Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 B 5 Morgunblaðið/Bjami Eiríksson ínudagskvöldið. Jón Örvar Kristins- nil á honum. Háspenna, lífshætta í lokin FH komst í undanúrslit bikarkeppninnar að lokinni framlengingu á Hlíðarenda FH-ingar eru komnir í undanúr- slit bikarkeppni HSÍ, eftir að hafa borið sigurorð af íslands- meisturum Valsmanna á sunnu- dagskvöld. Eftir Björnlngi jafnan og hörku- Hrafnsson spennandi leik, þar sknfar sem Qugj5n Arna- son, fyrirliði FH, tryggði liði sínu framlengingu á síðustu sekúnd- unni, gáfust Valsmenn algjörlega upp í framlengingunni og glað- beittir Hafnfirðingar fögnuðu sannfærandi stórsigri, 25:31. Fyrri hálfieikurinn var reyndar ekki gæfulegur og mistökin mý- mörg á báða bóga. Lítið fór fyrir fallegum tilþrifum og sóknarnýt- ing var mjög döpur. Þó voru FH- ingar ögn sprækari, sérstaklega í vörninni og leiddu með einu marki í leikhléi. í byijun seinni hálfleiks héldu gestirnir uppteknum hætti. Bar- áttan var meiri í vörninni og for- skotið jókst jafnt og þétt. Mest náðu FH-ingar fjögurra marka forskoti og leit út fyrir öruggan sigur þeirra á afar mistækum Valsmönnum sem virtust langt frá sínu besta. Aðeins barátta skytt- unnar Aziz Mihoubi á hægri væng þeirra hélt þeim á floti, sérstaklega þar sem lítið bólaði á þrumuskot- um þjálfarans Jóns Kristjánssonar þar til nokkuð var liðið á hálfleik- inn. Þegar þau komu síðan á færi- bandi, jókst barátta og kraftur Valsmanna til mikilla muna. Aziz hélt uppteknum hætti, Jón náði mjög góðum kafla með fallegum mörkum og Ingi Rafn Jónsson sömuleiðis. Á skömmum tíma náðu Valsmenn að vinna upp forskotið og fimm mínútum fyrir leikslok komust þeir yfir í fyrsta sinn í óratíma. Ef ekki hefði verið fyrir frábæra innkomu markvarðarins Suk Lee hjá FH hefðu Valsmenn getað gert út um leikinn á þessum leikkafla en með frábærri mar- kvörslu hélt hann sínum mönnum á floti og forskotið var því áfram eitt mark, allt þar til aðeins lifðu tvær sekúndur af venjulegum leik- tíma. Þá jafnaði Guðjón Árnason leikinn, beint úr aukakasti eftir að tveimur leikmönnum Vals hafði verið vísað af leikvelli á skömmum tíma. í framlengingunni áttu heima- menn síðan aldrei möguleika. Tveimur fleiri í upphafi röðuðu FH-ingar á þá mörkum úr hraða- upphlaupum og þegar upp var stað- ið, skildu sex mörk liðin að. Vals- menn gerðu aðeins eitt mark gegn sjö mörkum gestanna í framleng- ingunni og gáfust fljótlega upp.'' Bestir FH-inga voru þeir Hálf- dán Þórðarson og markvörðurinn Lee. Innkoma þess síðarnefnda, rétt fyrir leikslok, reið líklega baggamuninn og færði FH-ingum neistann sem vantaði. Hjá Vals- mönnum átti Aziz góða spretti, þótt nokkuð vanti enn upp á að hann smelli inn í leiksskipulagið og eins átti Ingi Rafn jafnan leik. Aðrir áttu dapran dag, einkum hornamennirnir Valgarð Thor- oddsen og Davíð Ólafsson. Guðjón Árnason, fyrirliði FH, var að vonum ánægður í leikslok. „Þetta byijaði rólega en endaði síðan í heilmiklum hasar,“ sagði hann. „Þetta eru tvö jöfn lið og úrslitin hefðu getað farið á hvorn veginn sem var. Sigurviljinn og baráttan var meiri okkar megin og það réð einfaldlega úrslitum.“ son náði ad ki ÍR-inga fjögur mörk á þessum góða leikkafla Breiðhyltinga og línumaðurinn Magnús Már Þórðarson hafði hvetj- andi áhrif á liðið með baráttu sinni. Annar góður leikkafli ÍR-inga undir lok fyrri hálfleiks tryggði þeim þægi- lega tveggja marka forystu í leik- hléi, 14:12. Heimamenn mættu grimmir til leiks í upphafi síðari hálfleiks og góður leikur Hans Guðmundssonar, Magnúsar Más Þórðarsonar og Ragnars Óskarssonar færði þeim sex marka forystu þegar níu mínút- ur voru eftir. Gróttumenn gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana og Davíð Gíslason skoraði þrjú mörk á rúmum fjórum