Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF Dag nokkurn hélt Sigtryggur Baldursson sig hafa fengið ákjósanlegt tilefni til þess að vera svalur Raddlaus, nakinn og pikkfastur Sumir dagar ganga bara á afturfótum. Sigtryggur Baldursson missti röddina og linsuna og festist í niðurfalli, klæðalaus og fyrir allra augum. Helga Kr. Einarsdóttir hlýddi opinmynnt á ævintýri í flugstöð Leifs heppna. “BOGOMIL hafði verið að góla eins og hai’ðfískur fjögur kvöld í röð og greindist í kjölfarið með „ööööööh, akút-barkabólgu“ eins og læknirinn á heyrnar- og talmeinastöðinni orð- aði það,“ hefst frásögnin í fiugstöð- inni en hið eina sem flýgur er tím- inn og áheyrandi og sögumaður sitja til skiptis í síðasta sæti til New York. Leifsstöð er líka að verða nlannlaus, sem ekki veit á gott en Sigryggur heldur áfram. . „Læknirinn sagði mér síðan að ég skyldi fara beint í blautgufuna í laugunum og dúsa þar í þögn því þögn væri besta meðalið og svo hélt hann áfram, bla bla bla. Ég var far- inn að þrá þögn og frið og sá fyrir mér frábæra afsökun til að sleppa við hávær mannamót og vera svona „kúl“ og þögul týpa í nokkra daga. Vera svalur. En innst inni var einhver tilfinn- ing að naga mig, svipað og þegar ég gleymi einhverju einhversstaðar. Þessi var bara afturábak svona eins og ég væri á barmi uppgötvunar. Ég veit núna að geri þessi tilfínning vart við sig er eins gott að búa sig undir að vera allt annað en svalur í smá stund. Kortéri síðar var ég kominn á bílaplanið hjá sundlauginni á gömlu Mözdunni hans pabba og hafði akkúrat þrjú korter til að gufa mig og skila bílnum heim til pápa. Ég er eitthvað að paufast inní bílnum, finna til sunddót og taka til ná- kvæma skiptimynt til að rétta í af- greiðslunni, svo ég þurfi nú ekki að tala neitt. Helst vildi ég komast í gegnum daginn án þess að þurfa að segja eitt aukatekið orð, því um leið og ég opnaði munninn fannst mér ég hljóma eins og heiðursfélagi í ógæfumannasamtökum. Skynsamur í sömu andrá og ég stíg út úr bflnum og loka hurðinni uppgötva ég mér til skelfingar að ég hef læst lyklana inni. Nú eru góð ráð dýr en ég ákveð að treysta því að verðir laganna hjálpi mér strax og ég er búinn í gufunni. Já, það er best að vera svalur og hringja bara í lögg- una á leiðinni út, svona meðan ég er að reima á mig skóna, segi ég með sjálfum mér. Eg er tímabundinn og verð að vera súper skynsamur. Inn í afgreiðsluna fer ég, rétti nákvæma mynt inn um lúguna og horfi svo út í loftið svo afgreiðslu- / konan fari nú ekki að spjalla. Ég fæ klefakrónu og dríf mig inn, það er líklega best að vera sem næst sturt- unni. Þá getur maður bara þuiTkað sér í hendingu, rokið beint í fötin og út, ekki satt? Klefarnir næst sturt- unum eru að vísu minni en hinir... en það er allt í lagi, ég er bara í peysu og gallabuxum yfir nærfötum og sokkalaus. Þetta er fínt. En hvað er nú þetta, er helvítis klefakrónan ekki eitthvað stíf? Þetta er strax orðið gamalt drasl! Með smá ákveðni er hins vegar hægt að koma henni niður, eða hvað? Neeei, nú neitar hurðarskrattinn að læsast og losa lykilinn, eins og vera ber. Hvaða lyklavesen er þetta eiginlega í dag, skyldi ég virkilega þurfa að reyna að gera mig skiljan- legan við baðvörð, í þessu líka fugla- bjargi, hugsa ég argur. Þvínæst geng ég að baðverðinum og hvæsi nálægt eyranu á honum, svo hann heyri örugglega, að ldef- arnir hérna séu að reyna að snuða sundlaugargestina! Hann