Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 35 Jón Amason frá Þverá - Minning Fæddur 23. apríl 1900 Dáinn 25. mars 1994 Hinn 25. mars sl. lést á Sjúkra- húsinu á Húsavík Jón Árnason frá Þverá í Reykjahverfi. Jón var fædd- ur á Þverá 23. apríl árið 1900 og voru foreldrar hans þau Rebekka Jónasdóttir og Árni Jónsson. Þau hjón voru búandi á Þverá og eignuð- ust níu börn en aðeins fimm þeirra, ein dóttir og ijórir synir, náðu full- orðinsaldri. Jón var næstyngstur en Hrólfur bróðir hans, þremur árum yngri, lifir nú einn þeirra systkina. I æsku var hann alinn upp við venjuleg sveitastörf og lærði snemma til þeirra verka eins og þá tíðkaðist. Skólagangan var stutt, aðeins tveggja mánaða farskóli hvern vetur frá tíu til þrettán ára aldurs. Veturinn 1916-17 var Jón við nám í unglingaskóla sem Bene- dikt Björnsson hélt á Húsavík um nokkurt skeið. Hins vegar var Jón vel menntaður í skóla lífsins, athug- ull og fróður. Sveitungarnir treystu honum snemma til trúnaðarstarfa og þegar Reykjahreppur var stofn- aður 1933 varð Jón þar hreppstjóri á sama ári og gegndi því embætti í 33 ár. Aldamótakynslóðin horfði mjög til framfara og mun það snemma hafa haft áhrif á Jón og þá einkum nýjungar í samgöngutækni. Fyrsta bifreiðin kom til Húsavíkur laust fyrir 1920 og um 1924 fóru vöru- flutningabifreiðir að berast til Þing- eyjarsýslu að einhverju marki. 1929 lærði Jón að aka og haustið 1930 keypti hann sína fyrstu bifreið sem var af Fordgerð og bar eitt og hálft tonn. Það sem réð úrslitum að Jón valdi þessa tegund var að hún var með tvöföldum afturhjólum og hægt að taka af ytri hjólin. Jón mun hafa séð af hyggjuviti sínu að auðveldara væri að komast um deiga kerruvegi og vegleysur með þennan umbúnað. Þessi bifreið reyndist honum vel og á henni fór hann marga vegleysuna fyrstur. Bíllinn kostaði fullfrágenginn 4.000 krónur og greiddi Jón hann út í hönd enda lántökur honum ekki að skapi. Þess má geta til samanburð- ar að tímakaup verkamanna mun hafa verið tæplega ein króna á þess- um árum. Jón hafði hins vegar rek- ið búskap í félagi við foreldra sína og haft sjálfstæðan fjárhag frá .1916. Hann var því búinn að safna fyrir bílnum í 14 ár, eða sama tíma og það tók Jakob að vinna fyrir Rakel forðum. Sýnir þetta best ráð- deild Jóns og fyrirhyggju. Með þessu var lífsbraut Jóns ráðin. Hann hafði að vísu nokkurn sauðfjárbú- skap með akstrinum til 1944, er allt fé var skorið niður á þessum slóðum vegna mæðiveikinnar, en eftir það hafði hann sitt lifibrauð af akstrinum. Þá kenndi Jón einnig fjölda fólks á bíl. Jón var á Þverá til ársins 1958 en eftir það var hann lengstum á Hólmavaði í Aðaldal og síðar á Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi uns hann valdi sér bústað á dvalarheim- ilinu Ási/Ásbyrgi í Hveragerði snemma á áttunda áratugnum. Þar dvaldi hann til ársloka 1991 er hann flutti „heim“ á Húsavík. Sá er þessar línur ritar man Jón fyrst 15. júní 1951, þá nýfluttur með foreldrum sínum í Saltvík í Reykjahreppi. Þar var Jón mættur til þess að flytja þá er þar bjuggu til nýrra heimkynna. Jón var þá mjólkurbílstjóri í Reykjahverfi og fylgdi því starfi mikil þjónusta í útréttingum fyrir sveitina. Var það alkunna hversu nákvæmur Jón var í öllum þeim störfum og af hve mikilli trúmennsku hann sinnti er- indum, stórum