Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 C 5 Þetta er spurning um að anda Guómtindur Óli Gunn- arsson, aóalstjórn- andi Sinfóniu- hljómsveit- ar Noróur- lands, ræó- ir um sam- spil tónlist- arflutnings og kennsiu ÞAÐ VAKTI talsverða athygli þegar stofnuð var Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á síðastliðnu ári. Fjörutíu ár eða svo höfðu liðið frá því seinast var stofnuð sinfóníu- hljómsveit hér á landi. Síðan hafði allt verið með kyrrum kjörum. Hljómsveitin tók strax til við að halda tónleika og þegar grannt var skoðað mátti sjá að stór meiri- hluti meðlima hennar, lifir og starfar norðan heiða. Enda hefur tónlistarlíf stöðugt orðið blómlegra á Norður- landi á seinustu misserum. Má þar nefna Sumartónleika á Norðurlandi, sem haldnir eru á hverju ári og Kirkjulistahátíð sem haldin er annað hvert ár. Síðan fjölgar einleikstón- leikum jafnt og þétt og nú þegar er farið að sá fræum jasstónlistar á Akureyri og nágrenni. Það segir sig sjálft að þegar hljóð- færaleikarar eiga þess kost að starfa með sinfóníuhljómsveit, eða öðrum tónlistarhópum, eru þeir mun tilbún- ari til að starfa við tónlistarskóla úti á landi. Um leið og tónleikahald eflist, eflast tónlistarskólarnir. Þessa má glöggt sjá merki á Akur- eyri, þar sem starfræktur er einn af þremur stærstu tónlistarskólum landsins. Við skólann starfa 35 kenn- arar auk skólastjóra og alls eru þar 550 nemendur. Skólastjórinn, Guð- munduróli Gunnarsson, erjafnframt aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Hann segir kennt á flest hljóðfæri í skólanum, en segir aðrar forsendur fyrir mannaráðning- um en í Reykjavík. Hvernig þá? „Hér eru allir kennararnir í fullu starfi. Maður getur ekki beðið mann að flytja til Akureyrar til að kenna nokkra tíma,“ segir Guðmundur Óli. „í Reykjavík er hins vegar svo mikið framboð af hljóðfæraleikurum að hver skóli getur kippt inn stunda- kennurum eftir þörfum. Ef einhvern skóla vantar óbókennara í tvo tíma á viku, þá getur hann fengið hann. Hér verðum við að geta boðið upp á fulla stöðu. Það hefur okkur tekist og bjóðum upp á sérhæfðari tónlist- arkennslu en aðrir skólar á lands- byggðinni. Hér geta menn ekki held- ur hlaupið á milli staða, það er að segja kennt í mörgum tónlistarskól- um. Við verðum að sjá þeim fyrir nægilegri kennslu." Guðmundur Óli kom til Akureyrar fyrir tveimur árum, eftir að hafa ver- ið við nám og starff í Hollandi og í Finnlandi. Hann tók strax við skóla- stjórastöðunni og stjórn Kammer- hljómsveitarinnar á staðnum, sem nú er orðin að Sinfóníuhljómsveit. „Sinfóníuhljómsveitin var stofnuð í haust," segir Guðmundur Óli. „Hún hefur haldið þrenna tónleika og þetta er fyrsta almanaksárið, sem við fáum fjárveitingu. Við fengum tvær milljón- ir frá Akureyrarbæ og tvær milljónir frá ríkinu. Meðlimir hljómsveitarinn- ar koma alls staðar að af Norður- landi og sumir jafnvel frá Austfjörð- um. Auk þess hafa komið auka spil- arar frá Reykjavík til að spila með okkur. Þeir hafa komið með föstu- dagsvélinni, eftir vinnu. Þá hafa heimaspilararnir grunnunnið pró- grammið og síðan er æfing á föstu- dagskvöldi, tvær æfingar á laugar- deginum og síðasta æfingin á sunnu- dagsmorgni." Hversu margir aukaspilarar eru með ykkur á hverjum tónleikum? „Þeir hafa verið á bilinu fimm til fimmtán. Margir af þessum hljóð- færaleikurum eru frá Sinfóníuhljóm- sveit íslands og það hefur verið okk- ur mjög hollt að fá þá kunnáttu og þjálfun sem þeir hafa. Við höfum fundið fyrir mjög góðum vilja frá Sinf- óníuhljómsveit Islands. Þeir sem þar vinna, hafa verið mjög jákvæðir í okkar garð." Hvernig hefur aðsókn verið að tónieikum? „Mér virðist aðsókn að tónleikum almennt ekki vera góð. Aðsóknin hjá Sinfóníutónleikum Norðurlands hef- ur verið misjöfn, eftir því hvað