Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þjóðamót á Þingvöllum fyrir nýbúa og þá sem tengjast erlendu fólki Morgunblaðið/Ámi Sæberg SVIPMYND frá hátíð 100 tælenskra nýbúa á íslandi sem haldin var fyrir ári á Khao-pansan degi, sem er trúarhátíðardagur í Tælandi. Atvinnulausir 1 greiða fyrir læknisþj ónustu „Tækifæri til að koma úr felum“ FÉLÖG nýbúa á suðvesturhorn- inu ætla að halda þjóðamót á Þingvöllum laugardaginn 10. júní og eru allir velkomnir sem á einhvern hátt tengjast fólki frá öðrum löndum. A mótið er stefnt einstaklingum sem starfa í alþjóðlegum félaga- og æsku- lýðssamtökum, skiptinemum, nýbúum og fólki sem tengist íbúum annarra þjóða á einhvern hátt, til dæmis vegna viðskipta- sambanda. Kanadamaðurinn John Spencer, sem kom fyrsttil ís- lands árið 1964, er í undirbún- ingsnefnd mótsins. Segir hann hugmyndina byggða á áþekku móti og hann hafi sótt við Niag- ara-fossa í Kanada ár hvert á vegum Bahá’í samtakanna. John segir skorta tengsl milli útlendinga sem hér búa og inn- fæddra og sé mótið haldið til þess að bæta um betur og bijóta ísinn. „Þetta er tækifæri fyrir útlendinga á íslandi til þess að hætta að vera í felum og koma út og hitta aðra. Það er von mín að geta komið þjóðunum saman og takist þetta vel verður það endurtekið á hveiju ári,“ segir John og bætir við að auð- vitað ráði veðrið á laugardaginn hvort mótið Iánist. Margir hringt Að hans sögn hafa margir þegar haft samband. „Fólk hef- ur hringt víðs vegar að til okk- ar og einnig spurst fyrir um þetta í Gimli,“ segir hann. Gert er ráð fyrir að áhugasamir safn- ist saman á hátíðarsvæði klukk- an 10.30 og klukkan 11 verða þjóðfánar landa allra þátttak- enda dregnir að húni. Klukkan 13.30 verður ávarp og þjóða- mótið sett formlega en heiðurs- gestir eru Jón Baldvin Hannib- alsson fyrrverandi utanríkis- ráðherra og Bryndís Schram. Klukkan 14 verður keppni í hafnabolta, hlaupi og fleiri greinum. Einnig verður hægt að fara í gönguferðir eða veiða í Þingvallavatni ef fólk kýs. Dagskránni lýkur klukkan 17 þótt gestum sé fijálst að tjalda eða grilla og skemmta sér að hætti hvers og eins. TRYGGINGASTOFNUN segir rangar upplýsingar um afslátt fyrir atvinnulausar, sem vitnað var til í frétt í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag. . í athugasemd sem stofnunin hef- ur sent segir, að í grein þeirri í VR-blaðinu, sem Morgunblaðið vitn- ar til, séu rangar upplýsingar um afslátt fyrir atvinnulausa. Rétt sé, að þeir sem hafi verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur og hafa vottorð frá Atvinnuleysistrygginga- sjóði, eigi rétt á að njóta læknisþjón- ustu og heilsugæslu á sömu kjörum og lífeyrisþegar. Ekki sé um sér- stakan afslátt af lyfjum að ræða fyrir þennan hóp, eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins. í athugasemd Tryggingastofn- unar segir síðan: „Einnig er rangt farið með, að atvinnulausir fái ókeypis þjónustu heimiiislæknis á dagvinnutíma og 700 króna afslátt af gjaldi vegna iæknisþjónustu utan dagvinnutíma. Hið rétta er, að at- vinnulausir og lífeyrisþegar greiða 200 krónur fyrir komu á heilsu- gæslustöð á dagvinnutíma og greiða 400 krónur fyrir komu á heilsu- gæslustöð utan dagvinnutíma, en fullt gjald fyrir komu utan dag- vinnutíma er 1.000 krónur. Atvinnu- lausir greiða einnig lægra gjaid fyr- ir læknisvitjun, krabbameinsleit, rannsóknir og sérfræðilæknisþjón- ustu gegn framvísun vottorðs. Þessi afsláttur fyrir atvinnulausa var kynntur