Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Aukafundur í bæjarstjórn á mánudag Bjórsala í Iþrótta- höllinni rædd AUKAFUNDUR hefur verið boðað- ur í bæjarstjórn Akureyrar á mánu- dagsmorgun kl. 9.30 en þar verður til umfjöllunar leyfi til áfengisveit- inga í Iþróttahöllinni í tengslum við heimsmeistaramótið í handknattleik. Meirihluti bæjarráðs, þrír af fimm fulltrúum, hafnaði á fundi á fímmtu- dag umsókn Greifans, sem sér um veitingasölu í höllinni, um að selja bjór í íþróttahöllinni meðan á HM stendur. Lokaafgreiðsla slíkra um- sagna er á hendi bæjarstjórnar en næsti reglulegi fundur hennar er 16. maí næstkomandi. Þriðjungur bæjarfulltrúa getur óskað eftir að haldinn sé aukafundur í bæjarstjóm og það gerðu fjórir bæjarfulltrúar, þeir Björn Jósef Am- viðarson og Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðisflokki, Gísli Bragi Hjart- arson, Alþýðuflokki, og Guðmundur Stefánsson, Framsóknarflokki. Sorglegt „Mér finnst þetta sorglegt," sagði Sigfríður Þorsteinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, sem á bæjarráðsfund- inum lagðist gegn því að bjór yrði seldur í íþróttahöllinni. „Eftir því sem menn best þekkja hefur aldrei verið boðað til aukabæjarstjórnar- fundar í bæjarstjórn Akureyrar og það er að mínu mati sorglegt að það sé gert nú út af slíku máli, mér hefði þótt það nær ef boðað væri til aukafundar vegna máls sem varðaði virkilega hagsmuni bæjarfélagsins," sagði Sigfríður. Hún sagði að það væri sitt mat og margra annarra að íþróttir og áfengi ættu ekki samleið. Það ætti í sjálfu sér að vera næg skemmtun í því fólgin að fara á kappleikina, neysla áfengis þyrfti ekki til að koma einnig. Kúveitar fyrstir norður Morgunblaðið/Rúnar Þór LIÐ Kúveita kom til Akureyrar í gærdag, fyrst liða sem leika í D- riðli heimsmeistaramótsins í hand- knattleik sem fram fer í íþrótta- höllinni á Akureyri, en fyrsti leik- urinn verður þar á mánudag. Hagnaður upp á 61 mill jón króna af rekstri Mjólkursamlags KEA á liðnu ári E^jafjarðarsveit. Morgunblaðið. LJFLEGAR umræður urðu á aðal- fundi Félags eyfirskra nautgripa- bænda sem jafnframt var kynning- arfundur Mjólkursamlags KEA, sem haldinn var á fimmtudagskvöld, en um 80 manns sóttu fundinn. í skýrslu formanns Félags eyfir- skra nautgripabænda, FEN, Stefáns Magnússonar, kom m.a. fram að helstu verkefni ársins voru að vinna að undirbúningi kaupa á nýjum mjólkurtönkum og kælivélum. Náð- ust mjög hagstæðir samningar við söluaðila vegna útboða sem félagið í samvinnu við mjólkursamlagið lét géra. Fyrir liggur að töluvert hefur ver- ið selt af kvóta úr héraðinu og var- aði Stefán við þeirri þróun. Fullt afurðastöðvar- verð fyrir umframframleiðslu Fjörugar umræður hófust þegar lokið hafði verið við að fjalla um Mjólk verði sótt á kostn- að samlagsins skýrslu stjómar og kom fram hjá mörgum mjólkurframleiðendum að þeir telji að í ljósi mjög góðrar af- komu mjólkursamlagsins, sem rekið var með 61 milljóna króna hagnaði í fyrra, beri því að koma meira til móts við bændur. Fluttar vora og samþykktar tvær tillögur í þá átt, sú fyrri um að mjólkursamlag KEA greiði fullt afurðastöðvarverð fyrir alla umframframleiðslu á þessu verðlagsári. Tillaga sem flutt var að stjóm FEN var samþykkt og sömu- leiðis tillaga frá Benedikt Hjaltasyni og Jóhanni Óiafssyni þess efnis að í Ijósi góðrar afkomu Mjólkursam- lags KEA á undanfömum áram skoraði fundurinn á stjórn KEA og FEN að semja um að mjólkursamlag KEA flytji mjólk frá bændum til samlagsins á eigin kostnað frá og með 1. maí síðastliðnum að telja. Mjólkurkvóti verði ekki seldur af svæðinu í skýrslu Þórarins E. Sveinssonar mjólkursamlagsstjóra kom m.a. fram að 3,13% aukning varð á inn- veginni mjólk milli ára en aukningin nemur tæpum 610 þúsund lítram sem er kærkomin eftir samdrátt síð- ustu tveggja ára. Þórarinn sagði mikilvægt að ekki yrðu seldur mjólk- urkvóti af svæðinu, frekar að ná inn fleiri lítram á Eyjafjarðarsvæðið. Nokkur aukning var í framleiðslu á smjöri á liðnu ári, en flutt voru úr landi 457 tonn, þar af 137 frá Mjólkursamlagi KEA. Einnig var nokkur aukning í framleiðslu osta, en ostaneysla hefur aukist. Sala á nýmjólk dregst enn saman og aukn- ing í neyslu léttmjólkur nær ekki