Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 9 FRÉTTIR Reykjavíkurborg sker niður fram- kvæmdir fyrir 300 milljónir króna Breikkun Artúns- brekku lýkur á þessu ári RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi Mest skorið niður hjá s.l. þriðjudag, að tillögu sam- gönguráðherra, að lokið verði við breikkun Ártúnsbrekku vestur yfir Sæbraut á þessu ári gegn því að Reykjavíkurborg fresti fram- kvæmdum hjá sér fyrir sömu upp- hæð og áætlað er að framkvæmd- irnar við breikkun Ártúnsbrekku kosti, eða um 300 milljónir króna. Verkið verður boðið út nú þegar á EES-svæðinu, en útboðsgögn voru tilbúin um síðustu áramót. Miðað er við að framkvæmdir hefj- ist í vor og áfanginn verði tekinn í notkun næsta haust. Við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi fyrir áramót ákvað ríkisstjórnin að draga úr framkvæmdum á suð- vesturhorni landsins vegna fyrir- sjáanlegrar þenslu í efnahagslífinu vegna stóriðjuframkvæmda og virkjunarframkvæmda. Á vegum samgönguráðuneytisins var þá fallið frá hugmyndum um að bjóða út framkvæmdir við Ártúnsbrekku og byijun framkvæmda við endur- byggingu Reykjavíkurflugvallar, en að sögn Halldórs Blöndal sam- gönguráðherra var það gert með þeim fyrirvara að ef sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu drægju saman framkvæmdir á sínum veg- um gæti komið til greina að ráð- ast í þessi verk. Samkomulag milli ráðherra og borgarsljóra „Það varð að samkomulagi milli mín og borgarstjórans í Reykjavík að fulltrúar Vegagerðarinnar og borgarverkfræðings hittust og færu yfir málin, og niðurstaðan varð sú að borgarráð samþykkti að skera niður 300 milljónir af framkvæmdum sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun Reykjavíkur, en í staðinn myndum við halda okkar striki og bjóða Ártúnsbrekku út þannig að fram- kvæmdir geti hafist á vori kom- anda og lokið með haustdögum," sagði Halldór. Hitaveitunni Á vegum Reykjavíkurborgar verður mest dregið úr fram- kvæmdum hjá Hitaveitu Reykja- víkur, eða fyrir samtals 230 millj- ónir króna, og er stærsti liðurinn boranir á háhitasvæðum sem lækkar um 150 milljónir króna. Þá verður frestað framkvæmdum við endurnýjun í dreifikerfi og nýframkvæmdir við dreifikerfi fyr- ir samtals 40 milljónir. Hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur verður dregið úr framkvæmdum fyrir samtals 30 milljónir króna og vegur þar þyngst að framkvæmd- um við aðveitustöð í Mosfellsdal verður frestað, eða 10 milljónir króna, auk þess sem framkvæmd- um fyrir 12 milljónir við dreifikerfi verður frestað. Hjá Reykjavíkur- höfn verður frestað framkvæmdum fyrir 21 milljón króna og er þar um að ræða 15 milljónir króna vegna landgerðar og vinnu við skjólgarð í Sundahöfn og 6 milljón- ir vegna fyrirbyggjandi viðhalds á stálþili í Korngarði. Hjá embætti gatnamálastjóra verður frestað framkvæmdum fyrir 19 milljónir króna og er þar um að ræða 13 milljónir króna vegna breytinga á Bíldshöfða og 6 milljónir vegna aðalræsis í Leiruvogi. BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrir WIND0WS Sjáðu nýjan frábæran hugbúnað: gj KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 -Sími 568 8055 www.treknet.is/throun Ljósir jakkar, pils og buxur TESS r...~z= y neð ncðst viö Dunliaga, sími 562 2230 Opið virka daga kl.9-18, laugardag kl. 10-14. _ MaxMara__________ Síðustu dagar útsölunnar Hverfisgata 6, 101 Reykjavík, s. 562 2862 Gœðavara Gjaíavara — malar- og kaflistcll. Allir vcröflokkar. VERSLUNIN Heimsfrægir hönnuöir m.a. Gianni Vcrsace. Langavegi 52, s. 562 4244. CRAFT OF S WEOEIM Undirföt fyrir útivistarfólk Heimsþekktur sænskur undirfatnaður, sem færir líkamsrakann fró húðinni og heldur henni þurri. Þér líður vel í CRAFT OF SWEDEN, hvab sem á dynur. Verðið er frábært: Peysurfrá kr. 2.150 Buxur frá kr. 2.290 Samfestingar frá kr. 3.980 O F SWEDEN - listin aö klæöa sig rétt Sími: 551 9800 og 551 3072 Fæst einnig í Toppmenn og sport, Akureyri Rýmingarsala Verslunin hættir í Glæsibæ um mánaðamótin / leiðinni GLesibœ, s. 553 3305 GLÆSILEGAR IsTÝJAJR VÖRUR Full búð af iivjiim vorvönmi Stærðir 36—52. h}áX$Gafiihildi Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10-18.30, laugardaga frá kl. 10-15. Málefni eldri borgara Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, ræðir málefni eldri borgara á opnum fundi á Hótel Borg, á morgun, föstudaginn 21. febrúar, kl. 12-13.30. Hádegisverður kr. 1.100. Fundarstjóri og fundarboðandi: Olafur Örn Haraldsson, alþingismaður. Tölvur fyrir alla fyrir fjölskylduna INTEL 133 mhz tölva með 33.6 bauda Mótaldi 16 mb EDO vinnslumínni ATI Mach 2mb skjákort 15" lággeisla stafrænn skjár 1280 mb harður diskur 16 bita hljóðkort 8 hraða NEC geisladrif 25 watta hátalarar 2 mánaða Internet áskrift 139.900 fyrir fagmanninn INTEL 133 mhz tölva fyrir þá sem vilja það besta 32 mb EDO vinnsluminni ET6000 2mb 128 bita skjákort 15" glampafrír flatur skjár 2100 mb Quantum harður diskur Soundblaster 16 bita hljóðkort I 12 hraða geisladrif 120 watta hátalarar Tölvur Grensásvegur3 Sími : 5885900 Fax : 5885905

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.