Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kirkjumálaráðherra kynnti frumvarp um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar á aukakirkjuþingi Mikilvægt skref til að auka sjálfstæði kirkjunnar Biskup tilkynnti ráðherra starfslok Fjallað um breytingar á lögum um biskups- kosningar EITT þeirra mála sem fjallað verður um á auka- kirkjuþingi sem nú stendur yfir er breyting á lögum frá 1980 um biskupskosn- ingar, en við setningu þingsins í gær lýsti Olafur Skúlason biskup Islands því yfir að hann hefði tU- kynnt kirkj umálaráðherra ákvörðun sína um starfslok við næstu áramót og einnig rætt það mál við vígslu- biskupa. Sagði Ólafur að því væri nauðsynlegt að fara þess á leit við auka- kirkjuþingið að það heimili umfjöllun um ráðgerðar breytingar á lögunum um biskupskosningar og af- greiði þær tillögur. Atkvæðisréttur sérþjónustupresta í máli Ólafs kom fram að ágreiningur hefði komið upp við síðustu vígslubisk- upskosningar í Skálholts- stifti um kosningarétt sér- þjónustupresta sem ekki voru settir á kjörskrá. Var málinu þá vísað til umboðs- manns Alþingis og kvað hann upp þann úrskurð að þeim bæri atkvæðisréttur. Samkvæmt því frumvarpi sem lagt verður fyrir þing- ið fá allir sérþjónustuprest- ar atkvæðisrétt þótt þeir séu ekki ráðnir af kirkju- málaráðherra og einnig þeir prestar sem þjóna við biskupsembættið. Eðlileg leiðrétting Sagði Ólafur að þarna virtist vera um eðlilega leiðréttingu að ræða sem hann vonaði að aukaþingið afgreiddi, en ástæða þess að málið væri ekki látið bíða prestastefnu í sumar og kirkjuþings í haust væri sú að biskupskosningar væru fyrirhugaðar á þessu ári. ÞORSTEINN Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti frum- varp til laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar við setn- ingu aukakirkjuþings sem hófst í Bústaðakirkju í gær, og sagði hann að það muni valda straumhvörfum verði frumvarpið samþykkt sem lög frá Alþingi. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn mánudag að leg'gja frumvarpið fram og er vonast til þess að hægt verði að afgreiða það sem lög nú á vorþingi. Þorsteinn sagði að löggjöfin muni um margt styrkja samband ríkis og kirkju, en á hinn bóginn væri verið að stíga mjög mikilvægt skref í því að auka sjálfstæði kirkjunnar og ábyrgð. „Þetta er í góðu samræmi við þær almennu breytingar sem eru að verða í þjóðfélaginu og þau mark- mið sem kirkjan hefur sett sér og í góðu samræmi við þá stefnu sem stjórnvöld hafa kynnt á undanförn- um kirkjuþingum um þróun kirkj- unnar,“ sagði hann. Úrskurðarnefnd fjalli um siðferðis- eða agabrot Fyrstu drög frumvarpsins voru kynnt á Alþingi vorið 1995, en síð- an hefur það verið til umfjöllunar innan kirkjunnar og kirkjumála- ráðuneytisins og nú síðast hjá nefnd sem ráðherra skipaði síðastliðið sumar og lauk hún störfum í desem- ber. Meðal þeirra breytinga sem frumvarpið hefur tekið í meðförum nefndarinnar má nefna að í því er gert ráð fyrir að ef starfsmaður þjóðkirkjunnar er borinn ásökunum um siðferðis- eða agabrot þá íjalli sérstök úrskurðarnefnd sem skipuð er af biskupi um málið. Gert er ráð fyrir að unnt sé að skjóta málinu til sérstakrar áfrýjunarnefndar sem ráðherra skipar, sem kveður upp endanlegan úrskurð í málinu. Þá er gert ráð fyrir sérstakri kenning- arnefnd og verður hlutverk hennar að fjalla um kenningarleg málefni og fella úrskurði í kenningarlegum atriðum ef þörf krefur. Prestar skipaðir til eins árs í byijun Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að við veitingu prestsemb- ættis verði sá háttur viðhafður að fyrst skuli prestur settur til eins árs en að þeim tíma liðnum skipaður í starfið ótímabundið nema ósk komi fram frá fullum þriðjungi atkvæðis- bærra sóknarbarna um að embættið verði auglýst laust til umsóknar. Kirkjuþing setur starfsreglur um skipan sókna, prestakalla og próf- astsdæma, og í þeim reglum skulu m.a. vera reglur varðandi skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk, svo og niðurlagn- ingu kirkju eða tilfærslu. Gert er ráð fyrir að Kirkjuþing setji starfsreglur um hin margvísleg- ustu málefni kirkjunnar, en í frum- varpinu er víða að finna ákvæði sem kveða á um að þessu eða hinu atrið- inu skuli skipað eftir starfsreglum. Miðað er að því að starfsreglurnar komi í stað löggjafar sem Alþingi hefur fram til þessa sett, og með þessu móti verði sjálfstæði kirkjunn- ar aukið