Morgunblaðið - 17.06.1997, Side 8
4
GOLF / OPNA BANDARISKA MEISTARAMOTIÐ
Hrakfarir
Mont-
gomeries
SKOTINN Colin Montgo-
merie hefur síðustu fjögur
árin verið besti kylfíngur
Evrópu, en þrátt fyrir það
hefur honum aldrei tekist að
sigra á einu af stóru mótun-
um fjórum. Oft hefur munað
litlu en nógu samt. árið 1992
virtist hann öruggur með sig-
ur á Pebble Beach vellinum
þegar Opna bandaríska
meistaramótið fór þar fram.
En Tom Kite fann taktinn í
rokinu síðasta daginn og
sigraði. Montgomerie tapaði
í þriggja manna umspili á
Oakmont veilinum í sama
móti 1994 þegar Emie Els
sigraði og 1995 tapaði hann
í PGA-meistaramótinu, enn
og aftur í umspili.
Woods í
efsta sæti
UNDRABARNIÐ Tiger
Woods náði ekki að sýna sitt
besta á mótinu, en hann stóð
sig samt nógu vel til að kom-
ast í efsta sæti heimslistans
og verða þar með sá yngsti
til að ná þeim árangri, aðeins
21 árs. Greg Norman frá
Ástralíu hefur verið í efsta
sæti um nokkurt skeið en nú
náði Woods því, aðeins ári
eftir að hann gerðist atvinnu-
maður. Frábær árangur hjá
pilti. Efstu menn eru Woods
með 9,91 stig, Norman (9,78),
Montgomerie (9,61), Ernie
Els (9,31) og Nick Price
(9,24).
Woods gekk
illa að pútta
TIGER Woods reið ekki feit-
um hesti frá viðureign sinni
við Congressional-völlinn.
Þrátt fyrir það gerði hann
margt faliegt sem gladdi
mikinn fjölda áhorfenda sem
fylgdi honum allar 72 braut-
imar. „Ég tek ofan fyrir
þessum velli, hann var mjög
erfíður og fór illa með mig,“
sagði Woods sem sagðist
samt nokkuð ánægður með
margt sem hann gerði. „Pútt-
in fóm með mig. Eg gat ekki
reiknað út réttan hraða í
þeim og þá fór stefnan veg
allrar veraldar," sagði Wo-
ods sem þrípúttaði þrisvar á
seinni níu holunum á laugar-
daginn og endurtók leikinn
á fyrri níu síðasta daginn.
Margir duttu
úr keppni
ELDINGARNAR á föstudag-
inn, öðriun degi keppninnar,
virtust fara illa í suma kepp-
endur og margir frægir kylf-
ingar urðu að sætta sig við
að fá ekki að spila nema tvo
hringi, því eftir það var
keppendum fækkað og til að
komast áfram urðu menn að
leika á 147 höggum, eða sjö
höggum yfir pari. Meðal
þeirra sem ekki komust
áfram má nefna Corey Pavin,
Bernhard Langer, Mark
Calcavecchia, Mark Brooks,
Scott Simpson, Robert Al-
lenby, Ian Woosnam, Curtis
Strange, Masashi Ozaki og
Greg Norman, sem var efstur
á heimslistanum fyrir mótið.
I
ÍÞRÓntR
Reuter
ERNIE Els sigraðl á Opna bandaríska meistaramótinu á sunnudaglnn. Hér slær hann upp úr sandglompu á fjórðu braut. Els lék
síðustu flmm holurnar allar á parl á meðan helstu keppinautar hans fengu óþarfa skolla á 17. holunnl.
Els hafði það sem
Montgomerie vantaði
ERNIE Els frá Suður-Afríku sigraði á Opna bandaríska meistara-
mótinu í golfi um helgina, lék á 276 höggum, einu höggi færra
en Skotinn Colin Montgomerie, sem varð enn og aftur að sjá
af titlinum. Það sem skildi á milli var fyrst og fremst sjálf stjórn.
Els var sex höggum á eftir Montgomerie eftir fyrsta hring, en
lék síðustu þrjá hringina af öryggi á meðan Montgomerie sprakk
á limminu. Els er fyrsti útlendingurinn í 87 ár sem sigrar tvisvar
á Opna bandaríska meistaramótinu.
Veður setti mark sitt á annan
og þriðja dag því þá þurfti að
fresta leik vegna eldinga sem gengu
yfír svæðið. Lokaspretturinn var
spennandi enda voru fjórir að beij-
ast um sigur; Els, Montgomerie,
Tom Lehman og Jeff Maggert.
Maggert heltist þó úr lestinni á síð-
ustu holunum en hinir tveir sáu
sæng sína uppreidda á 17. holunni.
Els hélt ró sinni, lék síðustu fimm
holurnar á pari og hampaði bikarn-
um öðru sinni á þremur árum, en
kappinn sigraði einnig á mótinu
árið 1994, eftir bráðabana meðal
annars við Montgomerie.