að vega þann samdrátt upp. Jógúrt- neysla hefur dregist saman en vera- leg aukning var í skyrsölu. Leiðsögumenn Leiðsögumenn óskast til starfa í sumar. Ensku- og þýskukunnátta áskilin. Einnig vantar frönskumælandi í hlutastarf. Sérleyfisbílar Akureyrar hf., sími 96-2 35 10. Björn Sigurðsson, Húsavík, sími 96-4 22 00. sbai SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR HF. AKUREYRI BUS COMPANY Dalbraut 1,600 Akureyri Safnað fyrir sundlaug við Kristnesspítala Ytri-TjBrnum, Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið. VEGLEG gjöf að upphæð 450.000 kr. barst nýlega frá Li- onsklúbbi Akureyrar í söfnunar- sjóð fyrir sundlaugarbyggingu við endurhæfingardeild Krist- nesspítala. Alls hafa nú safnast 5,6 millj- ónir í sjóðinn og sagði Stefán yfirlæknir að fljótlega yrði farið að huga að fyrstu framkvæmdum við sundlaugina. Héðinn Jónasson, formaður klúbbsins, afhenti Stefáni Yngva- syni yfirlækni deildarinnar upp- hæðina. Auk þeirra voru við- stödd afhendinguna Halldór Jónsson, framvæmdasljóri FSA, Lionsmennirnir Bjarni Kristjáns- son, Magnús Tiyggvason, Jón Stefánsson og Aslaug Magnús- dóttir formaður söfnunarnefnd- ar. MVNDUSTASKÓUNN A AKUREYRl Kaupvangsstræti J 6, pósthólf 39, 602 Akureyri Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda veturinn 1995 - '96. Umsóknarfrestur er til 21. maí. Allar nónari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Skólastjóri. Messur á morgun AKUREYRARKIRKJA: Fjöl- skyldumessa kl. 11.00, formað- ur sóknarnefndar, Guðrfður Ei- ríkédóttir, setur Kirkjulistaviku 1995. Nýr héraðsprestur, Sva- var AlfreðJónsson, prédikar. Barnakór Akureyrarkirkju syng- ur undir stjórn Hólmfrfðar Benediktsdóttur og börn úr Tónlistarskóla Akureyrar leika á hljóðfæri. Að messu lokinni er gestum boðið að þiggja veit- ingar í safnaðarheimilinu. Þar mun Rósa Kristín Júlíusdóttir opna sýningu á myndverkum barna sem eru við nám í Mynd- listarskólanum á Akureyri. GLERÁRKIRKJA: Messa verð- ur í kirkjunni á morgun, sunnu- dag, kl. 14.00. Fundur æsku- lýðsfélagsins kl. 18.00. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp- ræðissamkoma kl. ?0.00 á sunnudag. Heimilasamband fyrir konur á mánudag kl. 16.00, hjálparflokkur kl. 20.30 á fimmtudag, flóamarkaður og ellefu plús á föstudag. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- koma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld. Vakningarsam- koma á morgun kl. 20.00, ræðumaður Jóhann Sigurðs- son. Biblíulestur á miðvikudag kl. 20.30, Vörður L. Trausta- son. Alltaf má fá annað skip SKAGALEIKFLOKKURINN sýnir leikritið Alltaf má fá ann- að skip eftir Kristján Kristjáns- son í Deiglunni á Akureyri í dag, laugardaginn 6. maí. Kristján er leikstjóri verks- ins, en leikurinn gerist um borð í dagróðrarbáti þar sem miklar sviptingar eiga sér stað milli manna. Skagaleikflokkurinn frum- sýndi leikritið 1993 á Akranesi og fór með það á ieiklistarhátíð í Tonder á Jótlandi í fyrra. Höfundurinn er Siglfirðingur búsettur á Akureyri. Hann hef- ur gefið út ljóðabækur og skáld- sögur. Tvær sýningar verða á verk- inu, kl. 16.00 og 21.00. Miða- pantanir era í Deiglunni. Gullvíðir með HM-tilboð GULLVÍÐIR hf. sem á og rekur orlofshús á Hrísum í Eyjafjarð- arsveit býður sérstakt HM95 tilboð í maímánuði. Tilboðið er hentugt fyrir þá sem vilja fylgjast með HM- keppninni á Akureyri, sem stendur sem kunnugt er frá 8. til 17. maí, en í því felst leiga á orlofshúsi á Hrísum og Toy- ota-bílaleigubíll. Orlofshúsin á Hrísum era í kyrrlátu umhverfi um 30 kílómetram frá Akur- eyri. Sem dæmi má nefna að að miðað við fjóra í húsi í tvær nætur, bílaleigubíl í þijá daga með 100 km akstri innifóldum hljóðar tilboðið upp á 19.830 krónur eða tæplega 5.000 krón- ur fyrir manninn. Vortónleik- ar yngri nemenda VORTÓNLEIKAR yngri nem- enda Tónlistarskólans á Akur- eyri verða haldnir á morgun, sunnudaginn 7. maí, kl. 14.00 í sal Tónlistarskólans, við Hafn- arstræti. A tónleikunum gefur að heyra nokkurs konar þversnið af því starfi sem unnið er með yngri kynslóð nemenda við skól- ann, en fram koma upprenn- andi hljóðfæraleikarar á píanó, strengjahljóðfæri og ýmis blást- urshljóðfæri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.