Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 19 Tölvur * Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn og Þróunarfélag Islands tóku þátt í hlutafj áraukningu Nýir hluthafar gengnir tíl liðs við Tæknival hf. EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Alþýðubankinn hf. og Þróunarfélag ís- lands hf. eru nýir hluthafar í tölvufyrirtækinu Tæknival hf. eftir samninga sem undirritaðir voru á aðalfundi félagsins síðastliðinn fimmtudag. Samtals nemur hlutafjáraukning félagsins 23 milljónum króna þar sem eignarhaldsfélagið kemur inn með 15 milljónir og Þróunarfélagið með 8 milljónir. Heildarhlutafé Tæknivals er nú samtals 78 milljónir en að sögn Rúnars Sigurðssonar, framkvæmda- sljóra félagsins, er stefnt að því að það verði allt að 100 milljónir. Þannig verði til dæmis boðin til sölu strax í næstu viku hlutabréf að nafnvirði tíu milljónir króna. Flugfélög Fjöldaupp- sagnirhjá Deltafélaginu Atlanta. Reuter. DELTA-flugfélagið hyggst segja 12-15.000 manns upp störfum og er það liður í tilraun til að minnka árlegan kostnað um 2 milljarða dollara fyrir mitt ár 1997. Alls munu um 16 til 20% starfs- manna hætta störfum. Félagið tel- ur að uppsagnir verði nauðsynleg- ar, en leggur áherzlu á að fá starfs- menn til þess að hætta af fúsum vilja, fara á eftirlaun fyrr en ella eða í langt leyfi o.sv.frv. Jafnframt tilkynnti Delta að lágt eldsneytisverð og áframhaldandi niðurskurður útgjalda hefði leitt til þess að dregið hefði úr rekst- artapi á þriðja fjórðungi fjárhags- árs félagsins. Nettótap fyrstu þijá mánuði árs- ins nam 77,9 milljónum dollara samanborið við 152,3 milljónir á sama tíma í fyrra. Tæknival skilaði á síðasta ári hagnaði upp á 13,7 milljónir og áætlanir gera ráð fyrir 26 milljóna hagnaði í ár. Að sögn Rúnars er hagnaður af rekstrinum fyrstu þrjá mánuði þessa árs 13,3 milljónir samkvæmt milliuppgjöri. „Þetta er yfir áætlun því aðaltekjutímabil okkar er frá september til og með desember en sumarið er hins vegar alltaf dauft,“ sagði Rúnar. í kjölfar hlutafjáraukningarinn- ar var skipuð ný stjórn hjá Tækniv- ali. Formaður er Eysteinn Helga- son, framkvæmdastjóri Plast- prents, og aðrir stjórnarmenn eru Páll Jensson frá Háskóla íslands, Sigrún Edda Jónsdóttir frá Þróun- arfélaginu og Gunnar Ólafsson og Ómar Órn Ólafsson frá Tæknivali. „Takmarkið var að fá þarna inn faglega stjórn sem er ekki ein- göngu mynduð af starfsmönnum Tæknivals eins og hingað til,“ sagði Rúnar. „Við lítum á það sem f þmi mp <*& S Cí, m 11 ^tJS Æn&m NY STJORN — Talið frá vinstri: Ómar Örn Ólafsson, Rúnar Sigurðsson, Sigríður Edda Jónsdóttir, Gunnar Ólafsson og Eysteinn Helgason. Bankar Chrístiania hagnast wn 80% Ósló. Reuter. Nettóhagnaður Christiania Bank, annars stærsta banka Noregs, jókst um 80% á fyrsta ársfjórðungi vegna minna taps á lánum og traustra rekstrar- tekna. Nettótekjur bankans jukust í 375 milljónir norskra króna úr 209 milljónum á sama tíma í fyrra. Ríkið á 69% hlut í bankanum, sem lýsti sig tæknilega gjaldþrota 1991. Hagur hans fór að batna eftir geysimikla björgunaraðgerð ríkisins 1992. Stjórn Verkamannaflokksins sagði nýlega að hún vildi að ríkið ætti að minnsta kosti 50% í tveim- ur stærstu bönkum Noregs, Christ- ania og Den norske Bank, til 1997. mikla traustsyfirlýsingu að fá þessa nýju aðila inn og teljum að það styrki áætlanir okkar mikið. Á sama hátt bindum við miklar vonir við aukið samstarf við HP á ís- landi til lengri tíma litið.“ Samið við Skífuna Tæknival hefur að sögn Rúnars lagt áherslu á að bjóða fyrirtækjum heildarlausnir varðandi tölvuvæð- ingu, allt frá lögnum upp í kennslu, þjónustu og ráðgjöf við gangsetn- ingu. Fyrirtækið hefur nýlega gengið til samninga við Skífuna um sölu og uppsetningu á upplýs- ingakerfi í allar búðir þeirra, upp- setningu netkerfis, verslunarkerf- is, tölvubúnaðar og Concorde við- skiptahugbúnaðar. Tjaldvagninn sem kemur á óvart Verð aðeins 299.000 kr. --285--1 Hefur marga IIII; kosti sem aðrir vagnar hafa ekki OLIUFYRIRTÆKI í TEXAS leitar að einstaklingi eða fyrir- tæki til að kynna hágæða bygg- ingaviðgerðarefni. Miklirtekju- og markaðsmöguleikar. Engrar reynslu krafist. Við erum fag- menn á okkar sviði með 60 ára reynslu og bjóðum uppá full- komna þjálfun. Nútíma evrópsk verksmiðja. Vinsamlegast skrif- ið á ensku til: B.H. Dickerson, Southwestern Petroleum, P.O. box 961005, Ft. Worth, Texas 76161 U.S.A.Telex 163222, Fax 90 1 817 877-4047. ÁSÞÉTTI VEIARhf. Eigum margar geröir á lager og getum útvegað flestar gerðir með stuttum fyrirvara. Vatnagörðum 16, s. 686625 og 686120. 1 Auðveldur í uppsetningu, hlýr, notalegur og hlaðinn aukahlutum INESCA tjaldvagninn sá ódýrasti - Gerið verðsamanburð DRÁTTARBEISLI - KERRUR ÍSLENSKT, JÁ TAKK! Allir hlutir til kerrusmíða. Allar gerðir af kerrum og vögnum. Dráttarbeisli á allar gerðir bíla. Gerið verðsamanburð. Póstsendum. Opið alla laugardaga Víkur Vagnar KERRUSALURINN Síðumúia 18-108 Reykjavík Sími 684911 -Fax 684916 í dag frá kl. 10-18 Sýnum beltagröfur, hjólaskóflur, beltavagna, jarðvegsþjöppur, trjákurlara, loftpressur, dælur, rafstöðvar og bátavélar. Ennfremur vökvahamra frá INDECO. John Jackson, fulltrúi þeirra, er á staðnum og veitir ráðgjöf. ATH.: HYUNDAI og AMMANN YANMAR beltagröfur og hjólaskóflur eru á frábæru verði! Kynnum einnig varahluta- og viðgerðarþjónustu okkar. ðDGDECO ÍM Skútuvogi 12A, 104 Reykjavík Sínii 812530

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.