Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HLYNUR HANSEN ERLENDUR JÓNSSON + HIynur Hansen fæddist í Stykk- ishólmi 10. mai 1958. Hann lést á St. Fransiskus- spitalanum í Stykk- ishólmi hinn 31. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans eru Hans Jakob Hansen (látinn) og Klara E. Hansen. Systkini Hlyns eru Hans Jakob (látinn), Est- her og Gautur. Hlynur lætur eftir sig eiginkonu, Sess- elju Eysteinsdóttur, og einn son, Daníel Hans. Jarðarför Hlyns fór fram frá Stykkishólmskirkju 7. septem- ber. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Hlynur, marg- ar minningarnar eigum við um þig. Ofarlega er mér í huga þegar þú leyfðir mér, lítilli skruddu, að sitja í gröf- unni hjá þér meðan þú varst að vinna, og þeg- ar þú fórst með okkur út á sjó að veiða. Það sem er ennþá styttra í er þegar þú settist nið- ur með gítarinn þinn og spilaðir fyrir Karínu Heru og hlóst að til- raunum Jóhanns litla til að tjá sig. Þú varst alltaf svo hrifinn af kraft- inum í þeim og áttir bágt með hlát- urinn þegar Karín og Pétur Gautur máttu ekki sjá þig nema rella um að koma í tölvuna til þín og alltaf gafstu þeim tíma. Elsku Hlynur, ég lifi í þeirri trú að nú sért þú hjá afa og Hans frænda og sért glaður að sjá þá, þótt of snemmt hafi verið. Þín frænka, Sonja Pétursdóttir. STEFÁNR. GUÐMUNDSSON + Stefán R. Guðmundsson fæddist á Sauðárkróki 28. febrúar 1945. Hann lést á sjúkrahúsi í Brussel 15. septem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 23. september. Stefán Ragnar Guðmundsson er allur eftir stutta en harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Við kynntumst lítillega fyrir tæp- um 30 árum, er við unnum hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli. Leiðir okkar lágu síðar saman er ég hóf störf hjá sama fyrirtæki og hann vann hjá í Luxemborg. Stefán var vandvirkur og sam- viskusamur við störf og bar heimili og einkalíf hans vott um það sama. Allt í röð og reglu. Hann var til margra ára í stjórn Flugmannafé- lags Cargolux í Luxemborg. Hann sótti ráðstefnur um hagsmuni flug- vélstjóra um víða veröld og vann mörg óeigingjöm störf í okkar þágu. Það fór heldur ekki framhjá ráðamönnum fyrirtækisins hveijum mannkostum hann var búinn og var hann því ráðinn eftirlitsflugvélstjóri og síðar yfirflugvélstjóri hjá félag- inu. Við fengum þó allt of stutt að njóta starfskrafta hans sem yfir- manns hjá fyrirtækinu. Það var í árlegri skíðaferð okkar til Austurríkis í febrúar síðastliðn- um að Stefán kenndi sér Iasleika. Það var því mikið reiðarslag fyrir allan hópinn þegar í Ijós kom að hann var haldinn illvígum sjúk- dómi. Æðruleysi og bjartsýni Stef- áns í veikindum hans var að- dáunarverð og vakti með okkur félögunum vonir sem því miður ekki rættust. Ég votta Grétu, sonum og öðrum ættingjum innilegustu samúð mína. Megi minningin um góðan dreng veita ykkur styrk. Steinar. t Elskuleg amma mfn, langamma okkar og fóstursystir, AÐALBJÖRG TRYGGVADÓTTIR frá Eskifirði, Lönguhli'ð 3, Reykjavík, andaðist 20. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 2. október kl. 15.00. Aðalbjörg Ragna Hjartardóttir, Ari Kristinn Jónsson, Jóhanna Kristin Ólafsdóttir, Óli Hjörtur Ólafsson, Atli Freyr Arason, Inga Guðmundsdóttir, Guðjón E. Long. