Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ 4 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 Morgunoiaoio/Ami öæœrg JÓLIN nálgast með hverjum deginum og þótt enn sé alllangt til þeirra ber þau æ oftar á góma hjá yngsta fólkinu. Ólöf Þóra, fjögurra ára, virðir hér fyrir sér jólastjömur, sem komnar eru á markaðinn. ÍSINGARBANKI, nýr gagna- grunnur með upplýsingum um ís- ingu, sem sest á háspennulínur, hefur verið tekinn í notkun. Bank- inn auðveldar yfirsýn yfir' línur og línuhluta, sem eru í mestri hættu vegna álags af völdum ís- inga. I fréttabréfi Rafmagnsveitna ríkisins kemur fram að undanfarin ár hafi RARIK haft forystu um samstarf íslenskra orkufyrirtækja og fleiri aðila um rannsóknir á ís- ingu sem sest á háspennulínur. Jafnframt segir að með tilkomu nýrra mælitækja, sem þróuð hafi verið í samstarfi við íslenska hug- vitsmenn hafi rannsóknum fleygt fram. Aflað hafí verið þekkingar í gegnum alþjóðlegt samstarf og niðurstöður rannsókna hafi verið kynntar erlendis með þeim árangri að hafin er sala á nýjum tækjum þar. Aukin hagkvæmi Fram kemur að rannsóknimar nýtist fleiri aðilum þegar forsendur álags eru metnar vegna nýbygg- ingar og endumýjunar á háspenn- ulínu, en áætlað ísingarálag er sá þáttur sem mestu ræður um kostn- að mannvirkjanna. Rannsóknin leiðir því ,til aukinnar hagkvæmi í rekstri á komandi ámm. Þá segir að í gegnum bankann sé hægt að lista upp með einföldum hætti öll þekkt ísingartilvik á skil- greindum hlutum raflínukerfisins. Ef jafnframt er framkvæmt styrk- leikamat á viðeigandi línum er í fljótu bragði hægt að sjá hvaða línur og línuhlutar em í mestri hættu gagnvart ísingarálagi. Þannig er hægt að forgangsraða endumýjunar- og viðhaldsverkefn- um. FRAMBOÐ á jólastjömum er mikið í ár og litlar verðbreyting- ar merkjanlegar frá liðnu ári að sögn Bjama Finnssonar, eiganda Blómavals. Jólasljörnumar em islensk framleiðsla og kveðst Bjarni telja að heildarsalan á markaðinum nemi um 40 þúsund plöntum fyrir jólin. „Jólastjörnur em nýkomnar á markaðinn en vemlegur skriður á sölu verður varla fyrr en um 20. nóvember og fram til 10. desember,“ segir Bjarni. Frá 395 til 1.200 krónur Jólastjörnur skiptast í nokkra flokka eftir stærð hjá blómasöl- um, og kosta ódýrustu plönturn- ar 395 krónur hver þjá Blóma- vali, 1. flokkur 795 krónur og sérstaklega stórar jólastjöraur 995 krónur. Sala er þó ekki haf- in í öllum flokkum. Elín Þorsteinsdóttir, verslun- arstjóri þjá Alaska Miklatorgi, Verð svipað og í fyrra segir að of snemmt sé að spá fyrir um endanlegt verð, en útlit sé fyrir að ódýmstu plönturnar muni kosta um 395 krónur en sérstaklega stórar jólastjörnur muni kosta að meðaltali 1.000- 1.200 krónur. Þetta sé óbreytt verð frá seinustu jólum. „Þetta er byijunarverð en síð- an getur það breyst dag frá degi, kannski verður bryddað upp á tilboðum eða öðm slíku. Salan er þegar hafin því að fólk hefur átt- að sig á að kaupa má jólastjöraur tiltölulega snemma, enda halda þær sér vel. Þetta er ein aðalsölu- varan fyrir jólin, jafnvel svo mjög að bitnar á sölu á afskomum blómum,“ segir Elín. Friðfinnur Kristjánsson, eig- andi