Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 50
-,'ííW-Ti-wt OTTs*^'*' "W- 50 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Á- | í I Kynnum í daq, Iduqardaginn 11. nóvember kl. 13:00 -18:00 | (Opið alla heigina) í BORGAR I APÓTEK B ÁLFTAMÝR11-5, SÍMI: 5681250 nwnBiii íbeiuiiiif’ar ú mjólkuriunhúðitm, nr. 21 f- iv- '/ I Við erum rik! fslensk tunga býr yflr ríkum orðaforða. Hræðslu má til dæmis tjá með margvíslegum hætti: - að óttast - að hafa beyg af - að kvíða fyrir - að bera kvíðboga lyrir - að standa stuggur af - að hrjósa hugur við - að verða ekki um sel - að vera uggandi um - að fyllast geig - að lítast ekki á blikuna Hræðumst ekki fjölbreytnina - verum hvergi smeyk! MJÓLKURSAMSALAN íslenskufrœösla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar, íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs. f I DAG BBIPS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson FRAKKINN Paul Chemla var full fljótur á sér í vöm- inni í spili dagsins. Settu þig í hans spor. Spilið er frá undanúrslitaleik Frakka og Bandaríkja- manna á HM. Austur gefur; AV á hættu: Norður 4 K10864 ▼ K942 ♦ Á5 ♦ D9 Austur 4 ÁD9 4 D103 ♦ G432 4 ÁG8 Vestur Norður Austur Suður Perron Wolff Chemla Hamman - - • 1 lauf 1 tígull Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 3 grönd Allir pass Útspil: Laufíjarki, fjórða hæsta. Sagnhafí lætur níuna úr blindum í byrjun og þú læt- ur gosann, sem heldur. Hvað nú? Chemla gaf þessu litla hugsun. Hann lagði niður Norður 4 K10864 4 K942 Vestur 4 Á5 4 D9 Austur 4 732 4 ÁD9 f G5 Hllll ▼ D103 4 1096 4 G432 4 106543 4 ÁG8 Suður 4 G5 4 Á876 4 KD87 4 K72 Hamman fór í spaðann og sótti þar þijá slagi, sem dugði honum í níu. Til að hnekkja geiminu þarf austur að skipta yfír í hjarta í öðrum slag. Sem er rökrétt, því í ljósi sagna getur makker ekld átt nema í mesta lagi einn til tvo gosa. Og hjartagosinn er gull. Pennavinir 15 ÁRA sænsk stúlka, sem hefur áhuga á bréfaskrift- um, bókum og svefni, vill skrifast á við stelpur á aldr- inum 14-17 ára: Anna Marttala, Deltav. 26, 981 45 Kiruna, Sweden. 15 ÁRA stúlka frá Svíþjóð vill skrifast á við íslendinga á aldrinum 13-16 ára. Áhugamál: tónlist, bækur og bréfaskriftir: Sofia Wallin, Antehngatan 39B, 421 33 V.frölunda, Sweden. LEIÐRÉTT Útför, ekki bálför í formála minningargreina um Bimu Bjömsdóttur var sagt að bálför hennar færi fram frá Fella- og Hóla- kirkju. Þama átti að standa útför. Hlutaðeigendur em innilega beðnir afsökunar á þessum mistökum. ÞESSIR duglegu drengir úr 4-C í Mýrarhúsaskóla söfn- uðu dósum og flöskum og gáfu afraksturinn, 3.437 krónur, i styrktarsjóð Flateyringa. Drengimir eru f.v. Bergmann Magnús Andrésson, Gunnar Ingólfsson, Jón Tryggvi Sigurþórsson og Sigurður Arnason. Hlutavelta VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Óánægja á Hofsvallagötu SIGRÍÐUR Einarsdóttir hringdi og sagði Velvak- anda að mikil óánægja ríkti meðal sumra íbúa á Hofsvallagötu vegna bflastæðaleysis. Engin bflastæði eru fyrir utan nokkur hús á Hofsvalla- götu og eiga margir íbú- anna í miklum erfíðieik- um með að fá stæði fyrir framan heimili sín. Um er að ræða raðhúsalengju og eru bílastæði fyrir utan númer 19, 21 og 23, en engin fyrir utan 15 og 17. Stöðugt hefur verið klipið af bílastæð- um við þessa götu og íbúarnir fá sektir í tíma og ótíma fyrir að leggja fyrir framan heimili sín. Sigríður segist vera búin að senda borgarstjóra, bifreiðastæðasjóði og lögreglunni í Reykjavík formleg mótmæli íbú- anna, og hefur hún feng- ið þau svör að málið sé í athugun. Borgarstjóri hefur þó ekki enn séð