Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996 31 LEIÐRÉTT LEIÐRÉTTING við Jónsmessubréf úr Svartárdal í Morgunblaðinu 6. júlí 1996, bls. 30: Upphaf IV. kafla verði þannig: IV. Fyrir hálfri öld var vegur slæmur fram Svartárdal, t.d. lýsir Páll Kolka veginum þannig : bók sinni Föður- túnum, sem kom út 1950: „Fyrir framan Fjós þrengdist dalurinn og liggur vegurinn allhátt í hlíðinni yfir svonefnt Fjósaklif. Þar er flughengi niður í á, þar sem brattast er.“ Nú 1996 liggjir vegurinn miklu neðar, víðast hvar eftir bökkum Svartár. Þetta leiðréttist hér með. Leifur Sveinsson. FRÉTTIR Sumarkvöldvaka í Hafnarfjarðarkirkju SUMARKVÖLDVAKA verður í safn- aðarheimili Hafnarfjaðrarkirkju í kvöld, miðvikudaginn 24. júlí kl. 20. Umræðuefnið verður „Islam, kór- aninn og kristin trú“. Skoðuð verður saga, trúarkenning og siðaboðskapur islam, eða múhameðstrúar, eins og hún er nefnd í daglegu tali. Reynt verður að skoða ástæður ýmissa átaka sem eiga sér stað á landamær- um islam og annarra trúarbragða, en einnig þá þróun sem á sér stað á hinu islamska menningarsvæði í dag. Sr. Þórhallur Heimsson kynnir efni kvöldsins og stýrir umræðum yfir kaffíbolla. Fyrirlestur um íslensk fræði í Japan FYRIRLESTUR um íslensku- kennslu og íslensk fræði í Japan verður haldinn í Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís- lands fimmtudaginn 25. júlí kl. 17.15. Nobuyoshi Mori kennari við Tokaiháskóla í Japan flytur fyrirlesturinn í boði Stofnunar Sigurðar Nordals. Mori hefur um nokkurra ára bil kennt norsku og íslensku við Tokai- háskóla og hefur samið kennskubók í norsku og norsk-japanska orðabók. Þá kom út á þessu ári í Japán orðabókin 1500 mikilvæg ís- lensk orð, sem Mori tók sam- an. Námskeið í gerð torfkofa NÁMSKEIÐ í gerð torfkofa verður haldið um næstu helgi í Grindavík. Er leiðbeinandi Tryggvi Gunnar Hansen og tekur hann við skrán- ingu. í fréttatilkynningu segir að allir séu velkomnir og námskeiðið sé ekki síður fyrir böm en fullorðna og fái börnin að byggja sína eigin kofa ef þau vilja. --------------- LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn RANGLEGA var haft eftir Þóri Haraldssyni, aðstoðarmanni heil- brigðisráðherra, í Morgunblaðinu fyrir helgi, að hann lýsti furðu sinni á ummælum Jóhannesar Pálmason- ar, framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þórir átti við ummæli Jóhannesar Gunnarssonar, lækn- ingaforstjóra Sjúkrahúss Reykja- víkur. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum. Reiknaður umferðarhávaði án hljóðtálma vegna nýbygginga við Kirkjusand RÁÐGJAFAR: F0RSENDUR: Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins 5. mars1996 7 hæða hús: 9 hæða hús: 6 hæða hús: Umferð 1996: 22.000 bílar á sólarhr. Meðalhraði: 60 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 7% 1. hæð: 62,5 dB 4. hæð: 66,5 dB 7. hæð: 66,0 dB 1. hæð: 61,0 dB 4. hæð: 66,0 dB 7. hæð: 65,5 dB 9. hæð: 65,5 dB 1. hæð: 58,0 dB 4. hæð: 64,5 dB 6. hæð: 64,5 dB Almenna verkfræðistofan hf. 7. mars1996 Hæsta gildi á lóð 1996: 72,3 dB Hæsta gildi á lóð 2030: 74,0 dB Umferð 1996: 22.000 bílar á sólarhr. Umferð 2030: 32.000 bílar á sólarhr. Meðalhraði: 80km/klst. Hlutfall þungra bíla: 8% Hæsta gildi við glugga: 69,7 dB