verulega. Á aukakirkjuþinginu í dag verður lagt fram samkomulag um kirkju- eignir og prestsembætti, en það fel- ur í sér að kirkjujarðir og aðrar kirkjueignir, að frátöldum prestsetr- um, verða eign íslenska ríkisins og rennur andvirði jarðanna í ríkissjóð, og á móti skuldbindur ríkið sig til þess að greiða laun presta þjóðkirkj- unnar og starfsmanna biskupsemb- ættisins. Morgunblaðið/Kristinn ÞORSTEINN Pálsson dóms- og kirkjumálaráðherra, Ólafur Skúlason, biskup íslands og Sigurður Sigurðsson, vígslubiskup í Skálholti, hlýða á messu við setningu aukakirkjuþings 1997 í Bústaðakirkju. Fyrirhugað raforkuver á Nesjavöllum Málið kynnt borgarráði og líklega afgreitt eftir viku BORGARRAÐ frestaði í gær að taka lokaákvörðun um hvort ráðast skuli í byggingu og rekstur raforku- vers á Nesjavöllum. Málið var kynnt borgarráði og kveðst Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri búast við að það verði afgreitt á fundi borgarráðs á þriðjudaginn kemur. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjáif- stæðisflokksins, sagði að margt hefði skýrst á fundinum. Málið kom fyrir borgarráð þann 7. janúar, en þá var ákveðið að vísa því til borgarstjómar. Á fundi borg- arstjórnar sl. fimmtudag varð að samkomulagi milli meirihluta og minnihluta að borgarráð tæki loka- ákvörðun í málinu og málið yrði kynnt borgarráðsfulltrúum nánar. „Þar sem óskað hafði verið eftir frekari upplýsingum komu fulltrúar Hitaveitu Reykjavíkur, Rafmagns- veitu Reykjavíkur og Landsvirkjun- ar á fund borgarráðs og kynntu efnislega samning Columbia Vent- ures og Landsvirkjunar, um leið og farið var yfir samninga Hitaveitu og Rafmagnsveitu við Landsvirkj- un,“ sagði Ingibjörg Sólrún í sam- tali við Morgunblaðið að loknum borgarráðsfundi. „Borgarráð fékk með þessum hætti ítarlegri upplýsingar en áður, en ég met það svo að ekkert nýtt hafi komið fram. Grundvallaraf- staða var mótuð í september, þegar ákveðið var að semja við Lands- virkjun um sölu á raforku frá Nesja- völlum, ef til þessarar stóriðju kæmi og veitumar fengju 79% af því verði sem Landsvirkjun fengi hjá Col- umbia. Eg reikna með að málið verði afgreitt á næsta fundi borgar- ráðs,“ sagði borgarstjóri. Guðrún Zoéga, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram til- lögu á fundi borgarráðs í gær, um að Þjóðhagsstofnun eða öðrum hlutlausum aðila yrði falið að meta arðsemi raforkuvirkjunar á Nesja- völlum og samninga þá, sem nú liggja fyrir borgarráði. Afgreiðslu tillögunnar var frestað til næsta fundar. Svör við ýmsum spurningum Árni Sigfússon sagði að á fund- inum hefðu fengist svör við ýmsum spumingum. „Við höfum leitað eft- ir upplýsingum um væntanlega arð- semi framkvæmdanna og fleira í þeim dúr, enda hefur minnihlutinn aldrei haldið því fram að samning- arnir væru alslæmir. Við munum skoða þessar upplýsingar betur fram að næsta fundi borgarráðs.“ Greiða 15 smnum lægra skráningar- gjald en hér á landi KOSTNAÐUR af því að skrá Dís- arfell, skip Samskipa, undir íslensk- um fána, er liðlega tólf milljónir króna. Skipið er skráð undir hentif- ána Antigua og Barbuda. Þar er skráningarkostnaðurinn um 830 þúsund krónur. Hjörtur Emilsson, deildarstjóri skiparekstrardeildar Samskipa, segir að hérlendis þurfi að greiða skráningargjald þegar skipið er nýskráð, og stimpilgjöld og þinglýs- ingargjöld af áhvílandi lánum. Stimpilgjöldin eru 0,4% af áhvílandi lánum og greiðast þau bæði við kaup og sölu á skipinu. Hjörtur segir að þessi munur sé afskaplega mikill. Hann segir að kostnaðurinn vegna skráningarinnar hérna heima sé 12-13 milljónir króna þótt skipið sé rekið á nákvæmlega sömu for- sendum og nú er gert. „Við erum með íslenska kjara- samninga og íslenska áhöfn. Menn hafa stundum vísað til þess að lak- ari kröfur séu gerðar til reksturs hentifánaskipa en því er alls ekki til að dreifa hjá okkur. Við rekum skipið með nákvæmlega sama hætti og við gerðum ef það væri undir íslenskum fána,“ sagði Hjört- ur. Hann sagði að það kæmi ekki til greina í rekstri skipsins að færa það undir íslenskan fána. „Þetta er beinn kostnaður sem við spörum okkur,“ sagði Hjörtur. Dísarfell er eina skipið í eigu Samskipa en félagið hefur fjögur skip í rekstri. Tvö skip eru í tíma- leigu með erlendum áhöfnum og eitt skip er í þurrleigu. Það er einn- ig skráð undir fána Antigua og Barbuda. i > l l \ i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.