„Reynslan kennir manni að halda
ró sinni og það er nauðsynlegt til
að sigra í stórmóti sem þessu, sér-
staklega þegar mjótt er á munun-
um,“ sagði Els eftir sigurinn. „Emie
var hræðilega rólegur. Hann er
þannig gerður að hann getur haldið
ró sinni þegar mest á reynir og það
er það sem þarf til að sigra á svona
móti,“ sagði Montgomerie sem lék
með Els í síðasta riðli á sunnudag-
inn.
Montgomerie viðurkenndi á
sunnudaginn að hann hugsaði of
mikið um þann vafasama heiður að
vera útnefndur besti kylfingurinn
sem aldrei hefur sigrað á stórmóti.
„Eg er aðeins mennskur og viður-
kenni því fúslega að ég grét eftir
að ljóst varð að ég myndi missa enn
eina ferðina af sigri á stórmóti,“
sagði hinn 33 ára gamli Skoti sem
aldrei þessu vant lét áhorfendur fara
í taugamar á sér og skammaði þá
á föstudaginn þegar hann þurfti að
bíða í fímm mínútur eftir þögn þeg-
ar hann var að pútta á 17. flöt.
Hann sló síðan á létta strengi og
sagði: „Ef ég held áfram að banka
svona harkalega á dymar hlýtur það
að enda með því að þær opnast."
Lehman reyndi eins og hann gat
að halda í við Els en möguleikar
hans hurfu þegar hann sló í vatnið
við 17. flöt. „I síðasta hring varð
ég að spila af ákveðni og alltaf
beint á pinna til að eiga möguleika.
Eg hafði möguleika og Monty
[Montgomerie] líka. Mér líður illa
yfir því að hafa ekki sigrað og mér
finnst eitthvað vanta þó svo ég
hafi alltaf einn sigur á stórmóti til
að hugga mig við, en Monty hefur
aldrei sigrað. Honum hlýtur að líða
hræðilega," sagði Lehman sem var
valinn besti leikmaður Bandaríkj-
anna í fyrra. Hann hefur haft for-
ystu fyrir síðasta dag Opna banda-
ríska síðustu þrjú árin, en ávallt
þuft_ að játa sig sigraðan.
„Ég hef alltaf verið sannfærður
um að ég gæti sigrað á stórmóti,
þau em allt öðruvisi en önnur mót
því þá þarf maður að einbeita sér
mun meira og kafa djúpt í sálartetr-
ið til að halda stöðugleika. Sjáið
hvernig Nicklaus gerði þetta, en
hann hefur 18 sinnum sigrað á stór-
móti. Hann var alltaf með fulla
stjórn á sveiflunni og á leik sínum.
Ég veit að það er erfitt að gera
slíkt, en ég held að þetta sé allt
að koma hjá mér,“ sagði Els.
Afi hjálpaði mér mikið
Foreldrar Els vom meðal áhorf-
enda á sunnudaginn, en þau leika
bæði golf og hafa gert í 27 ár, eða
frá því Els fæddist. Það var Érnie
Vernaak, móðurafi Els, sem kynnti
þau fyrir golfíþróttinni þegar hann
fæddist og Els ræðir oft við þennan
89 ára gamla kylfing. „Ég hringdi
heim á laugardaginn og ræddi við
afa. Mér fannst ég verða að heyra
í gamla manninum, hann er svo
fróður og vitur. Eftir samtalið leið
mér mjög vel og ég hugsaði mikið
til hans síðasta hringinn,“ sagði
meistarinn.
Nicklaus heldur áfram
GOÐSÖGNIN Jack Nicklaus segist ekki á þeim buxunum að hætta
keppni meðal þeirra bestu þó hann sé orðin 57ára og hafi tekið þátt
í 150 stórmótum í golfi og sigrað 18 sinnum. „Ég hef trúlega ekki
leikið eins vel og ég er að gera þessa dagana í ein tíu ár,“ sagði Nick-
laus eftir að hann hafði lokið leik á fjórum yfir pari á sunnudaginn,
en alls lék hann á 13 yfir pari vallarins. „Það lýtur út fyrir að ég sé að
ná mér á strik á ný. Mjöðmin virkar ein sog hún á að virka og ég
skemmti mér konunglega í golfi og meðan svo er sé ég enga ástæðu
til að hætta,“ sagði Gullni björninn. Gary sonur hans tók þátt í mót-
inu en hann náði ekki niðurskurðinum eftir tvo daga þannig að faðir
og sonur léku ekki saman síðustu tvo dagana eins og „gamli“ maður-
inn hafði vonað. Annar sonur hans, Steven, var þó með Nicklaus allan
tímann því hann var kylfusveinn hjá föður sinum.