sem smáum. Það var ekki fyrir neinn aukvisa að sinna því öllu og sumt sem flytja þurfti engin léttavara. í huganum skýtur upp mynd af þessum tággranna manni með 100 kílóa sekk á baki sem gjarnan þurfti að bera upp stiga eða niður kjallaratröppur. Mjólkurbrúsum þurfti að lyfta á pall, stundum af jörðu, og vetrar- færðin í Þingeyjarsýslu á niður- gröfnum vegslóðum þreytti marg- an. Það fór líka svo að bakið gaf sig og Jón varð að hætta vöruflutn- ingum fyrr en hann hefði eflaust viljað. Haustið 1974 flutti ég til Hvera- gerðis og tókust þá fljótlega kynni við Jón að nýju. Hér á heimilinu var hann aufúsugestur, tillitssamur, prúður og ávallt að miðla fréttum að norðan. Sundlaug staðarins sótti hann nær daglega þrátt fyrir að sjónin gerði honum það erfítt í lok- in. Þannig var komið árið 1974 að sjónin var orðin svo slæm að hann gat ekki ekið bíl lengur og þótti honum það mjög miður eftir nær hálfrar aldar setu undir stýri. Því má segja að það hafi verið honum sem nýtt líf er hann snemma árs 1980 fékk með læknisaðgerðum það mikla bót að hann gat endurnýj- að ökuréttindin, hélt þeim og ók áfallalaust í áratug. Hann var þá ekki höndum seinni að kaupa sér fólksbíl. Hann kom til okkar á hlað- ið til þess að fá aðstoð við að lag- færa eitthvert smáræði og sagðist hyggja á norðurferð um miðjan júní. Þannig hittist á að við fjölskyldan ætluðum norður um sama leyti og var honum boðin samfylgd. Nei, það hentaði ekki þar sem hann ætlaði austur um land, enda aldrei farið þá leið áður. Nokkrum dögum síðar vorum við stödd við þjóðveginn í Reykjadal í S-Þing. Þá hittist svo á að Jón ók þar fram hjá síðasta áfangann til æskuslóða. Það var greinilega stolt- ur maður sem þar fór, hélt fast um stýri og horfði einbeittur fram á veginn. Þannig vil ég muna Jón Ámason frá Þverá. Hafí hann þökk fyrir samfylgdina. Hrólfí bróður hans og ættingjum öllum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Björn Pálsson. Guðlaugur Svanur Kristinsson - Minning Fæddur 27. febrúar 1963 Dáinn 10. april 1994 Laugardaginn 16. apríl var kvadd- ur í hinsta sinn elskulegur tengda- sonur minn Guðlaugur Kristinsson, eða Gulli eins og hann hét meðal vina. Það kom sem reiðarslag og mikill sársauki er fréttist um lát hans. Erfitt er að átta sig á því að eiga ekki eftir að fá að sjá hann oftar. Hann var mikill dugnaðarmað- ur og góður drengur. Enda ber heim- ili hans vott um það. Alltaf var hann að bæta og breyta úti sem inni. Gulli og Klara voru mjög samhent í daglegu starfi. Oft unnu þau langt fram á kvöld í garðinum sínum og var hann mesta augnayndi. Gulli og Klara eignuðust tvö yndisleg börn, Guðlaugu Láru og Ándra Heiðar. Auk þess gekk Gulli dóttur Klöru, Sigrúnu Yiju, í föðurstað. Hann sinnti föðurhlutverkinu af hugar- prýði og alúð. Það sýndi hann glöggt er Klara lenti út af í hálku í nóvem- ber 1991 með bömin sín þijú þegar kviknaði í bílnum og hún þurfti að vera í gifsi í margar vikur og gat ekki stigið í fæturna. Gulli hætti þá að vinna til að geta verið heima og sinnt börnunum og heimilinu. Það var einkennandi að hvar sem Gulli var þá voru börnin alltaf nálægt. Þau sakna hans því sárt. Gulli stundaði ýmis störf, hann var við löggæslustörf á Fáskrúðs- fírði um tíma. Svo lærði hann köfun og var oft kallaður út til að aðstoða skip og