Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 7 Ólína yfir- gefur Þjóðvaka ÓLÍNA Þorvarðardóttir, einn af stofnendum og forystumönnum Þjóð- vaka hefur sagt sig úr Þjóðvaka. Ólína baðst undan þvi að svara spumingum um ástæður úrsagnar- innar að öðru leyti en því að hún sagðist hafa orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með skipulag, uppbygg- ingu og starfshætti Þjóðvaka. Hún sagði að óánægja sín beindist ekki gegn stefnuskrá Þjóðvaka eða upp- haflegum hugsjónum hreyfingarinn- ar. „Það segir sig sjálft að maður stekkur ekki léttilega út úr stjórn- málahreyfingu sem maður hefur sjálfur tekið þátt í að skapa, en ég tel engu að síður að þessi niðurstaða hafí verið óumflýjanleg hvað mig varðar," sagði Ólína. Ólína sat í stjórn Þjóðvaka og kosningastjóm. Hún ritstýrði enn- fremur málgangi flokksins fyrir kosningar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fyrsti fundur ríkisstjómar NÝ RÍKISSTJÓRN kom sam- an til síns fyrsta fundar í gær. Á dagskrá fundarins voru átta mál. Meðal þeirra var að taka ákvörðun um að vorþing kæmi saman 15. maí og stæði í u.þ.b. tíu daga. Ráðherrum var falið að leggja fram lista yfir allra nauðsyn- legustu mál, sem leggja þyrfti fyrir þingið. Þá var á fund- inum tekin formleg ákvörðun um að Halldór Ásgrímsson yrði samstarfsráðherra Norð- urlanda, en því embætti út- hlutar forsætisráðherra með formlegum hætti. Viðskiptaráðherra greindi frá horfum og aðgerðum í vaxtamálum og fjármálaráð- lierra upplýsti um langtíma- skuldbindingar sem ríkissjóð- ur hefur tekið á sig á þessu ári. FRÉTTIR Langtímaskuldbindingar sem ríkissjóður hefur tekið á sig í ár Heildarkostnaður 880 milljónir FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra lagði fram á ríkisstjómar- fundi í gær lista yfir þær langtíma- skuldbindingar, sem ríkissjóður hefur tekið á sig á árinu. Samtals er um skuldbindingar fyrir um 880 milljónir króna að ræða ef gert er ráð fyrir heildarkostnaði við þau verkefni, sem byijað hefur verið á. Ef hins vegar er aðeins tekið tillit til þeirra áfanga, sem samið hefur verið um, í því tilviki þar sem um byggingarframkvæmdir er að ræða, er upphæð samningsbund- inna skuldbindinga ríkissjóðs tæp- lega 610 milljónir. Átta mál eru á lista fjármálaráð- herra. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins voru heimildir fyr- ir öllum þeim framkvæmdum í fjár- lögum, nema flýtingu fram- kvæmda við hús Hólaskóla, sem fékk sérstaka meðferð. Flest málin fóru fyrir svokallaða samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir, þar sem sæti eiga ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneyt- isins, formaður fjárlaganefndar og framkvæmdastjóri Framkvæmda- sýslu ríkisins. Að sögn Magnúsar Péturssonar, ráðuneytisstjóra og formanns nefndarinnar, ber nefnd- inni að ganga úr skugga um að rétt sé staðið að framkvæmdum fjárhagslega og að tæknilegum undirbúningi hafi verið sinnt. Flýting framkvæmda á Hólum í fyrsta lagi gerði menntamála- ráðuneytið samning við Egils- staðabæ um að ljúka viðbyggingu við íþróttahús. Kostnaður ríkis- sjóðs er um 20 milljónir króna og koma tvær millj. til greiðslu á þessu ári og níu milljónir hvort ár 1996 og 1997. I öðru lagi er gert ráð fyrir framkvæmdum við skólahúsið á Hólum á vegum landbúnaðar- ráðuneytisins, og verður þeim flýtt til að raska skólastarfi sem minnst. Kostnaðaráætlun hljóð- ar upp á tæplega 72 milljónir króna og verður á þessu ári framkvæmd fyrir 29 millj. en á næsta ári um 43 millj. Fjárveit- ing þessa árs er ekki nema 15 milljónir, en fyrir stjórnarskipti höfðu landbúnaðar- og fjár- málaráðherra og formaður og varaformaður fjárlaganefndar heitið málinu stuðningi. Þrjú verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytis I þriðja lagi gerði heilbrigðis- o g tryggingaráðuneyti samning við sveitarfélög á Suðurnesjum um byggingu D-álmu við sjúkrahúsið í keflavík. Hlutur ríkissjóðs í heild- arkostnaði er 285 millj. króna, en í fyrsta áfanga, sem samið hefur verið um, greiðir ríkið 110,5 millj- ónir. Tiltæk fjárveiting er 41,3 millj. kr., og dreifast greiðslur á afganginum af kostnaði við 1. áfanga fram á árið 1999. Heilbrigðisráðuneytið samdi jafnframt við Kópavogsbæ um byggingu nýrrar heilsugæzlu- stöðvar. Hlutur ríkissjóðs í heildar- kostnaði er um 115 millj. kr., en í 1. áfanga 61,7 millj. Til eru fjár- veitingar fyrir hluta þess kostnað- ar og verður rúmum 13 milljónum bætt við á næsta ári. Fimmta verkefnið er bygging hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði, sem heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið samdi um við sveitarfélög eystra. Hlutur ríkis- sjóðs og framkvæmdasjóðs aldr- aðra í heildarkostnaði er 84,6 millj. kr., en við 1. áfanga samtals 42,5 millj.. Fjárveitingar eru til fýrir hluta kostnaðarins og bætir ríkis- sjóður tæplega 20 milljónum við á næsta ári. Yfirtaka á skuldum í sjötta lagi sömdu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og fjármála- ráðuneytið við eigendur Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar um yfirtöku á skuldum að upphæð 180 millj. kr. I sjöunda lagi keypti mennta- málaráðuneytið Sólborgu á Akur- eyri á 80 milljónir og afhenti Há- skólanum. Ráðuneytið hefur einnig óskað eftir 20 milljóna kr. ijárveit- ingu til hönnunar og framkvæmda við húsið, sem á að verða framtíð- araðsetur Háskólans á Akureyri. Loks gekk landbúnaðarráðu- neytið frá niðurfellingu 23 milljóna af skuldum Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti. Stöðin hefur verið leigð bændasamtökunum. þrefalriup lyrsti vinningup! IMfj1 jáiMPtest Ep röðin homin að þép? TT« Sölu í Víkingalottóinu lýkur á miðvikudag kl. 16:00, dregið verður í Sjónvarpinu um kvöldið. Freistaðu gæfunnar!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.