Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 5 FRÉTTIR Equitana í Bandaríkjunum Islenski hesturinn vinsæll ÍSLENSKI hesturinn tók þátt í öllum „Top“ sýningum á Equitana í Banda- ríkjunum í síðustu viku en þetta er I fyrsta sinn sem slík sýning er hald- in í Bandaríkjunum. Að sögn Sigur- björns Bárðarsonar sem sá um skipu- lagningu á sýningu íslensku hest- anna ásamt Baldvin Ara Guðlaugs- syni voru þeir alltaf síðasta atriði hverrar kvöldsýningar sem þýðir að íslenski hesturinn hefur verið hvað vinsælastur. Equitana sýningarnar hafa verið haldnar í Þýskalandi annað hvert ár í á annan áratug og njóta geysilegra vinsælda þar. Sigurbjörn sagði að íslenska hestinum hefði verið sýndur mikill áhugi á sýningunni. Margir hefðu haft á orði að þeir hefðu heyrt talað um íslenska hestinn en aldrei séð hann. Meðal þeirra sem kom í íslands- deildina var Bandaríkjameistari í reið á Tennessy Walking hestum. Fór hann fram á að fá að prófa einn af hestunum sem þarna voru sýndir. Sagði Sigurbjörn að illa hafi gengið að fá hann af baki svo vel líkaði honum. Sagðist meistarinn engin orð eiga yfir það hversu góður honum fannst hesturinn. Kvaðst Sigurbjörn þess fullviss að ekki liði langur tími þar til þessi maður fengi sér íslensk- an hest. Þá komust íslensku hestarn- ir einu sinni i fréttatíma einnar sjón- varpsstöðvarinnar. Afdrifaríkt spor Sigurbjöm taldi að með þátttöku íslendinga í þessari sýningu hefði verið stigið afdrifaríkt skref í mark- aðssetningu á íslenska hestinum í Bandaríkjunum. Um fimmtíu þúsund manns sóttu sýninguna sem er tals- vert lakari aðsókn en í Þýskalandi en þess ber að gæta að þetta er í fýrsta skipti sem sýningin er haldin vestra. ----» ♦.4--- Matareitrunin í Japan Svipuð eitrun greinst hér GREINST hafa þrjú matareitrunar- tilfelli hér á landi á síðustu þremur árum, sem líkjast jnatareitrunarfar- aldrinum í Japan. Ólafur Steingríms- son yfirlæknir á sýkladeild Landssp- ítalans segir að um sé að ræða al- genga þarmasýkla sem oft finnast í hráu kjöti. Ákveðin undirgerð þarma- bakteríunnar er nefnist E. Coli, getur myndað ákveðið eiturefni sem veldur þessum sjúkdómi. Ekki er algengt að hún valdi þvílíkum faraldri eins og í Japan. Leitað er skipulega að bakteríunni hjá þeim sem greinast með mata- reitrun og hefur hún fundist þnsvar hér á landi á þremur árum. Ólafur segir að menn geti veikst heiftarlega af bakteríunni sem geti leitt til nýrnaskemmda og fleiri aukaverk- ana. „Bakterían finnst alls staðar á Vesturlöndum og olli hún faraldri, t.d. í Bandaríkjunum, sem tengdist hamborgurum, fyrir fáum árum. Sjúklingar sem greinast með bakter- íuna fá sýklalyfjameðferð, sem oftast er áhrifarík en hún kemur ekki alltaf í veg fyrir afleiðingarnar. Þessi þijú tilfelli sem greinst hafa hér hafa gengið að fullu til baka. Einnig höf- um við fengið nokkra sjúklinga með nýrnaskemmdir, sem bendir til þess að fleiri hafi veikst. En það er ekki neinn faraldur hér og það er engin ástæða til að óttast," segir Ólafur Steingrímsson. foreldra gegn fikniefnum arnsins er i 3. SÝNDU ÁHUGA Unglingur þarf athygli foreldra, sérstaklega á sumrin þegar skólinn veitir ekki lengur aðhald. Áhugi þinn á „sumarfríi" barnsins getur skipt sköpum þegar fíkniefni eru annars vegar. I.HAFÐU SKOÐUN Taktu þátt í lífi unglingsins með það í huga að hann þarfnast enná hæfilegs aga og aðhalds í stað „afskiptaleysis“. Hvenu hann og sýndu áhuga á jákvæðum viðfangsefnum. EKKI KAUPA AFENGI Unglingur þarfnast ekki vímunnar. Sá sem kaupir áfengi handa barni sínu stuðlar að tvennu: I.Gerir vímuna eftirsóknar- verða. 2. Gefur barninu til kynna að foreldrar séu sáttir við neysluna. 4. VERTU VAKANDI Ef unglingur er byrjaður að neyta áfengis á grunnskólaaldri verður foreldri að beita festu og miklu aðhaldi í uppeldi - eigi skaðinn ekki að verða óbætanlegur. 5. LEITAÐU RAÐA Ef einhver minnsti grunur er um eiturlyfjaneyslu unglings á foreldri án tafar að leita ráðgjafar hjá aðilum sem sinna vímuvörnum. Líf barnsins er í húfi! Yfir sumartímann byrja margir unglingar að neyta ólöglegra fíkniefna 1 í skjóli útihátíða. Enginn unglingur vill verða fíkniefnum Unglingar en sölumenn dóps svífast einskis fyrir ágóðahlut. Einn unglingur í dópi er einum of mikið! Tryggjum Reyk jagarður hf Holta-s ihjúkliiTgurl Eymundsson EINN EINN TVEIR þegarþér hentar! (PRÓTTA- OG tómstundarAo REYKJAVlKUR tlNAR |. SKÚLASON Hf STRÆTISVAGNAR REYKJAVIKUR OLIUVERZLUN ÍSLANDS HF SAUÐÁRKRÓKUR Reiðhjólaverslunin „a, rteionjoiaverstunin orninnF* Guómundur jónasson VESTMANNAEYJAR FRŒOSLUMIDSTÖD I FlKNIVÓRNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.