Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 41 I DAG BRIPS Umsjón Guómundur l'áll Arnarson DANINN Ib Lundby segir eftirfarandi raunasögu af sjálfum sér í síðasta tölu- blaði Dansk Bridge. Ib var í vestur í vörn gegn sex hjörtum suðurs: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 852 V 864 ♦ ÁK752 ♦ G3 Vestur ♦ Á104 V K ♦ 10843 ♦ K9752 II Vestur Norður Austur Suður - - 2 hjörtu’ Pass 3 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass ‘ Hálfkrafa (Acol). Ib taldi nokkuð góðar horfur á því að hnekkja slemmunni og lagði af stað með spaðaás. Makker hans fylgdi lit með óræðu miðju- spili. Hverju myndi lesandinn spila næst? „Ég fór vel yfir stöðuna þegar blindur kom upp,“ seg- ir Lundby. „Suður á augljós- lega engan tígul, því annars hefði hann spurt um ása. En það væri einum of grun- samlegt að spila tígli og gefa blindum þar með ódýra inn- komu. Sagnhafi veit að ég veit að hann á engan tígui, svo hann yrði ekki í vand- ræðum með að spila hjarta á ásinn_ og fella kónginn minn. Ég ákvað því að treysta á laufkónginn og spilaði spaða: Norður ♦ 852 y 864 ♦ ÁK752 + G3 Vestur ♦ Á104 V K ♦ 10843 ♦ K9752 Austur ♦ G6 V 1075 ♦ DG96 ♦ 10864 Suður ♦ KD973 V ÁDG932 ♦ - * ÁD En því miður valdi ég spaðatíunal? Gosi makkers kom í slaginn, og Jiegar sagnhafi hafði tekið ADG í trompi, komst hann inn á spaðaáttu blinds og gat hent laufdrottningunni niður í tíg- ulás. Suður kemst alltaf í gott skap þegar hann hittir mig. Hann segir að ég minni sig á spaðatíuna." Arnað heilla OpTÁRA afmæli. Á OOmorgun, 15. janúar, verður áttatíu og fimm ára Aðalsteinn Þórarinsson, trésmíðameistari, Selja- landi 5, Reykjavík. Kona hans er Árný Snæbjöms- dóttir. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. O AÁRA afmæli. Á ÖVfmorgun, mánudaginn 15. janúar, verður áttræð Hjálmfríður Þorsteins- dóttir, Skipholti 49, Reykjavík. BRUÐKAUP. Gefin voru saman 2. desember sl. í Kristskirkju, Landakoti, af séra Patrich Breen Patricia Maria Santos de Albuqu- erque og Kristinn Hilm- arsson. Heimili þeirra er í Granaskjóli 14, Reykjavík. Ljósm. Rut. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. september sl. í Sauðárkrókskirkju af sr. Gísla Gunnarssyni Jóna Bryndís Guðbrandsdóttir og Árni Páll Árnason. Heimili þeirra er að Gul- lengi 9, Reykjavík. Ljósm. Bonni. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. september sl. í Hallgrímskirkju af séra Karli Sigurbjörnssyni Berg- hildur Erla Bemharðs- dóttir og Edvard Börkur Edvardsson. Þau eiga heimili á Bragagötu 29, Reykjavík. Ljósm. Bonni. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. október sl. í Garðakirkju af séra Sigurði Helga Guðmundssyni Alma Ólafsdóttir og Albert Hilmarsson. Þau eiga heimili í Melási í Garðabæ. Pennavinir ÞRJÁTÍU og fimm ára norsk kona vill eignast ís- lenskar pennavinkonur. Áhugamálin snúa að hann- yrðum o.fl.: Kjersti Onarheim Rabbe, Teig 23, 4200 Sauda, Norge. SEXTÁN ára austurrísk stúlka með áhuga á íþrótt- um, tónlist, ferðalögum, bréfaskriftum, frímerkjum o.fl.: Marlene