Morgunblaðið - 29.12.1996, Page 2
2 B SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR verkstjórar á leið til veislu á Skeiðarársandi, vígsludag Skeiðarárbrúarinnar
1974, f.h. Jón Valmundsson, Haukur Karlsson og Jónas Gislason.
ÞRÍR vegamálastjórar, f.h. Sigurður heitinn Jóhannsson, Snæbjörn Jónasson, fyrr-
verandi vegamálastjóri, og Helgi Hallgrimsson, núverandi vegamálastjóri.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
og Steinunn blaða í gömlum myndum.
Að standa
uppi í hárinu á
náttúruöflunum
JÓN ER „Víkari“ eins og hann
kemst að orði og „hefur allt-
af verið, fæddur 1929“, held-
ur hann áfram. „Ég er orðinn
löggiltur,“ segir hann hlæj-
andi, en það er þurr hlátur,
enda á hann við að hann sé
kominn á eftirlaunaaldur og
eftir tvö og hálft ár verði
hann „látinn hætta“. Hvort sem honum lík-
ar betur eða verr. Þegar menn eins og Jón
eru annars vegar læðist að sá grunur að
margt roskið fólk lendi í hálfgerðu úrkasti
fyrir aldurs sakir. Jón er nefnilega heilsu-
hraustur, léttur í skapi, vel á sig kominn,
iðandi af vinnuþreki og með ómælda reynslu
á sérhæfðu sviði.
SNEMMA BEYGIST KRÓKUR
Faðir Jóns var Valmundur Björnsson-
brúarsmiður, sem byggði tugi brúa á sinni
tíð. Þrátt fyrir þá staðreynd vill Jón ekkert
frekar kannast við að það hafi haft áhrif á
þá lífsslóð sem hann kaus sér. „Ég var að
vísu kominn í vinnuflokka með pabba um
fermingu, en eftir að ég óx úr grasi var ég
í mörg ár í öðru en brúarsmíði.“
Hverju?
„Eg fór í Iðnskólann í Reykjavík, fór langt
með húsasmíðanám þar, en lauk því svo á
Selfossi. Þettavar um árið 1950 og ég rúm-
lega tvítugur. Ég flutti heim til Víkur og
þess var ekki langt að bíða að ég var kom-
inn á fulla ferð við húsasmíðar. Það var
töluverður uppgangur á Vík á þeim árum,
framkvæmdir á Reynisfjalli og margt fleira.
Það fjölgaði á Vík og ég reisti mörg þeirra
húsa sem hér standa frá þeim árum. Ég
var yfirleitt með talsverðan hóp manna í
vinnu. Þetta var skemmtilegur tími,“ segir
Jón, sem gaf sér einnig tíma til að stíga í
vænginn við Steinunni Pálsdóttur með þeim
árangri að þau giftu sig árið 1959. Þau Jón
og Steinunn eiga tvær dætur, Steinunni og