með fréttatilkynningu frá Tryggingastofnun ríkisins hinn 20. júní 1994. Hans er einnig getið í bæklingi Tryggingastofnunar. Greiðslur fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu, sem sendur hefur verið i til heilsugæslustöðva, sjúkrahúsa, verkalýðsfélaga og hagsmunahópa, meðal annars til VR. Loks er af- slættinum gerð skil í handbók Tryggingastofnunar, sem dreift er til um 400 einstaklinga í félags- mála- og heilbrigðisþjónustu um land allt. Atvinnuleysistrygginga- sjóður sér um frekari kynningu á réttindum atvinnulausra og gefur m.a. út bæklinga í því skyni. Því er sú fullyrðing alröng, að reynt hafi verið að halda þessum afslætti leyndum. Höfundur grein- arinnar hafði ekki samband við fræðslu- og útgáfudeild Trygginga- stofnunar, sem sér um upplýsinga- gjöf til fjölmiðla og gerð kynningar- efnis um almannatryggingar, til að fá réttar upplýsingar." Sumarfrí á íslandi Laugardagsblaði Morgunblaðsins, þjóðhátíðardaginn 17. júní nk., fylgir blaðauki serrt heitir Sumarfrí á ísiandi. í þessum blaðauka verður sagt frá ýmsum ferða- og gistimöguleikum og athyglisverðir áningarstaðir skoðaðir. Gönguferðum, veiði, golfi og sundi o.fl. verða gerð góð skil svo og sumarbústaðadvöl og tjaldútilegum. Þá verður fjallað um undirbúning fyrir fríið, s.s. viðlegubúnað, útbúnað bílsins og grillsins og birtar grilluppskriftir. Ferðalöngum til gagns og gamans verða birtar krossgátur og getraunir fyrir börn og fullorðna. Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið ervið auglýsingapöntunum til kl. 12.00 mánudaginn 12. júní. Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Guðný Sigurðardóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild, í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110. -kjarni málsins! Fyrsta íslandsbókin á jap- önsku frá Iceland Review ICELAND Review sendi frá sér fyrir þremur árum veglega myndskreytta bók um land og þjóð í m'u tungumálaútgáfum, þar af einni á japönsku. Var það fyrsta landkynningarbókin sem útgefín var á því tungumáli. Aðrar útgáfur Iceland Review eru á ensku, dönsku, sænsku, norsku, þýsku, frönsku, ítölsku og spænsku. Þessar bækur hafa verið með mest seldu íslandsbókum á markaðnum í nokkur ár og hlot- ið góða dóma, samkvæmt upplýs- ingum frá Iceland Review. Bæk- urnar eru 96 blaðsiður með K fjölda litprentaðra ljósmynda af landi og þjóð. 11ÍÍ1-ÍÍ9 1Q7I1 ^RUS Þ- VALDIMARSSON, tramkvamdastjori uu4 I luu UUL lu/U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, lOGGinuR fasjeignasau Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Suðuríbúð við Reynimel Mjög góð 3ja herb. íb. um 70 fm á 3. hæð. Sólsvalir. Parket. Húsið nýstandsett utan. Mikið útsýni. Vinsæll staður. Mjög gott verð. Eignin er ný á fastmarkaðnum - einkasala. Á vinsælum stað í Vesturborginni nýstandsett, stálklætt timburh. m. 2ja-3ja herb. íb. á hæð og i risi. Gott lán fylgir. Tilboð óskast. Leitum eftir skiptum Um 120 fm 4ra herb. íb. ofarl. í lyftuh. í Vesturborginni. 3 rúmg. svefn- herb. Tvennar svalir. Mikil sameign. Fráb. útsýni. Góð lán fylgja. Skipti æskil. á 2ja-3ja herb. íb. Ýmsir staðir koma til greina. Nánar á skrifst. Gott tvíbhús óskast íborginni, helst í vesturbænum. ALMEMMA FASTEIGHASALAH UU6HVEEI16S. 552 1158-552 1378 Breytt símanúmer Augnlæknastofa Árna B. Stefánssonar, Hafnarstræti 20 Tímapantanir ísíma561 7744. Snertilinsur samkvæmt samkomulagi. Bréfsími 562 1144.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.