Morgunblaðið - 01.09.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1996 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Islenskar
tilvitnanir
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
EITT af síðustu ritunum, sem Ai-
menna bókafélagið gaf út, ber heit-
ið íslenskar tilvitnanir og er ein af
bókum ritraðar þeirrar er ber yfír-
skriftina íslensk þjóðfræði. Þarna
er um að ræða fleyg orð og frægar
setningar á íslensku eftir íslenska
menn og erlenda. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, sagnfræðingur
og dósent við Háskóla íslands, hefur
tekið ritið saman sem alls er 528
blaðsíður.
Hér er komin loksins bókin sem
lengi hefur vantað í íslenskar bóka-
hillur. Á dönsku las ég fyrir mörg-
um árum bók eina sem ber heitið
„Bevingede Ord“ eða Fleyg orð og
er þar að sjálfsögðu um auðugan
garð að gresja hvað snjöll ummæli
varðar. Þar eru ummæli höfð eftir
danska skáldinu Christian Winther
(1796-1876), sem hann lét verða
grafskrift sína og er svohljóðandi:
„Her ligger under grönne Tilje,
Christian Winther, meget mod sin
Vilje“. Hér hvílir Christan Winther
undir grænni torfu mjög gegn vilja
sínum. Mér finnst þetta einkar vel
og hóflega orðað. Hann var líka
Dani, þeim er ékki tamt að gera
mikið úr hlutunum eða fjasa en
nota fremur hina góðlátlegu kímni.
Hvað hefði íslendingur í sömu spor-
um sagt og þar með sett á legstað
Athuga-
semd vegna
sinn? Ætli það hefði ekki orðið
nokkuð á annan veg. Ekki finn ég
Winther í bók Hannesar en vel
hefðu þessi ummæli hans sómt sér
þar.
Kjörgripur
Ekki er það ætlan mín að birta
sýnishorn úr bók þessari hér enda
ekki heimilt í ströngum skilningi.
Gaman hefði ég af að sjá orð höfð
eftir minni gömlu skólasystur úr
Kennaraskólanum, henni Ástu Sig-
urðardóttur. Hún er sögð hafa dáið
árið 1972 en hið rétta er að hún
sofnaði svefninum langa 21. des.
1971. Trúlega er þessi villa þannig
til komin að í Skáidataii er hún tal-
in hafa dáið 1972. Ásta varð ekki
öldruð kona, fæddist 1. apríl 1930.
Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari var maður orðhagur vel og
sagði margt sem munað er. í þess-
ari bók er honum að vonum ekki
gleymt. En þama er þó ei að finna
það sem hann er sagður hafa mælt
um skólagöngu er liann bað guð að
hjálpa íslensku þjóðinni þegar allir
væru orðnir langskólagengnir!
Þarna er danska skáldið Piet
Hein með fyndni sinni og snilliyrði.
Birtar eru þýðingar á nokkrum
smáljóðum er hann nefndi gruk.
Áberandi mest er þýtt af Helga
Hálfdanarsyni en einnig er að finna
þýðingar eftir Kristján Eldjárn,
Þorstein Gylfason og undirritaðan.
Bók þessi er hinn mesti kjörgripur.
Til hennar má grípa aftur og aftur
og hafa yndi af.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28.
15%
kynninsarafsláttur
til 30. september.
Ný gullfalleg prjónabók
fyrir minnsta fólkið.
Hönnuður
Debbie Bliss
Póstsendum
STORKURINN
gaiwueitswm
Laugavegur 59, sfmi 551 8258
yfirlýsingar
VIÐ undirritaðir sem allir sitjum í
stjórn Alþýðuflokksfélags Hafnar-
fjarðar viljum koma eftirfarandi á
framfæri:
Eftir fund sem haldinn var með
bæjarfulltrúum Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði þann 7. ágúst sl. og við
allir sátum ásamt Birni V. Ólasyni,
Sverri Ólafssyni og fleirum, urðum
við vitni að því að Björn V. Ólason
veifaði umræddri blaðagrein undir
fyrirsögninni „Hafnfirðingar krefj-
ast meirihluta jafnaðarmanna". Þar
var Birni bent á að ýmislegt í grein-
inni væri óstaðfestur orðrómur og
orkaði tvímælis. Ummæli hans við
þeim athugasemdum skulu ekki höfð
hér eftir, enda hans mál.
Það er því augljóst að umrædd
blaðagrein sem birt varí Mbl. hinn
21. ágúst, er algjörlega á hans
ábyrgð en ekki Sverris Ólafssonar
eins og fram kemur í yfirlýsingu sem
birt var í Mbi. þann 28. ágúst sl.
undir fyrirsögninni „Ellert Borgar
Þoi’valdsson og Jóhann Bergþórsson
beðnir afsökunar", enda undirrituð
af honum sjálfum og skilað til Mbl.
af honum sjálfum. Einnig vitum við
að Björn reyndi árangurslaust að
afturkalla greinina, þar sem hann
taldi að hún hefði misst gildi sitt,
þar sem of langur tími hefði liðið
frá því hún var send til birtingar.
Það er einnig augljóst samkvæmt
framkomnum ummælum Björns V.
Ólasonar sjálfs, í votta viðurvist, að
umrædd yfirlýsing í Mbl. 28. ágúst
sl. er ekki rituð af honum sjálfum,
heldur er undirritun hans fengin með
þvingunum og þrýstingi ráðagóðra
hagsmunaaðila.
Að lokum lýsum við yfir fyllsta
stuðningi við félaga okkar Sverri
Ólafsson, Björn V. Ólason og annað
baráttufólk jafnaðarmanna sem af
hugsjón berst fyrir bættum hag
hafnfirskrar alþýðu.
MAGNÚS HAFSTEINSSON,
formaður Alþýðuflokksfélags
Hafnarfjarðar.
SIGURGEIR ÓLAFSSON,
stjórnarmaður í Alþýðuflokksfélagi
Hafnarfjarðar.
ERLINGUR KRISTENSSON,
stjórnarmaður í Alþýðuflokksfélagi
Hafnarfjarðar.
VIÐ TELJUM ALLA VIÐSKIPTAVINI
= STAÐGREIÐSLA
I verslunum okkar fá allir viðskiptavinir
sama góða verðið hvort sem þeir kjósa að
nýta sér VISA-raógreiðslur eða staðgreiða.
Opið í dagfrá kl. 14:00-16:00.
VISA
RAÐGREHDSLUR
TIL 24 MÁNAEDA
INNKAUPATRYGGING - FRAMLENGDUR ÁBYRGÐARTÍMI
VAi,R«l8eð6N%
Suðurlandsbraut 54
sími: 568 2866. fax: 568 2890
Ármúla 8, símar: 581 2275 og 568 5375
Síðumúla 20*aridÉ
sími: 568 8799, fax: 553 3100