Hæsta gildi við glugga: 71,3 dB Hljóð- og raftækniráðgjöf ehf. 1. júlí 1996 7 hæða hús: Umferð 1996: 22.000 bílar á sólarhr. Viðmiðunarhraði: 60 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 7% 1. hæð: 62,2 dB 4. hæð: 66,5 dB 7. hæð: 66,1 dB Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins 2. júlí 1996 7 hæða hús: 1. hæð: 66,0 dB 4. hæð: 70,0 dB 7. hæð: 69,5 dB Umferð 2008: 30.000 bílar á sólarhr. Meðalhraði: 70 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 8% Hljóð- og raftækniráðgjöf ehf. 23. júlí 1996 7 hæða hús: 9 hæða hús: 6 hæða hús: Umferð 2016: 27.000 bílar á sólarhr. Viðmiðunarhraði: 60 km/klst. Hiuttall þungra bíla: 10% 7. hæð: 67,0 dB 9. hæð: 65,5 dB 6. hæð: 64,5 dB UNGT og upprcnnandi landgræðslufólk. F.v. Bjarni Siguróli Jakobsson, Rafn Orri Gunnarsson og Erna Jóna Jakobsdóttir. Landgræðsludagur Olís í Aðaldalshrauni Laxamýri. Morgunblaðið. Margt fólk safnaðist saman í útjaðri Aðaldalshrauns um helg- ina, á Iandgræðsludegi Olís, og gróðursetti um þrjú þúsund plöntur. Starfsfólk Olís á Húsavík gaf húfur og barmmerki og allir nutu veglegra veitinga fyrirtæk- isins. Fulltrúar Landgræðslunn- ar voru á staðnum og leiðbeindu fólki við gróðursetningu og var það einkum birki, baunagras og loðvíðir sem fólk setti niður og melgresi var sáð. Þá var fólkinu fenginn seinleystur áburður, sem á að endast í jörðinni í 2-5 ár, til þess að setja niður með trjáplöntunum. Dagurinn var að sögn forráða- manna mjög vel heppnaður og kunnu ungir sem aldnir vel að meta þessa tilbreytingu við sunnudagsbíltúrinn í glaða sól- skini og hita. auglýsingor ÞJÓNUSTA Litaljósritun Opið frá kl. 13.30-18.00. Ljósfell, Laugavegi 168, Brautarholtsmegin. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. SAMBAND ISLENZKRA Vj KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma i kvöld kl. 20:30 í Kristniboðssalnum. Ræðumaður: Páll Friðriksson. Solbakk-kvartettinn syngur. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Lofgjörð, bæn og biblíulestur í kvöld kl. 20. Ræðumaöur Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Spennandi helgarferðir næstu helgi 26. - 28. júlí 1. Landmannalaugar - Hraun- vötn. Gist báðar nætur í Laug- um. Á laugardeginum er ekið að hinum fallegu Hraunvötnum, norðaustan Veiðivatna og geng- ið um svæðið. 2. Þórsmörk - Langidalur. Góð gisting í Skagfjörðsskála Langadal eða tjöldum. Göngu- leiðir við allra hæfi. 3. Yfir Fimmvörðuháls. Gist í Þórsmörkinni. Gengið yfir háls- inn á laugardeginum. Upplýs. og pantanir á skrifst., Mörkinni 6. Við minnum á sumardvöl í Þórs- mörk, tilvalið að dvelja milli ferða t.d. frá helgi til miðvikudags. Tjaldstæði Ferðafélagsins f Þórsmörk eru í Langadal, Litla- enda og Stóraenda. Góð að- staða. Miðvikudagur 24. júlí kl. 20.00 Hellaferð í Bláfjallahella. Skemmtileg ferð fyrir unga sem aldna. Hafið með Ijós og húfu. Farið verður í nokkra af helstu hellunum. Verð 1.000 kr, frftt f. börn með fullorðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörk- inni 6. Munið söguslóðir á Grænlandi 6. - 13. ágúst. Örfá sæti í þessa einu Grænlandsferð sumars- ins. Hagstætt verð. Upplýs- ingablað á skrifstofu. Ferðafélag islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.