Morgunblaðið - 28.03.1995, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 28.03.1995, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska Smáfólk Sæll! Ég heiti Emelía... Jamm, auðvit- Það verður auð- Hvað með „hægt, hægt, vilt þú verða dansfélagi að ... en ég er velt... „hægt, hægt, bregða, bregða“? minn? ekki mjög flink- hratt, hratt“ ur... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 FRÁ Skautasvellinu í Laugardal. Þar er spiluð tónlist úr ýmsum áttum börnum og unglingum til óblandinnar ánægju. Nirvana á skautasvellinu Frá Hafsteini Hafsteinssyni: ÞAÐ VAKTI athygli mína grein sem ég las í Morgunblaðinu fimmtudag- inn 23. mars síðastliðinn, þar sem Unnur J. Bjarklind skrifar í blaðið og kvartar undan tónlistinni sem spiluð er á skautasvellinu. Tónlistin sem spiluð er á svellinu er úr öllum áttum, allt frá Páli Óskari og Millj- ónamæringunum og upp í þessa „dóphausa" í Nirvana eins og hún orðar það. í fyrsta lagi er enginn Nirvana- geisladiskur til á skautasvellinu. Gestir svellsins hafa stundum komið með geisladiska sem við höfum svo spilað, þar á meðal Nirvana, (Unpl- ugged) (órafmagnað eins og það heitir á íslensku) og er það eini Nir- vana-geisladiskurinn sem hefur verið spilaður á svellinu. Þessi umrædda hljómsveit hefur verið ein sú allra vinsælasta hjá krökkum og ungling- um og þó aðallega þessi Unplugged- diskur. Unnur segir í bréfinu að tón- listin sé spiluð af fullum styrk sem er ekki rétt því hátalararnir þola það ekki. Unnur segir einnig að við ætt- um að prufa að spila vínarvalsa. Það hefur verið prufað síðustu fímm vet- ur, en viti menn, alltaf koma krakk- arnir inn til okkar í hópum og kvarta undan tónlistinni og biðja okkur að spila eitthvað annað. Ég hugsa þess vegna að krakkarnir hafi ekki mjög gaman af vínarvölsum eða Mozart, þá er ég að tala um krakka sem sækja svellið og eru á aldrinum 7—Í6 ára. Á hveijum degi koma u.þ.b. 100-200 krakkar, það er reynt að gera öllum til hæfis en það er ekki alltaf hægt. HAFSTEINN HAFSTEINSSON, starfsmaður á skautasvellinu í Laugardal. Ríkisútvarpið á hálum ís Frá Sigurði G. Thoroddsen: HINN 16. þ.m. var í morgunfréttum Ríkisútvarpsins svohljóðandi upples- ið: „Mikil óreiða hefur verið hjá Fé- lagi hrossabænda vegna sjóðagjalda sem það innheimtir...“ og „Þijár milljónir eru óskýrðar í bókhaldi fé- lagsins..." Þetta var endurtekið í hádegisfréttum. Hér var ekki verið að greina frá umræðum, eða orðin höfð eftir öðrum, heldur var um beina fullyrðingu að ræða í fréttum ríkisútvarpsins. í kvöldfréttum var greint frá því, að krafíst hefði verið að framkvæmdastjóra félagsins yrði vikið frá og stjórnin segði af sér. Og næstu daga var enn vegið í sama knérunn í Ríkisútvarpinu, í fréttum, fréttaskýringarþætti og viðtölum. Þegar demban úr útvarpi allra landsmanna hafði staðið nokkra sól- arhringa, heyrðist stutt viðtal við formann Félags hrossabænda, og síðan í seinni fréttum sjónvarps þann 21. þ.m. viðtal við framkvæmda- stjórann. í þessu gjörningaveðri virðist mega greina eftirfarandi: 1. Ásakanir óánægðs félaga í Félagi hrossabænda verða að staðreyndum í höndum Ríkisút- varpsins. 2. Áfangaskýrsla endurskoð- enda, sem fréttastofan telur sig byggja á, er ekki næg ástæða fyrir upphlaupi frétta- stofunnar. Hvergi er vikið að slíku athæfi sem meðhöndlun fréttastofunnar ýjar að, svo sem fjárdrætti eða misferli með fé. Málið snýst um, að félagið hafi sýnt útflytjendum kyn- bótahesta of mikla linku við innheimtu sjóðagjalda. Sé litið til ofangreindra ásakana og hins vegar skýringa forsvars- manna Félags hrossabænda er ljóst, að hér er um deilumál að ræða sem á sér langa sögu og ýmsar aðrar væntingar blandast inní. En frétta- stofa Ríkisútvarpsins hefur af ein- hveijum ástæðum fallið í þá gryfju að ganga erinda annars deiluaðilans og hamast við að svipta ærunni fnpnkvæmdastjóra, formann, stjórn og starfsmenn heils búgreina- félags. SIGURÐUR G. THORODDSEN, Álftanesi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.