Elvira Supanz, Schulstrasse 136, A-9181 Feistritz/Ros., Austria. Arnað heilla STJÖRNUSPA eftir Franccs Drake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú hefur mjög ákveðnar skoðanir, og fjölskyldan er þér mikils virði. ÞESSAR ungu stúlkur heita Unnur Tara og Herdis. Þær héldu hlutaveltu og söfnuðu þar saman 1.438 krónum og létu þær ágóðann renna til Rauða krossins. ÞRETTÁN ára Ghanapiltur með margvísleg áhugamál: Awagp Francis, P.O. Box 82, Nkawkaw E/R, Ghana. HOLLENSK 39 ára ein- hleyp kona með mikinn áhuga á íslandi vill eignast pennavinkonur: Marianne Overmeer, Postbox 8874, 1006 J.B. Amsterdam, Holland. ÞRETTÁN ára Gambíupilt- ur með áhuga á íþróttum o.fl.: Ousainou Jatta, c/o Buba Sanyang, Immigration Post, Banjul Airport, Gambia. SAUTJÁN ára fínnsk stúlka með margvísleg áhugamál: Tiina Tuononen, Kuorcuaarantie 113, 83700 PolvijSrvi, Finland. Hrútur (21. mars - 19. april) PþJfc Einhver nákominn er óvenju önuglyndur í dag, en þér tekst að róa hann niður með lagni, og fjölskyldan á saman gott kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Nú gefst gott tækifæri til að sinna bömum og ættingjum af eldri kynslóðinni. Að því loknu slakarðu á heima með ástvini. Tvíburar (21.maí-20.júní) Þú ert að undirbúa átak í vinnunni, sem getur fært þér aukna ábyrgð og betri stöðu. Vinur reynist þér vel í kvöld. Krabbi (21. júní — 22. júlí) >"$0 Þú átt erfitt með að gera upp hug þinn um hvort þú eigir að bjóða heim gestum í kvöld, en það gæti verið vel þess virði. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ástvinir ættu að ræða saman um ijármálin í dag, sérstak- lega ef ferðalag er í undir- búningi. Þú getur átt von á góðum gestum. Meyja (23. úgúst - 22. september) íhugaðu vel áhugavert tilboð sem þér berst í dag. Þú verð- ur á réttum stað á réttum tíma í kvöld og hefur heppn- ina með þér. Vog (23. sept. - 22. október) Smá vandamál getur komið upp milli vina í dag. En með þolinmæði og gagnkvæmum skilningi tekst að leysa það fljótlega. Sporddreki (23. okt. -21.nóvember) Það getur verið skynsamlegt að leita ráða hjá þriðja aðila ef deilur koma upp milli vina í dag. Lausnin reynist auð- fundin. Bogtnaður (22. nóv. - 21. desember) $0 Þú finnur þér nýja leið til að njóta frístundanna í dag, og kannt vel við tilbreytinguna. í kvöld hittir þú gamlan vin. Steingeit (22. des.-19,janúar) Það er ekki nóg að vonast eftir breytingum til batnaðar. Þú verður að gera eitthvað í málinu. Vinur gefur þér góð ráð. Vatnsberi (20.janúar-18.febrúar) Þú færð góða hugmynd ár- degis, sem sjálfsagt er að koma á framfæri. Svo þarft þú að vinna heima að lausn á verkefni úr vinnunni. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Ef þú ferð út að skemmta þér í kvöld, ættir þú að skilja greiðslukortið eftir heima. Þú hefur tilhneigingu til að eyða of miklu. Myndlistaskólinn í Reykjavík The Reykjavík School of Art VORÖNN 1996 (22. janúar 1996 -1. maí 1996) Kennslutími vorannar er 13 vikur Barna- og unglingadeildir Kennarar deilda 6-10 ára þriðjudaga og fimratudaga kl. 10.00-11.30. Þóra Sigurðardóttir 6-10 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30-15.00. Þóra Sigurðardóttir 6-10 ára miðvikudaga kl. 13.45-15.15. Þóra Sigurðardóttir 6-10 ára fóstudaga kl. 10.00-11.45. Katrin Briem 8-10 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15.30-17.00. Þóra Sigurðardóttir 10-12 ára föstudaga kl. 14.00-16.30. Katrín Briem 10-12 ára mánudaga og miðvikudaga kl. 15.30-17.00. Margrét Friðbergsdóttir ll-!3ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.30-19.00. GuðrúnNannaGuðmundsd. 13-15 ára mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-19.00. Margrét Friðbergsdóttir 14-16 ára laugardaga kl. 10.00-13.15. Margrét Friðbergsdóttir 14-16 ára laugardaga kl. 13.45-17.00. Katrin Briem Leirmótuir 12-15 ára Laugardaga kl. 10.00-13.15. Kolbrún Kjarval Að skoða myndlist (fyrirlestrar 6 vikur) laugard. kl. 13.30-15.00. Ingibjörg Jóhannsdóttir Teiknun 1 miðvikud. kl. 17.30-21.30. Anna Þ. Guðjónsdóttir Teiknun 1 laugard. kl. 09.15-13.15. Sólveig Aðalsteinsdóttir Teiknun 2 þriðjud. kl. 17.30-21.30. Hilmar Guðjónsson Teiknun 2 fimmtud. kl. 17.30-21.30. Sólveig Aðalsteinsdóttir Teiknun 3, (teiknun og form. efnisíilraunir með pappír, leir, gifs o.fl.). Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. mánud. kl. 17.30-21.30. Þóra Sigurðardóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir Teiknun 4 íostud. kl. 17.00-21.00. Katrín Briem Myndasögur fóstud. kl. 17.00-19.15. Þorri Hringsson Módelteikning 1 mánud. kl. 17.30-21.30. Þorri Hringsson - Módelteikning 1 miðvikud. kl. 17.30-21.30. Margrét Zophoníasdóttir Módelteikning 1 fimmtud. kl. 17.30-21.30. Hilmar Guðjónsson Módelteikning 1 fóstud. kl. 17.00-19.15. Kristín Arngrímsdóttir Módelteikning 1 laugard. kl. 10.00-12.15. Kristín Arngrimsdóttir Módelteikning 2 þriðjud. kl. 17.30-19.45. Ingólfur Örn Arnarson Módelteikning 2 þriðjud. kl. 19.45-22.00. Ingólfur Örn Arnarson Málaradeildir. (Meóferö olíulita, pastellita o« vatnslita) Málun 1 þriðjud. kl. 17.30-21.30. Þorri Hringsson Málun 2 fimmtud. kl. 17.30-21.30. Kristján Steingr. Jónsson Módelmálun miðvikud. kl. 17.30-21.30. laugard. kl. 14.00-17.00. Hringur Jóhannesson Svanborg Matthíasdóttir Frjáls málun 1 mánud. kl. 17.30-21.30. Daði Guðbjörnsson Frjáls málun 2 fóstud. kl. 14.30-18.30. Kristján Steingr. Jónsson Pastellitir og litablöndun, (undirb. fyrir málun). þriðjud. kl. 17.30-21.30. Peter M. Leplar laugard. kl.09.15-13.15. GunnlaugurSt.Gíslason Mótunardeildir Teiknun 3. Teiknun og form. (Efnistilraunir i þrívídd, pappír, leir, gifs o.fl.). mánud. kl. 17.30-21.30. Þóra Sigurðardóttir Ragnhildur Stefánsd Módelstíidía. (Efni: leir. gifs, afsteypur) laugard. 9.15-13.15. Sigrún Guðmundsdóttir Fyrirlestrar í listasögu og uni sértæk efni tengd náminu verða auglýstir á kennslutíma. Skráning nemenda á vorönn fer fram á skrifstofu skólans Tryggvagötu 15, Reykjavík frá 8. janúar, virka daga kl. 13-19. Leitiö nánari upplysinga í síma 551-1990.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.