Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ1995 21
Beethoven
og Rach-
maninov í
Nýja tón-
listar-
skólanum
TVEIR nemendur Nýja tónlistar-
skólans úr píanódeild halda tón-
leika í sal skólans á morgun, laug-
ardag kl. 14. Aðeins tvö verk eru
á efnisskránni. Píanósónata op.
110 í As-dúr, er ein sérstæðasta
píanósónata Beethovens og hana
leikur Sigmar Karl Stefánsson, en
hann er nemandi Ragnars Bjöms-
sonar. Annar nemandi píanódeildar
skólans, Ólafur Reynir Guðmunds-
son, leikur Píanókonsert Rachman-
inovs í c-moll, en þar sem hljóm-
sveit er engin mun kennari Ólafs,
Rögnvaldur Siguijónsson, spila
hljómsveitarhlutann á píanó.
Aðrir vortónleikar nemenda
verða í komandi viku og mun birt-
ast tilkynning um þá síðar. Benda
má sérstaklega á tónleika þriggja
söngnema sem voru að ljúka 7. og
8. stigi, en þeir eru Birna Ragnars-
dóttir, Bryndís Blöndal og Katla
Randversdóttir, en tónleikar þeirra
verða miðvikudaginn 17. maí kl.
18. Fimmtudaginn 18. maí verða
píanótónleikar nemenda á 7. og
8. stigi og hefjast þeir tónleikar
einnig kl. 18.
Allir eru velkomnir á vortónleika
skólans að Grensásvegi 3. Inntöku-
próf fyrir næsta skólaár verða
mánudaginn 21. og þriðjudaginn
22. maí og þarf að tilkynna sig á
skrifstofu skólans.
Skólaslit verða föstudaginn 19.
maí kl. 18 í Bústaðakirkju.
-----»-♦■■■♦---
Listasafnið
lokað
LISTASAFN íslands verður lokað
um mánaðartíma frá og með 15.
maí n.k. vegna endurbóta á gler-
hvelfmgu tengibyggingar.
Plasthvelfíngar í þaki verða end-
urnýjaðar og sett í gler sem dreg-
ur úr innrauðri og útfjólublárri
geislun sólarljóssins inn í tengi-
bygginguna. _
Verktaki er Álstoð hf. en arki-
tekt er húsameistari ríkisins.
Framkvæmdasýsla ríkisins sér um
eftirlit með framkvæmdinni.
-----» ♦ ♦-----
Tímarit
• HÁSKÓLI íslands hefur hafíð
útgáfu nýs tímarits, Sæmundurá
selnum. Ritið, sem ijallar aðallega
um rannsóknir sem stundaðar eru
innan Háskólans, er ætlað öllum
þeim sem áhuga hafa á íslenskum
rannsóknum.
Meðal efnis í fyrsta tölublaði eru
greinar um mælingar á ósonlaginu
yfír íslandi, um „Langanesveik-
ina“, sjaldgæfan augnsjúkdóm sem
á upphaf sitt hér á landi og grein
um þann vanda sem íslenska Þjóð-
kirkjan er í. Verð í lausasölu er
350 kr.
• ANNAÐ tölublað bókmennta-
tímaritsins Andblæs er komið út.
í tímaritinu eru meðal annars birt
ljóð, smásögur, örleikrit og draum-
bókmenntir. Meðal höfunda eru
Þórður Helgason, Sigurður A.
Magnússon, Þorvaldur Þorsteins-
son, Kjartan Ámason, Gímaldin,
Birgitta Jónsdóttir og Birgir Svan
Símonarson.
Útgefendur tímaritsins eru
Bjarni Bjarnason, Þórarinn Torfa-
son, Steinunn Ásmundsdóttir og
Valdimar Tómasson.
SJÖ þeirra myndlistarmanna sem sýna í Hafnarhúsinu.
Samsýn-
ing tíu
SAMSÝNING tíu myndlistarmanna
sem staðið hefur yfír í Hafnarhús-
inu, Tryggvagötu 17, lýkur nú á
sunnudag 14. maí.
Listamennirnir sem sýna eru;
Ásdís Kalmann, Dósla, Erla Sigurð-
ardóttir, Guðrún Einarsdóttir, Ið-
unn Thors, Magnús S. Guðmunds-
son, Margrét Sveinsdóttir, Ólafur
Benedikt Guðbjartsson, Sesselja
Björnsdóttir og Torfi Ásgeirsson.
Sýningin er opin frá kl. 14-18.
RENAULT CLIO
Einn allra besti bíllinn
í sínum verðflokki
„Ekkert er svo gott að það geti ekki orðið betra“
höfðu hönnuðir Renault að leiðarljósi þegar ákveðið var að bæta enn
við kosti Renault Clio, þessa margverðlaunaða afbragðs bíls, sem nú er
kominn á markað betri en áður, þótt hann sé að grunni til sami bíllinn.
Það er sama hvar borið er niður, aðrar bíltegundir í þessum verðflokki
hafa ekkert fram yfir Renault Clio í samspili verðs og gæða.
VERÐ FRÁ KR. 1.049.000,-
M/ RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU
Reynsluaktu Renault! Þú gerir ekki betri bílakaup.
RENAULT
RENNUR ÚT!
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
j■ B»■ L-1,1 ÁRMÚLA 13 • SÍMI 553 1 236