mínútum. Mörkin voru sem vítamínsprauta fyrir varn- arleik Seltirninga og skyndilega var munurinn orðinn tvö mörk. Þrátt fyrir nokkrar heiðarlegar tilraunir komust gestirnir ekki nær og Jóhann Ásgeirsson gerði endan- lega út um leikinn er hann jók for- ystu ÍR í þijú mörk þegar ein og hálf mínúta var eftir. Markvörður- inn Baldur Jónsson kom ÍR-ingum til bjargar á síðustu mínútunum með því að veija ófá skot Gróttumanna er þeir gerðu sig líklega til að jafna leikinn. „Ég átti alls ekki von á því að koma inná í þessum leik, en það var ekki um annað að ræða en að fara út á gólf og standa sig,“ sagði Baldur, sem varði 15 skot á 22 mín- útum. „Hrafn [Margeirsson] er bú- inn að leika frábærlega í allan vetur þannig að ég hef ekki spilað mikið. Strákarnir voru meira að segja fam- ir að kalla mig bekkjarforseta," bætti hann við. )kk á limminu kom í veg fyrir að þeir fögnuðu að leikslokum. Jöfnunarmark Arons Kristjánssonar, 21:21, var vel gert af hans hálfu en að sama skapi klaufalegt af heimamönnum gefa færi á sér. Af þessu leiddi að til framlenging- ar kom þar sem Haukar voru mun einbeittari frá byijun og þeim nánast formsatriði. „Við höfum leikið marga jafna leiki í vetur og erum orðnir vanir þessu," sagði Bjarni markvörð- ur. „Við ætlum okkur í úrslitin. Leið- in þangað hefur ekki verið auðveld og andstæðingar okkar verið UMFA, HK og nú Stjarnan. Ég gæti best trúað að næst fengjum við KA, það yrði eftir öðru,“ bætti Bjarni við. Leikmenn Stjörnunnar fengu átta vítaköst í leiknum en skoruðu aðeins úr tveimur, fimm varði Bjarni, þijú frá Valdimar og eitt frá hvorum þeirra Konráð Olavsyni og Hilmari Þórlindssyni. Þá skaut Sigurður Við- arsson í slá. Þetta vegur þungt í jöfn- um leik ásamt því að Valdimar, þjálf- ari og leikreyndasti leikmaður þeirra, náði sér engan veginn á strik í sókn- inni. Þegar við bættist að hann var tekinn úr umferð á lokamínútum venjulegs leiktíma minnkaði sú ógn sem af honum stóð er mest þurfti á að halda. Leikmenn Hauka uxu með hverri raun í þessum leik og þeirra herbragð að sækja framar á völlinn þegar í nauðir rak í stöðunni 20:17 skömmu fyrir leikslok gekk upp. Liðið er með breiðan hóp af góðum leikmönnum og öllum að varamarkverðinum und- anskildum var sýnt það traust að fá að reyna sig. Liðið er komið áfram reynslunni ríkara og allra liða líkleg- ast til frekari afreka. KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Golli MALCOM Montgomery frá Selfossi sigraðl í troAslukeppnlnnl og hér má sjá hann í ham. Agætis skemmtun Hinn árlegi stjörnuleikur KKÍ fór fram í Laugardalshöll á laug- ardaginn og lauk honum með sigri liðs Friðriks Rúnarssonar, 122:114 eftir að lið Sigurðar Ingimundar- sonar hafði haft 63:51 forystu í leikhléi. Leikmenn sýndu ágæta takta og var leikurinn ágæt skemmtun, þó sérstaklega fyrri hálfleikur, en eftir hlé sýndu leik- menn ekki eins skemmtileg tilþrif. Herman Myers úr Grindavík var valinn maður leiksins, Iék mjög vel í fýrri hálfeiknum og geislaði af leikgleði allan tímann. Falur Harð- arson var einnig heitur, svo og Kristinn Friðriksson. Torrey John var bestur í tapliðinu. í leikhléi var keppt í þriggja stiga skotum og þar urðu Baldur Jónsson og Guðjón Skúlason jafnir eftir fyrstu umferð, fengu báðir 10 stig. Baldur hafði síðan betur í úrslitun- um, fékk átta stig en Guðjón sex. Troðslukeppnin var skemmtileg og þar var barátta um sigurinn á milli Malcom Montgomery frá Sel- fossi, sem sigraði í fyrra, og Raym- onds Hardings frá Þór í Þorláks- höfn, en hann sigraði árið þar á undan. Þegar Harding var einn eft- ir í síðustu umferðinni þúrfti hann að fá 15 stig til að sigra Mont- gomery, en troðslan mistókst og því sigraði Montgomery annað árið í röð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.