Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 7 FRÉTTIR Bændakosningar á Suðurlandi Stórsigur S-listans S-LISTI, Sunnlenski bændalistinn, hlaut 72,4% atkvæða og fimm full- trúa í kjöri fulltrúa sunnienskra bænda á Búnaðarþing sem fram fór á þriðjudag. F-listi, sjálfstæðis- manna hlaut 24,48% atkvæða og einn mann kjörinn. Kosningaþátttaka var dræm í blíðviðrinu á þriðjudag. Af 1709 á kjörskrá kusu 870 eða 50,9%. 25, 2,9%, atkvæði reyndust auð og ógild, S-listinn hlaut 632 atkvæði eða 72,64% og F-listi 213 atkvæði eða 24,48%. Kjörnir fulltrúar S-listans eru því: Hrafnkell Karlsson á Hrauni, Kristján Ágústsson á Hólmum, Sig- rún Ólafsdóttir á Kirkjubæjar- klaustri II, Eggert Pálsson á Kirkju- læk og María I. Hauksdóttir í Geira- koti. Fulltrúi F-listans er Kjartan Ól- afsson í Hlöðutúni. í síðustu búnaðarþingskosning- um á Suðurlandi var kosningaþátt- taka um 60%. Þá hlaut Sunnlenski bændalistinn þijá fulltrúa, sjálfstæðismenn tvo og búgreinalistinn, sem ekki bauð fram að þessu sinni, einn fulltrúa. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Þrestirnir undirbúa varp Blönduósi. Morgunblaðið. Skógarþrösturinn er nú búinn að koma upp einni kynslóð og undir- býr varp í annað sinn á þessu sumri. Það er mikið að gera hjá þessum söngelska fugli við leit að hreiðurstæði og hafa t.d. starfs- menn og eigendur í atvinnuhús- næðinu Húnabraut 13 ekki haft undan að vísa þessum ágæta fugli frá gluggasyllum. Ekki er það gert af neinni mannvonsku heldur fylg- ir þessum spörfugli nokkur óþrifn- aður og er það álit manna að trén á Blönduósi séu náttúrulegi'a um- hverfi fyrir þá eins og þessi mynd sýnir og nóg er til af þeim. Vatnsdalsvegur Steypustöð Blönduóss bauðlægst STEYPUSTÖÐ Blönduóss ehf. var með lægsta tilboð í vega- gerð á Vatnsdalsvegi og hljóðaði tilboð fyrirtækisins upp á 8.860.200 kr., en kostnaðará- ætlun Vegagerðarinnar var 11.812.000 kr. Alls buðu níu aðilar í verkið. Næstlægsta tilboðið var frá Steingrími Ingvarssyni á Litlu Giljá sem bauð 9.415.000 kr. í verkið. Fylling ehf. á Hólmavík bauð 9.852.175 kr. og var einn- ig með frávikstilboð upp á 9.979.675 kr., Steypustöð Skagaíjarðar ehf. bauð 10.638.540 kr., Sigurður Hjálm- arsson o.fl. á Blönduósi buðu 10.936.640 kr., Fjörður sf. Sauðárkróki bauð 10.939.200 kr., Haukur Kristjánsson á Ak- ureyri bauð 12.112.645 kr. og Jarðverk ehf., Nesi, bauð 13.178.725 kr. Sendifulltrúi RKÍ kominn til Pakistans INGA Margrét Róbertsdóttir, sem starfað hefur _sem sendifull- trúi Rauða kross Islands í Afg- hanistan sl. hálft ár, er komin heilu og höldnu til borgarinnar Peshawar í Pakistan, skammt frá afgönsku landamærunum. Vegna ástandsins var henni orðið illmögulegt að starfa þar og var því kölluð heim. Hún hefur þó að undanfömu unnið við að hlúa að særðum eftir inn- rásina í Mazar-i-Sharif. Inga Margrét er væntanleg frá Peshawar heim til íslands innan skamms, að sögn Garðars Guðjónssonar, kynningarfull- trúa RKÍ. Siglufjarðarvegur Haukur Kristgánsson bauð lægst HAUKUR Kristjánsson á Akur- eyri var með lægsta tilboð í vegagerð á Siglufjarðarvegi milli Hraunadals og Almenn- ingsnafa. Haukur bauð 30.071.300 kr. í verkið, en kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar var 30.215.000 kr. Fjögur önnur tilboð bárust í verkið og voru þau öll hærri en kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar. Fjörður sf. á Sauðárkróki bauð 30.469.700 kr„ Fylling ehf. á Hólmavík bauð 33.228.000 kr„ Rögnvaldur Árnason á Sauðárkróki og Stef- án Einarsson á Siglufirði buðu 35.479.500 kr. og G. Hjálmars- son hf. á Akureyri bauð 37.000.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.