Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ SKÓLASLIT Verulega sjónskert en dúxaði Skólaslit Menntaskólans við Hamrahlíð 3 dúxar á vorönn SIGRÚN Bessadóttir er mjög sjónskert og telst sjón hennar vera innan lögblindramarka. Engu að síður náði hún að verða ein af 3 dúxum Mennta- skólans við Hamrahlíð við vor- útskrift skólans. Hún segir MH fyrst og fremst hafa orðið fyrir valinu vegna þess að skólinn tilheyri hennar hverfi. Námsbraut ný- mála við skólann hentaði henni einnig vel en Sigrún er mikil tungumálamanneskja. Hún hafi ekki sóst sérstaklega eftir þeirri sérkennslu sem skólinn býður upp á, einfaldlega vegna þess að hún hafi ekki þurft á henni að halda. Hún hafi lokið náminu á 8 önnum eins og eðli- legt sé og til hennar hafi verið gerðar sömu kröfur ogtil ann- arra. „Eg vil meina að námið velti alltaf fyrst og fremst á manni sjálfum. Þetta er spurn- ing um að hafa trú á sjálfum sér og að standast kröfur skól- ans,“ segir Sigrún. Hún viðurkennir þó að lík- lega hafi hún þurft að leggja sig meira fram en aðrir til að ná þessum góða árangri og lít- ið hafi þýtt fyrir sig að koma óundirbúin í tíma þar sem hún verði að vera búin að kynna sér það sem kennarinn fer yfir hveiju sinni. Hún geti rétt svo borið kennsl á grænan lit töfl- unnar og hafi því þurft að hlusta vel á orð kennaranna. „Ég kann að hlusta svo þetta hefur kannski ekki farið inn um annað eyrað og út um hitt. Ég get ekki starað út um gluggann og skrifað svo niður eftir töflunni það sem sagt hef- TULBOÐ Qjósmijnclaslofa /jantiare úhgUnartMOMar Suðurveri, sími 553 4852 Hún i/aldi skartgripi frá Silfurbúðinni (Q) SILFURBÚÐIN VjL/ Kringlunni 8-12 *Sfmi 568 9066 - Þar fcerðu gjöfma - Morgunblaðið/Jón Svavarsson NÝSTÚDENTARNIR bera saman bækur sínar að athöfn lokinni. Morgunblaðið/Arnaldur Sigrún Bessadóttir ur verið í tímanum. Það hefur eflaust hjálpað mér að ég hef þurft að halda 100% athygli í tímum,“ segir Sigrún. Sigrún er á leið í sjálfboða- vinnu á vegum Alþjóðlegu ung- mennaskiptanna, AUS, og mun því dveljast eriendis næsta árið. Vonast hún til að vera send til Þýskalands því hana langar til að ná enn betra valdi á þýskri tungu. Tímann hyggst hún einnig nota til að hugsa betur um framhald á námi sínu en líklegt er að málvísindi eða frekara tungumálanám verði fyrir valinu. „Það er vel hægt að standa sig í námi þó sjónina vanti,“ segir Sigrún og bætir því við að þetta sé bara spurn- ing um námstækni og áhuga. LAUGARDAGINN 31. maí sl. voru brautskráðir 130 nýstúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Luku 102 námi úr dagskóla og 28 úr öldungadeild skólans. Meðal- námstími nýstúdenta í dagskóla er 7,8 annir með tíðasta gildi 8 annir eða 4 ár. Stór hópur nýstúdenta náði af- bragðsnámsárangri og reyndist mjög erfítt að skera úr um hver hefði náð bestum árangri í þetta sinn. Var því ákveðið að 3 nýstúd- entar skildu bera titilinn, dúx skól- ans á vorönn 1997. Þeir eru í staf- rófsröð Sigrún Bessadóttir, Þórdís Linda Þórarinsdóttir og Þórólfur Rúnar Þórólfsson. Þau þtjú hafa samtals lokið 468 námseiningum og þar af 465 með einkunn 8-10. Þrándur Grétarsson nýstúdent á nýmála-, náttúrufræði- og eðlis- fræðibrautum, lauk alls 201 náms- einingu á 8 önnum sem mun vera þriðji besti árangur við skólann hvað varðar fjölda eininga við út- skrift. Saga skólans komin út Við útskrift tilkynnti rektor, Sverrir Einarsson, að nú væri kom- in út 30 ára saga Menntaskólans við Hamrahlíð. Rit þetta hefur ver- ið í vinnslu allt frá árinu 1995. Þeir Örnólfur Thorlacius og Guð- mundur heitinn Arnlaugsson skrifa báðir um rektorstímabil sín í skólan- um. Þegar Guðmundur lést þann 9. nóvember sl. ár var ákveðið að helga ritið minningu hans. Hann hafði þá þegar lokið þeim hluta rits- ins, er snerti rektorstímabil hans, en einnig