta tekið á móti henni. í lokin stendur hann einn eftir, konan farin frá honum og lífs- löngunin brostin. Textinn er ekki eini burðarás sýningarinnar, því í henni mikið af alþýðusöngvum og dönsum og eru dansatriðin alveg mögnuð, dönsuð af kröftugu, ungu fólki, sem hefur firna góða stjórn og til- finningu fyrir líkamlegri tjáningu og hreyfingum. Þó Finnar virðist þungir við fyrstu sýn, þá hafa þeir einhvern frumkraft til að bera rétt eins og Rússar og geta dansað eins og þeir, eins og sýningin ber með sér, að ógleymdu því að Finnar eru tangóþjóð, þó ótrúlegt megi virðast. Eitt af því sem Kirk- kopelto hefur mestan áhuga á í leikstjórn sinni eru einmitt hreyf- ingar og eðli þeirra. Á sýningunni má sjá að mikil vinna hefur verið lögð í líkamsögun leikarana, þó útkoman sé öldungis áreynslulaus og eðlileg. Tjáningarmáti leikar- anna spannar því vítt svið. Dæmi um úthugsaðar hreyfingar er hani, sem gengur í gegnum sýninguna. Hanann leikur hávaxinn og sterk- legur strákur í gráum buxum, gráum frakka með rautt belti og rauða húfu. Þar sem hann spíg- sporar um sviðið leynist engum hvaða dýr er á ferðinni. Hann myndi falla inn í hópinn í hænsna- garði. Svona tilþrif án nokkurra stæla eða hamagangs, en ein- göngu byggð á yfirveguðum hreyf- ingum eru mýmörg í sýningunni. í leikritinu koma fyrir margar hópsenur sem hver um sig er með sínu sniði svo ekki er um endur- tekningar að ræða þó efni nokkurra senanna sé það sama. Þannig koma til dæmis nokkrum sinnum fyrir bardaga- og uppþotasenur, en hver um sig er útfærð á sinn sérstaka hátt, af unaðslegu hug- myndaflugi. Ein senan fjallar um anarkistahreinsanirnar, sem byrj- uðu í Moskvu og breiddust síðan út til Úkraínu. Hún er byggð upp af atriðum, sem eiga að vera úr áróðurskvikmyndum Trotskís, en eru síðan látin breytast í átök og morð hreinsananna. Leikendur eru látnir bera við hvítt Ijós á kvik- myndatjaldi, hreyfingarnarýktarog rykkjóttar eins og í þöglu myndun- um og undir er þeyttur hrossa- brestur, svo skarkalinn verður eins og smellirnir í gömlum kvikmynda- vélum. Útkoman er hreint og beint ótrúlega fjörleg uppákoma af harm- rænum, en um leið afkáralegum atriðum. í annarri bardagasenu er barist með hamri og sigð, heygöffl- um og -kvíslum, undir dillandi tón- list og atriðið sett upp eins og dans, þar sem stúlka með bundið fyrir augun þyrlast á milli odda og eggja. Öll sýningin ber vott um vandaða vinnu, nákvæman undirbúning, fjörlegt hugmyndaflug og ótrúlega tilfinningu fyrir og þekkingu á möguleikum leikhússins. Þar við bætist svo gneistandi leikgleði og leikkraftur, sem lýsir af leikurunum eins og best getur verið þegar um nemendaleikhús er að ræða. Um það geta íslenskir leikhúsgestir vitnað eftir ýmsar velheppnaðar leiksýningar hjá Nemendaleikhús- inu og Stúdentaleikhúsinu á sínum tíma. Kynnin af finnska hópnum æsir upp löngunina til að kynnast finnsku leikhúsi betur, því þar er greinilega af mörgu góðu að taka. Samískt leikhús er líka til - Grænlenskir frjósemisdansar Meðal Sama hefur um árabil staðið yfir vitundarvakning og sjálf- stæðisbaráttan. Hluti af henni er að endurvekja og innleiða leiklistar- hefðir meðal þeirra. „Dearvvuoðat" er einleikur þyggður á prósakvæð- um Rauni Magga Lukkari. Efnið er um ungan mann, sem hefur svipt sig lífi og um líf á mörkum hins hefðbundna Samalífs og nútímans, um hvernig unga fólkið hefur ekki lengur föstu hlutverki að gegna í uppleystu nútímalífi, án gamalla gilda. Orðin eru lögð í munn móður hans, en einnig heyrum við orð bróður hans og gamallar konur sem talar fyrir munn hinna gömlu og fyrir munn hefðarinnar. Samísku kvæðin ásamt endursögn á norsku fylgja með í leikskránni. Leikstjór- inn er Anitta Suikkari, búningar og leikmynd eftir Aslaug Juliussen og textinn er fluttur af Mary Sarre. Haukur Gunnarsson leikstjóri átti þátt í gerð leikskrár. Sviðið eru fallegir, bláir skermar með viðarteinungum, auk þess sem stór vagga eins og notuð var