Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995 19
ERLENT
Reuter
Balladur segir af sér
FRANCOIS Mitterrand, fráfar-
andi forseti Frakklands, féllst í
gær á afsagnarbeiðni Edouards
Balladurs forsætisráðherra en bað
hann um að gegna embættinu til
bráðabirgða þar til Jacques
Chirac, nýkjörinn forseti, myndar
nýja stjórn. Heimildarmenn úr
innsta hring stuðningsmanna
Balladurs segja að hann hyggist
gefa kost á sér í borgarstjórnar-
kosningum í París í næsta mánuði
og hugsanlega í aukakosningum
til þingsins síðar á árinu. Þeir
segja hann einnig ætla að stofna
pólitískan sérfræðingahóp, eins
og hann gerði þegar hann var í
stjórnarandstöðu á árunum
1988-93. A myndinni gengur
Balladur inn í Elysée-höll.
Bush úr
byssufé-
laginu
Houston. Reuter.
GEORGE Bush, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, hefur
sagt sig úr Samtökum byssu-
eigenda, NRA (National Riffle
Association), en þau eru einn
öflugasti þrýstihópurinn í
landinu. Gerði hann það í
mótmælaskyni við bréf í nafni
samtakanna, sem birt var eft-
ir hryðjuverkið í Oklahoma,
en þar er lögreglumönnum
alríkisins líkt við þijóta.
í bréfi, sem Bush sendi
NRA í fyrradag, segist hann
æfareiður vegna þess, að
Wayne LaPierre, varaforseti
samtakanna, skuli hafa varið
fyrrnefnd ummæli í fjáröfl-
unarbréfi, sem birt var eftir
að 166 manns létu lífið
sprengingunni í Oklahoma-
borg.
„Fáheyrt níð“
„Að ráðast á starfsmenn
leyniþjónustunnar eða ann-
arra stjórnarstofnana og
segja, að þeir beri „nasista-
hjálma og svarta einkennis-
búninga stormsveitarmanna“
og vilji „ráðast gegn löghlýðn-
um borgurum" er fáheyrt níð
um gott fólk,“ segir Bush i
bréfi sínu. „Samtökin hafa
ekki harmað þessi ummæli
LaPierre og þess vegna segi
ég‘ mig úr þeim.“
Bush segir einnig í bréfinu,
að hann sé byssueigandi og
skotveiðimaður og hafi oft
verið sammála markmiðum
NRA. „Árásir ykkar á opin-
bera starfsmenn eru hins veg-
ar móðgun við æru mína og
heiður og eiga ekkert sameig-
inlegt með hugmyndum mín-
um um góðan þegnskap."
Átök vegna einkavæð-
ingar í Danmörku
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
DANSKA vinnuveitendasambandið
hefur beðið Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra að miðla málum í
sérkennilegri vinnudeilu, sem sett
hefur svip sinn á danskt þjóðlíf
undanfarnar vikur. Ástæðan er
uppsögn 82 strætisvagnabílstjóra í
Esbjerg í kjölfar einkavæðingar,
sem hefur leitt til verkfalla og
átaka, en ástæða verkfallanna er
kvíði vegna vaxandi einkavæðingar
í dönskum bæjarfélögum.
Upptökin að verkföllunum og
vinnudeilunum má rekja til þess að
strætisvagnasamgöngur í Esbjerg
voru einkavæddar á miðju síðasta
ári og ellefu vagnstjórum sagt upp
störfum. I kjölfarið fylgdu svo deil-
ur um laun og vinnufyrirkomulag,
sem leiddu til þess að öllum bílstjór-
unum 82 var sagt upp störfum um
miðjan febrúar. Síðan hefur stöðugt
verið reynt að koma í veg fyrir að
nýir vagnstjórar væru ráðnir og
gætu starfað. Þetta hefur leitt til
götuátaka auk þess sem lögreglan
hefur þurft að ryðja vögnunum leið
á hverjum morgni.
Ráðist á vagna
Síðasta snarpa hrinan varð um
helgina, þegar um fimmtíu manna
hópur kom á vegum verkalýðsfé-
lags frá Kaupmannahöfn til Esbj-
erg og lagði til atlögu við vagn-
ana. Rúður voru brotnar og vagn-
arnir hindraðir í að halda áætlun.
Til átaka kom við lögreglu og voru
47 handteknir. Þeir verða látnir
svara til saka fyrir skemmdarverk.
Hópurinn er annars vegar fólk úr
verkalýðshreyfingunni, en hins
vegar ungt fólk úr svokölluðum
„autonom“-hópum, mjög vinstris-
innuðum hópum í Kaupmannahöfn.
Vakið hefur athygli að verkalýðs-
hreyfingin greiddi þátttakendum
sem samsvarar 1.650 íslenskum
krónum í dagpeninga í ferðinni.
Engin merki eru um að lát sé á
deilunni, svo nú hafa samtök
danskra atvinnurekenda lagt að
Poul Nyrup Rasmussen forsætis-
ráðherra að freista þess að miðla
málum, en hann hefur áður boðist
til að hafa persónuleg afskipti af
deilunni.
LAFRIMAVERA
RISTORANTE
ítalskt
fjöguira eða tveggja íétta tílboð öll kvöld víkunnar:
ítölsk lauksúpa
Spaghetti með ansjósum
Kálfasneíð með skinku og salviu (Saltí bocca)
Súkkulaðí mousse m/appelsínusósu
Kr. 2.490
Polenta m/villisveppum
Steiktur sílungur m/ítölsku smjörí
Kr. 1.680
La Prímaver a
Hásí verslunarínnar
Borðapantanir í síma 588-8555
(r
TLBOB
10 pör
Margar gerðir.
Aður: 699 kr.
Nú á hálfvirði:
349 kr
Stærri gerð.
Áður: 990 kr.
Nú á hálfvirði:
ioxdfna
Mihn hænilnn
Mjög þægileg.
90 x 200 sm.
Aðeins:
ÍJ-J U U ÍUo
Saiðsióli
Sterkur og þægilegur
plaststóll með örmum.
Þolir að standa úti.
Áður: 799 kr.
Nú aðeins:
Venjulega seljum við
ekki föt, en þetta var
tilboð sem við gátum
ekki hafnað:
Þekkt vörumerki.
Margar stæröir og mynstur.
Verö i U.S.A. 15.95$ (1013 Isl/kr.)
Aðeins:
ilS Lf.
hjá okkurí
Buxur
í fallegum litum og
mörgum stærðum.
VerðíU.S.A. 39.95$ (2537 ísl/kr.)
Aðeins:
790 ki
hjá okkur!