ritaði hann all ítarlega sögu framhaldsnáms allt frá 12. öld og fram til vorra daga. Þessi viðbót Guðmundar í 30 ára sögurit skólans eykur almennt gildi ritsins og gerir það enn merkilegra og fróðlegra. Ritið hefur að geyma skrá yfir alla kennara sem kennt hafa við skólann og alla stúdenta sem útskrifast hafa frá skólanum á þessum 30 árum. Alþjóðlegt IB-nám Fram kom í ræðu rektors að í haust verður tekið upp við skólann IB-nám. IB stendur fyrir Internat- ional Baccalaureate sem eru al- þjóðleg samtök sem bjóða skólum og nemendum að fylgja ákveðinni IB-námstefnu með samræmdum lokaprófum. IB-námi skulu nem- endur hér í skóla ljúka á 3 árum og er þá fyrsta árið undirbúnings- nám að IB-náminu sjálfu sem tek- ur tvö ár. Með IB-skírteini eru nemendum opnar ýmsar dyr, svo sem að flestum háskólum um víða veröld. Þá talaði rektor í ræðu sinni um þá ógn sem framhaldsskólum stafi af vinnudeilum og verkföllum kennara. Hann hvatti alla hlutað- eigandi aðila til að mætast í opnum og einlægum viðræðum og koma í veg fyrir að skólastarf verði enn einu sinni sett í uppnám vegna kjaradeilna. í kveðju sinni til ný- stúdenta hvatti rektor þá til að glata ekki þeim samhug og þeirri vináttu sem myndast hefði á náms- tímanum, því fátt væri mikilvæg- ara í lífinu en að eiga trygga vini. Við athöfnina söng kór Mennta- skólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Nemend- ur og nýstúdentar mynduðu kvart- ett og léku tónlist fyrir viðstadda og nýstúdent Eva Þyri Hilmars- dóttir lék einleik á píanó. Ávörp til nýstúdenta og skólans fluttu: Edda Kristjánsdóttir fyrir hönd kennara, Brynhildur Heiðar Óm- arsdóttir fyrir hönd nýstúdenta úr dagskóla, Lísa Kjartansdóttir fyrir hönd nýstúdenta í öldungadeild, Þórður Sverrisson fyrir hönd 25 ára stúdenta og Björn Guðbrandur Jónsson fyrir hönd 20 ára stúd- enta. Að því loknu var skóla slitið í 31. sinn. : | iV^i I lv 1 I V • *.. 1 II j Útskriftarhópur Flensborgarskólans. Skólaslit Flensborgarskólans 3 með meðal- tal yfir 9 43 STÚDENTAR og einn nem- andi með verslunarpróf voru brautskráðir frá Flensborgar- skólanum í Hafnarfirði laugar- daginn 31. maí sl. Athöfnin fór fram í Víðistaðakirkju. 3 nemendur luku prófi af tveimur brautum, eðlisfræði- og náttúrufræðibraut, 14 af félagsfræðibraut, 16af hag- fræðibraut, 1 af íþróttabraut, 5 af málabraut og 4 af náttúru- fræðibraut. Sjaldgæft er, þar sem ein- kunnir eru aðeins gefnar í heil- um tölum, að meðaltal allra einkunna fari yfir 9,0. Að þessu sinni náðu þó 3 nemendur þeim árangri. Hæstur varð Hannes Helgason af eðlisfræði- og nátt- úrufræðibraut með 9,34 í meðaleinkunn. Næstar honum komu þær Guðbjörg Guðvarð- ardóttir með 9,26 og K. Eygló Hjaltadóttir með 9,05 í meðal- einkunn en þær luku báðar prófi af hagfræðibraut eftir nám í öldungadeild skólans. Mjög háar einkunnir fengu einnig Kristmundur Guðleifs- son og Stefán Freyr Guð- mundsson, báðir af eðlisfræði- og náttúrufræðibraut. Kristján Bersi Ólafsson, skólameistari, flutti ræðu og heiðraði hann sérstaklega 4 nemendur skólans sem hafa verið valdir til þátttöku á Ólympíuleikunum í stærðfræði og eðlisfræði í sumar. Þeir eru Hannes Helgason, Stefán Freyr Guðmundsson og Mar- teinn Þór Harðarson í stærð- fræði og Birgir Björn Sævars- son i eðlisfræði. Árni E. Albertsson talaði fyrir hönd 20 ára stúdenta og afhenti skólanum fé til nótna- kaupa fyrir kór skólans. Hann- es Helgason flutti ávarp ný- stúdents. Tónlist setti mikinn svip á athöfnina. Ástríður Alda Sigurðardóttir og Eyjólfur Eyjólfsson léku saman á píanó og flautu, valda kafla úr flautusónötum eftir Hándel. Síðar lék Ástríður Alda einleik á píanó, 3. kafla Tunglskinssó- nötu Beethovens. Kór Flens- borgarskólans söng undir stjórn Hrafnhildar Blomster- berg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.