Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Carl Barks og Andrés önd I afmælis- veislu. Olíumólverk eftir Carl Barks. t>aó kallast „Fundió fé á timum eignatalningar." með á nótunum og brosið hvarf aldrei af vörum hans. Það er ekki erfitt að gera sér í hugarlund hvers vegna sögur hans ná jafn vel til krakka og raun ber vitni. Þótt hann gæfi sögum sínum aðeins brot af þeirri lífsgleði sem ljómar af honum sjálfum, myndi það duga til að heilla heilan hóp af Leppalúð- um. Þetta er í fyrsta skipti sem þú ferðast út fyrir Bandaríkin, hvers vegna ekki fyrr? Vegna þess að ég hef aldrei áður haft tíma til að ferðast og ein- hvern til að borga reikninginn. Nú loksins þegar ég læt verða af því, er það dásamleg lífsreynsla. Samt ferðast Andrés Önd um allan heim í sögum þínum. Var ekkert vandamál að teikna upp landslag sem þú hafðir aldrei séð? Ég þurfti ekkert að leita eftir áreiðanlegum heimildum. Ég afl- aði mér hugmynda úr tímaritum og bókum og notaðist við þær. Eftir að ég hafði skapað sögurnar virtust þær síðan einhverra hluta vegna mjög áreiðanlegar. Hvernig er að vera kominn til ís- lands? Yndislegt, það er afar ólíkt því sem ég hafði áður ímyndað mér. Ég bjóst við frumstæðu landi, en sá þegar ég kom hingað að það er þvert á móti; ofur-siðmenntað. Hvernig fékkstu hugmyndina að Andabæ? Ég veit ekki hvað skal segja. Hún kom eiginlega af sjálfu sér. En hugmyndin að Hábeini frænda? Það er nú það. Eins og allir þekkja er óþolandi ættingi í lífi hverrar fjölskyldu sem fær allt upp í hend- urnar. Hvenær sem dekkið spring- ur á bílnum hjá þér, geturðu treyst því að hann keyrir brosandi fram- hjá. Hver fjölskylda á slíkan ætt- ingja og það eina sem ég gerði var að fá fjölskyldu Andrésar sinn. Þú býrð til olíumálverk af Andrési og Jj'ölskyldu í dag. Er mikill mun- urá þvíaðdraga upp teiknimynda- sögu eða olíumálverk? Það er feiknalegur munur. Ég er fljótur að ljúka við hveija teikni- myndasögu og byija þá að hugsa fyrir þeirri næstu. Ég velti hins- vegar efnivið í hvert olíumálverk fyrir mér í fjóra til fimm mánuði. A meðan get ég borðað, drukkið og notið hjónabandsins. Hefur eitthvað við ísland vakiþ áhuga þinn sérstaklega? Helst vitneskjan um það að íslensk menning hjálpaði til við að gera Carl Barks hefur öðlast heims- frægð fyrir sögur sínar um Andrés Önd. Hann er 93 ára gamall á þessu ári og er enn að. Um þessar mundir málar hann olíumálverk sem draga upp myndir af lífinu í Andabæ. Málverkin eru uppseld langt fram í tímann og selst hvert þeirra á um fimmtán milljónir ísl. króna. Árið 1942 yfirgaf Carl Barks Walt Disney fyrirtækið ’ og hóf óviðjafnanlegan feril sinn í því að búa til teiknimyndasögur. Hann teiknaði og samdi hundruð sagna um ævintýri og óhöpp Andrésar Andar og mótaði sérvitra marg- milljarðamæringinn Jó- akim frænda. Endur- útgáfur á sögum hans eru lesnar af rúmum tuttugu milljónum manna í hveijum mánuði. Þrátt fyrir að Barks segði skilið við Disney, gleymdi hann Disney aldrei. „Hann gnæfði yfir starfsmenn fyrir- tækisins án þess að vera yfír- gnæfandi per- sónuleiki", seg- ir Barks um Disney, „Við virtum allir skynbragð hans á hvað væri fynd- ið.“ Fullur þakklætis og virð- ingar blaós meó sögu um Andrés önd eflir Carl Barks. Þaó var gefió út af Vöku- Helgafelli í tilefni of kemu hans til islands. Morgunblaðið/Halldór Guffi umkringdur aódóendum sínum. fyrir manninum sem hleypti bæði Ándrési og honum sjálfum af stokkunum, tileinkaði Carl Barks honum hluta af teiknimynda- sagnasafni sínu: „Walt Disney, sem með frumkvæði sínu og harð- fylgi byggði upp öflugan teikni- myndaiðnað. Á þeim grunni gátu smærri rithöfundar, eins og ég sjálfur, komið verkum á framfæri sem annars hefðu týnst í rusla- körfunni.“ Það var afar létt yfir Carl Barks þegar blaðamaður Morgunblaðsins tók hann tali og greinilegt að hann naut veru sinnar á íslandi. Þrátt fyrir háan aldur var hann alltaf ANDA PABBI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.