Morgunblaðið - 05.11.1995, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Caput-hópurinn heldur tónleika á stóra sviði Borgarleikhússins
Spennandi hljóðfall
magnaðir hljómar
CAPUT-HÓPURINN heldurtón-
leika á þriðjudagskvöldið á Stóra
sviði Borgarleikhússins kl. 20.30.
Efnisskráin gefur mynd af sumu
því merkasta sem hefur átt sér
stað í tónsköpun yngri tónskálda
Evrópu á síðustu árum. Flyljend-
ur eru tuttugu vel þekktir tónlist-
armenn úr íslensku tónlistarlífi
og stjórnandinn að þessu sinni
er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Tónleikarnir eru liður í Tón-
leikaröð Leikfélags Reykjavíkur.
Gerður Gunnarsdóttir, sem
leiðir strengjasveit Caput-hóps-
ins, starfar í sinfóníu- og óperu-
hljómsveit Kölnarborgar sem
þriðji konsertmeistari. Síðastlið-
inn vetur var hún búsett hér á
landi og starfaði með Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Frá og með
áramótum var hún annar kon-
sertmeistari hljómsveitarinnar.
Einnig var hún konsertmeistari
Islensku óperunnar þann vetur
auk þess sem hún lék mikið með
Caput-hópnum og Kammersveit
Reykjavíkur.
Gerður segir að félagar Caput-
hópsins vilji leggja áherslu á að
tónlistin sem leikin verður sé
mjög áheyrileg. „Þetta eru ekki
dæmigerð nútímaverk sem fólki
finnst oft erfitt að hlusta á; þetta
eru mjög áheyrileg verk með
spennandi hljóðfalli og mögnuð-
um hljómum sem ég er viss um
að muni koma fólki á óvart. Þessi
verk ættu að mínu mati að höfða
til víðs hóps áheyrenda. Þau eru
öll eftir ung tónskáld, fimm frá
Norðurlöndum og eitt ítalskt.“
Efnisskráin er sett saman úr
verkum sem Caput-hópurinn hef-
ur leikið á undanförnum misser-
um á tónleikum á Norðurlöndum,
ítaliu og Spáni. Þessi verk hafa
ekki heyrst á tónleikum hópsins
hér á landi áður. Leikin verða
Þrjú stykki fyrir píanó eftir Carl
Nielsen sem Hans Abrahamsen
umsamdi fyrir sinfóníettu 1990.
Að sögn Gerðar er þetta klassisk-
asta verk efnisskrárinnar. Eftir
Danann, Bent Sorensen, verður
flutt verkið, Minnelieder -
Zweites Minnewater, sem var
sérstaklega samið fyrir Caput-
hópinn árið 1994. Sorensen er
eitt athyglisverðasta tónskáld
Dana um þessar mundir. Verkið
Árhringur eftir Hauk Tómasson
var samið árið 1994 en hefur
verið umskrifað fyrir Caput-hóp-
inn. „Hér er um skemmtilegt og
ferskt verk að ræða eftir eitt
efnilegasta tónskáld Islendinga,“
segir Gerður. Eftir Finnann,
Magnus Lindberg, verður fiuttur
Coyote Blues sem Gerður segir
að sé hressileg blanda af blús og
indverskum áhrifum. Ululation
eftir Finnann, Jukka Koskinen,
er sérstaklega samið fyrir hóp-
inn árið 1994. Að lokum verður
svo flutt verk eftir ítalann, Rice-
ardo Nova, sem nefnist Paraf-
rasi. Verkið var frumflutt af
Caput-hópnum í Mílanó í nóvem-
ber 1994 og tekið upp fyrir
geisladisk sem kemur út innan
tíðar. „Verkið er eins konar kon-
sert fyrir slagverk og sinfóní-
ettu. Það er Steef van Ooster-
hout sem fer með viðamesta hlut-
verkið á slagverkið en í þessu
verki er rythminn allsráðandi,"
segir Gerður.
Caput-hópurinn var stofnaður
árið 1987 og segir Gerður að
þetta sé mjög öflugur hópur.
„Þetta samstarf hefur verið mjög
Andlegft nesti
BÆKUR
Biblíutextar
ORÐ DAGSINS ÚR
BIBLÍUNNI
Ólafur Skúlason biskup valdi. Prent-
vinnsla Oddi. Hörpuútgáfan 1995 -
152 síður. 1.990 kr.
HERRA Ólafur Skúlason, bisk-
up íslands, er landsmönnum vel
kunnur og því
ástæðulaust að
rekja ævi og starfs-
feril hans hér.