ástæða til að svara þessu. Sigríður talar fyr- ir hönd íbúanna í þessum húsum þegar hún segir að ástandið sé að verða óbærilegt og verði að koma til móts við íbúa í þessu máli hið snarasta. Góð þjónusta hjá Rikki Chang VIÐ FÓRUM tvær sam- an út í Kringlu í hádeg- inu sl. fímmtudag til að fá okkur eitthvað í svanginn. Á vegi okkar varð kínverski veitinga- staðurinn Rikki Chan og pöntuðum við okkur rétti af matseðli dagsins. Önnur okkar bað um sér- staka sósu, en þegar á reyndi var sósan ekki eins og hún hafði búist við og fór hún með mat- inn aftur til kokksins og bar sig aumlega. Kokk- urinn brást hinn besti við og lét hana fá annan disk með annarri sósu að eig- in vali. Bragðaðist hún afar vel og ekki sakaði að verðinu á veitingunum var stillt mjög í hóf. Geri aðrir betur. Tvær vinkonur Tapað/fuudið Jakki tapaðist SVARTUR þykkur flau- elsjakki tapaðist á Hótel íslandi laugardagskvöld- ið 5. nóvember sl. í jakkavösunum voru ýms- ir persónulegir munir. Hafi einhver fundið jakk- ann er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 567 6792. Með morgunkaffinu LÁTTÚ hann niður, Berti. Maður veit aldrei hvað þessi kvikindi geta borið með sér. Yíkveiji skrifar... VÍKVERJA brá nokkuð í brún þegar hann sat á þingpöllum fyrr í vikunni og hlustaði á þing- menn fara með margvíslegar am- bögur og tafs í ræðustólnum. Átu menn þar jafnvel upp málvillumar hver eftir öðrum, til dæmis sakaði þingmaður annan um að „taka þessu óstinnt upp“ og hinn svar- aði fyrir sig og sagðist alls ekki hafa „tekið þessu óstinnt upp“. Þágufallssýkin á víðar skjól en margan grunar. Margir þingmenn tönnluðust sífellt á „þverun" Gils- flarðar. Af hverju tala menn bara ekki um að byggja brú yfir Gils- §örð, sem Víkveija skilst að sé það, sem átt er við? Ráðherra nokkrum fórst upplestur úr þing- skjali svo hörmulega úr hendi, að hann hefði ekki fengið háa eink- unn á lestrarprófi í grunnskóla. xxx HVERT STEFNIR á hinu háa Alþingi þegar svona er kom- ið? Jafnvel í Alþingistíðindum fær þágufallssýkin að vaða uppi — kannski hafa prófarkalesarar þeirra gefizt upp á að leiðrétta þingheim. Að sjálfsögðu er misjafn sauður í mörgu fé á þingi eins og víðar, en Víkveiji hefði þó haldið að ein meginkrafan, sem gerð væri til þingmanna, væri að þeir séu vel máli farnir. VÍKVERJI hefur fett fingur út í ofnotkun á stórum staf, ekki sízt í auglýsingum fyrir- tækja. I Morgunblaðinu í gær gefur að líta eitt dæmi um þetta í auglýsingu frá samtökunum Þinni verzlun: „Spænskar Appels- ínur og Klementínur. Sætar og safaríkar." SVO HALDIÐ sé áfram að reyta illgresið í málgarðinum, má nefna þá áráttu að gera bandstriki þann heiður að búa til úr því ein- hvers konar skammstöfun fyrir orðið til. Þannig verður æ algeng- ara að sjá í auglýsingum og jafn- vel fréttum: „Opið frá 9-18.“ Rétt- ara þætti Víkveija að segja „opið frá kl. 9 til kí. 18“, eða þá — sem er síðra — „opið 9-18“. xxx AÐ LOKUM verður Víkveiji að gera dálitla yfirbót. Fyrir fáeinum vikum agnúaðist hann svolítið út í útvarpsstöðina Klassík — á kolröngum forsendum. Vík- veiji reyndist hafa ruglað saman útvarpsstöðvum og það var Sígilt FM sem átti nöldrið. Víkveiji hafði einfaldlega ekki áttað sig á tilvist tveggja útvarpsstöðva, sem leika klassíska tónlist að stórum hluta. Og hvað Klassík varðar, er dag- skráin þar oft til fyrirmyndar hvað tónlistarvalið varðar. Sérstaklega hlýnar Víkveija þó um hjartarætur við þýðan óm frétta BBC World Service, sem Klassík útvarpar fímm sinnum á dag. Víkveiji ítrek- ar afsökunarbeiðni sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.