Blómastofu Friðfinns, kveðst telja að meðalverð á gerð- arlegum jólastjömum verði um 1.100-1.200 krónur í ár, en næstu flokkar fyrir neðan verði kring- um 990 krónur og allt niður í um 390-490 krónur, fyrir minnstu jólastjörnunar. Fyrstu plönturnar hafi komið í búðir fyrir seinustu helgi og sé sala enn sem komið er róleg, en um mánaðamótin næstumegi búast við að salan gangi greiðlega fyr- ir sig og nái hámarki um miðjan desember. Vinsældir jólastjöm- unnar virðast aukast frekar en hitt, að sögn Friðfinns, og telur hann stóran hluta af heimilum landsmanna skarta einni slíkri um og eftir aðventu. 00 # LIU telur rétt að mótmæla sóknarstýrmgu á Flæmska hattmum FRETTIR Talið að um 40 búsund iólastiörnur seliist fyrir jólin ísingar- bankinn tekinn til starfa Islenzk stjórnvöld virði samþykkta veiðistjóra Töluvert deilt um þessa niðurstöðu á aðalfundi samtakanna bæði í úthafs- nefnd fundarins og á fundinum sjálfum AÐALFUNDUR LÍÚ telur rétt að mótmæla sóknarstýringu við rækjuveiðar á Flæmska hattinum, en beinir því jafnframt til íslenzkra stjómvalda að þau virði þar sam- þykktir sem gerðar hafa verið um veiðistjórnun á næsta ári. Töluvert var deilt um þessa niðurstöðu í gær, bæði úthafsveiðinefnd fundar- ins og á fundinum sjálfum. Allir voru á móti sóknarstýr- ingu, en ýmist vildu andstæðar fylkingar að veiðum yrði ekki stjórnað, eða kvótakerfi væri beitt í stað sóknarstýringar. Breyting- artillaga þar sem skorað var á stjórnvöld að mótmæla fyrirhug- aðri veiðistjórnun nú þegar, var felld með nokkrum atkvæðamun og endanleg tillaga síðan sam- þykkt með 80 atkvæðum gegn 2. Helztu tillögur fundarins um veiðar utan íslenzkrar lögsögu eru að öðru leyti á þann veg að mikil- vægt sé að ná sem allra fyrst sam- komulagi um veiðistjórnun á Reykjaneshrygg, í Smugunni og Síldarsmugunni. Fundurinn fagnar yfirlýsingu fundar sjávarútvegsráðherra ríkja við N-Atlantshaf þess efnis að veið- um úr fiskistofnum utan lögsögu ríkja skuli stjórnað með því að ákveða hámarksafla sem síðan skiptist á milli veiðiríkja, enda fari áður fram ítarlegar vísindarann- sóknir. { ályktun fundarins segin „Yfir- lýsing ráðherranna dregur úr hættu á því að sóknarmarksfyrirkomulag það sem nýlega var ákveðið að nota við stjóm rækjuveiða á Flæmingja- grunni verði haft að fordæmi við samninga um stjómun veiða á öðr- um hafsvæðum. Ennfremur er ástæða til að fagna tilmælum fund- ar sjávarútvegsráðherranna til Norðvestur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar (NAFO) um að nefnd- in breyti fyrirkomulagi stjómunar rækjuveiða á Flæmingjagmnni úr sóknarmarki því sem ákveðið var á síðasta fundi nefndarinnar í afla- mark. Þessi tilmæli styrlcja það álit samtakanna að rétt sé af íslenskum stjómvöldum að mótmæla niður- stöðu NAFO um sóknarstýringu við rækjuveiðar á Flæmingjagrunni. Engu að síður virði íslensk stjóm- völd þær samþykktir sem gerðar hafa verið íyrir svæðið árið 1996.