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ALEXfUSAR LÚTHERSSONAR, Skipasundi 87, Reykjavík, Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11 E á Landspítalanum. Ingibjörg Magnúsdóttir, Katri'n S. Alexíusdóttir, Jónas Helgason, Magnús L. Alexi'usson, Hrönn Pálsdóttir, Guðrún I. Alexíusdóttir, Guðjón Helgason, Kristi'n K. Alexíusdóttir, Steingri'mur Davi'ðsson og barnabörn. + Erlendur Jóns- son var fæddur á Jarðlangsstöðum í Borgarhreppi í Mýrasýslu 28. sept- ember 1896. Hann lést 5. september 1980, tæplega 84 ára að aldri. For- eldrar hans voru Ragnhildur Er- lendsdóttir og Jón Björnsson en þau bjuggu á Jarðlangs- stöðum og síðar á Olvaldsstöðum. Ragnhildur var dóttur Erlends Guðmundssonar bónda á Jarðlangsstöðum og konu hans, Guðlaugar Jóns- dóttur. Jón var ættaður úr Döl- um, sonur Björns Kristjánsson- ar bónda í Seljalandi í Hörðud- al í Dalasýslu og Hólmfríðar Jónsdóttir, konu hans. Erlend- ur ólst upp á Olvaldsstöðum en þangað fluttu foreldrar hans árið 1905 og bjuggu þar það sem eftir var búskapar þeirra. Erlendur var einn tólf systkina en tíu þeirra komust til fullorð- insára. Hann var einn vetur í Hjarðarholtsskóla, en rúmlega tvítugur hóf hann nám í Hóla- skóla og lauk þaðan búfræði- prófi. Árið 1926 kvæntist Erlendur Auði Finnbogadótt- ur Lárussonar frá Búðum á Snæfells- nesi. Sama ár hófu þau búskap á Jarð- langsstöðum, fæð- ingarstað Erlends, og bjuggu þar til ársins 1942 er þau brugðu búi og flutt- ust til Reykjavíkur. Böm þeirra Erlends og Auðar em fjög- ur: 1) Þuríður, bú- sett í Svíþjóð, gift Magnúsi Andersen. 2) Ragnhildur, gift Bimi Þorgeirssyni. 3) Ema, gift Haraldi Amasyni. 4) Ora, kvæntur Renötu Erlendsson. Þau Ema og Öm em tvíburar. Bamabörnin em orðin niu alls og barnabarnabörnin 13. Eftir að Erlendur hætti bú- skap vann hann ýmis störf, hjá Grænmetisverslun ríkisins, Vegagerðinni og síðast hjá Olíufélaginu þar sem hann vann fram á niunda áratug ævi sinnar. Þau Auður og Erlendur slitu samvistum. Árið 1959 kvæntist Erlendur öðru sinni. Síðari kona hans var Helga Jónsdóttir frá Ásum í Svínavatnshreppi. Erlendur bjó í Reykjavík til æviloka. Ég kynntist Erlendi Jónssyni fýrst árið 1969. Hann var þá 73 ára að aldri og fundum okkar bar saman í flokksstarfí hjá Framsókn- arflokknum í Reykjavík. Þrátt fyrir mörg aldursár hafði Elli kerling ekki náð að koma honum á kné. Hann bar aldurinn vel, vel á sig kominn líkamlega, hress og glaður í lund og ræðinn. Erlendur er mér fyrir margra hluta sakir minnis- stæður en fyrst og fremst fyrir skapgerð og lífssýn. Viðhorf hans til mála mótuðust af langri ævi, mikilli lífsreynslu og heilsteyptu upplagi og eðlisfari. Mér eru minnisstæð orð Erlends þegar hann sagði: „Menn vissu allt- af hvar sólin var.“ Hann var þá að vitna til þess að á sveitabæjum í hans uppeldi voru engar klukkur. Og hann sagði: „Þó þykkt væri í lofti var eins og menn vissu alltaf hvar sólin var.