Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 KEYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<aCENTRUM.lS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 4 Tengdadóttirin stóð að sprengjuhótuninni í jórdönsku breiðþotunni Bandaríska alríkislög- reglan rannsakar málið Morgunblaðið/Björn Blöndal FARÞEGAR jórdönsku þotunnar keyptu í gærmorgun Morgun- blaðið með frásögn og myndum af málinu og þeir sem ekki náðu sér í blað létu taka fyrir sig Ijósrit. KONA í Chicago tilkynnti að sprengja væri um borð í jórdönsku breiðþotunni sem lenti á Kefla- víkurflugvelli í fyrradag, en til- kynningin reyndist vera gabb. Ástæðan fyrir athæfi konunnar var sú að hún vildi ekki fá tengda- móður sína, sem var farþegi í breiðþotunni, í heimsókn. Þotan iiélt héðan áleiðis til Chicago í gærmorgun ásamt áhöfn og öllum farþegum. Bandarísku alríkislögregiunni hefur verið gerð grein fyrir mála- vöxtum varðandi athæfi konunn- ar sem stóð að sprengjugabbinu. Konan hefur ekki verið handtekin, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins má gera ráð fyrir að kæra á hendur henni verði lögð fram í næstu viku. <>—- Töldu víst að sprengja væri ekki um borð Hussein Dubbas, framkvæmda- stjóri jórdanska flugfélagsins Roy- al Jordanian Airlines í New York, sagði í gær að nokkur vissa hefði ríkt um að sprengja væri ekki í vélinni, en öruggara hafi þótt að lenda hér á landi þrátt fyrir það. Konan, sem tilkynnti um sprengjuna, hringdi á skrifstofu flugfélagsins í Chicago og nafn- greindi konu um borð í breiðþot- unni sem hún sagði hafa sprengju meðferðis. Flugstjórinn ræddi við konuna og samferðafólk hennar og taldi hann fullvíst að um gabb væri að ræða. Dubbas segir að hins vegar hafí ekki verið hægt að virða tilkynninguna að vettugi og því hafi orðið að lenda vélinni. Ljóst er að tjón flugfélagsins vegna gabbsins nemur milljónum króna. Ómæld óþægindi fyrir farþega Þorgeir Þorsteinsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, sagði að lögreglan hefði leitað af sér allan grun í þotunni og far- angur farþega verið skoðaður nákvæmlega. Þegar víst þótti að engin sprengja væri um borð hélt þotan af landi brott um kl. 9.30 í gærmorgun. Allir farþegar voru um borð, en töfin hafði að sjálf- sögðu bakað þeim ómæld óþæg- indi, að sögn Þorgeirs. Marwan Omat, flugstjóri þot- unnar, sagði í samtali við Morg- unblaðið að um hafi verið að ræða skelfilegt ástand sem allir flug- stjórar óttast. Allt hafi þó farið vel og hann væri þakklátur öllum sem að málinu komu hér á landi. ■ Vildiafstýraheimsókn/6 Jóla- rjúpan lækkar ÁGÆT ijúpnaveiði hefur verið að undanfömu og framboð mikið. Pétur Pétursson, kaup- maður í Kjötbúri Péturs, segist nú sjá sér fært að lækka ijúp- una verulega frá síðasta ári. „Hún verður seld í fíðri á 660 krónur og hamflett á 780 krónur stykkið. Þetta er vem- leg lækkun frá síðasta ári, þá var hamflett ijúpan seld á tæplega 900 krónur og óham- flett á um það bil 750 krón- ur,“ sagði Pétur. Rjúpa hvaðanæva að af landinu „Framboðið er mjög mikið þessa dagana, hingað hringja og koma skyttur á hveijum degi, mæta héma inn á gólf með kippurnar og kassana fulla af ijúpu. Það má segja að mikil og góð ijúpnaveiði sé um land allt, að minnsta kosti býðst mér nóg af ijúpu hvað- anæva að af landinu,“ bætti Pétur við. Ýmsar skyttur sem Morg- unblaðið hefur rætt við em sammála um að meira sé af fugli í ár en síðustu ár. Hins vegar hafí oft og tíðum þurft að sækja hann hátt upp í fjöll, jafnvel upp í 7-800 metra hæð. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson FLOSI kom til ísafjarðar í gær, þar sem gert verður við bátinn. Útgerðarmaðurinn Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson virðir fyrir sér skemmdirnar. Sigldi á hafnarkantinn Bolungarvík. Morgunblaðið. ÞAÐ óhapp varð er vélskipið Flosi ÍS 15 var að leggja að í Bolungar- víkurhöfn um kl. 3 aðfaranótt föstudags að vélbúnaður skipsins lét ekki að stjórn þannig að skip- ið sigldi beint á hafnarkantinn. Allnokkrar skemmdir urðu á stefni skipsins, en enginn leki kom þó að skipinu og engar skemmdir urðu á hafnarkantin- um. Að lokinni skoðun var skipinu siglt til ísaijarðar, þar sem unnið verður að bráðabirgðaviðgerð á stefni þess. Orsök óhappsins má rekja til rafmagnstruflana í rafkerfi skips- ins sem varð þess valdandi að ekki var hægt að bakka. Því var ekkert við ráðið og skipið, sem var á lítilli ferð, rakst á hafnar- kantinn. Að sögn Ómars Ásgeirssonar hjá Ósvör hf. er gert ráð fyrir að bráðabirgðaviðgerð taki 12 til 15 tíma og skipið haldi þegar til veiða að henni lokinni, þannig að skipið missir ekki úr róður vegna þessa óhapps. Fullnaðarviðgerð fer síð- an fram í vor. Flosi var að koma úr sinni fyrstu veiðiferð á þessari vertíð, en skipið verður gert út á línuveið- ar. frá Bolungarvík í vetur. Mjög góð veiði í Smugunni síðustu daga Sléttanesið á heimleið eftir 61 dags veiðitúr SLÉTTANESIÐ ÍS-808 kemur á morgun til heimahafnar með um 340 tonn af frystum fískafurðum, sem skipið fékk í Smugunni, en mjög góð veiði hefur verið þar síð- ustu tvær vikur. Aflaverðmæti er um 95 milljónir. Þetta er mesta aflaverðmæti sém skipið hefur komið með að landi, en það hefur heldur aldrei farið jafnlangan túr. 61 dagur er síðan skipið lagði úr höfn frá Islandi. Þegar Sléttanesið hélt í Smug- una var þar þokkaleg veiði. Ekk- ert var hins vegar að hafa þegar þangað var komið og lítið fékkst í yfir heilan mánuð. Sölvi Pálsson skipstjóri sagði að menn hefðu samt verið ákveðnir í að þrauka. „Það var mjög góð veiði síðustu dagana norðarlega í Smugunni. Aflaverðmæti afurðanna er um 95 milljónir og þar af fengust um 55 milljónir síðustu 18 dagana. Þetta var ekkert mok þessa daga heldur jafnt og gott fískerí. Við voru að fá 6-7 og upp í 10 tonn eftir 3-4 klukkutíma tog. Þetta var sérstak- lega stór og góður fískur, fullur af loðnu,“ sagði Sölvi. Þrefaldur kvðti í tveimur túrum „Þetta er góð búbót. Við erum búnir að fá úr tveimur túrum í Smuguna 1.500-1.600 tonn upp úr sjó. Það er eins og þrefaldur þorskkvóti okkar á íslandsmiðum. Aflaverðmætið í þessum túrum er 165-170 milljónir." Sölvi sagði að góð veiði hefði verið í Smugunni þegar Sléttanes- ið fór þaðan. Þar voru þá fímm skip að veiðum, Akureyrin, Há- gangur II og skip frá Portúgal og Færeyjum. Fá íslensk skip hafa verið í Smugunni síðustu tvo mánuðina enda veiði lengst af léleg. Sölvi sagðist ekki treysta sér til að segja fyrir um hvað hægt sé að halda veiðum þarna lengi áfram. „Það var ekki langt í ísinn á því svæði sem við voru á. Það var mjög kalt í u.þ.b. eina viku, 10-12 stiga frost. Sjórinn var kominn niður í mínus tvær gráður. Það var hins vegar hægviðri mest allan tímann."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.