Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 47 maður ágætur á yngri árum og átti auðvelt með að vinna með börnum og unglingum. Sem íþróttamaður var hann kappsmaður mikill. I miðjum handboltaleik á vormóti barnastúkna á Akureyri kom hann einu sinni til mín ábúðarmikill og sagði við mig sem dómara leiksins: „Ætlarðu að láta mitt lið tapa leiknum?" En að leik loknum voru allir vinir. Sem gamlan KA-mann bað ég Svein í vetur að hafa samband við Sigbjörn Gunnarsson, alþingismann, formann flárveitinganefndar Alþingis. í vor fengum við svo þær gleðifréttir að Alþingi hefði veitt verulegar flárhæð- ir til barnastarfs Stórstúkunnar. Þar átti Sveinn verulegan hlut að máli. Ég minnist líka ferðar 1982 til Ham- borgar, sem ég var beðinn að fara sem þáverandi stórtemplar. Peningar hjá hreyfingunni voru þá sem oft endranær litlir. Þá var það Sveinn með fulltingi Ingvars Gíslasonar menntamálaráðherra sem töfraði upp dágóðan farareyri. Á heimili Sveins komum við oft sunnlenskir templarar og þáðum höfðinglegar veitingar af þeim hjónum. Á afmælisfundi í vetur hjá ísafold var Sveinn enn við stjórn- völinn en við vissum að heilsan var völt. Ég votta konu hans, Undínu, og börnum þeirra innilega samúð. Við templarar eigum á bak að sjá duglegum liðsmanni. Hilmar Jónsson. Á morgun fer fram í Akureyrar- kirkju útför vinar míns og vensla- manns Sveins Kristjánssonar, sem mér þykir miður að geta ekki fylgt síðasta spölinn, lífið á sér annan til- gang. Það er eftirsóttur kostur hjá sér- hverri manneskju að eiga hjarta- hlýju, næstum ótakmarkaða, að gefa öðrum. Þannig minnist ég Svenna, „Svenna á Akureyri“. Ég dvaldi oft langtímum saman hjá þeim Svenna og móðursystur minni Undínu Árna- dóttur og börnum þeirra sem barn; í minningunni er Svenni að koma heim í hádegismatinn glaðlegur á svip, nuddar saman lófunum og lítur yfir hópinn við matarborðið svona eins og til að athuga hvort allir séu ekki á sínum stað og að allir fái á diskinn sinn. Minnist ég sérstaklega signa fisksins sem oft var á borðum og mér þótti hreint ekkert spennandi en það var ekki til siðs á þeim tíma að börn leifðu matnum sínum, betur færi ef svo væri enn, og fékk ég því að sitja tímana tvo þar til diskurinn var hreinn. Oft höfum við hlegið og gert grín að þessum stundum við matarborðið. Svenni var söngelskur maður og fannst mér sem barni hann heimsins besti tenór og tók hann oft lagið heima, en hápunkturinn var að sjá hann og heyra syngja með Karlakór Akureyrar Lóan er komin að kveða burt snjóinn, þá virkilega hoppaði hjartað af gleði og sumarið var kom- ið. í hjarta okkar munum við í dag fagna sumri með Svenna í hans nýju heimkynnum, það var alltaf sumar í návist hans. Undína og Sveinn voru höfðingjar heim að sækja og hafði ég ávallt á tilfinningunni að ég væri komin heim þegar ég hitti þau og frændsystkini mín. Seinna varð ég svo lánsöm að geta snúið dæminu við og boðið hon- um að gista hjá mér í Reykjavík þegar hann þurfti oft að sækja fundi hér sem æðstitemplar Stórstúku ís- lands, og kom hann þá oft með reykt- an Mývatnssilung sem var í miklu uppáhaldi, helst gat hann ekki komið tómhentur, og Sveinn sonur minn beið spenntur, hvað skyldi Svenni frændi (eins og hann kallaði hann) koma með núna. Það er gott til þess að vita og hugsa að hafa átt væntumþykju hans og mælti ég þá fyrir hönd okkar allra systkinanna og biðjum við góðan guð að styrkja Undínu frænku okkar og börnin þeirra og barnabörn. Missir þeirra er mikill. Guð blessi minningu vinar okkar Sveins Kristjánssonar. Ingibjörg Bergmann Sveinsdóttir. Ein er tærust óskin mín, oft með trega bið ég hljóð um að Guð vor gæti þín, góði vin, á nýrri slóð. Vinur minn Sveinn Kristjánsson andaðist hinn 13. apríl síðastliðinn. Hann var giftur Undínu frænku minni, og höfum við ætíð verið góðir vinir síðan. Að vísu þekkti ég Svein áður sem barn niðri á Eyri. Sveinn var mér alltaf sérstaklega hjálpleg- ur, ekki síst eftir að ég missti Gunn- ar manninn minn. Meðal annars tók hann mig með í ferðalög, bauð mér á þorrablót hjá Stúkunni, auk þess sem hann bauð mér oft á tíðum heim tii sín. Fyrir þessa hjálpsemi og vel- vild alla vil ég þakka Sveini, um leið og ég votta Undínu, börnum hennar og fjölskyldum innilega samúð mína. Lilja Jóhannsdóttir. Einn besti vinur mmn, Sveinn Kristjánsson, er látinn. Ég get sagt með sanni, það að hafa átt Svein að vini var mér mikil lífsfylling. Nú þegar Sveinn hefur kvatt þá geri ég mér .enn betur grein fyrir því hvaða mann hann hafði að geyma. Hann starfaði mikið að bind- indismálum og átti ég þess kost að starfa með honum í gegnum tíðina og þar fór mikill leiðtogi. í huga minn koma margar minningar um Svein og allar eru þær góðar. Hann var þægilegur maður og oftast stutt í gamansemina. Oft spjölluðum við um lífið og tilveruna og það verð ég að segja alveg eins og er að það voru einar af mínum bestu stundum þegar ég hitti Svein. En nú er hann horfinn okkur í bili, við fáum ekki oftar að skiptast á skoðunum við hann og hlægja með honum á góðri stund. Þess í stað verðum við að láta okkur nægja að ylja okkur við minn- ingarnar um góðan dreng, sem bar hag sinna vina ávallt fyrir bijósti og studdi þá í blíðu og stríðu. Um leið og ég þakka þér fyrir samfylgdina og kynnin góðu sendi ég og eiginkona Undínu Arnadóttur eiginkonu Sveins, börnum þeirra og öllum ástvinum hans okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þeirra missir er mikill eins og allra þeirra er þekktu þennan 'góða mann. Sigurgeir Sigurpálsson. Gardena býður gleðilegt sumar7 GARDENÁ Kentucky Fried Chicken /p Dæmi1:Pakkilynir4, kr. 1500 375 kr. á mann* Dæmi 2: Pakki fyrir 6, kr. 2200 367 kr. á mann* *2 bitar, franskar, sósa, salat á mann. SMUmi sijjjjjjjj-1 Kentucky Fríed Chícken Faxafeni 2 • S: 680588 Hjallahrauni 15 • S: 50828 Shellskálanum Selfossi • S: 98-23466 frá 11-22 Kentucky Fríed Chicken Kentucky Fríed Chicken Kentucky Fríed Chicken Hjólbarðaþjónusta Heklu Laugavegi 174 hmbiímiei HEKLA Laugavegi 170 -174 • Simi 69 55 00 SMURSTÖÐ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.