“ Þessi lýsing átti undarlega vel við Erlend. Oft rædd- um við málin á skrifstofu flokksins. Þar réðu þá ríkjum Þráinn Valdi- marsson, sem var listamaður í við- ræðum við fólk, óvenjulega viðfelld- inn og afburða félagsmálamaður og Guðmundur Tryggvason marg- fróður og vitur. Hversu þungskýjað og vandratað sem virtist vera í þjóðmálunum átti Erlendur alltaf ótrúlega auðvelt með að finna kjarnann, skilja aðal- atriðin frá og umræðan tók nýja stefnu. Hann vissi alltaf hvar sólin var og lét ekki þungbúið loft né öldurót umræðunnar villa sér sýn. Eitthvað í eðlinu. Þeir sem vita hvar sólin er vita nefnilega bæði hvað tímanum líður og þekkja átt- imar, villast ekki. Sagt er að þegar afi hans Erlend- ur Guðmundsson á Jarðlangsstöð- um kom í kaupstaðarferð í Borgar- nes eitt sinn, vildi kaupmaður selja honum falleg innflutt kerti. Erlend- ur sagðist hafa kerti, bjó þau til heima. En þessi eru sérstaklega falleg, sagði kaupmaður. Og svarið var: „Já, ég gef nú ekkert fyrir það, því ég horfi á ljósið.“ Ég stóð á þrítugu þegar ég kynntist Erlendi og var þá að stíga mín fyrstu skref í stjómmálum. Mér var lærdómsríkt að ræða við hann. Hann var af þessari svo- nefndu aldamótakynslóð og viðhorf hans höfðu mótast af aðstæðum og umhverfi sem unga kynslóðin þekkti ekki. Eigi að síður hafði hann aðlagað sig breyttum tímum og tvinnaði saman í umræðum lífs- sýn og búhyggindi genginna kyn- slóða og framfaraafl og vilja hinna yngri. Sjö ára gamall fór hann að sitja yfir ánum eftir fráfærumar, ólst upp við sauðamjólk og gekk til allra starfa ungur að aldri eins og títt var um unglinga í sveit á þess- um árum. í viðtali við Tímann árið 1976 sagði Erlendur frá því þegar hann rúmlega tvítugur hóf nám á Hólum. „Ég hafði sama hátt á og marg- ir jafnaldrar mínir á þessum árum, ég keypti mér afsláttarhross, reið því norður, lét fella það þar og lagði matinn á borð með mér um vetur- inn. Uppistaðan í fæði okkar var hrossakjöt, það var ódýrasta kjötið og þá var meira horft í aurana en nú. Á vorin gengum við heim og ég líka þótt ég væri langt að kom- inn. Ég man að ég var að strekkja við að hafa dagleiðirnar sem lengst- ar, svo að farareyririnn entist mér alla leið heim. Auðvitað var gisting- Til höfunda greina TÖLUVERÐUR fjöldi aðsendra greina bíður nú birtingar í Morgun- blaðinu. Til þess að greiða fyrir því að biðtími styttist og greinar birtist skjótar en verið hefur um skeið, eru það eindregin tilmæli Morgunblaðsins til greinahöfunda, að þeir skrifi að jafnaði ekki lengri greinar en sem nemur tveimur A-4 blöðum með mesta línubili eða að hámarki 6.000 tölvuslögum. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vélrituð og vel frá gengin. Ákjósanlegast er að fá greinarnar jafnframt sendar á diskl- ingi, þ.e. að blaðinu berist bæði handrit og disklingur. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Þeir, sem þess óska, geta fengið disklingana senda til baka. Merkið disklingana vel og óskið eftir endursendingu. Ritstj. in ekki dýr, þetta tvær eða þijár krónur, en menn urðu þó að eiga þessar krónur til.