báta. Vegna bakmeiðsla varð hann að hætta köfun, og þótti honum það sárt. Öllum störfum sín- um sinnti hann með miklum sóma. Síðast vann hann fyrir sveitarfélagið sem vélamaður. Hugur minn og fyrirbænir eru hjá Klöru og börnunum, svo og öldr- uðum föður hans og öðrum ástvin- um. Góður Guð huggi ykkur í sorg ykkar. Nú legg ég augun aftur, 6, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S.Egilsson) Sigrún. Elsku Gulli, ekki hvarflaði það að okkur er fjölskylda okkar kom sam- an um páskana til að eiga góða stund, að þetta yrði síðasta sinn sem við kæmum öll saman. Á kveðjustund kemur fyrst upp í huga okkar þegar Klara systir og mágkona kynnti þig fyrir okkur fyr- ir sex árum. Þú féllst strax inn í hópinn og varðst einn af fjölskyld- unni. I gegnum tíðina hefur svo komið betur og betur í ljós hvern mann þú hafðir að geyma. Að sjá hve náinn og góður þú varst börnum þínum, og hve samhent og samstiga þið Klara voruð jafnt í blíðu sem stríðu. Það kom sérstaklega í ljós þegar Klara og börnin lentu í alvar- legu slysi, hversu vel þú annaðist þau og heimilið. Minningabrot koma upp í hugann. Gulli og Klara að stússa í garðinum, vinna að endurbótum heimilisins jafnt að utan sem innan, Gulli að smíða í bílskúrnum o.m.fl. Einnig minnumst við ferðalanganna sem við fórum í saman og þegar við heim- sóttum Gulla og Klöru á Fáskrúðs- fjörð var okkur alltaf jafnvel tekið. Þótt húsið væri stundum að springa utan af okkur og fyrirgangur í börn- unum var alltaf kvatt með þeim orð- um að við yrðum að hittast fljótt aftur. Svo var einnig þegar við kvöddum þig, Klöru og börnin þegar þið hélduð aftur austur eftir páska- helgina. Viku síðar varst þú allur og við eigum ekki eftir að hittast aftur í þessu lífí. Við eigum mjög erfítt með að skilja það, en þú ert farinn og við eigum þessar minning- ar og munum geyma þær í hjörtum okkar svo lengi sem við lifum. Blessuð sé minning þín. Elsku Klara, Sigrún, Guðlaug Lára og Andri Heiðar, Kristinn, Snjólaug, Guðrún og Linda og aðrir ástvinir, við biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Því hvað er það að deyja annað en að standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leit- að á fund guðs síns? (Kahil Gibran) Sunna, Rannveig, Einar Karl, Friðrik, Kristinn, Guðlaug, Skafti, Anette og Sigurður. Ellert Finnbogason kennan - Fæddur 31. desember 1911 Dáinn 20. apríl 1994 í dag verður elskulegur tengda- faðir okkar, Ellert Finnbogason, jarðsunginn frá Miklabæjarkirkju í Skagafírði. Hann andaðist á Hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 20. þessa mánaðar eftir stutta dvöl þar og var hann á 83. aldursári. Ellert var fæddur á Svínhóli í Miðdölum, sonur hjónanna Mar- grétar Pálmadóttur og Finnboga Finnssonar sem bæði voru ættuð úr Dölum. Sjö ára gamall fluttist hann með foreldrum sínum og systkinum að Sauðafelli í Miðdölum. Ellert var yngstur systkina sinna, en átta þeirra komust til fullorðins- ára og eru þrjú þeirra enn á lífí, þau Herdís, Albert og Finndís. Ellert dvaldi í föðurhúsum til 17 ára aldurs er hann fór til náms í Héraðsskólanum á Laugarvatni en þaðan lá leiðin í íþróttaskóla Bjöms Jakobssonar á Laugarvatpi og lauk hann þaðan íþróttakennaraprófi árið 1934. Sama ár réðst hann sem kennari að Reykjaskóla og þar kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Hólmfríði