Hann hefur boðað
landsmönnum
Guðs orð um langt
árabil.
Bókin Orð dags-
ins úr Biblíunni er
þannig uppbyggð
að eitt til þijú vers
úr Biblíunni,
Gamla eða Nýja
testamentinu, hafa
verið valin fyrir
hvern dag. Versin
eru látin standa ein
út af fyrir sig og
er ætlað að tala
sínu máli. Engin
hugleiðing fylgir
eða bæn.
í inngangi segir
höfundur: „Þessi bók gefur gott
tækifæri til þess að verja stuttri
stund í að lesa og skoða vers úr
Biblíunni, sem hefur með réttu
verið kölluð „Bók bókanna".
Hver dagur á sitt vers og er
þar dregið fram ýmislegt, sem
Ólafur Skúlason
Gerður Gunnarsdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
fijótt og skemmtilegt. Við vinn-
um saman vegna þess að okkur
þykir það skemmtilegt - og ein-
ungis vegna þess.
Þetta er algjörlega sjálfstæður
hópur sem hefur engar sérstakar
skyldur, aðrar en við sjálfan sig.
Árangurinn lætur ekki á sér
standa og hefur hópnum verið
boðið að taka þátt í ýmsum tón-
listarhátíðum um víðan heim, til
að mynda í Kaupmannahöfn í
mars 1996 og í Lissabon í Portú-
gal 1997.
Dagur til
styrktar
Flateyr-
ingum
GAMANLEIKRITIÐ Dagur
verður sýnt á Litla sviði Borg-
arleikhússins í kvöld kl. 20.30.
Ágóði rennur til söfnunarinn-
ar Samhugur í verki. Hafa
allir aðstandendur sýningar-
innar ákveðið að leggja sitt
af mörkum og votta Flateyr-
ingum samúð sína.
Hamingjupakkið
Hópurinn sem stendur að
þessari sýningu kallar sig
„Hamingjupakkið“. Þessi
hópur er samansettur af ungu
fólki sem víða hefur leitað
fanga í listaflórunni, svo sem
í leiklist, tónlist og danslist.
í kynningu segir: „Útkom-
an er það sem þið munuð
upplifa á sýningum sem sýnd-
ar eru á litla sviðinu í Borgar-
leikhúsinu. Þú vaknar. Þú lít-
ur í kringum þig. Rúmið þekk-
ir þú ekki. Gærkvöldið sem
sagt vel heppnað, eða hvað.
Við hliðina á þér liggur stað-
festing á því. En hvað heitir
svo manneskjan sem liggur
þér við hlið? Þegar Dagur
vaknar ér hann í þessum spor-
um. Það sem hann þarf að
gera er að komast heim. En
hvernig? Fötin fær hann ekki,
símann má hann ekki nota
og enginn virðist hafa áhuga
á að skutla honum eitt eða
neitt. Stúlkan sem hann eyddi
nóttinni með hefur aðeins
áhuga á einu, að koma honum
út. Fatalaus og vinnulaus í
ókunnugu húsi og veit ekki
sitt ijúkandi ráð.“
ætti að vera til huggunar, leiðbein-
ingar, uppörvunar og jafnvel hug-
ljómunar. Andartak eitt tekur það
yfirleitt að renna auga yfir vers
dagsins og gott að ákveða þá
stund, sem því er ætluð, og víkja
trauðla frá. Munu sumir vafalaust
tengja slíka athugun morgninum,
áður en aðkallandi störf taka völd-
in. Aðrir munu láta ró kvöldsins
auka vægi helgs orðs.“
Orð dagsins úr Biblíunni er
handhæg og snot-
urlega skreytt bók.
Versin fyrir hvern
dag eru vel valin,
Orð Guðs er mátt-
ugt og talar sínu
máli. Hvert vers er
gott andlegt nesti
fyrir daginn og til-
efni tii íhugunar í
dagsins önn.
Bókinni er
greinilega ætlað að
gefa fólki, sem er
óvant biblíulestri,
nasasjón af bókinni
góðu, að vera eins
konar bragðprufa.
Veitir ekki af slík-
um bókmenntum á
Islandi.
Ástæða væri fyr-
ir biskupinn okkar
að gefa út aðra bók
með hugleiðingum fyrir hvern dag.
Orð dagsins úr Biblíunni á er-
indi til allra, sérstaklega þeirra,
sem vilja byija að kynna sér boð-
skap Biblíunnar.
Fagna ber útgáfu hennar.
