Morgunblaðið - 08.12.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 B 11
um. Ég var á Vífilsstöðum í tvö ár
og fjölskyldulífið rofnaði; ég varð
að láta barnið mitt frá mér og beij-
ast ein fyrir lífi mínu. Síðan var ég
á Kristneshæli. Þar var ég hoggin."
Fá og einföld orð um mikla bar-
áttu og fórnir Blómeyjar þessi erf-
iðu ár þegar hún mátti þakka fyrir
að komast lífs af í glímunni við
„hvíta dauðann".
Að vera „hoggin“ var stór bijóst-
holsaðgerð og þetta lýsingarorð er
jafn miskunnarlaust og aðgerðin.
Áfram heldur Blómey:
„Ég jafnaði mig furðu fljótt en
var þó alla tíð upp frá þvi máttlítil
í hægri öxl og hendi. Þegar ég kom
suður hafði Óskar reist sér kofa
inni í Blesugróf og bjó þar. Ég hefði
aldrei tekið í mál að vera með hon-
um í að reisa þennan kofa ef ég
hefði verið hjá honum allan timann.
En ég stóð frammi fyrir gerðum
hlut og nýkomin af hæli var ég
ekki í neinni aðstöðu til að breyta
þessu. Mér fannst kofinn ömurlegur
alla tíð, sama hve miklu hann bætti
við hann og breytti honum uns
hann var orðinn að stærðar húsi.
Honum fannst hann stórkostlegur.
Honum fannst alltaf allt svo stór-
kostlegt sem HANN gerði.“
Hún leggur áherslu á síðustu
orðin rétt eins og hún sé nú að
afgreiða endanlega í einni setningu
viðhorf þeirra tveggja til flestra,
ef ekki atlra; þeirra hluta sem hann
gerði. Einkennilegt hefur það verið,
samband þessara tveggja ólíku
póla, sem þau hjón hafa verið í hinni
löngu sambúð sinni, ef marka má
frásögn hennar. Eftir því sem líður
á frásögn hennar verður samband
þeirra æ sérstæðara í augum þess
sem á hlustar.
„Við eignuðumst einn son,“ segir
hún. „Árin liðu og þótt líf okkar
og aðstæður væru nokkuð sérstæð-
ar vorum við þó þrátt fyrir allt fjöl-
skylda í Reykjavík. Það er svo sem
ekkert í frásögur færandi.
Af því að Óskar var lærður bú-
fræðingur hafði hann mikinn áhuga
á því að hafa skepnur. í Blesugróf-
inni höfðum við endur, hænsn,
hunda, ketti og meira að segja kalk-
úna.“
I þessari látlausu frásögn finnst
Blómeyju greinilega að búskapur
þeirra í Blesugróf hafi ekki verið
neitt sem þótti óvenjulegt á þeim
tíma, enda hafði Reykjavík þá enn
ekki breyst úr bæ í borg. Það var
víða í bæjarlandinu sem eimdi eftir
af sveitasamfélaginu og Óskar var
ekki eini hafnarverkamaðurinn sem
fékkst við búskap í smáum stíl.
Þórarinn á Melnum bjó með
skepnur við Ásvallagötu fram á
miðja öldina og Blesugrófin var
hálfgert sveitaþorp. Talið berst var-
færnislega að einkasyni þeirra
hjóna sem þau misstu á besta aldri.
Það er ævinlega erfitt að ræða um
slíka hluti og hún, sem hefur hing-
að til getað talað hispurslaust og
næsta glaðlega um hin viðkvæm-
ustu mál, viknar skyndilega þegar
talið berst að þessu og bindur í
raun enda á alla umræðu um það
með því að segja stuttlega:
„Það var mjög sárt og óvænt.
Allt í einu var hann dáinn. Hann
var hrifinn frá okkur á einu auga-
bragði.“
Orð hennar nísta eins og egg-
járn. Enn er mikil harmsaga af-
greidd í fáum orðum og sem þungt
ský leggist yfir andlit þessarar lífs-
reyndu konu.
Með því að víkja talinu á ný að
öðru umræðuefni birtir á ný yfir
henni. Þegar spurt er um það hvern-
ig hún sjálf hafi haft betur í bar-
áttu við illvígan sjúkdóm og aðrar
þrautir, sem lífið hefur gert henni
að leysa, færist líf og ljómi í andlit
hennar og hún svarar:
„Ég lét aldrei neitt hagga mér,
aldrei neitt á mig fá. Þess vegna
er ég enn lifandi og orðin þetta
gömul.“
Við höldum áfram að tala um
lífið í Blesugrófinni. Ég segi henni
frá ýmsum sögum sem nágrannar
hafa sagt af Óskari. Þeim eru minn-
isstæð atvik í ætt við eldmessuna
í Litlu kaffistofunni þegar skapið
hljóp í hann og hann snöggreiddist.
