Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 25 AÐSENDAR GREINAR Sáttín um stjórnarskrána Á ALÞINGI íslend- inga var nú fyrir stuttu lagt fram frumvarp til laga um breytingu á stjómarskrá lýðveldis- ins. Það felur í sér breytingar á mann- réttindakafla stjórnar- skrárinnar og er, lagt fram af formönnum allra þingflokka. Framlagning þess er talin bera vott um full- komna sátt allra flokka um mannrétt- indakaflann. Tilgangurinn í greinargerð með frumvarpinu er að finna rök fyrir breytingunum á mannréttindakaflanum. Þar er nefnd til sögunnar sú viðleitni að færa ákvæði stjórnarskrárinnar í nútímalegra horf, auk þeirrar gagnrýni sem íslensk stjórnvöld hafa orðið fyrir erlendis frá í tengslum við alþjóðlegar skuld- bindingar. Þessar virðast vera helstu ástæður fyrir breytingunum og eru það röksemdir sem eiga vissulega rétt á sér. Meðalið Það vakna ýmsar spurningar þegar leiðirnar til að ná þessum markmiðum em skoðaðar. Er þá einkum átt við ákvæðin um félaga- frelsi og atvinnufrelsi, þar sem kveðið er á um rétt manna til að standa utan félaga og rétt manna til að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Sérstaklega vekur greinar- gerðin með frumvarpinu til um- hugsunar um það hvort hér sé nægilega vel að málum staðið. Kötturinn og grauturinn Það sem einkum vekur efasemd- ir við lestur greinargerðarinnar er sú staðreynd að athugasemdir með ákvæðunum um félagafrelsi og málefni vinnumarkaðar eru tvíræð- ar. Minnir höfundur greinargerðar- innar helst á köttinn sem fer í kringum heitan graut í þeirri við- leitni sinni að forðast kjarna máls- ins; í greinargerðinni er varla minnst á stéttarfélög nema þá undir rós Bryndís Hlöðversdóttir og helst í tengslum við dóm Mannrétt- indadómstóls Evrópu í leigubílstjóramálinu svokallaða. Þar er lát- ið að því liggja að dómurinn feli í sér áfellisdóm yfir skipu- lagi íslenskrar verka- lýðshreyfingar, þrátt fyrir að það sé hveij- um manni ljósara, sem hefur sett sig inn í umræðuna um fé- lagafrelsi, að dómur- inn er engán veginn fordæmisgefandi. Þá hefur hann hlotið gagnrýni fyrir fijáls- lega túlkun á Mann- réttindasáttmála Evrópu, auk þess sem aðrir dómar hafa fallið í kjöl- farið sem bera sérstöðu hans vitni. Óhreinu börnin? Við sem höfum komið nálægt starfsemi stéttarfélaga á íslandi þekkjum öll þau rök sem koma fram í greinargerðinni. Það er hins vegar undarlegt að röksemdirnar séu settar fram með þeim hætti að varla sé minnst orði á stéttarfé- lög, hvað þá heldur að skýrlega sé tekið fram í greinargerðinni hvaða staða þeim sé ætluð eftir breytinguna. Stéttarfélög eru þau félög sem félagafrelsisumræðan snýst fyrst og fremst um og þau eiga að njóta meira sannmælis en svo að um þau sé talað eins og skítugu börnin hennar Evu. Hvað með forgangsréttarákvæði kjara- samninga og greiðsluskyldu til stéttarfélaga? Nokkrir þeirra þingmanna sem til máls tóku í umræðum á þingi bættu úr þessu og töluðu hreint út um þeirra skilning á málinu, en aðrir sáu ekki ástæðu til að nefna stéttarfélög á nafn. ítarleg umræða óumflýjanleg Hér er slíkt stórmál á ferðinni að ítarleg og fordómalaus umræða er óumflýjanleg. Sé það vilji lög- gjafans að bæta mannréttinda- vernd á íslandi og færa hana til nútímalegs horfs í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, er fyrsta skrefið í þá átt að tryggja Hundaræktarfélagið hefur ítrekað óskað eftir samstarfi við borgina. Guðrún Ragnars Guð- johnsen segir lítið hafa farið fyrir samráði við borgarana hjá nýja borgarstjórnarmeiri- hlutanum. meira en sem nemur hækkun verð- lags og munar uin' minna. Hundagjaldið gert að tekjustofni Hundaræktarfélag Islands, hags- munafélag hundeigenda, taldi að borgaryfirvöld væru farin að misnota gjaldið. í stað þess að láta gjöldin duga fyrir kostnaði, væru þau gerð að skattstofni og skilaði tekjum í borgarsjóð. í samantekt úr borgar- bókhaldi, sem lögmaður félagsins fékk hjá borginni, kom í ljós að á tíu árum var í sjö skipti hreinn hagnaður af gjaldtökunni. Hagnaðurinn var yf- irleitt verulegur og að meðaltali hafa hundeigendur í Reykjavíkk árlega verið látnir greiða um 12,5% umfram kostnað (16% ef gerð er 5% ávöxt- unarkrafa). í málarekstri sínum við