áður fyrr handa Samabörnum gegnir lykilhlutverki í sýningunni. Það hljómar kannski sennilega að sýning á máli sem gesturinn skilur ekki skuli ekki ná tökum á honum, en samt virtist skilningsleysi eitt ekki skýring þar á. Leikkonan var ung og falleg, en bjó alls ekki yfir þeim krafti eða reynslu að geta miðlað sorg lífsmæddrar móður og virtist með engu móti getað miðlað textanum sem eigin reynslu. Grænlenskur danshópur, Silam- iut frá Nuuk, gisti Stokkhólm hátíð- ardagana og sýndi víða, meðal annars í verslunarmiðstöð. Dans- ararnir þrír, ung og grannvaxinn stúlka, ungur maður og annar eldri og pínulítill fluttu firna áhrifamikinn dans, sem snerist um frjósemi og getnað með tilheyrandi hreyfingum og látbragði. Dansarnir undu sér á milli áhorfenda, sem oftar en ekki brá, þegar þeir uppgötvuðu þetta seiðfólk, sem eins og vafðist í kringum þá og dró þá inn í dans- inn. Dansararnir voru málaðir í framan, auk þess sem stúlkan set- ur pinna upp í sig, svo andlitið afsk- ræmist. Þar með fæst undarleg mótsetning milli fallegs og liðugs líkama hennar og afskræmds and- litsins. Trommutónlist fylgir, auk þess sem dansararnir mása og hvása. Sýningarnar voru einstak- lega áhrifamiklar og hópurinn vakti hvarvetna verðskuldaða athygli, þar sem hann kom fram. Eftir þessi kynni af norrænni leik- list er óhætt að segja að hún blómstri. Næsta ár verður norræna listahátíðin í Reykjavík og þar með gefst tækifæri til að kynnast ein- hverjum af þeim mörgu ágætu leik- listarhópum, sem setja svip sinn á norrænt listalíf. Framboðið er yfir- þyrmandi gott. Sigrún Davíðsdóttir. HARALDUR ING RÆÐIR UM LISTAG O G LISTASTARF LISTASAFNIÐ á Akureyri var formlega opnað 28. ágúst á síðasliðnu ári og hefur þvf starfað f ríf- lega sex mánuði. Það er til húsa f hinu svokallaða Listagili, þar sem myndiistarmenn og konur hafa komið sér fyrir á vinnustofum og gaileríum norð- anmegin Gilsins. Listasafnið er á annarri hæð hússins og hefur þvf aðeins verið opnað að hluta, eða þar til þriðja hæðin verður laus. að var búið að gera ýmsar tilraunir hér í bænum til að reka sýningarsali," segir forstöðumaður- inn, Haraldur Ingi. „í gegnum tíðina hefur menning- arsjóður Akureyrarbæjar keypt listaverk sem hafa hangið uppi í opinberum byggingum. Það gera þær enn að vísu, vegna þess að hér er lítil aðstaða til geymslu og lítið vinnupláss. Það lagast hins vegar þegar við fáum efri hæðina eftir um það bil þrjú ár. Reyndar upphefst þá fyrst leikurinn um að fá fjármagn til að koma þeirri hæð í sýningarhæft ástand. Annars er mér sagt að sú hæð sé mun betur farin en þessi var og því ódýrara að gera hana upp. Það var lögð megin áhersla á að klára sýningar- • salina hér, en síðan þarf pláss til að geyma verkin, aðstöðu til skráningar og til reksturs. Það gleymist oft þegar farið er út í svona fyrirtæki að það þarf aðstöðu til að reka listasafn. En fyrr en það gerist, er lítið hægt að halda einhverri yfirsýn yfir verk í eigu bæjarins." Hvernig hafa viðtökurnar verið? „Þær hafa verið afskaplega góðar. Aðsóknin hefur verið miklu meiri en ég þorði að vona. Við höfum reynt að vinna með grunnskólunum og sú vinna er þegar farin að skila góðum árangri. Við reynum að bjóða upp á fjölbreytt sýningahald; bæði klassík - ef hægt er að tala um íslenska klass- ík - það er að segja gömlu meistarana í bland við frísklega samtimalist. Skipting salarins býður upp á að blanda saman ólíkum hlutum og nú þegar eig- um við gott samstarf við Listasafn íslands og Kjarv- alsstaði." En hvað er Listagilið? Er það eitthvert eitt fyrir- tæki? . „Nei, þetta eru mörg fyrirtæki og félög. Hérna norðanmegin við götuna er Listasafnið á Akureyri. í sama húsi eru 16 listamenn með vinnuaðstöðu og síöan er Myndlistarskólinn á Akureyri hér ofar í götunni. Sunnanmegin eru atvinnufyrirtæki sem tengjast listum og hönnun, eins og arkitektafyrir- tæki. Þar eru líka einstaklingar með vinnuaðstöðu og þar er Gilfélagið til húsa. Gilfélagið