„Já,“ segir Blómey. „Hann var
svona. Sumir eru skapaðir með
þessum ósköpum og geta ekkert
HÚSIÐ í Blesugrófinni.
að því gert. Þegar hann snöggreidd-
ist var honum ekki sjálfrátt. Svo
tók hann það alveg óskaplega nærri
sér þegar okkur var skipað að fara
úr húsinu í Blesugrófinni vegna
þess að það þyrfti að gera braut
upp í Breiðholt.
Það var alveg sama þótt þeir
byðu honum gull og græna skóga.
Þeir buðu okkur íbúð í blokk en
hann hafnaði því. Þá voru viðbrögð
okkar Óskars ekki samhljóma frek-
ar en fyrri daginn, nema hvað ósam-
ræmið var öfugt við það sem hafði
verið á dansleiknum á Kópaskeri,
því ég sagði: „Jú,“ en hann sagði:
„Nei.“ Eftir að hafa margstækkað
og breytt húsinu á þeim þijátíu
árum sem við bjuggum þar, fannst
honum þetta orðið eitthvert snilld-
arverk, bara af því að HANN hafði
smíðað það.
í húsinu var allt hans líf, vef-
listarverkin og hvaðeina. Eftir að
við misstum einkason okkar var
þetta hús, sem hann hafði reist með
berum höndum og það sem í því
var, eina sköpunarverk hans sem
hann átti eftir, það eina sem honum
fannst hann hafa lagt af mörkum
hér á jörðinni. Það var eina barnið
sem hann átti eftir og var sem
hold af hans holdi.“
Stuttorð frásögn Blómeyjar varp-
ar nýju ljósi á aðstæður búfræðings-
ins með háu hugsjónimar. Á fundi
okkar uppi á fjallinu fyrir fjórum
árum virkaði lýsing hans á brott-
vikningu hans úr Blesugrófinni sem
hreinar ýkjur og ofsóknarbijálæði.
En nú blasti við að dramatísk
frásögn hans hafði verið rétt í minn-
ingunni og fullkomlega eðlileg út
frá hans sjónarhóli.
Að taka af honum húsið og jafna
það við jörðu var eins og að taka
af honum einkabarn og deyða það.
Þá fannst honum hann ekkert eiga
eftir af því sem hann hafði skapað
og eignast.
Talið berst nánar að myndvefn-
aði þeirra.
„Ég átti víst upptökin að því að
hann bytjaði að vefa fyrir alvöru,"
segir hún.
„Við höfðum haft vefstól og gert
nokkur teppi og þegar Hildur Há-
konardóttir sá þau vildi hún endi-
lega að ég kæmi til sín á námskeið.
Þegar ég minntist á það við Ósk-
ar harðbannaði hann mér það. Hann
var alltaf svo hræddur um mig og
afbrýðisamur.
Á endanum féllst hann þó á að
fara með mér, rétt eins og hann
þyrfti að passa mig. Þegar hann
hafði fylgst með mér í nokkurn
tíma, fór hann að fikta við að gera
svipað, fyrst í smáum stíl og af
forvitni en síðan af vaxandi áhuga
uns þessi listgrein átti hug hans
allan.“
Blómey bendir mér aftur á tíma-
ritshefti Skírnis sem er á borðinu
hjá henni. Hún virðist ýmist tala
kuldalega um sérvitringinn, sem
hún bjó með í 54 ár, eða sýna verk-
um hans skilning og vera áhugasöm
um að ég kynnist öllu því sem best
sem honum viðkom. Hún tekur fram
albúm á borðið og flettir því. Þar
má sjá myndir af þeim hjónum og
þar er meðal annars úrklipga úr
blaði, úr minningargrein um Óskar
þar sem þess er getið að hann hafi
ekki verið allra en hafi hins vegar
verið þeim góður og reynst þeim
vel sem hann blandaði geði við.
Hún bendir mér á greinina. Ég
les umsögnina og segi við hana:
„Hann hefur átt góðar hliðar.
Þegar við hittumst fann ég að það
sló heitt hjarta undir þessari hijúfu
skel. Sástu ekki eitthvað slíkt við
hann þegar þið kynntust?"
Aftur svarar hún neitandi og
ítrekar: „Ég var aldrei hrifin af
honurn." Einfalt og endanlegt svar
um upphaf meira en hálfrar aldar
sambúðar sem á sér vart sinn líka
á okkar dögum.“
0 Bókarheiti Mannlífsstikiur,
224 bis. Höfundur er Ómar
Ragnarsson. Útgefandi erFróði.
Leiðbeinandi verð 3490 kr.
Glœsileg hnífapör
í mihlu úifívaii
£?)SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þarfæröu gjöfina -
íslensk hönnun,
vönduð íslensk smtð
Úrval áklæða. Verðfrá 246.745 kr.