Morgunblaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
-l
Dýraglens
330 Ia&hmíP) 5T/UZF4R ( Þ*r | í ) / HJ/H&ARJ ( 'IEZW 6ÓSU& ^ \ ^ ( Föeihjsi? | A1ÉR. HEFÖR. VBRið SAGTAÐÉGSá j FRa/hú/zskaranui ) 'A ÖLUIMSt/IÐUM (
í T \ ..T":
in r t Ifcr111 **—"'®— Oghöreservaf* Sor/\cen, Ine. !/*■ v
Greftir
SÍPAN LeVFOM
V'IOANSANINNI
AO ryLLA
HEBBEKGID...
Smáfólk
15 TMERE 5ÖMETMIN6
WK0N6 WITH U5,0LAF?
HAVE U)E WA5TEP
OUR LIVES?
~ar
IT LL BE PIFFERENT
U)HEN WE FINP5PIKE,
ANP HEINTR0PUCE5 U5
TOMICKEV M0U5E..
MAVBE HECAN
6ET US ON 50ME
TALK 5HOLU5..
^a-
U)E
CANT
TALK
MAVBE U)E COULP
PRETENP WE'RE
LITTLE KIP5 |N
P06 5UIT5..
Er eitthvað athugavert Það mun breytast þegar við Kannski hann geti Við getum ekki talað. Kannski
við okkur, Lubbi? Höfum finnum Sám og hann kynnir útvegað okkur ein- að við getum látist vera litlir
við sóað lífi okkar? okkur fyrir Mikka Mús ... hvern spjallþátt... krakkar í hundafötum ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Fögnum ungl-
ingsárunum
Frá Hope Knútsson:
BARN þroskast og verður að ungl-
ingi og síðar fullorðið. Trúlega voru
skilin skarpari fyrr á öldum og
unglingshlutverkið varla til. En
unglingsárin eru
mikilvæg og
gegna hlutverki
í nútíma samfé-
lagi. Þau eru
tími mikilla
breytinga hjá
unglingum. Þau
eru mótunarár
fyrir verðandi
sjálfstæðan ein-
stakling. En um-
gjörð sú sem þjóðfélagið býður
unglingum hefur afgerandi áhrif á
hvernig til tekst. Það er spennandi
verkefni að bæta aðbúnað unglinga.
Hefð er fyrir því að fagna þegar
barnsárunum lýkur. Hér á landi
hafa þessi tímamót verið tengd trú-
arlegri athöfn eða fermingu. Ferm-
ingarundirbúningur eins og hann
hefur verið hjá kirkjunni er barn
síns tíma. Þeir sem hafa viljað
breyta til og undirbúa unglinga
undir lífið og fagna þessum tíma-
mótum á annan hátt hafa ekki átt
úr mörgu að velja. Félagið Sið-
mennt vill koma til móts við ný við-
horf unglinga og býður upp á ann-
ars konar athafnir.
Tilgangur með borgaralegri
fermingu er að efla heilbrigð og
farsæl viðhorf unglinga til lífsins
og kenna þeim að bera virðingu
fyrir manninum, menningu hans og
umhverfi. Fermingarbörnin sækja
vönduð námskeið þar sem þau læra
sitt af hveiju til undirbúnings þess
að verða fullorðinn. Meginviðfangs-
efni eru mannleg samskipti, mann-
réttindi, siðfræði, lífsviðhorf, til-
finningar, kynlíf, varnir gegn vímu-
efnum og umhverfismál. Ungling-
arnir koma saman vikulega í 12
vikur. Að því Ioknu fer fram hátíð-
leg athöfn í opinberum sal. Þar er
dagskrá með stuttum ávörpum,
söng, spili og ljóðalestri og ung-
mennunum er afhent skjal sem
staðfestir þátttöku þeirra. Fram-
haldið er í höndum hverrar fjöl-
skyldu. í fyrra fermdust 50 börn
borgaralega á höfuðborgarsvæðinu
og 2 á Norðurlandi. Til að fá frek-
ari upplýsingar um borgaralega
fermingu er bent á heimasíðu Sið-
menntar: http://www.island-
ia.is/sidmennt. Einnig er hægt að
hringja í Siðmennt. Kynningarfund-
ur um borgarlega fermingu verður
haldinn laugardaginn 25. október
kl. 11-13 í Kvennaskólanum en
skráningarfrestur er til 1. nóvember.
HOPE KNÚTSSON,
formaður Siðmenntar.
Heilbrigðir og
bílastæði fatlaðra!
Frá Rafni Hagan Steindórssyni:
Ég fór sl. mánudagsmorgun í
rannsókn á Landspítala. Þá var
aðeins eitt bílastæði fyrir fatlaða
laust. Önnur stæði, merkt fötluðum,
voru nýtt af bílum án P-merkis, en
þannig eru bílar fatlaðra merktir,
minn sem annarra.
Mér fínnst ósvífni þegar heil-
brigðir leggja bílum sínum í stæði
sérmerkt fötluðum (mynd af hjóla-
stól á skilti). Ég hvet heilbrigt fólk
til að sýna þá háttvísi og tillitssemi
að virða rétt fatlaðs fólks til þess-
ara sérmerktu bílastæða.
RAFN HAGAN STEINDÓRSSON,
Trönuhjalla 1, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.