“ Ekkí samið nema stærri kvóti fáist Fundurinn beinir þeim tilmælum til stjórnvalda að í viðræðum við Rússa og Norðmenn um veiðar í Barentshafi verði ekki samið um þorskkvóta miðað við þær tölur sem nefndar hafí verið I samningavið- ræðum. Það þjóni ekki Hagsmunum íslenskra útgerðarmanna að semja nú nema stærri kvóti náist fram. Þá komi ekki til greina að samið verði um skipti á aflaheimildum. Auk þess segir að þjóðarréttar- leg staða íslendinga varðandi Sval- barðagvæðið geti aldrei verið sölu- vara i samningum við Norðmenn og Rússa. Skorað er á stjórnvöld að láta nú þegar reyna á rétt íslend- inga með því að leita úrlausnar alþjóðadómstólsins í Haag. Því er beint til stjómvalda að unnið verði ötullega að því í sam- vinnu við Norðmenn, Rússa og Færeyinga að koma á fót sameig- inlegri fiskveiðistjómunamefnd sem hafi með höndum stjóm á nýtingu norsk-íslenska síldarstofnsins. ■ Landsfundur LÍÚ/2Ó-21 Á einka- þotu til Kanarí Samvinnuferðir/Landsýn hafa auglýst jólaferð til Kanarieyja með viðkomu i.Dublin á írlandi í bakaleiðinni. Ferðin stendur í 12 daga og það óvenjulega við hana er það að farkosturinn, þota frá Atl- anta flugfélaginu, mun bíða eft- ir farþegunurri ytra allan tím- ann. Lagt verður af stað frá Keflavík að morgni laugardags 16. desember og dvalið á Kan- aríeyjum í 12 daga. Miðviku- daginn 27. desember verður lagt af stað til Dublin og þar dvelja farþegamir til kvölds 29. desember. að lagt verður af stað til íslands. Samkvæmt upplýsingum Samvinnuferða er verðið í þessa ferð heldur lægra en í venjulegar tveggja vikna ferðir til Kanaríeyja. „Brottnám“ á Miklubraut? Vitni gáfu sig fram TVEIMUR dögum eftir að Fé- lag áhugamanria um fljúgandi furðuhluti auglýsti eftir vitnum að hugsanlega eða líklegu „brottnámi" tveggja ungmenna á Miklubraut 10. ágúst síðast- Iiðinn gáfu tvö vitni sig fram að hluta mögulegrar atburða- rásar. Um er að ræða mæðgur sem búa á Kjalamesi og sáu blikk- andi ljósstrengi yfir Háaleitis- hverfi á sama tíma og umrædd ungmenni töldu sig lenda í ljós- glampa sem kom einhversstaðar langt ofan frá að því er þau telja. Þetta kemur fram í Geim- diskinum, fréttabréfi félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti. Þar kemur jafn- framt fram að til standi að fá erlenda dáleiðara til að dáleiða ungmennin sem urðu fyrir reynslunni á Miklubraut, en íslenskir dáleiðarar þykja óhæfir til þess þar sem þeir trúi alls ekki á frásögn ung- mennanna um atburðinn. Eldfimur vökvi og kertaljós LJÓST er að eldsupptök í húsi við Aratún í Garðabæ aðfara- nótt mánudags vom af manna- völdum. Eins og skýrt var frá í Morg- unblaðinu björguðust hjón, karl- maður á áttræðisaldri og kona á sjötugsaldri, naumlega út úr húsinu, en eldur logaði á gangi fyrir framan svefnherbergi. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur unnið að rannsókná elds- upptökum og er nú ljóst að húsráðandi fór óvarlega með eldfiman vökva og kertaljós. Samkvæmt upplýsingum RLR er þó ekki leitt í ljós hvort eld- ur var lagður að húsinu af ásetningi. Sólgnir í sælgæti TVEIR piltar vom handteknir skömmu eftir miðnætti í fyrri- nótt, en þeir höfðu sagað í sund- ur lás á gámi á Ártúnshöfða. Þegar piltamir vora gripnir vom þeir búnir að stela sæl- gæti úr gáminum, en góðgætinu var komið til réttra eigenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.