Umboðsmann Alþingis hefur borgin reynt að vefengja sitt eigið bókhald, allt að 10 ár aftur í tímann. Voru á síðustu stigum málsins dregnar fram óljósar tölur um van- og ótalinn kostn- að og áætlaðan yfirstjómunarkostn- að. Ef slíkur kostnaður gleymist í 10 ár, er svo sannarlega þörf á því að endurskoða endurskoðunina. Samstarfs óskað við borgina Hundaræktarfélagið hefur ítrekað óskað eftir samstarfi við borgina við- víkjandi gjaldtökuna og ýmis önnur úrræði. Síðastliðinn vetur skipaði borgarráð sérstaka sameiginlega nefnd til þessa, en hún hefur aldrei komið saman. Að loknum kosningum virðist ekki ljóst, hvort skipuð var ný nefnd eða einungis skipt um menn í þeirri nefnd sem þegar hafði verið skipuð. Félagið hefur enn ekki getað fengið það staðfest. Þannig hefur lít-' ið farið fyrir samráði við borgarana hjá nýjum borgarstjórnarmeirihluta. Félagið vonast til þess að breyting fari að verða þar á og hagsmunum 1.100 hundeigenda og fjölskyldna þeirra verði sinnt. Höfundur er formnður Hundaræktarfélags íslands. Stéttarfélög eru nauð- synlegur þáttur í vel- ferðarþjóðfélagi. Bryn- dís Hlöðversdóttir segir að það eigi að vera kappsmál löggjaf- ans að tryggja þeim starfsgrundvöll í stjórnarskránni. að sjónarmið sem flestra þegna þessa lands njóti skilnings, auk þess sem nauðsynlegt er að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga um félagafrelsi en Mannréttinda- sáttmála Evrópu, þótt hann sé vissulega mikilvægur á sviði mann- réttinda. Við höfum t.d. líka sam- þykktir Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar (ILÖ) að líta til, er leggja þá skyldu á herðar ríkisins að sjá til þess að aðilar vinnumarkaðarins hafi frelsi til að semja um málefni vinnumarkaðarins án íhlutunar stjórnvalda. Kynningarátaks þörf Stéttarfélög eru nauðsynlegur þáttur í velferðarþjóðfélaginu og það ætti að vera kappsmál löggjaf- ans að tryggja þeim starfsgrund- völl í stjórnarskránni. Ákvæðið um félagafrelsi snýst fyrst og fremst um stéttarfélög, það á ekki að dyljast neinum. Túlkun ákvæðisins í framtíðinni getur haft mikið að segjá um starfsemi stéttarfélaga og stéttarfélagasamtaka og málið því mjög mikilvægt. í umræðum um frumvarpið á þingi kom fram krafa um það að farið væri út í öflugt kynningará- tak um breytingarnar, sem er nauðsynlegt ef vel á að vera. Öllum vafa um áhrif breytinganna á starfsemi stéttarfélaga í landinu þarf að eyða áður en málið er end- anlega afgreitt og kynna þarf málið vel fýrir þjóðinni. Svo viða- miklar breytingar mega ekki eiga sér stað án mikillar umræðu og kynningar. Ella væri betur heima setið en af stað farið. FRETTIR Höfundur er lögfræðingur ASÍ. Þrettánda- ganara og blysför í Öskjuhlíð FERÐAFÉLAG íslands og Valur efna til sameiginlegrar blysfarar og fjölskyldugöngu á þrettándanum föstudagskvöldið 6. janúar kl. 20. Gengið verður um skógarstíga í álfa- og huldufólksbyggðum Öskju- hlíðar. I huliðsvættakorti sem Borg- arskipulag Reykajavíkur gaf út fyrir nokkrum árum eftir tilsögn Erlu Stefánsdóttur er sýnd álafabyggð í Öskjuhlíðinni. Brottför frá anddyri Perlunnar er kl. 20 og tekur gangan aðeins 30-45 mínútur og henni lýkur við þrett- ándabrennu á Valsvellinum. Kveikt verður í brennunni um kl. 20.45 og síðan verður flugeldasýning Hjálpar- sveitar skáta. Fjöldasöngur verður í upphafi göngunnar og við brennuna. Blys verða seld kl. 19.30. Veitingar (kaffi og vöfflur) verðar seldar í Valsheim- ilinu. Fjölskyldufólk er sérstaklega hvatt til að mæta í þessa fyrstu göngu á nýbyijuðu ári. Fyrsta sunnudagsferð nýja ársins er 8. janúar kl. 13 en það er göngu- ferðin: Heimörk-Skógarhlíðakriki. ÞJALFUNARSTÖÐ KVENNA Sóknarhúsinu Skipholti 50 a \TÐ BJOÐUM LJPPA: Sjúkraþjálfun Sjúkranudd Fullkominn tækjasal Kj örþyngdarnámskeið Byrjendanámskeið í Kripulajóga Leikfimi og liðkun, hádegis-. eftir hádegis- og kvöldtímar Böð Heitan pott Gufubað Heita bakstra Gigtarlampa Ljósabekki Gigtarhópa, háls, herðar og slökun Máttarkort gilda bœöi í Skipholti og Faxafenl Kynniö ykkur afsláttarkjörin! Opið frá kl. 8.00 - 20.30 mánud. - fimmtud. 8.00 - 19.30 föstud. RcGbdh FAXAFENI SIMI: 568 9915 • SKIPHOLTI SIMI: 581 4522

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.