er á efnisskránni. Á seinustu tónleikun- um okkar voru þó 100 manns og er það þreföld aukning frá tónleikum með samsvarandi efnisskrá í fyrra, það er að segja, nútímatónlist. Hins vegar draga Vínartónleika allt að 600 manns að. Hér er kannski ekki svo mikið af fólki sem hefur alist upp við að fara á tónleika og er því kannski ekki vakandi fyrir því. Miðað við nem- endafjöldann í tónlistarskólanum, varð ég þó undrandi á því að foreldr- ar kæmu ekki með börnum sínum á tónleikana." Hvað með önnur bæjarfélög? Nú er þetta Sinfóníuhljómsveit Norður- lands - ekki bara Akureyrar. „Það hefur ekki komið til fram- kvæmda að önnur bæjar- eða sveita- félög leggðu fram fjárveitingu til hljómsveitarinnar, en þegar við höf- um farið út fyrir Akureyri með tón- leika - eins og í Þingeyjarsýslu, þá hafa þeir lagt í púkkið. Það er hins vegar erfitt í framkvæmd að spila hér í kring. Við höfum haldið tónleika okkar á sunnudagseftirmiðdögum og spilararnir sem ekki búa á Akur- eyri, hafa farið heim með vélinni sem fer um kvöldmatarleytið. í öðru lagi er þetta spurning um peninga og í þriðja lagi spurning um húsnæði. En þetta er kannski ekki alltaf spurning um að við förum út fyrir Akureyri með sjálfa tónleikana. Þetta er frem- ur spurning um að vinna með tónlist- arfólki á Norðurlandi. I fyrra söng kór frá Dalvík með okkur á Vínartón- leikum og það tókst mjög vel. Við höfum áhuga á að starfa með fleiri kórum á svæðinu." Hver eru svo plönin í nánustu framtíð? „Við erum að byggja þessa starf- semi upp smám saman, stig af stigi. Það fannst mörgum við taka stórt upp í okkur við nafnbreytinguna úr kammerhljómsveit yfir í sinfóníu- hljómsveit. En við bendum á að Sinf- óníuhljómsveit íslands var ekkert fullsköpuð hljómsveit þegar hún var stofnuð. Margir sem spila með okkur eru klassaspilarar. Þetta er mikið af ungu fólki sem hefur fengið hljóm- sveitarþjálfun í námi og hefur leikið í öðrum hljómsveitum. Það er mikill kostur fyrir okkur þegar við leitum að kennurum að geta boðið þeim upp á hljómsveitarvinnuna. Ef við hefðum hana ekki, myndu þessir hljóðfæraleikarar leita sér að vinnu annars staðar. Það er alls óvíst að þeir kæmu hingað. Fyrir hljóðfæra- leikara er þetta spurning um að anda. En hvað verkefnaval hjá okkur varðar, þá verðum við með tónleika með Kristjáni Jóhannssyni í septem- ber. Með þeim hefst næsta starfsár okkar. Síðan áætlum við tvenna tón- leika til viðbótar fyrir áramót. Svo sjáum við ekki hvernig á að vera hægt að halda upp á þjóðhátíðarárið hér, án þess að Sinfóníuhljómsveit Norðurlands taki þátt í því.“ ssv Jón Rafns- son, bassa- leikari, kemur víóa vid i tón- listarlifi noróan heióa VIÐ Tónlistarskólann á Akureyri eru starfandi forskóladeild, blás- aradeild, gítardeild, píanódeild, strengjadeild, söngdeild og fyrir tveimur árum var stofnuð þar al- þýðutónlistardeild. Deildarstjór- inn þar er kontrabassaleikarinn Jón Rafnsson, sem jafnframt er ötull í spilamennskunni, leikur í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, hefur starfað með danshljóm- sveit í vetur, leikið í jasstríói og kvartett og hann spilar f sýningum Leikfélags Akureyrar, nú um þessar mundir í Operudraugnum. í deildinni sem Jón stýrir i tónlist- arskólanum eru um það bil 70 nemendur, sumir eru í öðrum deildum en sækja tíma í jassteor- íu eða samspili í alþýðutónlistar- deildinni. Meiningin með þessari deild er að koma til móts við þá sem vilja læra aðra tónlist en klassíska," segir Jón. „Deildin byggist ekki á því að kenna nemendum eingöngu jass, heldur förum við einnig inn á aðrar línur. Til dæmis er meiningin næsta vetur að bjóða upp á rokk- sveitir og kenna nemendum rokk- teoríu. Þess vegna er erfitt að kalla þetta jassdeild. Hún er blanda af jassi og rokki svo við köllum hana bara alþýðutónlistardeild." 