hrekkur við en kannast síðan eitthvað við svipinn á mér, brosir óþolandi góð- látlega og röltir í hægðum sínum inn til að líta á skápinn. Hann hefur auð- vitað ekki hugmynd um að ég hef bara 32 mínútur til þess að fara í gufu og komast aftur í Kópavoginn. Ósæmilegur Og það er ekki laust við að fjós- púka-glott færist yfir andlit baðvarð- ar þegar hann bendir mér á að ég sé í bamaklefanum og hafi troðið full- orðinskrónu í skáp, ætluðum smá- EKKI eru allir dagar Bogomils Font, dagar víns og rósa. fólkinu. Mér finnst eins og ég hafi verið gripinn við ósæmilegt athæfi gagnvart bömum. Hann lætur mig færa allt dótið mitt yfir í klefa fyrir fullorðna og réttir mér nýja krónu. Fyrst skýrir hann hins vegar út fyrir mér, hægt og rólega, að ég eigi alls ekki að vera í barnaklefanum. Ég kinka þögull kolli en raddleysið kemur ekki að sök, mér er hvort eð er orða vant. Lyklarnir læstir inni í bílnum og ég staðinn að verki sem málhaltur dóni. Þetta gat ekki versnað. Ég dríf mig inn í sturtu, sápa kroppinn og nudda vel. Strýk sápu frá auganu til þess að ná í meira á klossasúrar tær þegar linsan fer skyndilega á flakk. Ég sest á hækjur mér í hvelli, píri eineygður niður á freyðandi gólfið, skrúfa fyrir sturt- una með annairi hendi og róta í froð- unni með hinni. Já, þama er helvítið, í metra fjarlægð og tíu sentímetra frá niðurfallinu. Á hraðri siglingu. Nú koma gamlir markmannstaktar í góðar þarfir, ég skutla mér eldsnöggt á linsuna með vinstri hendi en finn hvernig hún smýgur milli baugfingurs og löngutangar og áleiðis niður á við. Ekki eru allir dagar Bogomils Font, dagar víns og rósa. Tilfinningin var afturábak, eins og ég væri á barmi uppgötvunar Best að vera svalur og hringja bara í lögguna á leiðinni út Mér finnst eins og ég hafi verið gripinn við ósæmilegt athæfi Fastur Ég er víst talsvert þyngri en á markmannsámnum og ekki nóg með það, langatöngin er föst. Þarna sit ég sem sagt; radd-, lykla-, linsu- og klæðalaus barnadóni, með fing- urinn fastan í niðurfallinu, og þykist upptekinn við eitthvað mjög merki- legt meðan ég rembist við að losna. Brúnir niðurfallsins virðast hins vegar ansi hvassar og ég óttast meiðsl. Ekki nóg með það, því sturtufé- lagarnir þykjast kannast við svipinn á kauða og hópast að til þess að heilsa og þakka fyrir liðnar skemmtanir: „Nei, BLESSAÐUR, ert þetta þú?“, „BOGOMIL?". Ég reyni að láta á engu bera og hvísla að linsan sé týnd og loks glittir í hvítar buxur bjargvættar- ins. Ópið „BAÐVÖRÐUR!" verður til úr ægilegu hráefni og magnast svo um munar á veggjum sturtu- klefans, svo minnir á fmmöskrið aftan úr dimmustu forneskju. Ná- veinið sjálft. Ókyrrð kemur að hópnum, sumir flýja á náðir handklæðanna, aðrir sápa sig sem mest þeir mega en HÖRPULAGA legsteinn með mvnd otr texta. ÍSLENSKIR hugvitsmenn þurfa oft á tíðum að strita til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Rúnar Hartmannsson er einn þeirra. Hann er alinn upp á Skaga- strönd og skortir ekki viljann. Áður var hann verslunarstjóri hjá kaupfélaginu þar, stundaði sjó- mennsku, trésmíðar og verka- mannavinnu. Núna starfar hjá hjá sjálfum sér Djúpavogi 1 í Höfnum á Suðurnesjum og líka hjá dagdeild Flugleiða. Rúnar hannar og vinnur leg- steina, „ég teikna og hanna um- gjörðina, bý til mótin og steypi," segir hann, „allir verkþættir eru á RÚNAR Hartmannsson við vinnu á legsteini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.