Kjartan Jónsson
Berglind Gunnarsdóttir
Nýjar bækur
Ljóðaþýð-
ingar úr
spænsku
BRAGÐ af eilífð er kver með
ljóðaþýðingum eftir Berglindi
Gunnarsdóttur. í Bragð af
eilífð eru einkum ljóð eftir
skáld spænskumælandi
heims: Antonio Machado,
Ramón Gomez de la Serna,
Vicente Aleixandre, Federico
García Lorca, Rafael Alberti
og Emilio Prados frá Spáni
og Ruben Darío frá Nic-
aragua. Að auki eru Ijóð eftir
ungverska skáldið Sándor
Weöres og ástarljóð úr sansk-
rít. __
Útgefandi er Örlagið. Bros
af eilífð er 37 blaðsíður unnin
í Steindórsprenti-Gutenberg.
Þýðingasjóður styrkti útgáf-
una.
Bók er góð
LEIKLIST
Fu r ð u 1 e i k h ú s i ð
Tjarnarbíói
BÉTVEIR
eftír Sigrúnu Eldjám Leiksljóri: Jón
St. Kristíánsson, Tónlist: Sigrún Eld-
jám og Olöf Sverrisdóttír Leikmynd
og búningan Helga Rún Pálsdóttír
Leikendur: Margrét Kr. Pétursdótt-
ir, Ólöf Sverrisdóttir, Eggert Kaab-
er, Gunnar Gunnsteinsson, Katrín
Þorkelsdóttír.
FLEST vita blessuð börnin þetta
með mjólkina, en það er fleira
matur en feitt ket. Einhveija bestu
næringu sem völ er á má hafa af
bókum. Þennan boðskap flytur
leikritið Bétveir yngstu kynslóð-
inni í Tjarnarbíói, þessum greyjum
sem eiga eftir að búa við harð-
ræði framboðsofgnóttarinnar í enn
meira mæli en við fullorðna fólkið.
Við þykjumst vita að bókin sé
ómissandi og að hún sé ýmsum
kostum prýdd sem ekki eru hand-
bærir annarsstaðar: Það má þukla
á henni, stijúka hana, taka hana
með sér í bólið, sofna með hana á
bringunni og aldrei segir hún
múkk. Samt varðveitir hún heim-
inn fyrir okkur á milli spjaldanna.
Að læra lestur er lykillinn að
bókinni. Að læra lestur er eftir-
sóknarvert, spennandi, skemmti-
legt. Yngsta kynslóðinni á frum-
sýningunni var alveg með á nótun-
um hvað þetta snerti. Bétveir er
snáði utan úr geimnum sem kemur
til jarðar að leita að dálitlu sem
ekki er til í hans heima(stjörnu)
högum. Þar hittir hann fyrir patta
sem Áki heitir og systkini hans
Lóu og Búa. í sameiningu reyna
þau að komast að því hvað þetta
er sem ekki er til heima hjá Bét,-
veimur.. .
Leikhópurinn Furðuleikhúsið
var stofnaður fyrir rúmu ári og
hafði fyrst það hlutverk að
skemmta ungum sem öldnum í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal Reykjavíkur. Síðan hef-
ur hópurinn sett upp nokkrar ein-
faldar og meðfærilegar barnasýn-
ingar og farið með þær vítt og
breitt. Það er í sjálfu sér heillandi
hugmynd og í eðli sínu töfrandi
iðja að skjóta upp kollinum hér
og þar og skapa börnum nýjan
heim svo þau kynnist betur
heiminum sem umlykur þau.
Þetta unga fólk sem skapar
sýninguna kann nú þegar að seiða
börnin til sín upp_ á sviðið og inn
í þennan heim. í þessu leikhúsi
ríkir engin aðskilnaðarstefna.
Litlu krakkarnir er þátttakendur
í því sem þau verða vitni að. Þann-
ig afmást mörkin milli leiks og lífs
og allt verður ein heild. Leikaram-
ir eru afslappaðir og hógværir eins
og vera ber. Ekkert er ofkeyrt,
ógnandi. Galsinn er haminn, erfið-
leikar yfirstíganlegir með nokkr-
um húmor, skilaboðin skýr. Og
sem betur fer er ekkert billegt
enda væri það ekki börnum bjóð-
andi. Textinn er einfaldur en þó
fá áheyrendur að kynnast tvíræðn-
inni sem málið býr yfir. Tungumál
er nefnilega eins og vatn. Það tek-
ur á sig ýmsar myndir.
Guðbrandur Gíslason.