“ Mér er sagt að Erlendur hafí verið góður námsmaður og frá Hólum fór hann með próf í búfræði enda hugði hann á búskap. Jarðlangsstaðir eru ein besta sauðfjárbújörð í Borgarfirði. Þar höfðu forfeður Erlends í móðurætt búið, Guðmundur Erlendsson lang- afi hans, sonur Erlends á Ána- brekku og Erlendur Guðmundsson afi hans og síðan foreldrar hans Ragnhildur Erlendsdóttir og Jón Bjömsson. Þau Erlendur og Auður bjuggu góðu búi á Jarðlangsstöðum og bættu jörðina með þeim verkfær- um sem þá voru tiltæk, skóflu og ristuspaða. Vafalítið hafa margir svitadroparnir fallið er unnið var hörðum höndum við jarðabætur og ræktun. Fátt segir af baráttu ein- yrkjans. Erlendur var hugmaður og vildi skila jörðinni betri en hann tók við henni. Þúfnakollamir urðu að lúta í lægra haldi fyrir ristuspaðan- um og land var brotið til ræktunar. Sauðfé átti Erlendur gott og land- kostir hentuðu mjög til sauðfjár- ræktar. Jarðlangsstaðir vom rómaðir fyr- ir vetrarbeit og þar er óvenju snjó- létt. En mæðiveikin setti stórt strik í starfsferil sauðfjárbóndans og á stríðsárunum brugðu þau hjón búi og fluttu til Reykjavíkur þar sem Erlendur bjó til æviloka. í áðurnefndu viðtali við Tímann sagði Erlendur um komu sína til Reykjavíkur: „Fyrst vann ég hjá Grænmetisverslun ríkisins, sem nú heitir Grænmetisverslun landbún- aðarins. Þar vann ég í þrjú ár en vann síðan ýmislegt sem til féll, pípulagningar, vegavinnu og fleira en árið 1949 gerðist ég innheimtu- maður hjá Olíufélaginu hf. og skipti ekki um vinnu eftir það.“ Sem fyrr segir slitu þau Auður samvistum og árið 1959 giftist Er- lendur Helgu Jónsdóttur. Þau bjuggu fyrst í Miðtúni 16 en fluttu 1975 í Hátún 10B. Þar áttu þau Helga og Erlendur gott heimili og áttu þau saman mörg ánægjuleg ár og sameiginleg áhugamál. Erlendur Jónsson hefði orðið 100 ára í dag ef hann hefði lifað. Þegar ég freista þess að varpa ljósi endur- minninganna yfir þær stundir sem við áttum saman kemur margt í hugann. Hann var kominn á áttræð- isaldur þegar við kynntumst. Samt bjó hann yfir áræði og þrótti yngri manna. Glettinn í tilsvörum, hress og bjartur í yfirbragði með óbilandi trú á land og þjóð. Fróður, vitur og velviljaður. Hann kunni frá mörgu að segja og sagði vel frá. Hann gat verið hnyttinn í tilsvörum og jafnvel brugðið sér í gervi þeirra sem hann sagði frá. Og það undarlega var í erfiðum umræðum þegar flestum gekk illa að fóta sig og skyndilæti hversdagsins byrgðu sýn var eins og Erlendur vissi alltaf hvar sólin var. Hann fór að eins og afi hans forðum, lét ekki ytri umbúðir, orða- gjálfur eða fagurgala villa sér sýn, hann horfði á ljósið. Erlendur var góður hagyrðingur. Þessi vísa hans lýsir vel afstöðu hans þegar á móti blés: Þegar stirðnar strá á grund stormar þjðta um hauður, þá er okkar létta lund lífsins besti auður. Erlendur hafði yndi af stangveiði, útiveru og ferðalögum. Þegar færi gafst lét hann línu fljúga af hjóli í hyl eða streng. Á bökkum Brúarár dró hann marga fallega bleikju. Nær 84 ára að aldri lauk hann ævi sinni á bakka árinnar með veiði- stöngina í hendi. Eftir á að hyggja finnst mér einhvern veginn að þann- ig hefði þessi vinur minn einmitt helst viljað kveðja þennan heim. Hann hafði verið heilsuhraustur alla ævi. En auðvitað vissi hann að tíminn var að renna út. Sjálfur hafði hann ort : Dvínar pr og daprast sýn, dofna ljós er skinu. Óðum færist ævin mín að endatakmarkinu. Guðm. G. Þórarinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.