Jóhannesdóttur, ættaðri úr Skagafirði. Þau gengu i hjónaband 8. júní 1940. Böm þeirra hjóna eru Jóhannes Þór, kvæntur Margréti Guðmundsdóttur, búsett í Borgamesi; Margrét, gift Danelíusi Sigurðssyni, búsett í Reykjavík; og Málfríður, gift Sveini Guðmunds- syni, einnig búsett í Reykjavík. Barnabörnin eru ellefu og eitt bamabarnabam. Þau Hólmfríður og Ellert stofn- uðu heimili á Akureyri haustið 1941 og þar starfaði Ellert hjá Bifreiða- stöð Akureyrar. Haustið 1944 fluttu þau að Hvanneyri þar sem Ellert réðst sem kennari við Bænda- skólann og starfaði hann samfellt þar til ársins 1970 og bjuggu þau lengst af á Bárustöðum, þar sem þau gátu sér til ánægju verið með svolítinn búskap. Kennslustörfin áttu vel við Ellert og undu þau hjón- in hag sínum vel í Borgarfirði. Þeg- ar Borgarfjarðardvölinni lauk sett- ust þau að í Kastalagerði 9 í Kópa- vogi þar sem þau hafa búið síðan og átt mjög góð ár saman. Ellert starfaði við Sundhöll Reykjavíkur næstu tíu árin og síðan sem þing- vörður við Alþingi í níu ár og þá átti hann góð frí á sumrin sem þau gátu notað til að ferðast saman og dvelja í sumarbústað sínum í Skorradal og í gamla íbúðarhúsinu þar sem Hólmfríður ólst upp á Þor- leifsstöðum í Skagafirði. Þar höfðu foreldrar Hólmfríðar jafnan sumar- dvöl á meðan þau höfðu heilsu til og voru hjá Hólmfríði og Ellert að vetrinum og var Ellert ávallt mjög annt um velferð þeirra og var hann þeim á allan hátt góður tengdasonur. Ellert var einstakt snyrtimenni og sá ávallt um að allir hlutir væru í lagi og á vísum stað og að allt væri fágað og snyrtilegt í kringum þau og var það þeim hjónum sam- eiginlegt. Iþróttir voru mikið áhugamál Ellerts sem og tengdust hans starfí og fór hann meðal ann- ars á Olympíuleikana í London árið 1948, sem ætla má að hafi ekki verið algengt í þá daga. Tónlist og söngur voru einnig mikið áhugamál hans og var hann t.d. einn af stofn- endum kirkjukórs Hvanneyrarsókn- ar og starfaði í honum þar til hann Minnmg flutti úr héraðinu. Jafnframt störf- um sínum gat Ellert stundað eitt af áhugamálum sínum, sem voru smíðar og var hann einstaklega hagur í höndunum. Bera margir smíðisgripir hans, sem enn eru til, vott um það. Við minnumst margra ánægju- legra ferða sem við fórum með þeim hjónum um landið, þar sem Ellert gat ausið af viskubrunni sínum um land og þjóð. Naut hann sín þá vel þar sem hann var einstaklega vel heima í örnefnum, bæjarnöfnum og jafnvel nöfnum ábúenda. Nú er ágætur tengdafaðir okkar farinn í sína síðustu ferð með sínu alkunna æðruleysi og hógværð sem alltaf einkenndi hann og viljum við að leiðarlokum þakka honum fyrir góða samfylgd og hve ávallt var gott til hans að leita og hve hann reyndist okkur og fjölskyldum okk- ar ætíð vel. Blessuð sé minning hans. Tengdabörn. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Minningin um afa mun lifa í hjörtum okkar alla tíð. Hann var ljúfur og góður við okkur krakk- ana, sama á hveiju gekk. Hann var gamansamur og kom oft með hnittnar og skemmtilegar athuga- semdir sem féllu í góðan jarðveg. Við viljum þakka elsku afa okkar fyrir ánægjulegar samverustundir. Elsku amma, algóður Guð styrki þig og blessi á þessari erfiðu stundu. Berglind, Rut, Ellert og Almar. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.