Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
130. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR11. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
^ Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
STUND MILLI STRIÐA
Væntanlegur fundur sjö helstu iðnríkja heims í Kanada
Chirac vill aðgerðir gegn
atvinnuleysi í heiminum
París, Waahinffton. Reuter.
Hálsrígur á
hraðbraut
FYRIR nokkru var maður á fertugs-
aldri á leið í vinnuna á bíl sínum á hrað-
braut í grennd við Nottingham i Bret-
landi. Skyndilega fékk hann svo skæðan
ríg í háls og efri hluta baksins að hann
varð að stöðva bílinn. Hann gat ekki
hreyft höfuðið en tókst með harmkvæl-
um að skrúfa niður rúðuna og stinga
út um hana hvítum vasaklút til að vekja
athygli annarra vegfarenda. Þeir köll-
uðu á sjúkrabíl.
Er hjúkrunarfólk kom á staðinn var
komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn
hefði orðið fyrir alvarlegum hryggskaða
og hann gæti lamast fyrir lífstíð ef hann
yrði færður út um dyrnar á Rover-glæsi-
vagni sínum. Hann fékk því öflugan
kraga um hálsinn og beitt var klippum
til að skera gat á þak bílsins. Síðan var
manninum lyft upp. Ekki reyndist þörf
á flóknari meðhöndlun en nuddi.
Sekkjapípur
gegn poppi
SEKKJAPÍPULEIKARAR í Englandi
eru meðal þeirra jaðarhópa í tónlistinni
sem gætu fengið aðstoð úr sjóðum Evr-
ópusambandsins til handa þeim sem
beijast gegn ásókn bandarískrar popp-
menningar. Ný, sjálfstæð stofnun í
Brussel, EMO, á að hjálpa þeim sem
eiga erfitt með að fá tónlist sína gefna
út. „Við erum ekki á móti amerískri
menningu en verðum að fá tækifæri til
að koma okkar eigin menningu á heims-
markaðinn," sagði stjórnarformaður
EMO, Teddy Bautista. Stofnunin mun
veita ráðgjöf um höfundarrétt, útgáfu
og þóknanir og vonast til að fá að veita
beina styrki til kaupa á tækjum.
Gefið ekki
krókódílnum
UM þúsund manns stunda í hverri viku
vatnsbrettasiglingar á stöðuvatni í Ast-
bury-garði í Cheshire í Englandi. Það
hefur valdið nokkrum áhyggjum að sést
hefur tæplega metralangt dýr, sennilega
krókódíll, í vatninu. Stjórnandi
skemmtigarðsins setti því upp spjald.
„Viðvörun. Krókódíll hefur sést í vatn-
inu. Verði fólk vart við hann er bannað
að gefa honum að éta eða reyna að veiða
hann.“ Vitað er um mörg dæmi þess að
fólk kaupi litla krókódíla í dýraverslun-
um en fleygi þeim síðan í ár og vötn
þegar þeir verða of stórir.
JACQUES Chirac, forseti Frakklands, vill
að leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims, G-7-
hópsins svonefnda, leggi nú aðaláherslu á
að ræða aðgerðir gegn atvinnuleysi og ráð-
stafanir gegn uppákomum á alþjóðafjármála-
mörkuðum á borð við hrun mexíkóska pesó-
ans og gjaldþrot Baringsbanka. Næsti G-7-
fundur verður í Kanada í vikunni.
Minnir á Loch Ness-skrímslið
Forsetinn gagnrýndi á fréttamannafundi
um helgina að innbyrðis deilur ríkja Evrópu-
sambandsins (ESB) hefðu komið í veg fyrir
að hafnar yrðu miklar, opinberar fram-
kvæmdir sem leiðtogar sambandsins sam-
þykktu í fyrra til að skapa ný störf. Fram-
kvæmdirnar eru einkum á sviði fjarskipta-
og samgöngumála.
„Þetta er hálf-hlægilegt ... Þetta er eins
og Loch Ness-skrímslið, allir tala um það
en enginn hefur séð það,“ sagði Chirac.
Búist er við því að leiðtogar G-7 lýsi
ánægju með batnandi ástand efnahagsmála
í heiminum á fundi sínum. Sérfræðingar
benda hins vegar á að teikn séu á lofti um
erfiðleikatímabil á næstunni. Hagvöxtur fari
FRJALSLYNDIR demókratar (FDP), sam-
starfsflokkur kristilegra demókrata i stjórn
Þýskalands, kusu sér nýjan formann, Wolf-
gang Gerhardt, á laugardag. Hann tekur við
embættinu af Klaus Kinkel utanríkisráðherra
en erfir ekki embætti hans í stjórn Helmuts
Kohls.
Gerhardt fékk 57% atkvæða á flokksþing-
inu en Jiirgen Möllemann, fyrrverandi efna-
nú minnkandi í flestum iðnríkjum og gæti
þessi þróun valdið nýrri kreppu auk þess sem
viðskiptadeilur Japana og Bandaríkjamanna
yrðu enn erfiðari viðfangs.
hagsmálaráðherra, um 33%. Gerhardt þykir
hófsamur í skoðunum, hann hefur verið
flokksformaður í sambandsríkinu Hessen.
FDP hefur gengið illa í nær öllum kosning-
um síðustu árin. Flokkurinn hefur verið í
samstarfi við kristilega undanfarin 12 ár og
töldu margir þingfulltrúar að hann hefði
ekki verið nægilega skeleggur í ríkisstjórn-
inni, látið Kohl og menn hans vaða yfir sig.
Gerhardt nýr formaður
FDP í Þýskalandi
Mainz. Reuter.
D
Fiskur
fyrir
borð io
Staðurfyrir
migogjón
msnmmmjiiF
ÁSUNNUDEGI