1 - Á hvaða hljóðfæri kennið þið? „Við kennum á rafbassa, rafgítar, rafpíanó hljómborð og trommur. Kennslan hjá okkur snýst um hefð- bundna notkun á þessum hljóðfær- um. Blásarar, þ.e. trompet og sax, tilheyra blásaradeildinni, en þeir sem áhuga hafa sækja samspil og „spuna“-kennslu til okkar. Margir 3f nemendunum spila í hljómsveit- um utan skólans. Þeir koma til okk- pr með tæknileg vandamál sem þeir lenda í í hljómsveitum sínum og læra hvernig er best að leysa þau. Fyrir utan hefðbundið samspil fyrir byrjendur, erum við með sam- bland af rokki og „improvisjón", „spuna“, og höldum þá kannski með þá þaðan inn á jasslínuna. Síð- an læra þeir jassteoríu, rokkteoríu og hljómfræði og jasssögu. Nú, svo eru alltaf nokkrir sem vilja bara stúdera jass. Næsta vetur ætlum við svo að reyna að bjóða upp á sögu rokksins. Það eru margir sem ekki vita um grunninn: Stones, Bítl- ana og allt þar á undan. Það er kannski skiljanlegt og þá er það auðvitað okkar að miðla til þeirra." - En þú ferð víða. Ég átti þess kost að hlusta á bráðgóða jass- grúppu sem þú spilar með nú á dögunum. „Ég hef spilað með jasstríói sem var stofnað í lok árs 1991 og má segja að það hafi orðið til upp úr „dinner"-spilamennsku okkar Gunnars Gunnarssonar, píanóleik- ara, og Árni Ketill, trommuleikari, kom með okkur inn í þetta. Við höfum að vísu ekki spilað mikið í vetur, því við höfum verið upptekn- ir í annarri tónlist. Það er eins og þetta komi í skorpum. Við höfum lengi verið á leiðinni að gera eitt- hvað. Þegar við stofnuðum tríóið, var meiningin að fá sólista að sunn- an, ýmist til að spila okkar pró- gramm, eða að koma sjálfir með prógramm til að leika með okkur. í fyrra kom til dæmis Bjössi Thor og lék með okkur og nú ætlum við að taka aftur upp þráðinn. Grúppan sem þú heyrðir var jasstríóið ásamt Ómari Einarssyni gítarleikara, sem alveg óvænt droppaði inn þar sem við vorum að spila. Hann er búsettur í Reykjavík, en er stundum á ferðinni hér. í fyrra- sumar settum við saman band, en í því er auk min og Ómars, Karl Petersen trommuleikari. Við erum nú að æfa á fullu og eru tvær uppá- komur í bígerð þar sem við leikum gamlan og nýjan jass og aðeins frumsamið. Jasstríóið hefur starfað mikið með Aðalsteini Ásberg og Önnu Pálínu. Þegar geisladiskurinn þeirra „Á einu máli“ kom út, hringdi ég í Alla og spurði hvort þau væru ekki til í að spila með okkur. Þau komu norður og spiluðu í Deiglunni. Það komu 75 manns á þá tónleika og þeir voru mjög vel heppnaðir. Síðan má segja að við séum undirleikstríó- ið þeirra hér fyrir norðan og reynd- ar víðar. Við höfum spilað með þeim nokkrum sinnum og það erýmislegt á döfinni í því samstarfi." - Og hvað annað? „Nýlega stofnuðum við nokkrir jasskvartett til að spila nokkrum sinnum saman í vor. Þetta eru kontrabassi, tenórsax, gítar og trommur. Þessi kvartett er sérstak- lega settur saman fyrir spilanir á vegum Bautans og vonandi verður framhald á ef vel gengur. Nú, svo skilst mér að ég sé að spila með Paul Weeden á jasshátíðinni á Egils- stöðum í sumar. Svo það er margt á döfinni." - Eru norðanmenn opnir fyrir jasstónlist? „Það er erfitt að fá þá til að koma og hlusta - eða öllu heldur, það er erfitt að fá fjölmenni. Það er til dæmis álítið hér að ekki sé hægt að bjóða upp á þessa tegund tón- listar á krám á föstudags- og laugar- dagskvöldum. Þeir sem eiga stað- ina, vilja ekki svona tónlist. Þeir segjast vita að hún selji ekki bjór- inn. Þeir græða ekki á henni." - Þú leikur, jass, rokk, klassík, leikhústónlist. Hvað finnst þér sjálf- um skemmtilegast? „Ég er alæta á tónlist." Ætlarðu að vera hérna áfram? „Ég ætla að búa hérna áfram. Mér og mínum líður vel og engin ástæða til að hræra í því.“ ssv

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.