er félag áhugafólks um listir. Það geta allir gengið í félagið sem hafa áhuga á listum. Félag- ið rekur Deigluna sem er fjölnota salur. Síðan er gestavinnustofa í húsinu sem verið er að koma í gagnið. Næst bætist ketilhúsið við og svo er mein- ingin að koma upp rithöfundasafni í Sigurhæðum, sem Akureyrarbær hefur nú eignast að fullu. Þetta er að smá þróast. ( sumar er uppi áætlun um að leggja stíg frá Sigurhæðum, niður gilið og tengja það þannig miðbænum og annarri listasarfsemi. Meiningin er að gera þetta svæði að listavin, þar sem bæjarbúar og ferðamenn geta notið sem allrar mestrar fjölbreytni á sviði lista." Ég hef heyrt þá gagnrýni hér meðal bæjarbúa að hér hafi fámenn klíka hreiðrarð um sig og að I HARALDSSON ILID Á AKUREYRI SEMI ÞAR Í B Æ húsnæðið hér sé meira og minna nýtt sem einka- heimili þeirra einstaklinga sem eru í klíkunni. „Þetta er nú ekki alveg rétt. Ég held að bæjaryf- irvöld hafi dottið niður á mjög snjalla lausn hvað varðar suðurhúsin. Bærinn keypti þau en selai síð- an einstaklingum stærsta hlutann. Þeir gera það rými sem þeir keyptu upp fyrir eigin peninga. Bær- inn seldi þetta húsnæði fyrir sömu upphæð og hann keypti það. Það var gríðarleg vinna að gera húsnæðið upp. Ástand þess var vægast sagt ömur- legt en ég held að hverjum og einum listamanni sé í sjálfsvald sett hvort hann nýti þann hluta sem hann keypti sem íbúðar- eða vinnuhúsnæði. Akur- eyrarbær gerði síðan samning við Gilfélagið um að reka Deigluna og vinnustofurnar. Þetta er því þrí- þætt framtak; einstaklingsframtak, félagaframtak og opinbert framtak. Ég held að það hafi skilað bænum mjög góðan hlut. Allt húsnæðið er fullnýtt, svo þörfin hefur greinilega verið mjög mikil. Mín skoðun er sú að þetta eigi eftir að skila sér í gríðar- legri grósku. Þegar menn vissu að þetta var komið á koppinn, var víða leitað að fólki sem vildi flytja þarna inn. Húsið var í hrikalegu ástandi og þeir voru margir sem sögðu, neit takk. Meðal annars ég. Ég sá að vísu engan flöt á því að kaupa þetta skelfilega hús- næði, þar sem ég bjóð þá í Reykjavík og var þar í vinnu. Ég sá enga framtíð fyrir mig hér.“ En hvers vegna tókstu starf forstöðumanns að þér? „Ég hef alltaf gengið með þá þráhyggju að Akur- eyri væri bærinn til að byggja upp myndlistarstarf- semi í. Mér hefur alltaf þótt þörf á því að víkka rammann út fyrir Reykjavík. Það er vont fyrir mynd- listina að hún skuli ölí safnast fyrir í Reykjavíic og það er vont fyrir listamennina. Það er óheilbrigður hlutur hjá þessari þjóð að listamenn skuli þurfa að vera i Reykjavík til að vera taldir marktækir, því það er augljóat að skilyrði til vinnu að list eru víða betri en þar." Hvert er markmiðið með listasafninu hér? „Markmið okkar er að byggja upp þannig aðstæð- ur að ramminn utan um myndlistina verði víðari og það sé fýsilegur kostur - og æ betri valmöguleiki - fyrir listamenn að búa og starfa á Akureyri. Við erum með áætlanir um 19 sýningar í safninu á þessu ári. Hér hefur ekki verið aðstaða til að fræða fólk um myndlistarhefð okkar og það hlýtur að vera hlutverk svona safns að vinna myndlistina inn í bæinn, til almennings sem á safnið. Svo er það að sjálfsögðu samtímalistin sem við viljum taka þátt í og vera hluti af. Við erum að byrja. Fyrir framan okkur liggur óplaegður akur og möguleikarnir eru gríðarlega miklir. Við þurfum heldur ekki að leita svo langt eftir nýjungum, því Reykjavík er okkar París, London og Róm. Þar er listasögulegur fjár- sjóður okkar sem er að mestu leyti ókynntur hér. Við hugsum okkur þetta sem hægfara uppbygg- ingu. Við getum ekki farið í sprengjustarfsemi, enda sígandi lukka best. Við viljum gera hlutina hægt, eins og til dæmis listasumarið hér í fyrra. Það var ekkert á við þær listahátíðir sem eru haldnar fyrir sunnan, en við ætlum að gera betur næst og enn betur þar næst og þannig stig af stigi. Bæta okkur ár frá ári." ssv

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.