Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 68
 <33) AS/400 er... ...með PowerPC 64 bita örgjörva 'Öst- og stýrikerfi <33) NÝHERJI s MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Velta Iseyjar í Bremerhaven hátt í 4 milljarðar Tekur yfír rekst- * ur fískmarkað- arins í borginni Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson PÁLMI Stefánsson, útgerðarsljóri Básafells, á tali við verkfallsverðina Aðalheiði Steinsdóttur, varaformann Verkalýðsfélagsins Baldurs, og Sigríði Bragadóttur, sem reyndu að koma í veg fyrir að Skutull kæmist til veiða í gær. Á pollanum situr Guðmundur Oli Lyngmo, starfsmaður Básafells. Reynt að hindra að skip færu til veiða FISKSÖLUFYRIRTÆKIÐ ísey í Bremerhaven í Þýskalandi mun á næstu dögum taka yfir rekstur fisk- markaðarins í Bremerhaven. Að sögn Samúels Hreinssonar, for- stjóra íseyjar, verður velta fyrir- tækisins eftir yfirtökuna á bilinu þrír og hálfur til fjórir milljarðar króna. Ríkisfyrirtækið FBEG hefur rek- t (jj. *ð alla starfsemi við höfnina í Brem- erhaven í yfír 100 ár en ísey tekur nú yfír fiskmarkaðsþátt starfssem- innar. „FBEG hefur haft á sinni könnu alla starfsemi hér á hafnar- svæðinu, sér meðal annars um alla orkusölu og hefur umsjón með gatnagerð. Isey tekur hins vegar yf- ir fískmarkaðshluta fyrirtækisins og allt sem honum tilheyrir," segir Samúel. Hann segir að í kjölfar yfírtöku fískmarkaðsstarfseminnar verði gengið til samstarfs við ýmsa aðila sem tengjast markaðnum. „Til dæmis er hér starfrækt flutninga- fyrirtæki sem sér um þjónustu við kaupendur. í samvinnu við þá stofn- um við fyrirtæki sem sér um alla leigu á fiskikössum, þvott og þess háttar. Við kaupum öll áhöld, kassa, f SLENDIN GAR sigruðu í 5 af 8 greinum í sundkeppni Smáþjóða- leikanna í gær og fengu fern silf- urverðlaun og eitt brons. Tvö ís- landsmet féllu og þijú mótsmet. Á BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja sam- þykkti í gær tillögu stjómar Bæjar- veitna um að rúmmetraverð í gjald- skrá hitaveitu til íbúðarhúsnæðis lækki um 30% og kflóvattstundin í rafhitun íbúðarhúsnæðis um 20% 1» frá næstu mánaðamótum. Petta er gert kleift með lengingu lána og lækkun vaxtakostnaðar, auk endur- skipulagningar í rekstri hjá Bæjar- veitunum. Þá samþykkti bæjarráð að leggja Bæjarveitum til allt að fímm milljónir króna á ári næstu þrjú ár til að tryggja að lækkunin gangi eftir. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að miðað við kassaþvottavélar og ýmislegt fleira sem er nauðsynlegt til að halda úti fiskmarkaði. Hin eiginlega löndun á físki verður áfram í höndum FBEG en við höfum gert við þá þriggja ára samning um að þeir landi fyrir okk- ur aflanum gegn því að þjónustu- gjöld hækki ekki á meðan. Við tök- um hins vegar alveg yfir þá starf- semi sem fylgir uppboðinu," segir Samúel. Selja 80% ferksfisks frá íslandi Samúel segir að með yfirtökunni sé starfsemi íseyjar orðin tiltölu- lega umfangsmikil og velta fyrir- tækisins á bilinu þrír og hálfur til fjórir milljarðar. I dag fari um 80% alls ferskfisks frá Islandi um Brem- erhaven í gegnum íyrirtækið og nánast allur ferskfiskur frá Færeyj- um. „Starfsemin sem nú fellur undir okkar verksvið spilar því nokkuð stóra rullu hér í Bremerhaven. Við teljum að með yfirtöku á þessari starfsemi verðum við betri á mark- aðnum, því nú getum við gert það á einum stað sem áður var gert á tveimur eða þremur. Þannig verður til dæmis þjónustan við kaupendur okkar betri,“ segir Samúel. myndinni er Örn Arnarson um það bil að bæta 10 ára gamalt leikamet í 200 m baksundi. ■ fþróttir C-blað að húshitunarreikningur meðalfjöl- skyldu í Eyjum sé um 80.000 krónur á ári geti lækkunin orðið um 24.000 krónur. „Til að geta borgað 24.000 krónur í húshitunarkostnað þurfa menn að vinna fyrir 42.000 krónum fyrir skatt. Miðað við 90.000 króna laun er þessi breyting nærri því jafnmikil kjarabót og nýgerðir kjarasamningar voru að skila fólki,“ segir Guðjón. Óþarfí að ein kynslóð borgi skuldirnar niður Hann segir að á síðustu þremur árum hafí tekizt að borga niður hátt á annað hundrað milljóna af skuld- VERKFALLSVERÐIR í Verkalýðs- félaginu Baldri á fsafirði reyndu ár- angurslaust í gær að koma í veg fyrir að tvö skip Básafells, Skutull og Orri, héldu til veiða. Skipverjar leystu landfestar úr skipinu og skildu þær eftir á bryggjunni og segir Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða, að ekki verði brugðist við þessu með öðrum hætti en að koma í veg fyrir löndun úr skipunum þegar þau snúa aftur úr veiðiferð. I gærkvöldi hélt togarinn Júiíus Geirmundsson frá Isafirði og tók olíu á Bolungarvík skömmu síðar. Yfirmenn Básafells héldu því fram við verkfallsverði að Pétur Sigurðsson hefði tjáð þeim að verk- fallsverðir væru ekki á vegum verkalýðsfélagsins. Pétur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði tjáð þeim að þessir menn væru ekki á vegum verkaiýðsfé- lagsins heldur væru þarna verk- fallsverðir á eigin vegum og ætluðu að sjá til þess að verkfallinu yrði um hitaveitunnar. Nú hafi því verið lag að skuldbreyta rúmlega 500 milljóna króna lánum. Þegar hitaveitan hafí verið sem skuldsettust hafi Bæjarveiturnar, samkvæmt samningi við íjármála- og iðnaðarráðuneyti, orðið að hækka gjaldskrá sína samkvæmt byggingarvísitölu. Greiðsla skulda hafi hins vegar gengið betur en gert var ráð fyrir í samningnum og nú hafi fengizt samþykki fyrir að hækka samkvæmt neyzluvísitölu. Sú breyting verði aftur-virk frá 1. ágúst á síðasta ári, sem þýði að í stað 6,34% hækkunar frá þeim tíma verði hækkunin 1,53%. í framtíðinni réttilega framfylgt. Orri er á grálúðuveiðum en Skut- ull hefur ekki pláss fyrir meira en 10 tonn og telja verkfallsverðir að það taki skamman tíma að fylla það. Verkfallsverðir fylgdu Júlíusi Geirmundssyni eftir landleiðina til Bolungarvíkur f gærkvöldi og reyndu árangurslaust að koma í veg fyrir að skipið tæki þar olíu. Verkfallsverðir óttast að skipinu verði siglt til Grundarfjarðar og reynt að landa úr því þar. „Það er alveg fráleitt að ég liafi leyft skipunum að halda úr höfn,“ sagði Pétur Sigurðsson. Hann segir að sami slagurinn sé að hefjast á ný og verkfallsmenn þurfi nú að búa sig undir að hindra löndun úr skip- unum um allt land. Hann segist telja að fólk í verkfalli eigi nú samúð og stuðning verkafólks víðast hvar. Einar Jónatansson, formaður Vinnuveitendafélags Vestfjarða, segir að ekkert nýtt sé að frétta í málinu og engar viðræður séu í gangi. muni gjaldskrá Bæjarveitnanna svo taka mið af breytingum á neyzlu- vísitölu. Guðjón segir að með þessum að- gerðum sé kostnaður við hitun íbúð- arhúsnæðis með hitaveituvatni og með rafmagni orðinn mjög svipaður í bænum. „Ég held því að allir ættu að geta verið sáttir," segir hann. Bæjarstjórinn segir að þessi ákvörðun ætti að geta styrkt búsetu í Eyjum. „Það er óþarfi að láta eina kynslóð borga niður á næstu sjö til tíu árum allar skuldir hitaveitu, sem er að öðru leyti í mjög góðu standi og afskriftatíminn miklu lengri en það,“ segir Guðjón. Fjármálaráðherra um Aburðarverksmiðj u Bæði tilboð- in auðsjáan- lega of lág FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu og fulltrúi landbúnað- arráðuneytisins munu taka ákvörð- un á fundi í dag um hvaða tilboði verður tekið í Áburðarverksmiðjuna eða hvort báðum tilboðunum sem fram eru komin í verksmiðjuna verður hafnað. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, sagði í gærkvöldi að nefndin þyrfti að athuga tilboðin gaumgæfi- lega áður en öðru þeirra yrði tekið. „Þau eru auðsjáanlega bæði of lág, en hugsanlega er hægt að ná samn- ingum um betra verð,“ sagði ráð- herrann. Aðspurður hvort til greina kæmi að taka lægra tilboðinu sagði Friðrik að hann vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Hreinn Loftsson, formaður Fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, kvaðst í samtali við Morgunblaðið búast við að tilboðsgjöfum yrði svar- að í dag. Hann minnti á að tilboðin væru talsvert undir því sem Hand- sal hefði metið verksmiðjuna á í október, sem var um milljarður. FoiTáðamenn Gufuness ehf. sem átti hæiTa tilboðið að fjárhæð 725 milljónir hafa lýst áhyggjum sínum vegna þeirra ummæla ráðuneytis- stjóra landbúnaðaiTáðuneytisins að ráðuneytinu lítist betur á lægra til- boðið, þar sem það sé frá hagsmuna- aðilum í landbúnaði sem hafi ótví- ræðan hag af áframhaldandi rekstri. Kalt fjárhagslegt mat Hreinn segir að þetta álit land- búnaðarráðuneytisins eigi ekki að hafa nein áhrif á ákvörðun nefndar- innar. Báðir tilboðsgjafar hafi lýst því yfir að þeir muni halda áfram framleiðslu í verksmiðjunni og það sé ógjörningur að taka orð annars trúanlegri en hins. „Að yfirlýsingum þeirra gefnum er hér bara um að ræða kalt mat á fjárhagslegri stöðu, hvort taka eigi hærra tilboðinu eða hafna eigi þeim báðum á þeim grundvelli að þau séu undir því verði sem telja má viðunandi." ■ 108 milljónum/11 Morgunblaðið/Arnaldur Elsta sundmetið féll Hitaveitan lækkar um 30% og rafmagn til húshitunar um 20% í Vestmannaeyjum • Sparnaður meðalfj öl- skyldu um 24.000 krónur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.